Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 39
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Verðlag og alþjóð- legur samanburður Umfjöllun um mikinn mun á verðlagi ýmissa vara hér á landi og erlendis hefur vakið at- hygli og ýtt undir opinberar umræður um verðlagsmál. Sam- anburður sem Morgunblaðið gerði á verði fatnaðar hér heima og í Newcastle, þar sem margir íslendingar hafa kosið að stunda innkaup, leiddi í ljós, að vörurnar í Newcastle voru á heildina litið til muna ódýrari, þótt í kjölfarið hafi fylgt ábendingar um að hér á íslandi væri líka hægt að fá ódýran fatnað. Einnig hefur vak- ið athygli alþjóðleg verðkönnun brezks neytendakönnunarfyrir- tækis, Intemational Information Services, á verðlagi i þrettán löndum. Innkaupakarfa, sem fyr- irtækið valdi vörur í, reyndist mun dýrari á íslandi en í þeim ríkjum öðrum , sem könnunin náði til. Af 22 algengum neyzlu- vörum í innkaugakörfunni voru tíu dýrastar á Islandi. Ástæða er til að benda á, að frambærileg- ar skýringar hafa komið fram á háu verði á nokkrum vöruteg- undum, en það breytir engu um heildarniðurstöðuna frá sjónar- hóli neytandans hér. Könnun þessi hefur víðar vakið athygli en hér á landi og hafa niðurstöð- ur hennar birzt í ýmsum virtustu blöðum og tímaritum erlendis. Eðlilegt er að neytendur spyiji hvað valdi þeim gífurlega verð- mun sem sýnt hefur verið fram á. Ýmsar skýringar hafa verið nefndar til sögunnar. Kaupmenn benda á, að opinberar álögur séu svo háar hér, að jafnist ekki á við það sem gerist í nágranna- löndunum. Mikið er til í þessu. Til að mynda er virðisaukaskatt- ur hár hér á landi og matvörur og aðrar nauðsynjar ekki undan- þegnar honum eða í lægra skatt- þrepi, eins og til dæmis háttar til með mat og barnaföt í Bret- landi og víðar. Einnig hefur ver- ið bent á að vörugjöld, til dæmis á sælgæti og gosdrykki, eru miklu hærri hér en í þeim lönd- um, sem við berum okkur helzt saman við. Hins vegar eru tollar og aðflutningsgjöld hverfandi miðað við það, sem áður var. Aðrar ákvarðanir stjórnvalda, til dæmis varðandi gífurlega há opinber gjöld á tóbak, áfengi og benzín, hækka auðvitað almennt verðlag hér á landi. Landbúnað- arstefnan hefur einnig viðhaldið hæsta verði landbúnaðarafurða, sem þekkist. Fulltrúar kaupmanna nefna til sögunnar skýringar sem tengjast aðstæðum hér á landi, til dæmis að kostnaður við að flytja ýmsar vörur til landsins sé hærri en annars staðar. Þetta er sjálfsagt rétt í ýmsum tilfellum en dugar ekki sem skýring í öðrum. Smæð markaðarins er önnur útskýring, sem stundum er nefnd, og vafa- laust er það rétt að ekki er hægt að gera jafnhagstæð innkaup fyrir lítinn markað og stóran. Þó hefur að undanförnu verið sýnt fram á dæmi þess að ís- lenzkir innflytjendur nái sömu kjörum og verzlunin í stærri löndum nýtur og slíkt hlýtur að vera verzluninni hér kappsmál. Það er ekki hægt að skella skuldinni eingöngu á hið opin- bera og aðstæður hér á landi. Því hefur verið haldið fram, að álagning sé í mörgum tilvikum of há, en jafnframt má telja lík- legt að hún fari lækkandi. Neyt- endasamtökin og Verðlagsstofn- un hafa bent á að samkeppni sé ábótavant hér á landi. Verðdreif- ing sé lítil og samtrygging oft ríkjandi um verðlagningu á ákveðnum vörum. í sumum til- vikum er talið að of margir millil- iðir séu á leið vörunnar frá fram- leiðanda til neytanda, jafnvel að danskir milliliðir hagnist enn á íslandsviðskiptum! Loks er nefnd athyglisverð skýring, til dæmis af hálfu International Informati- on Services; að mörg fyrirtæki verðleggi vöru