Morgunblaðið - 31.10.1992, Page 17

Morgunblaðið - 31.10.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992 17 Hví slærð þú, Óli? Svar við opnu bréfi Ola Agústssonar, forstödumanns Samhjálpar hvítasunnumanna eftirÞórhall Höskuldsson í opnu bréfi í Morgunblaðinu 27. þ.m. verður þér tíðrætt um „ósann- indi'‘ sem ég á að hafa viðhaft á kirkjuþingi og hafa dæmt starf Samhjálpar að áfengismeðferð „sem annars eða þríðja flokks“. Þessar staðhæfingar þínar eru fjarri sanni og þær ályktanir sem þú dreg- ur af þeim á sama hátt á sandi byggðar. Þau skeyti sem þú sendir mér persónulega sem þér alls ókunnum manni og sem þú vitir ekki til að þekki starf Samhjálpar að neinu leyti, leiði ég líka hjá mér. Þau minna mig helst á við- brögð Jóns sterka í Skugga-Sveini, sem sá drauga í hveiju horni. Þeg- ar hann var minntur á einn til, varð honum að orði: „Þann draug þekki ég ekki og þekki ég þó fram undir fjörutíu.“ Slík skrif, sem ætla öðrum það sem hann hefur ekki sagt, meiða í sjálfu sér ekki annan en þann sem slíkt ritar og gefa því ekki tilefni til andsvara. Hitt þykir mér alvar- legra, þegar orð mín og gjörðir á kirkjuþingi eru notuð af öðrum til sjálfsréttlætingar eða til að þeir geti komið höggi á þá sem síst skyldi. Sé ég mig því tilneyddan til að setja nokkur orð á blað um þessi skrif þín. Lesendum til glöggvunar vil ég birta hér orðrétta þá tillögu til þingsályktunar, sem ég mælti fyrir á kirkjuþingi 26. október sl.: „Kirkjuþing lýsir yfir stuðningi við það forvarnar- og meðferðarstarf sem unnið hefur verið gegn áfeng- is- og vímuefnaneyslu á undanförn- um áratugum. Þetta starf er sér- staklega brýnt nú þegar áfengis- og vímuefnaneysla fer vaxandi með þjóðinni og sem hefur í för með sér að afbrotum fjölgar. Kirkjuþing tekur undir það álit að vímuefnavandanum verði best mætt með öflugu forvarnar- og meðferðarstarfí, svo að íslenskt samfélag verði síður eftirsóttur markaður fyrir eiturlyfjadreifendur. Á sama tíma og vandinn fer vax- andi, varar kirkjuþing við öllum áformum stjórnvalda um að draga úr þeim forvamar- og meðferðarúr- ræðum sem nú eru fyrir hendi. Kirkjuþing tekur jafnframt undir áhyggjur þeirra sem að áfengis- vörnum vinna yfir áformum heil- brigðisyfirvalda, um að afhenda þau meðferðarúrræði, sem nú standa til boða, aðilum sem bjóða upp á ódýr- ari lausnir. Kirkjuþing lýsir yfír vilja sínum til að styðja allt það starf sem nú fer fram gegn áfengis- og vímuefnavandanum og samrýmist hugmyndum þjóðkirkjunnar um heilbrigða lífshætti." Svo mörg voru þau orð sem gefa bréfritara tilefni til að „leiðrétta ósannindi", sem ég á að hafa haft í frammi og hann „undrar sig á að hægt sé að leyfa sér í skjóli hempu og hökuls“\ Þegar ég mælti fyrir þessari tillögu undirstrikaði ég að tilgangur hennar væri fyrst og fremst sá að lýsa fullum stuðningi við það forvarnar- og meðferðar- starf sem unnið hefur verið á vegum SÁÁ og geðdeilda hinnar opinberu heilbrigðisþjónustu og vara við því að niðurskurðarhnífnum verði svo ótæpilega beitt, sem fjárlagafrum- varpið fyrir 1993 gerir ráð fyrir. Ég minntist hvorki á Samhjálp eða Krossinn sérstaklega en benti kirkjuþingsmönnum á hjálögð gögn, sem fylgdu