Morgunblaðið - 31.10.1992, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
55
ÚRSLIT
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD
UBK-KR 70:72
íþróttahúsið Digranesskóla, Úrvalsdeildin í
körfuknattleik, föstudaginn 30. október.
Gangur leiksins: 2:8, 8:18, 10:24, 30:32,
30:34, 35:34, 39:42, 42:45, 55:55, 63:63,
66:63, 68:70.
| Stig UBK: Pétur Guðmundsson 15, Lloyd
Sergent 15, Eiríkur Guðmundsson 12,
Hjörtur Arnarson 9, Björn Ægir Hjörleifs-
. son 7, Björn Sigtrygsson 6, Starri Jónsson
f 4, Egill Viðarsson 2.
Stig KR: Guðni Guðnason 26, Hermann
Hauksson 18, Harold Thomkins 16, Sigurð-
k ur Jónsson 9, Lárus Ámason 3.
’ Áhorfendur:105.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Krist-
inn Óskarsson dæmdu vel.
UMFIM - Snæfell 81:79
íþróttahúsið í Njarvðík, íslandsmótið í
körfuknattleik, Úrvalsdeild, föstudaginn 30.
október 1992.
Gangur leiksins: 3:0, 3:3, 12:5, 19:19,
32:21, 37:27, 41:38, 46:46, 54:55, 68:58,
68:71, 76:71, 77:78, 81:79.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 20, Rondey
Robinson 17, Sturla Örlygsson 11, Jóhann-
es Kristbjömsson 11, Gunnar Örlygsson 7,
Ástþór Ingason 5, Jón Júlíus Ámason 4,
Rúnar Ámason 4, Atli Ámason 2.
Stig Snæfells: Rúnar Guðjónsson 23, ívar
Ásgrímsson 16, Kristinn Einarsson 16, Tim
Harvey 13, Bárður Eyþórsson 8, Hreinn
Þorkelsson 3.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Brynjar
? Þorsteinsson.
Áhorfendur: Um 200.
1. deild karla:
t UMF. Ak. - Reynir..............100:96
' ÍS - Tindastóll................43:58
Isiandsmótið i körfuknattleik, 1. deild
kvenna, föstudaginn 30. október 1992.
I Gangur leiksins: 4:7, 16:12, 19:21, 23:26,
23:30 42:29, 51:35, 43:58
Stig IS: Hafdís Helgadóttir 11, Vanda Sig-
urgeirsdóttir 10, Kristín Sigurðardóttir 10,
Marta Guðmundsdóttir 5, Unnur Hallgríms-
dóttir 3, Elínborg Guðmudsdóttir 2, Dfanna
Gunnarsdóttir 2.
Stig Tindastóls: Kristfn Magnúsdóttir 16,
Kristjana Jónasdóttir 15, Binna Valgarðs-
dóttir 11, Inga Dóra Magnúsdóttir 7, Ásta
Benediktsdóttir 5, Hólmfríður Sveinsdóttir
4.'
I Framan af leiknum var jafnt á með lið-
unum en fljótlega í síðari hálfleik sigu Sauð-
krækingar framúr. Inga Dóra stjómaði
Tindastólsliðinu af röggsemi og Kristjana
lék vel f annars mjög jöfnu liði. f liði ÍS
börðust þær Vanda Sigurgeirsdóttir og
Hafdís Helgadóttir vel.
Vigdfs
UMFN-UMFG 57:65
Blak
1. deild karla:
Þróttur Nes. - ÍS................0:3
) (12:15, 1:15, 3:15)
■Leikur stóð yfír í 50 mínútur og sigurinn
öruggur eins og tölumar gefa til kynna.
