Morgunblaðið - 24.11.1992, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1992
Ekki dæmd refsing
vegna dráttar í með-
ferð fíkniefnamáls
DÓMUR var kveðinn upp í héraðsdómi Reykjavíkur í gær í fíkniefna-
máli sem ákært var út af 17. september 1987 og snerist um þátt manns
í innflutningi á 40,3 g af amfetamíni og 4,4 g af kókaíni. Niðurstaða
dómarans var á þá leið að dráttur sem orðið hefði á málinu væri
andstæður ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu og lögum um
meðferð opinberra mála og var því hinum ákærða ekki gerð refsing
í málinu.
Málið var höfðað gegn manni sem
nú er 29 ára en var sakaður um að
hafa um mánaðamótin septemb-
er/október 1986 í samráði við annan
tekið á leigu tvö pósthólf í því skyni
að'vitorðsmaðurinn sendi í þau fyrr-
greint magn fíkniefna.
Maðurinn viðurkenndi brot sitt
fyrir lögreglu og var ákæra gefin
út 17. september 1987 en ekkert
aðhafst fyrr en ákærði var kallaður
fyrir dóm 28. október 1992. Þegar
málið var tekið fyrir dóm vefengdi
maðurinn ekki ákæruna en sagði svo
langt um liðið að hann treysti sér
ekki til að rifja atvik upp.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
hafnaði því að sök ákærða væri fymd
í málinu og sakfelldi hann fyrir þau
brot sem honum voru gefín að sök
en taldi ekki efni til að gera honum
refsingu vegna óhæfilegs dráttar
sem orðið hafí á meðferð málsins og
sé andstæður íslenskum lögum og
Mannréttindasáttmála Evrópu. Hins
vegar var maðurinn dæmdur til að
greiða málssóknarlaun í ríkissjóð, svo
og málsvamarlaun veijanda síns, dr.
Gunnlaugs Þórðarsonar hrl., en ann-
an sakarkostnað að hálfu.
Evrópumótið í skák
Jafntefli við
Þjóðverja
ÍSLENSKA sveitin gerði jafntefli
við þá þýsku í þriðju umferð Evr-
ópumeistaramótsins í skák, sem
stendur yfir i Ungveijalandi. Öll-
um skákunum fjórum lauk með
jafntefli.
Rússar em efstir á mótinu eftir
þijár umferðir með 9.5 vinninga,
Hollendingar hafa 8,5 vinninga og
Úkraína, Bosnía-Herzegovína og
England hafa 8 vinninga. íslenska
sveitin hefur 6,5 vinninga.
Sjá nánar á bls. 33.
Morgunblaðið/Sverrir
Fundað um aðgerðir
Sjúkraliðar réðu ráðum sínum á íjölmennum trúnaðarmannaráðsfundi sem
haldinn var í gær.
Sjúkraliðar ganga út semj-
ist ekki fyrir miðja viku
SJÚKRALIÐAR í Reykjavík
hafa ákveðið að leggja niður
stðrf um miðja vikuna verði
ekki samið við stéttarfélag
þeirra fyrir þann tíma. Kristín
Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélagsins, segir að
sjúkraliðar fari fram á 1,7%
Bridsmót á Sikiley
íslenskt lið í
5. sæti af 128
ÍSLENSK bridssveit hafnaði í
fimmta sæti í Alþjóðlegu móti
sem haldið var í Cefalu á Sikiley
um helgina. Önnur íslensk sveit
varð í 19. sæti á mótinu sem 128
sveitir frá 20 löndum tóku þátt í.
í sveitinni sem hafnaði í fímmta
sæti voru Guðlaugur R. Jóhanns-
son, Öm Amþórsson, Matthías Þor-
valdsson og Sverrir Ármannsson.
Hin sveitin var skipuð Aðalsteini
Jörgensen, Bimi Eysteinssyni, Guð-
mundi Hermannssyni og Helga Jó-
hannssyni. Sigurvegarar urðu Pól-
veijar, þeir sömu og töpuðu fyrir
íslendingum í úrslitaleik heims-
meistaramótsins í Japan í fyrra. I
öðra sæti varð önnur pólsk sveit, f
þriðja sæti var ítalska landsliðið og
það gríska í fjórða sæti. í sjötta
sæti urðu ítalimir gamalkunnu,
Belladonna og Forquet, sem spiluðu
í sveit með sænsku pari.
launahækkun eins og aðrir laun-
þegar. Hún segir að samninga-
viðræður strandi á því að við-
semjendur viðurkenni ekki rétt
sjúkraliða á landsbygginni í
Sjúkraliðafélaginu til 1,7%
launahækkunarinnar.
Á sama tíma sé búið að semja
við samsvarandi hóp í starfs-
mannafélögum um þessa hækkun.
