Morgunblaðið - 31.10.1992, Page 56
MICROSOFT. einarj.
WINDOWS. SKULASONHF
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SlMl 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / A1WREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Æfingaakstur
fyrir bílpróf
Aksturundir
eftirliti for-
eldra verði
leyfilegnr
FORELDRAR og eldri systkini
mega leiðbeina ökunemendum
við æfíngaakstur, verði frum-
varp Þorsteins Pálssonar dóms-
málaráðherra um breytingar á
umferðarlögum samþykkt á Al-
þingi. í frumvarpinu, sem kynnt
var á ríkisstjórnarfundi í gær,
er ekki gert ráð fyrir að þessi
æfingaakstur komi i stað venju-
legrar ökukennslu undir leiðsögn
■ ökukennara, heldur verði um við-
bót að ræða, sem miði að því að
unglingar hafí fengið meiri
reynslu þegar þeir leggja einir
út í umferðina með bílpróf upp
á vasann.
„Talið hefur verið að það sé að
nokkru leyti reynsluleysi um að
kenna að ungir ökumenn lenda oft-
ar í umferðaróhöppum en aðrir öku-
menn,“ segir í athugasemdum með
frumvarpi dómsmálaráðherra.
„Ástæða þessa sé í sjálfu sér ekki
vanþekking á umferðarreglum eða
léleg ökukennsla heldur fyrst og
fremst of lítil reynsla í akstri. Er
talið að úr þessu megi bæta með
því að heimila nemanda að æfa sig
í akstri með ieiðbeinanda sem þegar
hefur hlotið reynslu í akstri þannig
ökutækis. Slík heimild er fyrir hendi
í nokkrum löndum og er talin hafa
skilað árangri. Oft er um það að
ræða að foreldri eða eldra systkini
sé þannig leiðbeinandi."
Áuk þess að leyfa æfíngaakstur
undir eftirliti leiðbeinanda eru tíma-
mörk æfíngaaksturs fyrir bflpróf
rýmkuð í frumvarpinu. Nú mega
unglingar hefja ökunám og æfínga-
akstur sex mánuðum fyrir 17 ára
■^afmælið, í stað þriggja mánaða sem
núgildandi lög kveða á um.
-----------♦ ♦ ♦---
Tvö slys á
Bústaðavegi
TVÖ umferðaróhöpp urðu á Bú-
staðavegi á skömmum tima í
gærkvöldi.
Ekið var á ljósastaur fyrir ofan
Borgarspítala um kl. 20 en engin
slys urðu á fólki. Ökumaður, sem
talinn var ölvaður, var hins vegar
fluttur á slysadeild eftir að hafa
(^ekið á götuvita á mótum Réttar-
holtsvegar og Bústaðavegar um það
bil klukkustund síðar.
Erró færir Reykjavík nýjar myndir
Reuter
Listamaðurinn Erró færði í gær Reykjavík-
urborg tólf ný verk eftir sig að gjöf. Myndirn-
ar eru málaðar sérstaklega fyrir væntanlegt
Erró-safn á Korpúlfsstöðum og fjalla um sögu
nútímalistar. Markús Öm Antonsson borgar-
stjóri veitti myndunum viðtöku á vinnustofu
listamannsins í París. Hér afhendir borgar-
stjóri Erró í þakklætisskyni mynd af Korpúlfs-
stöðum. Myndimar, sem Erró færir borginni
nú, fara brátt til Kaupmannahafnar á stóra
Erró-sýningu í Charlottenborg, einu frægasta
sýningarhúsi Dana. Því næst verða þær sýnd-
ar í Finnlandi áður en þær koma heim til
Reykjavíkur.
Skipafélögin tilkynna breytingar á áformum um flutningsgjaldahækkanir
Eimskip hækkar um 4% -
Samskip fellur frá hækkun
EIMSKIP hefur ákveðið að draga úr hækkun flutningsgjalda nú um
mánaðamótin og Samskip hefur dregið samsvarandi hækkun til baka
i bili. Eimskip hækkar taxta sína að meðaltali um 4% í stað 6%. Félög-
in tilkynntu Verðlagsráði ákvarðanir sínar í gær. Ráðið tók ekki efnis-
lega afstöðu til 4% hækkunar Eimskips en áréttaði fyrri samþykkt sína
um samkeppni í skipaflutningum. Hörður Sigurgestsson forstjóri Eim-
skips segir að félaginu hafi ekki tekist að koma áformaðri hækkun
sinni fram vegna þeirra pólitísku vinda sem blási nú á haustdögum.
Ómar H. Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri Samskipa sagði að fé-
lagið hefði ákveðið að draga fyrri
ákvörðun um hækkun til baka og
skoða málið nánar í næstu viku.
