Morgunblaðið - 31.10.1992, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
Ásgeir Pálsson sjó-
maður frá Eyii við Isa-
fjörð - Aldarminning
Fæddur 31. október 1892
Dáinn 1. maí 1992
Ásgeir Pálsson fæddist 31. októ-
ber árið 1892 á Eyri við ísafjörð,
eitt fimm barna hjónanna Helgu
Sigurðardóttur og Páls Pálssonar,
en ólst upp í Pálsbæ í Hnífsdal hjá
móður sinni, eftir að faðir hans féll
frá, en þá var Ásgeir á ungum aldri.
Líkt og algengt var um vestfirska
drengi, var Ásgeir ekki hár í lofti
er hann var tekinn að stunda sjóinn
og reri hann áraskipum frá ver-
stöðvunum við Djúpið og síðar víðar
af strönd, og stundaði sjóinn á skút-
um og síðar vélskipum. Hann var
vörpulegur maður og snarpur til
átaka og kappsmaður mikill að
hverju sem hann gekk enda fylginn
sér.
Á árum fyrri heimsstyijaldarinn-
ar sótti Ásgeir sjóinn frá Áustfjörð-
um og á Eskifírði kynntist hann
Stefaníu Benediktsdóttur, mikilli
mannkostamanneskju, og gengu
þau í hjónaband á Fáskrúðsfírði 14.
apríl 1919. Þar bjuggu þau fyrsta
ár hamingjuríks hjúskapar síns en
síðan hér syðra. Var Ásgeir togara-
sjómaður um langt árabil og einnig
á farskipum á stríðsárunum, sem
voru honum reynslurík líkt og fleiri
íslenskum sjómönnum. Löngum og
fjölbreyttum sjómannsferli hans
lauk nokkru eftir styijaldarlok og
starfaði Ásgeir næstu árin við mal-
ar- og gijótnám Reykjavíkurborgar
en gerðist þá starfsmaður Vatns-
veitunnar og starfaði þar fram á
áttræðisaldur, og hreint ekki sáttur
við að þurfa að hætta að vinna ald-
urs vegna, enda var þrek hans með
öllu óbugað.
Nokkru eftir að Ásgeir kom í
land höfðu þau Stefanía og hann
flutt inn á Selás þar sem þau höfðu
keypt sér land og lítið hús sem þau
síðan stækkuðu. Þeim fæddust tvær
dætur sem voru Björg, sem lést á
fyrsta ári, og Gyða, sem lést í nóv-
ember á síðasta ári, en hún var
gift Helga Guðmundssyni sem lést
árið 1985, en einkadóttir þeirra er
Hrönn, ekkja Hermanns Aðalsteins-
sonar, en þau eignuðust tvo syni,
Helga Steinar og Heimi Þór. Yngri
sonur Gyðu er Ásgeir Valur Egg-
ertsson, sem þau Asgeir og Stefan-
ía ólu upp sem eigin sonur væri.
Árið 1985 lést Stefanía, en þau
Ásgeir höfðu þá búið í Jökulgrunni
við Hrafnistu á hálfan tug ára en
mjög náið og hlýtt var með þeim á
66 ára samfylgd. Sjálfur fékk Ás-
geir haldið ótrúlega miklu þreki
allt þar til hann sofnaði út af í
apríllok, misseri áður en hann hafði
lifað öld og fram undir hið síðasta
hafði hann verið léttur í spori og
fylgst vel með öllu og haldið minni
sínu óskertu, en fráfall Gyðu í nóv-
ember hafði gengið mjög nærri
honum, en honum mikil blessun að
umhyggju Hrannar og Ásgeirs
Vals. En framar öðru sótti hann
styrk sinn í lifandi trú, bæn og lest-
ur Guðs orðs, en Ásgeir var trúaður
og trúrækinn maður og hafði átt
samfélag um trú sína innan vé-
banda Fíladelfíusafnaðarins.
Ásgeir Eggertsson.
