Morgunblaðið - 31.10.1992, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Sýning á glerlista-
verkum í Smiðjunni
SÝNING á glerlistaverkum eftir Höllu Haraldsdóttur verður á
veitingastaðnum Smiðjunni á morgun, sunnudaginn 1. nóvember,
frá kl. 14 til 17 og verður listamaðurinn á staðnum á þeim tíma,
svo og Baldvin Baldvinsson innanhússarkitekt, sem sá um hönnuii
Smiðjunnar.
Smiðjan hefur fest kaup á 16
glerlistaverkum eftir Höllu og
verða því listaverkin áfram á veit-
ingastaðnum, en þau eru sérstak-
lega teiknuð og unnin fyrir stað-
inn. Opið hús verður í Smiðjunni
af þessu tilefni og boðið upp á
léttar veitingar.
Halla Haraldsdóttir er fædd og
uppalin á Siglufírði, en er nú bú-
sett í Keflavík. Verk hennar eru
víða um land, í opinberum stofnún-
um og fyrirtækjum auk verka í
einkaeign.
Baldvin Baldvinsson innanhúss-
arkitekt verður einnig í Smiðjunni
á morgun, en hann hefur frá árinu
1986 unnið að sjálfstæðum verk-
um, m.a. er hann innanhússarki-
tekt Smiðjunnar.
♦ ♦
Styrkur, félag krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
verður með opið hús í Glerárgötu
36, 3. hæð, á skrifstofu Krabba-
meinsfélags Akureyrar og ná-
grennis frá kl. 20 til 22. Opið hús
verður hjá félaginu fyrsta mánu-
dag í hveijum mánuði í vetur, en
auk þess er fyrirhugað að efna til
ferðalaga, leikhúsferða, spilavista
og fleira.
Húseign til sölu
Byggóastofnun auglýsir til sölu
húseignina Furuvelli 1, Akureyri.
Húsið er tveggja hæða steinsteypt
bygging um 1.250 m2 ásamt áföstu
stálgrindarhúsi á einni hæð um 400 m2.
Húsnæðið má nýta undir fjölbreytta
starfsemi, s.s. verslanir,
iðnaðarframleiðslu, skrifstofur og
fleira.
Nánari upplýsingar veitir
Benedikt Guðmundsson,
Byggðastofnun, Akureyri,
í síma 96-21 210.
is FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Ibd Á AKUREYRI
Athygli er vakin á að breyting hefur orðið
á símatímum lækna Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyr . Frá og með 1. nóvember
1992 eru símatímar lækna eftirfarandi:
Ari H. Ólafsson miðvikudaga kl. 15.15-15.45
Baldur Jónsson mónudaga-föstudago kl. 11.00-11.30
Brynjólfur Ingvarsson mónudaga-föstudaga kl. 10.00-10.30
Edward Kiernan þriðjudaga kl. 13.00-14.00
fimmtudaga kl. 13.00-14.00
Friðrik E. Yngvason miðvikudaga kl. 13.00-14.00
föstudaga kl. 13.00-14.00
Geir Friðgeirsson mónudaga-föstudaga kl. 11.30-12.00
Ingvar Teilsson mónudaga-fimmtudaga kl. 12.00-12.30
Jón Ingvar Ragnarsson miðvikudaga kl. 13.30-14.00
Jón Þór Sverrisson mónudaga kl. 13.00-14.00
föstudaga kl. 13.00-14.00
Júlíus Gestsson miðvikudoga kl. 14.15-14.45
Magnús Stefónsson mónudago-föstudaga kl. 10.30-11.00
Nick Cariglia föstudaga kl. 11.00-12.00
Póll Tryggvason mónudaga-föstudaga kl. 10.00-10.45
Sigmundur Sigfússon mónudaga kl. 10.00-10.30
fimmtudaga kl. 10.00-10.30
Þorkell Guðbrandsson mónudaga kl. 11.00-11.30
miðvikudaga kl. 11.00-11.30
föstudaga kl. 11.00-11.30
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Dæla sett niður
Starfsmenn Hitaveitu Akur-
eyrar byijuðu í gær að setja dælu
niður í holu sem boruð var á
Laugalandi við Þelamörk síðastlið-
ið sumar. Reiknað er með að verk*
ið taki nokkra daga, en dælan
verður sett niður á um 220 metra
dýpi. Franz Árnason veitustjóri
sagði að gerðar yrðu tilraunadæl-
ingar úr holunni í allt að sex mán-
uði, en að þeim tíma liðnum ætti
væntanlega að liggja fyrir hver
árangur dælingarinnar verður.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Öldrunarnefnd
• ••
Fjölga þarf hjúkrunar-
rýmum en ekki fækka
OLDRUNARNEFND á starfs-
svæði Heilsugæslustöðvarinnar á
Akureyri hefur sent frá sér bréf
tO heilbrigðisráðherra, fjármála-
ráðherra og sljómar Ríkisspítala
þar sem mótmælt er fyrirhugaðri
skerðingu á fjárframlögum til
Kristnesspítala.
