Morgunblaðið - 31.10.1992, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
54
—
■ JOHN de Wolf, vamarmaður
Feyenoord, var rekinn af velli í
misgripum fyrir einn samheija
sinna í leik gegn Luzern í Evrópu-
keppninni á dögunum og fer ekki
í leikbann.
■ HANS Fraser, félagi de
Wolfs, hefur hins vegar verið úr-
skurðaður í þriggja leikja bann af
Evrópusambandinu (UEFA)
vegna slagsmála í leiknum. Tals-
maður UEFA sagði Fraser hefði
átt að gefa sig fram strax, þegar
de Wolf var vísað út af, til að
réttlætinu yrði fullnægt.
■ AUKIÐ öryggi er skipun sem
gríska félagið Olympiakos hefur
fengið fá knattspymusambandi
Evrópu, UEFA, fyrir seinni leik
gríska liðsins gegn Mónakó í
Evrópukeppninni í næstu viku.
Löggæslan verður hert á leiknum
og er reiknað með að 700 lögreglu-
þjónar verða á meðal 40.000
áhorfenda.
UM HELGINA
Handknattieikur
Laugardagur
1. DEILD KARLA:
Valur-FH....................16.30
■Leikur sem átti að fara fram 4. nóvember.
2. DEILD KARLA:
Fylkir-Ögri......................14
UBK-NHK..........................14
Fjölliðamóti HSÍ
Fjöliiðamót HSÍ í 5. flokki verður i Hafnar-
firðri um helgina. Mótið hefst kl. 09.00
báða dagana. FH og Haukar sjá um mótið
og eru þátttakendur um 700 talsins.
Körfuknattleikur
Fimm leikir verða í úrvalsdeildinni á sunnu-
dag:
Skallagrímur - Haukar.............16.00
Grindavík - Breiðablik............20.00
Valur - Njarðvík...................20.00
KR- Keflavík.......................20.00
Snæfell - Tindastóll..............20.00
Tveir leikir verða leiknir i 1. deildar-
keppni karla í dag kl. 14.00; Þór - Reynir
og Höttur - ÍS. Á sama tíma leika ÍBK og
UMFT í 1. deild kvenna.
Badminton
Jafnréttismót TBR verður haldið um helgina
í TBR-húsinu. Mótið hefst i dag kl. 14 og
keppni á morgun kl. 10.
Keila
Laugardagsmót verður f Keiluhöllinni í
Öskjuhlíð kl. 20 í kvöld og unglingamót -
önnur umferð, á morgun kl. 12.30.
Golf
Púttmót verður í Golfhermi á morgun,
sunnudag. Opið öllum frá kl. 08 - 20.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Barátta að Hlíðarenda
Halda Valsmenn traustatakinu eða ná FH-ingar að vinna sinn lyrsta leik í Valsheimilinu?
Fyrlrllðarnir, Guðjón Árnason FH-ingur og Jakob Sigurðsson Valsmaður, eiga eftir að kljást í leiknum í dag eins og
þeir gerðu síðast er liðin mættust er þessi mynd var tekin.
VALSMENN taka á móti ís-
landsmeisturum FH að Hlíðar-
enda í dag kl. 16.30 og þarf
ekki að fara mörgum orðum
um að leikurinn verður tvísýnn
og spennandi. FH og Valur eru
efst og jöfn í deildinni með 11
stig. „Þetta verður hörkuleikur.
Við ætlum okkur sigur - enda
er kominn tími til að við vinnum
að Hlíðarenda, en það hefur
okkur ekki tekist til þessa,“
sagði Guðjón Árnason, fyrirliði
FH-liðsins. „Við erum ákveðnir
í að halda „rekordinu" gegn
FH á heimavelli og það er
metnaður í liðinu fyrir að kom-
ast einir á toppinn," sagði Jak-
ob Sigurðsson, fyrirliði Vals.
Guðjón sagði að það hafi verið
tröppugangur á leik FH-iiðs-
ins 'að undanförnu. „Ég var þokka-
lega ánægður með leik okkar gegn
Haukum í vikunni. Við verðum að
leika betur gegn Val ef við ætlum
okkur sigur. Eg hef lítið séð til
Valsmanna, en veit að þeir eru erf-
iðir. Staðan í dag segir að FH og
Valur séu með bestu lið deildarinn-
ar, en þó segir staðan ekki allt.
Liðin í deildinni eru jöfn og maður
getur þakkað fyrir hvert stig sem
kemur í safnið," sagði Guðjón.
- Þurfa meistaramir nokkuð að
óttast ungu leikmennina hjá Val?
„Strákamir hjá Val em engir
kettlingar. Þeir hafa leikið vel og
hafa fengið tækifæri til að spreyta
sig með landsliðinu. Það er einu
sinni svo að ungir leikmenn leika
alltaf best þegar mikið liggur við.
Valsmenn eru ekki eingöngu með
unga leikmenn - þeir tefla fram
gamalreyndum refum eins og Geir
Sveinssyni, Jakobi Sigurðssyni,
Valdimar Grímssyni, Jóni Kristjáns-
syni og Guðmundi Hrafnkelssyni,
sem kunna ýmislegt fyrir sér,“
sagði Guðjón.
Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals,
er nokkuð bjartsýnn fyrir hönd
Valsmanna. „Það er góð stemmning
í liðinu fyrir leikinn gegn FH. Ég
held að við séum aftur á uppleið
eftir ákveðna lægð sem við höfum
verið í. Stefnan er alltaf sett á að
sigra og emm innstiiltir á það. Leik-
ir milli FH og Vals hafa alltaf ver-
ið hörkuleikir og þessi verður engin
undantekning."
-Hver er sterkasta hlið FH-inga?
„Ég held að hraðaupphlaupin séu
þeirra sterkasta hlið. Þeir gerðu 13
mörk eftir hraðaupphlaup í síðasta
deildarleik og það segir okkur mik-
ið. Þeir hafa alltaf verið með mjög
gott sóknarlið og em með landsliðs-
markvörð. Svo hafa þeir fengið
Trúfan í vömina og Kristján Arason
hefur verið einn besti vamarmaður
landsins í mörg ár. Þannig að það
er ekki mikið sem vantar upp á að
FH-ingar séu með gott lið á öllum
sviðum."
„Þessi tvö lið hafa verið á toppn-
um sem af er sem ætti að þýða að
þau era best. En annars hefur deild-
in verðið mjög jöfn og skemmtileg
og allir virðast geta unnið alla. Það
em mjög mörg lið sem hafa bætt
sig frá síðasta keppnistímabili,"
sagði Jakob.
Þessi leikur átti upphaflega að
fara fram næsta miðvikudag, en
var flýtt vegna Evrópuleikja FH-
inga um næstu helgi.
Tölvusýning EDI félagsins
á Hótel Loftleiðum
Opið í dag kl. 10-14
Ókeypis aðgangur
Síðasti sýningardagur
EDI-félagið á íslandi.
ICEPRO
TÖLVUMIÐSTÖÐIN
KERFISÞRÖUN HF.
Skeifunni 17, 108 Reykjavik
TÖL VUSAMSKIPTI
3QÐEIND SF—
j^HEKLAHF
■ iLaugavegi 170-174 Slml 695500
sk/tr
POSTUR OG SÍMI
EAN-NEFNDIN A ISLANDI
UMÓUSUUOK UM NOTKUN SIIIUMEtUA -y
Iíslensk
fonitaþróunhf. HTSKNJWL
Ríkistollstjóri
A ÚLD UPPLÝSINGA
Tölvu- oq rekslrarráÓQiöl
H ÖRTÖLVUTÆKNI H
BUSTJORI
STRÁNGURjcri-. ex ktrfiilretðiitefa
EIMSKIP
KAPPAKSTUR
Honda hættir í Formula 1
Forráðamenn Honda í Japan
hafa ákveðið að hætta að
taka þátt í Formula 1 kappakstr-
inum. Nobuhiko Kawamoto tii-
kynnti þetta á blaðamannafundi
um helgina. „Grand Prix keppnin
höfðar ekki lengur til okkar. Hún
gerði það um tíma og þá vomm
við með en nú fáum við óskap-
lega Iítið út úr þessu og því eram
við hættir," sagði Kawamoto.
Hann sagði að ástæðan fyrir
því að þeir hefðu verið með væri
að verkfræðingar fyrirtækisins
fengju æfingu og samkeppni.
„Nú eigum við margar kynslóðir
af verkfræðingum sem hafa
fengið þessa reynslu og því
ástæðulaust að halda áfram. Við
ætlum að snúa okkur að því sem
skiptir máli fyrir fyrirtækið —
þróa og selja bfla. Við ætlum
að leggja áherslu á bíla sem
hafa sem minnst skaðleg áhrif
á umhverfið en keppnisbflamir
gætu fljótlega orðið eins og
„tölvuvæddar risaeðlur“ sem
gagnast okkur ekkert í þróun
bíla fyrir almenning," sagði
Kawamoto.
Yamaha tilkynnti einnig um
helgina að fyrirtækið væri hætt
stuðningi við Jordan liðið og
ætlaði að hætta afskiptum af
Formula 1 keppninni.
BADMINTON
Unglingalandslið valið
Helgi Magnússon, þjálfari unglingalandsliðsins í badminton, hefur val-
ið tólf manna landsliðshóp til æfinga. Aðalverkefni landsliðsins í
vetur verður þátttaka í Evrópumeistaramótinu sem fer fram í Sofíu í
Búlgaríu í apríl í vor.
Landsliðshópurinn er þannig skipaður. Vigdís Ásgeirsdóttir, Aðalheiður
Pálsdóttir, Margrét D. Þórisdóttir og Magnea Magnúsdóttir, TBR, Brynja
Pétursdóttir og Birna Guðbjartsdóttir, ÍA. Tryggvi Nielsen, Njörður Lud-
vigsson, Jón Einar Halldórsson, Ásgeir Símon Halldórsson, Skúli Sigurðs-
son og Hjalti Sigurðsson, allir úr TBR.