tillögunni. Þar var m.a. að finna_ athugasemdir fangaprests, séra Ólafs Jens Sig- urðssonar, í greinargerð, og sem skrifuð var undir fullu nafni hans, og fleiri gögn, sem flutningsmönn- um tillögunnar þótti rétt að kirkju- þingsmenn skoðuðu. Ég vitnaði m.a. til orða Jóhannesar Berg- sveinssonar í Morgunblaðinu 24. okt. sl., þar sem vakin er athygli á að fyrirhugaður niðurskurður fæli í sér nær 75% skerðingu fyrir áfeng- is- og vímuefnaskor Landspítalans og myndi raska allri starfsemi þar „En hér er verið að ræða um meðferð á sjúkdómi og þar hljót- um við að gera kröfur um öll þau bestu úr- ræði, sem læknavísind- in og fagleg þekking hafa yfir að ráða. Það tel ég í anda heilbrigðr- ar trúar og þar vil ég einnig sjá Guð að verki.“ að meðferð áfengis- og vímefna- sjúklinga og um leið allri kennslu heilbrigðisstétta við háskólasjúkra- húsið varðandi þessa alvarlegu sjúkdóma. Einnig gat ég um að gagnvart SÁÁ myndi skerðingin valda miklum vanda og draga stór- lega úr þjónustu á eftirmeðferðar- stöðvum. Greinargerð er að sjálfsögðu að- eins tilefni ályktunar eða nánari skýring, en aldrei kjami hennar. En að mínum dómi er full ástæða til þess að kirkjuþing gefí gaum að þeim áhyggjum sem þar eru settar fram. Þar talar sá embættismaður þjóðkirkjunnar, sem nær stendur afleiðingum áfengis- og eiturlyfja- vandans en flestir aðrir starfsmenn hennar. Efast ég ekki um að hann getur rökstutt þær ábendingar sjálfur, en þar vekur hann m.a. athygli á að hugmyndafræði ákveð- inna trúarhópa um eðli og orsakir áfengissýkinnar sé ósamrýmanleg þeim sem aðrir styðjast við. Og það sem ekki er síður alvarlegt, að dæmi sé um að sjúklingum sé ráð- lagt að leita ekki lækninga á geð- deildum eða meðferðarstöðvum við áfengissýki. Þessi atriði nefnir tillagan á kirkjuþingi þó alls ekki. Þar er að- eins talað um „ódýrari lausnirí. Ef þú vilt fella starf Samhjálpar undir Þórhallur Höskuldsson þá skilgreiningu, er það þitt mál. Spamaður er almennt góðra gjalda verður, en ég óttast að svo stórfelld- ur niðurskurður, sem hér um ræðir, sé tvíeggja og muni aðeins draga úr en ekki auka þjónustuna. Skýringar þínar á því hvernig Samhjálp skilgreinir áfengissýkina vona ég að sýni að stofnunin byggi ekki á umdeilanlegri hugmynda- fræði. Hinu neita ég ekki að yfirlýs- ing þín veldur mér nokkrum áhyggj- um, að „Samhjálp muni sækja það af alefli að fá aðstöðu til þess að sýna hvers trúin er megnug í að Farmiðar með ofangreindum skilmálum til Kaupmannahafnar, Lundúna, Óslóar, Lúxemborgar, Amsterdam og Gautaborgar kosta 26.900 krónur, en lægstu fargjöld til þessara borga voru frá 31.460 upp í 33.750 kr. í desember í fyrra. endurskapa fólk“, svo að ekki sé talað um þau orð þín að það sé „eitt af markmiðum heilbrigðis- áætlunar ríkisstjómarínnar að efla félagasamtök af þessum toga“. Gildi trúarinnar til hjálpar og lausnar í öllum mannlegum vanda, vefengi ég að sjálfsögðu ekki. Og opinberlega hefi ég líka aðeins látið hlý orð falla um alla þá sem vilja leggja baráttunni við áfengis- og vímuefnavandann lið í nafni trúar sinnar. En hér er verið að ræða um meðferð á sjúkdómi og þar hljótum við að gera kröfur um öll þau bestu úrræði, sem læknavísindin og