sína fremur eftir því sem þau telji að markaðurinn beri en eftir kostnaði við fram- leiðslu, flutning og dreifingu. Slíkt á íslenzka verzlunin auðvit- að ekki að sætta sig við, heldur krefjast sömu kjara og aðrir njóta. Umræðurnar um verðmun hér á landi og erlendis eru af hinu góða, hvernig sem á málið er lit- ið, en þær verða auðvitað að byggjast á sanngjörnum saman- burði. Þær sýna að neytendur eru vakandi fyrir því að viðun- andi kjör séu boðin og að hér fáist jafnvönduð vara og erlend- is, á sambærilegu verði. Það er óumflýjanleg staðreynd að ísland er hluti af stærra markaðssvæði. Það er ódýrara að ferðast til út- landa en áður og upplýsingar um verðlag í öðrum löndum eru að- gengilegri. Svo lengi sem verðlag hér á landi er hærra en í ná- grannalöndum okkar, er sama hvaða útskýringar eru gefnar á muninum; neytendur munu ekki sætta sig við hann og beina við- skiptum sínum út fyrir landstein- ana ef svo ber undir. Það er verk- efni stjórnvalda, innflytjenda og smásala að finna leiðir til þess að jafna þennan verðmun. ís- lenzkir neytendur munu ekki sætta sig við annað. ÚA kaupir meirihluta í þýzku útgerðarfyrirtæki Er skref í átt til nánara # samstarfs í sjávarútvegi - segir Wolfgang von Geldern, stjórn- arformaður Deutsche Fischwirtschaft VILJAYFIRLÝSING Útgerðarfélags Akureyringa uni að kaupa meiri- hluta í Mecklenburger Hochseefischerei í Rostock í Þýzkalandi er fyrsta skrefið i átt til nánara samstarfs Þjóðverja og íslendinga í sjáv- arútvegsmálum, segir dr. Wolfgang von Geldern, fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra Þýzkalands og sljórnarformaður Deutsche Fischwirtsc- haft. Deutsche Fischwirtschaft er móðurfyrirtæki Mecklenburger Hochseefischerei, sem áður hét Rostocker Fischfang Rederei, og er í eigu Treuhandanstalt, eignarhaldsfélagsins sem sér um að einkavæða gömul austur-þýzk ríkisfyrirtæki. Von Geldern hefur mjög beitt sér fyrir því að samningar næðust við íslenzka aðila um kaup á fyrirtækinu. „Ég er mjög bjartsýnn og býst við að okkur muni takast að ljúka kaupsamningi fyrir 12. marz, en það takmark höfum við sett okk- ur,“ sagði von Geldern í samtali við Morgunblaðið í gær. Von Geldern vildi ekki svara spurningum um hugsanlegt kaup- verð hlutar ÚA í Mecklenburger Hochseefischerei eða um fjárhags- stöðu fyrirtækisins. Hann sagði hins vegar að þýzkir aðilar hefðu marg- víslegan hag af því að íslendingar keyptu sig inn í fyrirtækið. í fyrsta lagi tryggði það framtíð fyrirtækis- ins og atvinnu starfsfólks þess að einkafyrirtæki yfirtæki það, í stað þess að fyrirtækið yrði lagt niður eða opinbert fé sett í reksturinn. „í öðru lagi vildum við, vegna stjórnmála- og atvinnusjónarmiða, tryggja að úthafsútgerð yrði áfram rekin frá Austur-Þýzkalandi, en ekki aðeins frá Cuxhaven í vesturhlutanum," sagði Von Geldern. „í þriðja lagi tel ég afar gagnlegt að hafa stigið fyrsta skrefið í átt til nánara samstarfs Islendinga og Þjóðveija í sjávarút- vegsmálum. Ég tel að slíkt sam- starf geti skilað báðum þjóðum já- kvæðum árangri." Áðspurður Meðeigendur ÚA verða Rostock- höfn með 10%, Rostockborg með 5% og landstjórnin í Mecklenburg- Vorpommern, sem eiga mun 25%. Gert er ráð fyrir að Mecklenburger Hochseefíscherei hafi áfram höfuð- stöðvar í Rostock og verði skráð sem þýzkt fyrirtæki. Hins vegar er gert ráð fyrir að nokkrir af stjórnendum þess verði íslenzkir. Skip fyrirtækis- hvort hann teldi líkur á að verk- smiðjutogarar Mecklenburger Hoc- hseefischerei myndu landa afla sín- um á íslandi, sagði von Geldern það ekki ákveðið að