Að hennar mati kemur ekki til
greina að samþykkja launalækkun
sjúkraliða í Sjúkraliðafélaginu á
landsbyggðinni á sama tíma og
samið hafí verið við starfsfélaga
þeirra í starfsmannafélögum.
Kristín sagði að stéttarfélag
sjúkraliða væri aðeins rúmlega eins
. árs og enn væri hópur sjúkraliða
úti á landi í starfsmannafélögum.
Við þau væri búið að semja um
1,7% hækkun og ekki væri forsvar-
anlegt að lækka laun sjúkraliða í
Sjúkraliðafélaginu á sama tíma.
„Við getum ekki skrifað undir að
sjúkraliði starfandi í sjúkrahúsi úti
á landi lækki um 20% eða um það
hlutfall sem hann hefur hærra
kaup en sjúkraliðar í Reykjavík
meðan hinn sem er í gamla starfs-
mannafélaginu lækkar ekki. Þetta
er það sem er verið að beijast og
bítast um. Á meðan á þessu stend-
ur fá svo sjúkraliðar á Reykjavík-
ursvæðinu ekki kjarasamning, ekki
1,7% hækkun, og þeir era ekíri til-
búnir til að samþykkja það,“ sagði
hún.
í ályktun trúnaðarmannaráðs
Sjúkraliðafélagsins frá því í gær
er þess m.a. krafíst að hafíst verði
handa við frágang kjarasamnings
en það sé algjörlega óviðunandi
að sjúkraliðar skuli hafa unnið í
15 mánuði án kjarasamninga. Lýs-
ir ráðið fullri ábyrgð á hendur
samninganefnd ríkisins, Reykja-
víkurborg og Landakotsspítala
vegna afleiðinga þess að ekki hafí
verið staðið við undirritaða ráðn-
ingasamninga sjúkraliða frá 1. maí
1992.
Trúnaðarmenn félagsins leggja
til að viðsemjendum félagsins og
sáttasemjara verði gerð grein fyrir
þeirri ákvörðun sjúkraliða að þeir
grípa til aðgerða sem dugi til að
knýja viðsemjendur félagsins til
að ganga frá kjarasamningi.
Sjálfstæðir
atvinnurekendur
Skattlagning
miðist við 15%
hærri tekjur
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveð-
ið að viðmiðunarmörk reik-
naðra launa einstaklinga í at-
vinnurekstri verða hækkuð um
15%. Viðmiðunartölurnar eru
mismunandi eftir atvinnu-
rekstri viðkomandi en eru að
meðaltali áætlaðar í dag um
80 þúsund kr. á mánuði og
myndu þvi hækka í 92 þúsund
krónur. Jafnframt þessu verð-
ur skattaeftirlit hert stórlega.
Ein af röksemdunum fyrir
þessari hækkun er að menn telja
sig hafa séð ákveðið misræmi í
launum samkvæmt skattfram-
tölum og niðurstöðum kjararann-
sóknamefndar.
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar í fjármálaráðuneytinu í
gær að ekki væri enn ljóst hvort
hækkun viðmiðunarmarka launa
yrði jöfn í öllum greinum atvinnu-
rekstrar. Hugsanlegt væri að
hækkun viðmiðunarmarka ein-
hverra stétta yrði hærri en 15%.
Enn óljóst hverjir bjóða
sig fram til forseta ASÍ
Akureyri, frá Hjálmari Jónssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
LÍNUR hafa ennþá ekkert skýrst arsdóttir, Magnús
Stærsta hassmálið
Saksóknari segir málningafötumál-
ið stærsta hassmál sem upp hefur
komið hér á landi. 7
Byrjun Evrópumóts í
skúk lofar góðu________________
ísland vann Slóvena en gerði jafn-
tefli við Armena og Þjóðverja 33
1000% vextir í Noregi
Norðmenn vörðu gengi krónunnar
af mikilli hörku 27
Leiðari _______________________
ísinn brotinn 28
Keflavflc með í fyrstu
[ fMorður-Evrópukeppni
Le Havreog
PSQsýna
Sysý-s kí-æ-s ifpta ?msz &bs.*u
5SSST
íþróttir
► Guðni Siguijónsson á verð-
launapall á HM í kraftlyftingum.