KA - Stjaman.....................2:3
• (15:10, 3:15, 15:7, 6:15, 9:15)
1. deild kvenna:
Þróttur Nes. - ÍS................1:3
(6:15, 7:15, 16:14, 7:15)
Knattspyrna
Úrslit í þýsku úrvalsdeildinni f gærkvöldi:
Schalke — Uerdingen.............1:1
Leverkusen — Dynamo Dresden......0:0
Werder Bremen — Wattenscheid.....3:0
Staða efstu liða:
Bayem Miinchenll 6 4 1 22:11 16
Frankfurt....11 5 6 0 21 : 11 16
Leverkusen...12 5 6 1 25 : 10 16
WerderBremenl2 6 4 2 20 : 14 16
Dortmund.....11 7 1 3 21 : 16 15
Karlsmhe.....11 6 2 3 24 : 19 14
VfB Stuttgartll 5 3 3 18 : 17 13
Schalke......12 4 4 4 16 : 18 12
Frakkland
Úrslit leikja f frönsku 1. deildinni sem fram
} fóm í gærkvöldi:
P.S.G. — Nimes......................2:3
Valenciennes — Auxerre..............3:3
Caen — Mónakó.......................1:0
I Sochaux — Marseille.................2:2
Montpellier — Bordeaux..............2:0
Metz —Toulon........................0:0
. Toulouse — Le Havre.................1:0
' Strasbourg — Lens...................4:1
Lille — Lyon........................1:1
Staða efstu liða:
Nantes ....13 9 2 2 29 : : 11 20
P.S.G ....13 7 5 1 25 : : 09 19
Auxerre ....13 7 3 3 22 : : 12 17
Marseille ....13 6 5 2 19 ; : 13 17
Mónakó ....13 7 2 4 18 : : 12 16
StEtienne... ....13 6 3 4 14 : : 11 15
Motgunblaðið/Þorkell
Pétur Guðmundsson fyrirliði Breiðabliks skorar tvö af stigum sínum gegn KR. Harold Thomkins úr KR kemur
engum vörnum við.
Blikar enn án sigurs
„Ég er ánægður með varnarleikinn en sóknin hefði mátt vera
betri. Fyrri hálfleikurinn var sérstaklega góður og ef við hefðum
ekki misst niður hittnina á tímabili þá hefðum við getað gert út
um leikinn mun fyrr,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari KR eftir
sigur á Breiðablik 72:70 í leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en
á lokamínútunni.
Fátt benti til þess að nýliðamir
yrðu KR einhver hindrun í
upphafi. Reykjavíkurliðið keyrði
upp hraðann og á
fyrstu tíu mínútum
Frosti , , .
Eiðsson ma seKla ae aðeins
skrífar eitt lið hafi verið á
vellinum. KR-ingar
léku hraðan sóknarleik og press-
uðu af og til í vörninni og útkoman
var 24 stiga forskot eftir níu mín-
útna leik, 10:24. En nýliðamir vom
ekki búnir að segja sitt síðasta
orð, hittnin skánaði og liðið átti
eftir þennan kafla meginhlutann
af öllum fráköstum. KR-ingar virk-
uðu á meðan óömggir í sóknar-
leiknum og gott forskot hvarf eins
og dögg fýrir sólu.
í síðari hálfleiknum skiptust lið-
in um að leiða leikinn en það vora
KR-ingar sem héldu haus á loka-
mínútum, - Sigurður Jónsson náði
forystunni 68:70 fyrir KR þegar
ein og hálf mínúta var til leiksloka
með þriggja stiga körfu. Hann setti
þar með pressu á heimamenn en
KR-ingar léku af skynsemi þann
tíma sem eftir lifði.
Pétur var besti leikmaður UBK,
hann tók fjölda fráköstum og var
illviðráðanlegur í sókninni í síðari
hálfleik. Eiríkur Guðmundsson
kom inná undir lok fyrri hálfleiks-
ins og hressti upp á sóknarleikinn.
Guðni Guðnason, Hermann
Hauksson og Harold Thomkins
voru atkvæðamestir í KR-liðinu.
Liðið var mjög öflugt til að byija
með en leikmenn slökuðu á í síð-
ari hálfleiknum. „Þetta er þriðji
leikurinn af fimm þar sem við eig-
um jafngóða möguleika á sigri en
þurfum svo að sætta okkur við
tap,“ sagði Sigurður Hjörleifsson
þjálfari Blika. „Það er greinilegt
að það ætlar að verða erfið fæðing
að fyrsta sigurleiknum."
HANDKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐIÐ
Sex marka tap gegn Lithaén
Islenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik tapaði fyrsta leik sín-
um gegn Lithén, 19:25, á fjögurra
þjóða móti sem
Hanna K. hófst í Buchs í Sviss
Fríðriksen j gærkvöldi. Staðan
í hálfleik var 9:13
fyrir Litháen.
íslenska liðið hélt í við það lithá-
iska fyrstu 20 mínútur leiksins og
hafði þá eins marks forystu 8:7.
Síðan kom slæmur kafli þar sem
ísland gerði aðeins eitt mark gegn
skrífar
frá Sviss
sex mörkum andstæðinganna. Það
tók íslenska liðið tíu mínútur að
skora fyrsta markið í síðari hálfleik
og þá var staðan orðin 10:17. Eft-
ir það náði íslensku stúlkurnar
góðum kafla en munurinn var of
mikill og sex marka tap var stað-
reynd.