svo yrði, en að því væri stefnt. „Við vonum að svo geti orðið og ég held að Útgerð- arfélag Akureyringa vonist til að einhveijum af átta togurum fyrir- tækisins verði leyft að koma í ís- lenzkar hafnir, landa afla sínum þar og halda áfram veiðum. Fiskur- inn yrði þá fluttur út frá íslandi, til Þýzkalands eða annarra landa. Þetta er óleyst mál. Mér skilst að nýju lögin um landanir erlendra skipa á Islandi kveði á um að leyfi- legt sé að opna hafnirnar, en slíkt ins, sem eru átta talsins, munu einn- ig sækja umtalsverða þjónustu til íslenzkra hafna. Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að eitt skilyrði þess að af kaupunum gæti orðið, væri að íslenzk stjórnvöld veittu fyr- irtækinu leyfi til að athafna sig hér á landi. Hann sagði að til greina kæmi að togarar þess lönduðu ein- Dr. Wolfgang von Geldern. sé ekki nauðsynlegt. Við vonum auðvitað að slíkt verði leyft fyrir skip fyrirtækisins, enda verða þau í íslenzkri eigu að meirihluta," sagði von Geldern. hveijum afla hér, en hagkvæmni yrði einkum látin ráða því hvar skip- in hefðu sín umsvif. „Það er gert ráð fyrir að það geti orðið hér á Akur- eyri eins og hvar sem er annars stað- ar,“ sagði Gunnar. ÚA hefur undanfarna mánuði fylgzt vandlega með rekstri RFFR og reynslu af útgerð togara þess. Gerðar hafa verið rekstraráætlanir og frammistaða skipanna athuguð. „Áætlanir okkar byggjast á að arður verði af rekstrinum,“ sagði Gunnar. Hann sagði að ÚA tæki ekki veru- lega áhættu með kaupunum. „Þetta verður sérstakt hlutafélag og við munum ekki bera Ijárhagslega ábyrgð á því umfram okkar eignar- hluta,“ sagði Gunnar. Nafnverð hlutarins 96 millj. kr. ÞÝZKA útgerðarfyrirtækið Rostocker Fischfang Rederei (RFFR), sem Útgerðarfélag Akureyringa hyggst kaupa meirihluta í, skiptir um nafn með nýjum eigendum og kallast Mecklenburger Hochseefische- rei. Nafnverð hlutabréfa í hinu nýja félagi verður fjórar milljónir þýzkra marka, eða 160 milljónir íslenzkra króna. Samkvæmt viljayfir- lýsingu þeirri, sem undirrituð var í Berlín fyrr í vikunni, kaupir ÚA 60% í fyrirtækinu og er nafnverð hlutarins því 96 milljónir íslenzkra króna. Ekki hefur verið gefið upp hvert líklegt kaupverð er eða hvern- ig eigna- og fjárhagsstöðu fyrirtækisins er háttað. Aukaatriði og aðalatriði um jafngildar veiðiheimildir eftirHalldór * Asgrímsson Þegar blaðamaður heldur því fram að það sé í meira lagi hæpið sem stjórnmálamaður segir er eðlilegt að spurt sé, hvað liggur að baki. Áður en slík fullyrðing er sett fram tel ég að viðkomandi blaðamaður eigi að ræða við stjórnmálamanninn, draga í efa niðurstöður hans og gefa honum tækifæri til útskýringa. Þetta gerði Agnes Bragadóttir ekki áður en hún taldi sig geta lagt slíkan dóm á um- mæli mín. Að mínu mati leitaði hún heldur ekki eftir nægilegum upplýs- ingum. Hún byggði um of á fullyrðing- um utanríkisráðuneytisins í málinu. Allt kann þetta að eiga sér skýringar, en það var af þessum ástæðum sem ég sagði að hún hefði ekki gætt hlut- leysis. Með skrifum sínum kastaði hún rýrð á mín vinnubrögð og því bið ég hana að líta í eigin barm. En þetta er þrátt fyrir allt ekki aðalatriði máls- ins heldur hvernig við eigum að meta þann samning sem hefur verið gerður og hvort hanan er okkur hagstæður. Ég stend við þá fullyrðingu að hann sé Islendingum óhagstæður og gefi EB mun meira en okkur. Fáum mun minna en EB Ég get fallist á þá skoðun sem kemur fram í fyrirsögn Agnesar Bragadóttur, að verðmæti veiðiheim- ilda fyrir íslenska þjóðarbúið skipti öllu máli. Um það getum við verið sammála og