fag- ieg þekking hefur yfir að ráða. Það tel ég í anda heilbrigðrar trúar og þar vil ég einnig sjá Guð að verki. Persónulega á ég ekki í neinum útistöðum við Samhjálp eða aðra og fæ af framansögðu ekki séð að ég hafi nokkurn „slegið“ með til- löguflutningi mínum á kirkjuþingi. Miklu fremur „slærð“ þú mig fyrir „ósannindrí sem ég hef ekki við- haft. Ég finn mig þó ekki sáran eftir og býð þér fúslega hina kinnina ef þú flokkar orð mín enn undir „óheiðaríegan áróðurí eða vilt finna fleiri þér ókunna „drauga“ í þessu máli. Að öðru leyti óska ég þér alls góðs í mikilsverðu starfi þínu og Samhjálpar gegn áfengis- og vímu- efnabölinu. Höfundur er sóknarprestur á Akureyri og sljórnarmaður í SÁAN á Akureyri. Farmiði til Glasgow kostar 22.000 kr. en lægsta fargjald þangað í desember í fyrra var 24.480 kr. Mest lækkun verður á fargjaldi til Stokkhólms. Það var 39.630 kr. í desember í fyrra en verður nú 28.900 kr. sem er 27% verðlækkun. Flugleiðir 15-27% lækkunjóla- fargjalda til Evrópu SÉRSTÖK jólafargjöld verða í boði hjá Flugleiðum til áfangastaða í Evrópu á 15-27% lægra verði en í boði var í fyrra. Flugleiðir segja að með lækkuninni sé stefnt að því að fjölga farþegum og auka tekj- ur þrátt fyrir lækkunina. Fargjöldin gilda frá 1. til 31. desember og hefst sala á þeim 1. nóvember. Lágmarksdvalartími er sex dagar og hámarksdvöl ytra er 30 dagar. Kvikmynda- sýning í Norræna húsinu SÆNSKA myndin „Mio min Mio“ verður sýnd sunnudaginn 1. nóv- ember kl. 14 í Norræna húsinu. Myndin fjallar um Bosse, sem er 9 ára og býr í Stokkhólmi hjá fóst- urforeldrum sínum. Lífið er ekki alltaf auðvelt hjá honum og einn dag þegar hann situr á bekk í garði kemur til hans andi. Andinn var sendur til að ná í Bossa og fara með hann til Landsins í fjarska. Bosse fer með honum og þá lendir hann í ævintýraheimi sem er fullur af töfraskógum, dularfullum hellum og söngfuglum en þar leynast líka aðrir hlutir. Myndin er ætluð eldri bömum og er hún um 100 mín. löng með sænsku tali. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. (Fréttatilkynning) ■ Á PÚLSINUM sunnudaginn 1. nóvember stendur íslenska blúsfé- lagið fyrir blúskvöldi. Þar kemur fram hin nýstofnaða blússveit Sig- urverkið og leikur hún fyrir gesti órafmagnaðan blús undir áhrifum zydeco og cajun tónlistar. Til stend- ur að setja upp sérstök sviðstjöld í tilefni tónleikanna þannig að sviðið líti út eins og gömul hlýleg stofa. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 22 og standa til kl. 1. VERÐLÆKKUN ídyra veröi frd Civic 899 000 4dyra Civic veröi frá 178 000 Gerðu raunhæfan samanburð á verði og gæðum. Accord er sérlega vandaður og vel heppnaður bíll jafnt að utan sem innan. Verð eftir lækkun: Accord EX með sjálfskiptingu: 1.518.000,— Accord EXi með sjálfskiptingu: 1.615.000,- Einkenni Civic eru fegurð og glæsileiki. Þetta er btll sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Nú býðst Civic á einstaklega hagkvæmum kjörum. Verð eftir lækkun: Líttu við f Vatnagörðum 24 og kynntu þér góða bíla og greiðslukjör við allra hæfi. Tökum góða notaða bíla sem greiðslu upp f nýjan. 0 HOXDA ÁRÉTTRI LÍNU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.