Eyjólfur lagði upp sigurmark
Stuttgart. Magnús Jakobsson
endurkjörinn formaður FRÍ.
um það hveijir verða í framboði
til forseta Alþýðusambands ís-
lands, en 37. þing sambandsins
var sett á Akureyri í gær. Kosn-
ingarnar eiga að fara fram á
morgun, en Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ, gefur ekki kost
á sér til endurkjörs. Nú er talið
ólíklegt að Grétar Þorsteinsson,
formaður sambands bygginga-
manna, gefi kost á sér en hann
er einn þeirra sem hvað mest
hefur verið orðaður við forseta-
embættið til þessa. í dag verður
fyrri umræða um kjara- og efna-
hagsmál og er gert ráð fyrir mikl-
um umræðum um efnahags-
aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Pétur Sigurðsson, formaður Ai-
þýðusambands Vestfjarða, er sá eini
sem gefíð hefur kost á sér til forseta-
embættisins. Þá hefur Öm Friðriks-
son, annar varaforseti sambandsins
og formaður Málm- og skipasmiða-
sambands íslands, verið nefndur í
sambandi við framboð en menn
greinir á um hvort hann muni gefa
kost á sér. Fleiri nöfn hafa verið í
umræðunni, ef hvorki Grétar né Örn
gefa kost á sér en þá er mjög óljóst
hver framvindan verður.
Kjömefnd var kosin í gær og er
verkefni hennar að stilla upp 18
mönnum í miðstjóm sambandsins,
auk forseta og tveggja varaforseta.
Búist var við að kjörnefnd hæfi störf
í gær en það varð ekki og er fyrsti
fundur hennar ráðgerður fyrir há-
degi í dag. Kjörnefnd mun ræða við
þá sem orðaðir hafa verið við fram-
boð og mun hún reyna að búa til
sem stérkasta forystuheild forseta
og varaforseta. í kjörnefnd eiga
sæti Benedikt Davíðsson, Guðmund-
ur Hilmarsson, Hervar Gunnarsson,
Hrafnkell A. Jónsson, Kristín Hjálm-
L. Sveinsson,
Ragna Bergmann, Sigrún D. Elías-
dóttir og Þórður Ólafsson.
Á fyrsta degi þingsins í gær var
eftir setningarræðu og skýrslu for-
seta og ávörp gesta, fyrri umræða
um skipulagsmál, vinnuvemdar- og
umhverfismál og velferðarmál. í dag
eru á dagskrá, auk kjara- og efna-
hagsmála, mennta- og menningar-
mál og Evrópumál.
Sjá einnig á bls. 54.
Landsútsvarið
ekki fellt niður
LANDSÚTSVAR verður ekki fellt niður eins og aðstöðugjald á næsta
ári. Landsútsvar er í stað aðstöðugjalds lagt á nokkur fyrirtæki sem
hafa starfsemi um allt land og rennur það í Jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga. Gjaldið nemur 600 milljónum kr. á ári. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er rætt um að þó landsútsvarið verði innheimt á
næsta ári vegna viðkvæmrar stöðu Jöfnunarsjóðs verði næsti áfangi
að fella það niður.
Landsútsvarið er Iagt á vejtu ríkis-
verksmiðjanna, svo sem Áburðar-
verksmiðjunnar og Sementsverk-
smiðjunnar, og olíufélögin. Velta ol-
íufélaganna við sölu á gas- og svart-
olíu til útgerðarinnar er undanþegin.
Þá er innheimt gjald af bönkunum
sem reiknað er út á annan hátt.
Kristinn Björnsson, forstjóri Olíu-
félagsins Skeljungs hf., sagðist í gær
varla trúa því að landsútsvarið væri
ekki afnumið á sama hátt og að-
stöðugjaldið. Landsútsvarið væri
lagt á olíufélögin í stað aðstöðu-
gjalds og sömu lögmál giltu um þessi
gjöld. Nú yrðu olíufélögin einu fyrir-
tækin í landinu sem greiddu þetta
gjald, fyrir utan ríkisverksmiðjumar,
sem ekki væri hægt að jafna saman.
Nefndi hann sem dæmi að Skeljung-
ur greiddi á milli 50 og 60 milljónir
kr. í landsútsvar á ári.
Kristinn sagði að sér þætti það
ansi hart að þegar gripið væri til
almennra aðgerða í efnahagsmálum
væri þeim stýrt eftir því hvað fyrir-
tækin hétu. Eitt yrði yfir alla að
ganga í svona málum. Kristinn sagði
að með þessu væri verið að skatt-
leggja olíufélögin með sértækum
aðgerðum. Ef þannig aðferðir ættu
að gilda í þjóðfélaginu væri hægt
að eyðileggja hvaða fyrirtæki sem
menn vildu.
Kristinn benti á að olíufélögin
ættu í tröllauknum viðskiptum við
útgerðina í landinu og sagði augljóst
að verulegir fjármunir töpuðust þar
á næstu árum. Sagði hann að olíufé-
lögin yrðu að leggja háar íjárhæðir
til hliðar til að mæta þessu, ekki
síður en bankar og önnur fyrirtæki.
Því væri það mjög ósanngjamt að
þessi fyrirtæki þyrftu ein fyrirtækja
í landinu að bera þennan ósann-
gjama skatt.