Morgunblaðið - 31.10.1992, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Víkingaskipið Gaia tók land á Heimaey 14. júní 1991. Svo sem allir minnast var okk-
ar ástsæli forseti, Vigdís Finnbogadóttir, guðmóðir skipsins. Gaia fór frægðarför í
minningu Ameríkulandfundar Leifs Eirikssonar, Grænlandskristniboða Ólafs Noregs-
konungs Tryggvasonar árið 1000. íslandskristniboðar Ólafs Noregskonungs, samland-
ar Leifs, Gissur hvíti Teitsson og Hjalti Skeggjason tóku land á Heimaey 10. júní
árið 1000.
Héraa era framkvæmdir við styttingu Hörgaeyrargarðsins komnar vel á veg, m.a.
Garðhausinn með ljósmerkinu horfinn. Hægra megin kemur Hörgeyrin vel í ljós. Nú
er unnið að veglegu listaverki eftir Grim Marinó sem þarna á að rísa með tilheyr-
andi ljóskeri og sjálfsagt er að koma einnig fyrir hæfilegum steini úr Hörgaeyri
með viðeigandi áletrun um sögulegar staðreyndir frá þriðjudaginum 18. júní árið 1000.
1000 ára saga kristni á íslandi
eftir Jóhann
Friðfinnsson
Það var maklegt er Alþingi 26.
mars 1990 samþykkti þingsálykt-
unartillögu um samningu ritverks
um kristni á íslandi.
Óðum líður að þeim tímamótum
við aldaskil, árið 2000, að haldið
verður upp á 1000 ára minni
kristnitökunnar.
Þakka ber boð Reykjavíkurborg-
ar og ristjómar Sögu kristni í 1000
ár fyrir að efna til málþingsins er
haldið verður í dag í Viðey. í sögu-
legu tilliti er staðurinn einkar vei
valinn og ömefnin þar kann ég vel
að meta, einhvem tímann var
manni kennt, að í Viðey væri aðal-
eyjan kennd við Heimaey, en til
endanna væri Austurey og Vestu-
rey.
Þjóðin stendur í mikilli þakkar-
skuld við forráðamenn Reykja-
víkurborgar fyrir þann metnað og
stórhug er sýndur var endurreisn
Viðeyjarstofu og umhverfis. Öll
getum við nú notið þess er við
sækjum okkar kæra höfuðstað
heim.
Við lofum ætíð minningu sagna-
ritaranna, hve arfleifðin er víða
skýr og gagnorð.
í því sambandi minnist ég á
þessum tímamótum 13. kafla
kristnisögunnar sem greinir frá
íslands kristniboðum Olafs kon-
ungs Tryggvasonar, Gissuri hvíta
og Hjalta Skeggjasyni og landtöku
þeirra á Heimaey í Vestmannaeyj-
um þriðjudaginn 18. júní árið 1000.
Þar skipuðu þeir upp, nánar tiltek-
ið á Hörgaeyri, viði í kirkjuna, en
Ólafur konungur hafði boðað að
reist skyldi, þar sem þeir kæmu
fyrst að landi.
Allt gekk þetta eftir og kirkjan,
í skjóli Heimakletts, bar nafn
Klemensar verndardýrlings sæfar-
enda.
Ekki hefur verið afsannað að
þá hafi risið fyrsta safnaðarkirkja
á landi hér, en vitað er að nokkrir
kristnir höfðingjar byggðu bæna-
hús fyrir sig og sína við híbýli sín.
„Þjóðin stendur í mikilli
þakkarskuld við for-
ráðamenn Reykjavíkur-
borgar fyrir þann
metnað og stórhug er
sýndur var endurreisn
Viðeyjarstofu og um-
hverfis. Oll getum við
nú notið þess er við
sækjum okkar kæra
höfuðstað heim.“
Norðmenn eiga þannig sammert
með íslendingum, að reisa fyrstu
kirkju sína á eyju, Mostur, út af
vesturströndinni.
Þessa dagana er unnið að stytt-
ingu Hörgaeyrargarðsins við inn-
siglinguna á Heimaey. Segja má,
að garðurinn hafi nánast lokið sínu
mikla hlutverki í meira en hálfa
öld, til vemdar flota og mannvirkj-
um, er almáttug hönd Guðs stýrði
Jóhann Friðfinnsson
hraunrennsli til sjávar í jarðeldun-
um 1973.