íslenska liðið gerði of mörg mis-
tök í sókninni, átti ótímabær skot
sem því var refsað með mörkum
frá Litháen. Hella Geirsdóttir varði
ágætlega í fyrri hálfleik þar á
meðal tvö vítaköst en fann sig ekki
í síðari hálfleik. Laufey Sigvalda-
dóttir var besti leikmaður íslenska
liðsins. Guðný Gunnsteinsdóttir
stóð sig einnig vel.
Mörk íslands: Laufey Sigvaldadóttir
8/1, Andrea Atladóttir 3, Guðný Gunn-
stcinsdóttir 3, Halla María Heladóttir 2,
Ósk Víðisdóttir, Heiða Erlingsdóttir og Una
Steinsdóttir eitt mark hver.
íslenska liðið leikur við tékk-
nesku stúlkumar í dag en þær unnu
Sviss í gær 22:14.
Laufey Sigvaldadóttir
Naumur
sigur
UMFN
„Þetta var ekki einn af okkar
bestu leikjum, en stigin voru
kærkomin eigi að síður. Það
var samt ýmislegt jákvætt við
leik okkar þó enn megi margt
bæta. Það hafa átt sér stað
nokkrar breytingar á liðinu hjá
okkur, nýir menn eru að koma
inn og það tekur tíma að ná
því besta út úr öllum," sagði
Teitur Örlygsson leikmaður
Njarðvíkinga sem sigruðu
Snæfell naumlega íLjónagryfj-
unni í Njarðvík í gærkvöldi.
Munurinn á liðunum í lokin var
aðeins tvö stig, 81:79 og
náðu heimamenn að knýja fram
BBBBi sigur á síðustu sek-
Bjóm úndunum. Leikur
Blöndal liðanna var ekki vel
skrífar frá leikinn mikið um
Kefiavík mistök og þá sér-
staklega hjá Njarðvíkingum sem
virðast í nokkmm öldudal um þess-
ar mundir. Þeir réðu þó ferðinni
lengstum, en ientu í vandræðum í
upphafi síðari hálfleiks þegar Rond-
ey var tekinn útaf eftir að hafa
fengið sína fjórðu villu. Það tókst
Snæfellingum að nýta sér með því
að setja 11 stig í röð og breyta
stöðunni úr 68:58 í 68:71. Þá kom
Rondey inná aftur og við það náðu
heimamenn sér aftur á strik en litlu
mátti þó muna í lokin því að með
smá heppni hefðu Snæfellingar allt
eins getað sigrað í leiknum.
Hjá Njarðvíkingum bar mest á
þeim Teiti, Rondey, Jóhannesi og
Sturlu, en hjá Snæfellinum vom
þeir Rúnar, Ivar, Kristinn og Tim
bestir.
■ GEIR Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri knattspymudeildar
KR, hefur verið ráðinn skrifstofu-
stjóri hjá Knattspyrnusambandi
íslands frá og með næstu áramót-
um. Geir hefur verið varaformaður
knattspyrnudeildar KR undanfarin
ár en verður nú að segja_ af sér
vegna nýja starfsins hjá KSÍ. Hann
mun sjá um mál móta- og dómara-
nefndar KSÍ og hafa yfírumsjón
með tölvumálum sambandsins.
„Þetta leggst vel í mig enda er ég
öllum hnútum vel kunnur í knatt-
spymuhreyfingunni," sagði Geir.
í MAGNÚS Guðmundsson, sem
hefur verið starfsmaður mótanefnd-
ar KSÍ sl. ár, hefur sagt upp störf-
um hjá Knattspyrnusambandinu.
■ ASGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu og aðstoðar-
maður hans, Gústaf Björnsson, eru
nú staddir í Helsinki í Finnlandi
þar sem þeir sitja þjálfararáðstefnu
Norðurlanda sem fram fer um helg-
ina. ^
■ ÓSKAR Þorvaldsson ur KR
og Þórður Guðjónsson úr ÍA hafa
dvalið við æfingar hjá Stuttgart í
vikutíma. Þeir æfðu með aðalliði
félagsins og stóðu sig vel að sögn
Asgeirs Sigurvinssonar. „Þeir
sýndu góða takta og það er ljóst
að þama eru mjög efnilegir strákar
á ferð,“ sagði Ásgeir.
■ ÁSGEIR Sigurvinsson sagði
að mikil stemmning væri fyrir leik
Stuttgart og Bayem Miinchen
sem fram fer á Neckar-leikvangin-
um í dag. „Það var uppselt á leikinn
fyrir hálfum mánuði, en völlurinn
tekur 53 þúsund áhorfendur,“ sagði
Ásgeir. Þórður og Óskar verða
meðal áhorfenda og koma síðan
heimá mánudag.