ég tel að þar eigi ekki síst að leggja til grundvallar mat Þjóð- hagsstofnunar á verðmæti alls landaðs afla á árinu 1991. Þar kemur fram að ef þorskur er metinn á 1 þá er verðmæti karfa 0,7 og loðnu 0,04. Þessi mælikvarði er hins vegar ekki algildur fremur en aðrir og því verður að líta til annarra atriða málsins. Það er hins vegar ekki aukaatriði hversu mikil verðmæti EB getur gert sér úr sínum veiðiheimildum. í öllum samningum er aðalatriðið að báðir aðilar hafi hag af. Það er enginn vafi á því, að Efnahagsbandalagið hefur mikinn hag af þessum skiptum. Karfa- heimildir sem þeir fá eru mikils virði, en þeir hafa aðeins í litlum mæli get- að nýtt þá loðnu sem þeir hafa keypt af Grænlendingum. Það sem við fáum eru 30 þús. tonn af loðnu, sem eru vissulega nokkurs virði, en það sem við látum á móti er okkur þjóðhags- lega mun meira virði. Efnahagslegur ávinningur EB af þessum samningi hefði því getað orðið góður þótt þeir hefðu fengið mun minna í stað þeirra loðnuheimilda sem við fáum frá þeim. Hagur mótaðilans. I samningum hljótum við að líta til þess hvers virði þessar heimildir eru fyrir þá. Á sama hátt og allir sem stunda viðskipti reyna að gera sér grein fyrir hag mótaðilans af viðskipt- unum. Sannleikurinn er sá, að EB var ávallt að blanda inn í málið þeim hag sem við fengjum af frekari markaðs- aðgangi. Ég tel að þeir hafi náð því fram, að fá mun meira í sinn hlut í skiptum á veiðiheimildum og á það get ég ekki fallist. Það er aðalatriði málsins og við þær fullyrðingar mínar stend ég og ég tel það virðingarvert hjá Agnesi Bragadóttir að koma veru- lega til móts við þetta sjónarmið í skrifum sínum þann 17. desember. Var ekki sjávarútvegsráðherra íjúní1991 Ég vil upplýsa blaðamanninn um það, að engar formlegar viðræður fóru fram í minni tíð um þessi skipti. Það Halldór Ásgrímsson „Aðalatriði málsins er það, að Islendingar eiga að fara fram á veruleg- ar lagfæringar á þessum samningi. Það er svig- rúm til þess þar sem samningurinn um Evr- ópskt efnahagssvæði tekur ekki gildi um nk. áramót.“ var aðeins um óformlegar viðræður að ræða 7. mars 1989 milli sjávarút- vegsráðherra Islands og Manuel Mar- in, framkvæmdastjóra EB. Fundur embættismanna íslands og EB 29. mars 1990 varð ekki árangursríkur. Skriður komst á þessa samninga eftir að ég fór úr ríkisstjórn og það var í tíð núverandi ríkisstjórnar, að tilkynnt var að niðurstaða væri fengin og í hlut EB kæmi 3 þús. karfaígildi, þar af 70% langhali. Ég hélt uppi gagn- rýni á málsmeðferðina og málið í heild frá upphafi. Um það vitna ummæli mín í blöðum og á Alþingi. Ég varaði einnig við þeim málflutn- ingi að líta á langhalastofninn sem verðlausan stofn. Ég hafði efasemdir frá upphafi um að slíkur samningur yrði að veruleika, en taldi það ásætt- anlegt ef þetta yrði niðurstaðan. Það var mitt mat að mikil óvissa fylgdi langhalaveiðunum með sama hætti og óvissa fylgir loðnuveiðunum. Karfa- veiðarnar eru hins vegar tiltölulega öruggar. Verðum að fá betri samning Ég tel ekki ástæðu til að eiga frek- ari orðastað við Agnesi Bragadóttur um þetta mál. Ég þakka Morgunblað- inu drengileg viðbrögð við beiðni minni um að birta svar þegar ég fór fram á það. Aðalatriði málsins er það, að íslendingar eiga að fara fram á verulegar lagfæringar á þessum samningi. Það er svigrúm til þess þar sem samningurinn um Evrópskt efna- hagssvæði tekur ekki gildi um nk. áramót. Það gefst því tækifæri til að endurskoða samninginn og krefjast þess að hann verði gerður á jafnréttis- grundvelli og aðeins verði skipt á jafn- gildum