Ásgeir Pálsson sjómaður fæddist
á Eyri við ísafjarðardjúp 31. októ-
ber 1892 og hafði því nærri náð
100 ára aldri er hann lést 1. maí
sl. Foreldrar hans voru hjónin Páll
Pálsson og Helga Sigurðardóttir.
Ásgeir ólst upp í Pálsbæ í Hnífsdal
hjá foreldrum sínum ásamt systkin-
unum Sigurði, Margréti, Salóme og
Pálínu.
Ásgeir byijaði að vinna á unga
aldri við hin ýmsu störf sem féllu
til, m.a. á bátum og vélskipum við
Djúpið. Sjómennskan varð hans lífs-
starf.
Á árum fyrri heimsstyijaldarinn-
ar réðst Ásgeir til starfa á Aust-
fjörðum. Þar kynntist hann konu-
efni sínu, Stefaníu Benediktsdóttur
frá Eskifirði. Stefanía var dóttir
hjónanna Jónínu Guðmundsdóttur,
ættaðri frá Kollaleiru við Reyðar-
fjörð, og Benedikts Hallgrímssonar,
ættuðum úr Þverárhíð í Borgar-
fjarðarsýslu, hótelhaldara á Eski-
firði og síðar fiskmatsmanns á
Austfjörðum.
Ásgeir og Stefanía gengu í hjóna-
band á Fáskrúðsfírði 14. apríl 1919.
Fluttust þau þá til Reykjavíkur og
áttu sitt heimili hér í höfuðstaðnum.
Þau eignuðust tvær dætur, Björgu,
fædda árið 1923, en hún lést á
fyrsta ári, og Gyðu, fædda árið
1926. Þegar þau voru komin á miðj-
an aldur tóku þau dreng í fóstur,
frænda Ásgeirs, Ásgeir Val Egg-
ertsson. Stefaníu konu sína missti
Ásgeir árið 1985 og Gyða dóttir
þeirra lést á sl. ári eftir erfið veik-
indi.
Gyða giftist árið 1946 Helga
Breiðfjörð Guðmundssyni, skósmið.
Þau eignuðust eina dóttur barna,
Hrönn Guðrúnu, hárgreiðslumeist-
ara. Hrönn giftist Hermanni Aðal-
steinssyni, viðskiptafræðingi, sem
nú er látinn, og eru synir þeirra
Helgi Steinar, sem nemur markaðs-
fræði í Bandaríkjunum og Heimir
Þór, stúdent frá Verzlunarskóla ís-
lands.
Eins og fyrr segir vann Ásgeir á
sjónum árum saman. Hann var
skipveiji á Dettifossi um alllangt
skeið, m.a. á árum seinni heims-
styijaldarinnar, utan síðustu mán-
uði stríðsins, þegar hann var í landi
vegna meiðsla. Síðar gerðist hann
starfsmaður Vatnsveitu Reykjavík-
ur. Ásgeir var heiðursfélagi í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur og Eim-
skipafélagi íslands. Síðustu sjö árin
var hann vistmaður á Hrafnistu í
Reykjavík. Þar undi hann hag sín-
um einkar vel og var þakklátur
fyrir gott atlæti sem honum var
veitt.
Ásgeir var hár maður, myndar-
legur á velli og ljós yfirlitum. Ró-
lyndur var hann, ljúfur í viðmóti,
glaðsinna og skemmtilegur í tilsvör-
um á sinn sérstæða og hógværa
hátt. Heimili Ásgeirs og Stefaníu
móðursystur var lengi í næsta ná-
grenni við okkar og samgangurinn
því mikill. Seinna eignuðust þau svo
eigið húsnæði í Seláshverfi, þar sem
þau bjuggu meira en tvo áratugi.
Eigum við ásamt systkinum okkar
margar skemmtilegar minningar
frá þeirra góða heimili. Frá hús-
bóndanum stafaði rósemd og hlýju,
húsfreyjan létt og gamansöm og
dóttirin Gyða eftirsóttur leikfélagi
okkar systra.
Ásgeir lifði og dó sem einlgæur
trúmaður. Hann var einn hinna
hamingjusömu manna sem áttu trú-
arsannfæringu og voru aldrei í vafa
um hvað tæki við eftir dauðann.