Þar sem úthafsaldan, oft ógnar-
leg, með hræðilegum afleiðingum
hafði brotnað um aldaraðir er nú
komið lygna og skjól og þess vegna
má garðurinn víkja, svo Hörgaeyr-
in kemur vel í ljós.
Það er harmsefni, hve saga þjóð-
arinnar á öldum áður var oft blóði
drifin.
En hvemig hefði hún orðið ef
ekki hefði notið okkar viðsýnu
mannvina, sem fengu því ráðið hve
friðsamleg kristnitakan varð í
uppðhafi?
Og hver væri tunga okkar ef
kristninnar menn með Odd og
Guðrbrand í forystu hefðu ekki
gefið þjóðinni Nýja testamentið og
síðar Biblíuna á 16. öld?
Það verður fróðlegt og forvitni-
legt að fylgjast með og heyra hug-
leiðingar og ályktanir er fram
koma á Viðeyjarmálþinginu í dag.
Söguþjóðin hefur aldrei átt fleiri
og betri menntaða lærdómsmenn
til að takast á við verkefnið og því
væntum við að niðurstöður verði
aðgengilegar og áhugaverðar.
Þá er tilganginum náð.
Höfundur er safn vörður Byggða-
safns Vestmannaeyja.
Eir verður heimili aldr-
aðra, blindra og sjúkra
eftir Halldór
S. Rafnar
Það er sannkölluð hrollvekja að
vera gamall, sjúkur og blindur og
eiga ekki vísan samastað. Svona
er þvi miður komið fyrir mörgum.
Það var vegna þessa sem við hjá
Blindrafélaginu hófum fyrir nokkr-
um ámm athugun á því hvernig
unnt væri að létta þessum illa stödd-
um meðbræðrum og systrum lífíð.
Hvemig hægt væri að skapa sjúk-
um, blindum og öldruðum sæmilegt
ævikvöld.
Blindir og blindravinir
aðilar að Eir
í fyrstu var athugað hvort við
gætum byggt hjúkrunarheimili en
við sáum fljótlega að til þess höfð-
um við ekki bolmagn. Ýmsir kostir
voru skoðaðir en lyktir urðu þær
að eftir samtal við þáverandi borg-
arstjóra í Reykjavík og ábendingar
hans ræddi ég við Pál Gíslason yfir-
lækni. Hann var þá ásamt fleirum
með hugmyndir um byggingu og
stofnun hjúkrunarheimilis fyrir
aldraða í Reykjavík. Blindrafélagið
ákvað þátttöku í málinu. Við leituð-
um samstarfs við Blindravinafélag-
ið og um þetta mál og að litlum
tíma liðnum voru Blindrafélagið og
blindravinir komnir í hóp þeirra
samtaka og sveitarfélaga sem
standa að Hjúkrunarheimilinu Eir.
Með hlutdeild okkar í þessu þarfa
framtaki höfum við tryggt nokkrum
hluta þeirra sem við berum sérstak-
lega fyrir bijósti, þ.e. þeirra sem
eru blindir, aldraðir og sjúkir, heim-
ili síðasta kafla lífshlaupsins.
Meira en helmingur blindra
á íslandi yfír sjötugt
Hvarvetna í hinum vestræna
heimi hækkar meðalaldur fólksins.
Jafnframt vex þörfin fyrir heimili
þar sem aldraðir sjúkir eigi sama-
stað. Á íslandi er helmingur blindra
yfir 70 ára gamall. Þetta hlutfall
er ennþá hærra sumstaðar erlendis.
Hér fyrr meir var augnsjúkdómur-
inn gláka aðal blinduvaldurinn. Á
síðari árum hafa læknar náð tökum
á þessum sjúkdómi. Þótt enn sé
ekki þekkt aðferð til þess að lækna
gláku er mögulegt að tefja fyrir
sjúkdómnum og fólk heldur sjón
mun lengur en ella. Aðal blinduvald-
ur nú er elli.