veiðiheimildum sem séu hag- kvæmar fyrir báða aðila. Höfundur er alþingismaður og varaformaður Framsóknarflokksins. SOeí H38M3B3U .81 HUDAaUT8Ö3 nWiDBTZM QIQAJaVlUDÍIOM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGURri87DESEMBER~l992 a 8 39 Fyrsta umræða um fjárhagsáætlun Reykjavikur 1993 fór fram í gærkvöldi I fyrsta sinn í áratugi lækka tekjur milli ára TEKJUR borgarsjóðs Reykjavíkur á árinu sem nú er að líða verða rúmlega hálfum milljarði króna lægri en gert var ráð fyrir og út- gjöld til rekstrar 766,9 milljónum króna hærri en fyrstu fjárhagsáætl- unartölur gáfu til kynna. Þetta kom fram í ræðu Markúsar Arnar Antonssonar borgarstjóra við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun borg- arinnar 1993, sem fram fór á borgarstjórnarfundi í gær. í ræðu borgarstjóra kom einnig fram, að á næsta ári væri gert fyrir að tekjur borgarinnar yrðu 12.185 milljónir króna og væri það lækkun um 142 milljónir frá áætlaðri útkomu 1992. Sagði hann að áreiðan- lega þyrfti að leita meira en 50 ár aftur í tímann til að finna dæmi þess að tekjur borgarinnar lækkuðu milli ára. Útkoma ársins 1992 í ræðu borgarstjóra kom fram, að engin tekjuflokkur borgarinnar skilaði á þessu ári innborgun um- fram það sem áætlað hafi verið og flestir væru undir áætlun. Útsvar skilaði t.d. um 100 milljónum lægri upphæð en gert hefði verið ráð fyr- ir í fjárhagsáætlun og aðstöðugjöld yrðu líklega 240 milljónum undir áætlun. í máli borgarstjóra kom einnig fram, að aukafjárveitingar borgar- innar á árinu væru orðnar samtals um 410 milljónir króna og í útkomu- spá ársins væri reiknað með því að rekstrargjöld færu 766,9 milljónum króna fram úr fyrstu fjárhagsáætl- unartölum. Þá væri gert ráð fyrir að til eignabreytinga yrði á árinu varið 4.093,8 milljónum í stað 3.844,7 milljóna króna, sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Mismunur á tekjum borgarinnar og annarra sveitarfélaga Borgarstjóri vék að áhrifum breyttrar verka- og tekjuskiptingar ríkis og sveitarfélaga og benti á, að skatttekjur kauptúnahreppa væru orðnar hærri á hvern íbúa en skatttekjur kaupstaða og borgar- innar. Frá því tekjustofnalögin tóku gildi hefðu skatttekjur minni hreppa hækkað um 41,9%, tekjur hjá kauptúnum hefðu hækkað um 50,5%, hjá kaupstöðum um 20,6% en hjá Reykjavík um 5,9%. Hann fjallaði einnig um afnám aðstöðugjaldsins, sem verið hefði einn veigamesti tekjustofn sveitar- félaga. Enginn vissi í dag hvað tæki við af aðstöðugjaldinu en fé- lagsmálaráðherra gæti nú ásamt ýmsum sveitarstjórnarmönnum vítt og breitt um landið glaðst yfir því að svo kynni að fara, að Reykjavík- urborg gæti ekki lengur hlíft borg- arbúum við hækkun á útsvari. í hnotskurn hefði það gerst, að fjár- hagslegt sjálfsforræði sveitarfélaga hefði verið stórlega skert og skatt- byrði fyrirtækja hefði verið velt yfir á einstaklinga. Það hlyti að vera sanngjörn og eðlileg krafa, að í framtíðinni yrði sveitarfélögum tryggðar tekjur af atvinnurekstri, hveiju í sinni byggð, og ekki slitið á öll skattaleg tengsl milli atvinnu- rekstrarins og sveitarfélaganna. Borgarstjóri gagnrýndi fram- komu ríkisvaldsins í samskiptum við sveitarfélögin á fleiri sviðum. Meðal annars hefðu ýmsar ráðstaf- anir þess, svo sem breytingar á innheimtu virðisaukaskatts, í för með sér aukin útgjöld sveitarfélag- anna. Sagði hann ástæðu til að árétta, að hugmyndir, sem nú lægju fyrir um breytta sveitarstjórnar- skipan í landinu, næðu örugglega ekki fram að ganga, ef ekki ríkti traust og trúnaður milli aðila og menn mættu treysta því samningar