Hann var sáttur við lífið og þakklát-
ur fyrir það sem honum hafði hlotn-
ast. Andlegu þreki hélt hann til
hinstu stundar.
Á vordögum nú í maíbyijun var
Ásgeiri Pálssyni fylgt til hinstu
hvíldar af þakklátri fjölskyldu,
frændfólki og vinum.
Við systurbörn Stefaníu á Njáls-
götunni munum ávallt minnast hans
sem eins hins besta og vandaðasta
manns er við höfum hitt á vegferð
okkar.
Blessuð veri minning Ásgeirs
Pálssohar.
Guðfinna og Helga.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E r l A n sími 620200
r
Sérfncðingar
í l)lóiiiiiski*<‘ytiiii>uin
við öll (ii*kiln*ri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 19090
óm og skreytingar\
við öll tækifæri
+
Ástkaer móðir mín og systir okkar,
HALLDÓRA HAFLIÐADÓTTIR,
Hraunteigi 10,
Reykjavík,
lóst í Borgarspítalanum föstudaginn 30. október.
Kristjána Jónsdóttir,
Ástriður Hafliðadóttir, Helgi Hafliðason.
t
Eiginkona mín,
GUÐMUNDA SIGURÐARDÓTTIR,
Sólvöllum 5,
Húsavík,
lést í Sjúkrahúsi Húsavíkur 29. október.
Halldór Bárðarson.
+
RÖGNVALDUR SIGURÐSSON,
Skálagerði 5,
lést á Droplaugarstöðum aðfaranótt
29. þessa mánaðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Svafa Rögnvaldsdóttir,
Snorri Rögnvaldsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,
SÖLVI JÓNSSON
vélvirki,
Flúðaseli 76,
andaðist í Borgarspítalanum 28. október.
Erla Bragadóttir og börn,
JónJónsson, Ingibjörg Skúladóttir.
+
Ástkær eiginkona mín,
VALGERÐUR GUNNARSDÓTTIR,
Bauganesi 31,
andaðist 20. október sl.
Útförin hefur farið fram.
Leifur Guðmundsson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN LOVÍSA HANNESDÓTTIR,
Heiðmörk 9,
Hveragerði,
verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju í dag, laugardaginn
31. október, klukkan 14.00.
Hannes Sigurgeirsson, Guðrún Magnúsdóttir,
Valgerður Magnúsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson,
Emma Magnúsdóttir, Hörður Diego Arnórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og sonur,
HALLDÓR SÆVAR SIGURJÓNSSON,
, Ásabraut 25,
Sandgerði,
sem lést af slysförum 21. október, verður jarðsunginn frá Hvals-
neskirkju í dag, laugardaginn 31. október, kl. 14.00.
Guðrún Guðmunda Kjartansdóttir,
Ingunn Björg Halldórsdóttir,
Helgi Sævar Halldórsson,
Selma Guðlaug Halldórsdóttir,
Ingunn Hilmarsdóttir.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
KONRÁÐ GÍSLASON
húsgagnabólstrari,
Baldursgötu 30,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 2. nóvember kl. 13.30.
Svala Konráðsdóttir, Jóhann Jakobsson,
Erna Konráðsdóttir, Sveinbjörn Jónsson,
Mjöll Konráðsdóttir, Hoybye Cristensen,
Drífa Konráðsdóttir, Ingi Gunnar Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Gyðufelli 4,
Reykjavík,
fyrrum húsmóðir,
Stóru-Brekku, Fljótum,
veröur jarðsungin frá Árbæjarkirkju,
Rofabæ, þriðjudaginn 3. nóvember
kl. 15.00.
Gurí Lív Stefánsdóttir,
Óskar Hjaltason,
Trausti Hjaltason, Lilja Sigurðardóttir,
Ásta Hjaltadóttir, Kjartan Þorbergsson
barnabörn og barnabarnabörn.
50202
BÆJARHRAUfl 26, HAfTtARf.
33978
ÁLTHEIHAR 6, REYKJAVÍK
BLOMABUÐIN
DOGG.