Oldrunamefndin bendir í bréfinu
á að á Norðurlandi eystra eru nú
samtals 204 hjúkrunarrými fyrir
aldraða, en það samsvarar því að
9,78 rými séu til fyrir hveija 100
íbúa sem eru 70 ára og eldri. Sam-
bærileg viðmiðunartala fyrir allt
landið er 10,0 rými á hv,eija 100.
Fæst rými era nú á Reykjavíkur-
svæðinu, eða 8,1 á hveija 100 sem
era yfír sjötugt. Norðurland eystra
er með næstlægstu töluna.
„í Kristnesi eru nú 24 hjúkrunar-
rými fyrir aldraða. Verði þau lögð
niður vegna niðurskurðar á fjár-
framlögum verða aðeins eftir 8,63
rými á hveija 100 eldri en 70 ára
á Norðurlandi eystra. Á sama tíma
er verið að fjölga hjúkranarrýmum
um 150 í Reykjvík. Þá verða þar
9,8 rými fyrir hveija 100.
Að undanförnu hefur verið talað
um neyðarástand í hjúkranarmálum
aldraðra í Reykjavík. Því ber að
Kristniboðs-
samkomur í
Sunnuhlíð
Kristniboðssamkomur verða í
félagsheimili KFUM og KFUK í
Sunnuhlíð dagana 1. til 3. nóvem-
ber og 6. til 8. nóvember og hefj-
ast þær kl. 20.30.
Ræðumenn verða Jónas Þórisson,
framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, Guðlaugur Gunnarsson
kristniboði og Skúli Svavarsson
kristniboði. Alíir ræðumennimir hafa
starfað fyrir íslenska kristniboðið í
Afríku og hafa þeir verið að störfum
bæði í Eþíópíu og Kenýa. Á samko-
munum verður kristniboðið kynnt í
máli og myndum með myndbanda-
sýningum og litskyggnum.
(Fréttatilkynning)
fagna ef úr neyðinni verður bætt á
næstunni. Hins vegar verður lítill
fögnuður á Norðurlandi eystra ef
aldraðir þar eiga að fá yfir sig neyð-
arástand í staðinn.
í stað þess að fækka hjúkrunar-
rýmum fyrir aldraða telur Oldrunar-
nefnd að frekar hefði þurft að huga
að fjölgun á svæðinu, svo aldraðir
hér sitji við sama borð og aldraðir
hjúkranarsjúklingar annars staðar
á landinu," segir í bréfi nefndarinn-
ar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Steingrímur Þorsteinsson við hvítabjörninn sem hann stoppaði
upp og komið verður fyrir á Byggðasafninu Hvoli.
Gaman að fást við
svona stór rándýr
- segir Steingrímur Þorsteinsson
„ÞAÐ ER alltaf gaman að eiga við svona stór rándýr,“ sagði Stein-
grímur Þorsteinsson á Dalvík, en hann hefur stoppað upp heljarstór-
an hvítabjörn, sem afhentur verður Byggðasafninu Hvoli á Dalvík
í kvöld, laugardagskvöld.
Það er Sparisjóður Svarfdæla á
Dalvík sem keypti feldinn og Stein-
grímur gaf vinnu sína við upp-
stoppunina. „Það má segja að tvö
elstu og öflugustu fyrirtækin hér
í bænum hafi lagt saman í púkk,“
sagði Steingrímur.
Björninn var veiddur við Austur-
Grænland og feldurinn fór síðan
til Tromsö í Noregi þaðan sem
hann er keyptur, en hann var unn-
in ytra. Steingrímur var um tvo
mánuði að stoppa björninn upp og
kvaðst hann hafa fengið aðstoð úr
ljölskyldunni við verkið. Þetta er
þriðji björninn sem Steingrímur
stoppar upp, en áður hefur hann
unnið við ísbjörn sem er í Ólafs-
firði og annan lítinn sem felldur
var í Fljótum og er nú í Varmahlíð.
Hvítabjörninn er tveir og hálfur
metri að lengd og þykir stór, en
að sögn Steingríms er talið að há-
markslengd ísbjarna sé um þrír
metrar.
Byggðasafninu Hvoli á Dalvík
verður afhentur hvítabjörninn við
athöfn í kvöld og á morgun, sunnu-
dag, verður safnið opið af þessu
tilefni frá kl. 13 til 18 og gefst
bæjarbúum þá kostur á að líta
skepnuna.