Hjúkrunarheimilið Eir, sem nú
er risið við Gangveg í Grafarvogi,
verður á næstu vikum tilbúið að
taka á móti fyrstu vistmönnum. Það
er vel því þörfm er mikil. í fyrstu
mun verða unnt að taka á móti 60
heimilismönnum á almenna hjúkr-
unardeild. Áfram verður haldið við
innréttingar og búnað, innan dyra
sem utan, og tvær sérdeildir, fyrir
sjúka blinda og fyrir fólk með heila-
bilun (alzheimer-sjúka), verða
væntanlega tilbúnar seint á árinu
1993. Alls mun Hjúkrunarheimilið
Eir hýsa 120 heimilismenn, þar af
er rými fyrir 24 einstaklinga á sér-
stakri móttökudeild. Þar mun fara
fram greming og endurhæfíng og
ýmsir sem þangað koma munu
væntanlega hverfa á ný til síns
gamla heimilis. Þannig mun þessi
deild koma í veg fyrir ótímabæra
vistun á hjúkrunarheimili.
Sérhannaðar deildir
Bæði þeir sem þjást af heilabilun
(alzheimer) og sjúkir blindir þarfn-
ast nokkurs sérbúnaðar til þess að
auðvelda umgang um húsakynnin.
Þannig treysta blindir og sjón-
skertir mjög á heyrnina til þess að
komast leiðar sinnar. Á heimili
þeirra sem vart sjá mun dags og
nætur er mikil um vert að hljóð,
t.d. frá rennandi vatni eða klukku
á vegg auðveldi þeim sem leið eiga
um að átta sig á því hvar þeir eru
staddir og í hvaða átt skuli halda.
Þá eru hurðir og hurðarhúnar í
sterkum litum mikil hjálp. Á íbúðar-
göngum er mikils um vert að her-
bergisnúmer séu stór, í sterkum lit
og upphleypt. Á Hjúkrunarheimil-
inu Eir verður það nýmæli að lyftur
í húsinu verða búnar tækjum sem
Halldór S. Rafnar
„Bygging Hjúkrunar-
heimilisins Eirar er
mikið og þarft framtak.
Heimilið verður brátt
tilbúið til þess að taka
á móti fyrstu vistmönn-
um.“
segja til um á hvaða hæð lyftan er
stödd hveiju sinni. Þetta verður
blindum ómetanleg hjálp.
Bygging Hjúkrunarheimilisins
Eirar er mikið og þarft framtak.
Heimilið verður brátt tilbúið til þess
að taka á móti fyrstu vistmönnum.
Ég vona að þrátt fyrir samdrátt og
spamað, sem nú um stundir telst
tímabær, geti þessi nauðsynlega
starfsemi hafist snemma á næsta
ári. Þörfin er vissulega mikil. Ég
heiti á alþingismenn og -konur að
veita okkur lið í þessu máli. Að
þetta glæsilega hús komi sem fyrst
að þeim notum sem til er stofnað.
Mér finnst hryggilegt til þess að
hugsa að aldraðir sjúkir þurfi að
búa einir og án viðhlítandi umönn-
unar. Það sæmir ekki að þeir sem
lagt hafa sitt af mörkum á langri
starfsævi lifi síðustu árin við niður-
lægjandi kjör.
Leggið okkur lið
Um leið og ég heiti á alþingis-
menn að duga okkur vel beini ég
líka máli til klúbba og félagasam-
taka sem láta mikið gott af sér leiða
í samfélagi okkar. Þótt húsið sé
komið upp og starfsemin hefjist
væntanlega á næstu mánuðum
kemur ýmsan búnað til með að
vanta. Hér er ekki verið að biðja
um stórar gjafir enda þótt þær
væru vel þegnar, heldur fyrst og
fremst smærri framlög sem myndu
flýta fyrir fullbúnaði heimilisins.
Við sem stöndum að Hjúkrunar-
heimilinu Eir vonum svo sannarlega
og vitum reyndar að það muni
standa undir nafni. Heimilið ber
nafn gyðju Iækninga og líknar. Þar
mun verða kappkostað að láta öldr-
uðum sjúkum líða svo vel sem kost-
ur er. Þar mun líka verða lögð rík
áhersla á að aldrað sjúkt fólk lifi
við reisn síðustu æviárin.
Höfundur er lögfræðingur og
framkvæmdasljóri Blindra-
félagsins. Hann er einnig
formaður fjáröflunarnefndar
Hjúkrunarheimilisins Eirar.