Ómar sagði að þessi ákvörðun hefði
verið tekin eftir viðræður við við-
skiptavini, starfsmenn Verðlags-
Jón Baldvin Hannibalsson á aðalfundi útvegsmanna
Tapað fé verst settu útvegs-
fyrirtækjanna 20 milljarðar
JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, varpaði fram þeirri
hugmynd í ræðu á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna
á Akureyri í gær að veiðileyfagjald yrði notað til að greiða skuldir
verst settu fyrirtækjanna í sjávarútvegi.
Aðspurður nánar um þessa hug-
mynd sagði Jón Baldvin að ef menn
væru sammála um að hluti sjávarút-
vegsfyrirtækja væri svo sokkinn í
skuldir að ráðstafanir fái ekki bjargað
•þeim, segi það sig sjálft að við gjald-
þrot fáist lítið borgað upp í kröfur.
Ráðherrann sagði í samtali við
Morgunblaðið að varlega áætlað
væri hér um að ræða um 20 millj-
arða króna af heildarskuldum sjáv-
arútvegsins. Hann sagði að hinn al-
menni skattborgari myndi þurfa að
bera þetta tap því skuldirnar væru
að mestu hjá ríkisstyrktum bönkum
og sjóðum. „Með því að taka upp
veiðileyfagjald á þá betur settu sem
myndu lifa af hina fjárhagslegu end-
urskipulagningu með sterkari stöðu
í formi meiri kvóta og meira afla-
magns til vinnslu myndi hinn al-
menni skattborgari ekki þurfa að
bera þessar byrðar en fá í staðinn
arð af þessari auðlind sinni.“
Sjá ennfremur fréttir á bls. 28.
stofnunar og fleiri aðila. Við ákvörð-
unina hafi vegið þungt sá ákveðni
vilji markaðarins sem í ljós kom.
Ómar sagðist ekkert geta sagt um
það hvenær ný ákvörðun yrði tekin.
Hann sagði þó ljóst að félagið yrði
að finna leiðir til að auka telq'ur sín-
ar, ekki dygði eingöngu að lækka
kostnað.
í bréfi Eimskips til Verðlagsráðs
þar sem sagt er frá breyttum áform-
um kemur fram að félagið hefur
undanfama daga átt viðræður við
fjölda viðskiptavina, fulltrúa hags-
munasamtaka og fleiri um hækkun
flutningsgjaldanna. Gagnrýnt hafi
verið að hækkunin nú í nóvember
kæmi á óheppilegum tima. Hörður
segir að hækkanirnar séu mismun-
andi vegna gengisbreytinga, eða á
bilinu 2,2% til 11%, en meðalhækkun-
in sé 4%. Minnsta hækkunin er á
flutningum til Danmerkur en mesta
til Bretlands. Flutningar til Banda-
ríkjanna hækka um 5,4%.
„Við höfum ekki fengið efnisleg
rök gegn því að við þurfum á þess-
ari hækkun að halda. Hins vegar
blása á þessum haustdögum pólitísk-
ir vindar sem hafa gert það erfítt
að koma þessari hækkun fram,“
sagði Hörður þegar hann var spurður
hvort Eimskip væri að láta undan
þrýstingi og viðurkenndi að það hefði
farið offari í verðlagningu.
f bréfínu til Verðlagsráðs segir að
þar sem ekki náist jafnvægi í rekstri
félagsins með þessari hækkun muni
áfram verða unnið að því að auka
tekjur þess og ekki síður að lækka
kostnað. „Treystir félagið því, að sú
viðleitni mæti skilningi viðskiptavina,
birgja, stéttarfélaga og annarra. Það
er markmið félagsins, að flutnings-
gjöld Iækki enn frekar í framtíðinni.
Ráðandi forsenda fyrir því er hins
vegar sú, að hagnaður sé af rekstri
þess,“ segir í bréfí Eimskips.
Verðlagsráð tók ekki efnislega
afstöðu til nýrrar tilkynningar Eim-
skips á fundi í gær. Fram kom á
fundinum að taxtar Eimskips hefði
lækkað um 4,2% fyrstu níu mánuði
þessa árs miðað við sömu mánuði í
fyrra. Flutningsgjaldið hækkar því
nú upp undir það sem verð sem gilti
á sama tíma í fyrra. Af þessu tilefni
áréttaði Verðlagsráð hins vegar sam-
þykkt sína frá því í febrúar en hún
var gerð þegar verðlagning flutning-
anna var gefín fijáls. Þar er skipafé-
lögunum m.a. gert skylt að hafa
verðskrár þannig úr garði gerðar að
viðskiptavinir eigi auðvelt með að
kynna sér verðið áður en til við-
skipta kemur. Þar er m.a. vísað til
þess að núgildandi verðskrár eru
nokkurs konar hámarksgjaldskrár
með margvíslegum afslætti.