Morgunblaðið - 31.10.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992 25
Stefnir í nýtt borg-
arastríð í Angóla
Luanda. Reuter.
FIMMTÁN manns féllu í gær í árásum liðsmanna Unita-hreyfingar-
innar í Angóla, meðal annars á.eitt úthverfi höfuðborgarinnar, Lu-
anda, og á lögreglustöð í Huambo, næststærstu borginni. Þá reyndu
þeir einnig að sögn Angólastjórnar að ná á sitt vald flugvellinum í
Luanda. Ottast flestir, að stríðið sé að brjótast aftur út í landinu.
Reuter
Pik Botha á blaðamannafundi ásamt Lopo de Mascimento, sendi-
manni angólsku stjórnarinnar.
Lamont
boðar
þensluað-
gerðir
NORMAN Lamont, fjármála-
ráðherra Bretlands, sagði í
gær að breska stjómin myndi
nú leggja höfuðáherslu á að
auka hagvöxtinn og ráðast í
vega- og járnbrautafram-
kvæmdir í því skyni að skapa
ný atvinnutækifæri. Hann gaf
ennfremur til kynna að vænta
mætti frekari vaxtalækkana.
Hagfræðingar sögðu þó að
ráðherrann hefði ekki enn
sannfært þá um að stjórnin
hefði mótað trúverðuga efna-
hagsstefnu og myndi ekki
missa tökin á verðbólgunni.
SÞ ráða íraka
til Sómalíu
BOUTROS Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, tilnefndi í gær
íraskan stjórnarerindreka, Is-
mat Kittani, sem sérlegan
sendimann samtakanna í Só-
malíu. Hann tekur við af Als-
írbúanum Mohamed Sahnoun,
sem sagði af sér eftir að Bout-
ros-Ghali hafði gagnrýnt um-
mæli hans um að Sameinuðu
þjóðirnar hefðu ekki brugðist
nógu skjótt við hungursneyð-
inni í Sómalíu.
Danir banna
genapróf
MEIRIHLUTI er á danska
þinginu fyrir frumvarpi til
laga um bann við erfðafræði-
legum rannsóknum á atvinnu-
umsækjendum. Verði frum-
varpið að lögum geta trygg-
ingafélög ekki heldur gert
slíkar rannsóknir á fólki sem
óskar eftir líftryggingum.
Blöskrar sjón-
varpsofbeldið
PAUL Keating, forsætisráð-
herra Ástralíu, gagnrýndi í
gær sjónvarpsstöðvar fyrir að
sýna of mikið af ofbeldi og
sakaði þær um að senda þau
skilaboð til barna og unglinga
að ekkert væri eðlilegra en að
leysa deilumálin með ofbeldi.
Ráðherrann sagði þetta eftir
að rúmlega fertugur Ástrali
hafði myrt sex manns vegna
fjölskyldudeilu.
Karl og Díana
til S-Kóreu
KARL Bretaprins og Díana
prinsessa fara í opinbera
heimsókn til Suður-Kóreu í
næstu viku og er þetta fyrsta
utanlandsferð þeirra saman
eftir mikið fjaðrafok í fjölmiðl-
um vegna sögusagna um erf-
iðleika í hjónabandi þeirra.
Heimsóknin stendur í fjóra
daga og er búist við að fjöl-
miðlar fylgist gaumgæfilega
með hverri hreyfingu þeirra í
von um að finna einhver merki
um ást eða ástleysi.
Flugslys í
Rússlandi
FLUTNINGAVÉL hrapaði í
austurhluta Rússlands í gær-
morgun með þeim afleiðingum
að 14 manns hið minnsta biðu
bana. Flugvélin var af gerð-
inni An-8 og hrapaði skömmu
fyrir lendingu á Chita-flug-
velli, austur af Bajkal-vatni.
Pik Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku, neitaði í gær blaða-
fréttum um, að suður-afrískur hefði
ráðist inn í Angóla til að neyða
Jose Eduardo dos Santos, forseta
Angóla, til að deila völdum með
Jonas Sawimbi, leiðtoga Unita, en
hann heldur því fram, að brögð
hafi verið í tafli í þingkosningunum
fyrir skömmu. Þá tapaði Unita fyr-
ir stjómarflokknum, MPLA.
Angólska ríkisfréttastofan
Angop sagði, að um 40 Unita-menn
hefðu reynt að ná -flugvellinum og
urðu tvær erlendar flugvélar fyrir
nokkrum skemmdum þegar stjórn-
arherinn hrakti þá burt. Af þeim
15 mönnum, sem féllu í gær, voru
fjórir portúgalskir en Portúgalir eru
enn margir í landinu. Að sögn út-
varpsins í Luanda hafa hermenn
Unita lagt undir sig marga bæi í
landinu að undanförnu og virðist
flest benda til, að borgarastyrjöldin
í Angóla, sem stóð í 12 ár, sé að
taka sig upp aftur.
■NfeVLORER
Bíll sem þú verður
að sjá um helgina
Nú er ný sending af þessum ameríska lúxusjeppa komin til landsins. Explorer er glæsilegur
og vandaður jeppi sem hefur fengið frábærar viðtökur hjá íslenskum bílaáhugamönnum frá
því hann kom á íslenskan markað fyrir tveimur árum.
Ford Explorer er gífurlega kraftmikill jeppi með öfluga V6 4,0L EFI vél og 160 hestöfl.
Samt er hann ótrúlega eyðslugrannur.
Ford Explorer hefur gjörsigrað aðra jeppa í öryggisprófunum. Hann er með styrktarbita í
öllum hurðum, sem veitir bílstjóra og farþegum hámarksöryggi, og nú hefur enn einum
öryggisþættinum verið bætt í sem er ABS hemlakerfi á öllum hjólum.
Komdu á sýninguna á nýjum Ford Explorer í Giobus. Sýningin er opin á laugardag
frá kl. 13-17 og sunnudag frá kl. 13-17. Petta er bíll sem þú verður að sjá.
Globus býður viðskiptavinum
sínum Motorola farsima á
mjög hagstæðu verði.
MOTOROLA
Hefur þú ekiö Ford.....nýlega?
FORD ECONOLINE
Sýnum einnig glæsilega
Ford Econoline sendibíla
og Club Wagon.
Globusp
-heimur gœða
Lágmúla 5, sfml 91- 68 15 55