og lög um samráð þeirra á milli væru virt. Tekjur lækka milli ára Samkvæmt ræðu borgarstjóra er gert ráð fyrir að tekjur borgarinnar á árinu 1993 verði 12.185 milljónir króna. Það væri lækkun frá áætl- aðri útkomu ársins 1992 um 142 milljónir og þyrfti áreiðanlega að leita meira en 50 ár aftur í tímann til að finna dæmi um það að tekjur borgarsjóðs lækkuðu milli ára. Áð- altekjustofninn, útsvör, myndi skila 6.260 milljónum og væri þar miðað við óbreytt hlutfall af staðgreiðslu- stofni, eða 6,7%. Benti borgarstjóri á að borgin hefði haldið sama út- svarshlutfalli frá 1988 er stað- greiðslu skatta var komið á, en á sama tíma hefði ríkið hækkað hlut- fall tekjuskatts í staðgreiðslu um 5,8 prósentustig, auk þess sem taka ætti upp sérstakan hátekjuskatt. Tekjuskattsbyrðin hefði aukist um rúm 20% á þessum tíma. Fram kom að fasteignaskattar myndu samkvæmt áætlun skila 2.045 milljónum króna á árinu 1993 og væri þar gert ráð fyrir 3,5% hækkun á mati íbúðarhúsnæðis og lóða samkvæmt ákvörðun Fast- eignamats ríkisins. Álagningarhlut- fallið yrði hins vegar óbreytt. Áætl- að væri að greiðsla frá ríkinu vegna niðurfellingar aðstöðugjalds myndi nema 2 milljörðum og 195 milljón- um króna á árinu og væri þá miðað við að sveitarfélögum yrði, hveiju um sig, greidd fjárhæð sem næmi 78% af álagningartölu ársins. Útgjöld aukast um 3,9% Borgarstjóri gerði einnig grein fyrir áætluðum útgjöldum borgar- innar á næsta ári. Þar kom fram, Markús Örn Antonsson, borgar- stjóri. að gert væri ráð fyrir 3,9% hækkun rekstrargjalda miðað við áætlaða útkomu þessa árs. Útgjaldaforsend- ur íjárhagsáætlunarinnar miðuðust við að laun og launatengd gjöld hækkuðu um 3% og önnur útgjöld að óbreyttum umsvifum um 2,5 til 3%. Ekki væri búið að reikna með áhrifum gengisfellingarinnar 23. nóvember, auk þess sem gera þyrfti ráð fyrir auknum kostnaði í kjölfar breytinga á álagningu virðisauka- skatts. Því mætti búast við breyt- ingum á frumvarpi til fjárhagsáætl- unar fyrir síðari umræðu í borgar- stjóm. Borgarstjóri sagði að allur undir- búningur fjárhagsáætlunarinnar hefði mótast af vilja til þess að halda óbreyttum framkvæmdaum- svifum til þess að draga úr þeim samdráttaráhrifum, sem nú gætti í atvinnulífi Reykvíkinga. Samanlögð framlög til framkvæmda verði ná- lægt 6.150 milljónum króna á þessu ári að meðtöldum aukafjárveiting- um en verði á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætluninni 5.900 milljónir króna. Þar við bætist framlög til verklegra framkvæmda og viðhalds á vegum fyrirtækja borgarinnar, sem nemi samanlagt um 3 milljörð- um króna á tímabilinu 1991 til 1993. Borgarstjóri sagði, að þrátt fyrir að tekjur borgarinnar yrðu minni á þessu ári en reiknað hefði verið með, hefði borgarstjórn og borgar- ráð einhuga haldið til streitu öllum framkvæmdaáformum og sam- þykkt sérstakar fjárveitingar, sam- tals að fjárhæð 370 milljónir króna, til úrbóta í atvinnumálum. Ekki yrði með nokkurri sanngirni sagt annað en að borgin hefði lagt sitt af mörkum til örvunar atvinnulífinu og þess yrði einnig freistað á næsta ári, þrátt fyrir þrengri stöðu. Einstakir rekstrarliðir í máli sínu gerði borgarstjóri grein fyrir útgjöldum til einstakra liða í rekstri borgarinnar. Þar kom meðal annars fram, að til menning- armála yrði varið 485,7 milljónum króna, kostnaður við skólamál yrði 1.525,1 milljón króna, til æsku- lýðs-, tómstunda- og íþróttamála yrði varið 764,8 milljónum, til dag- vistarmála 1.082,8 milljónum, til félagsmála 1.625,3 milljónum, til gatna- og holræsaframkvæmda 2.243 milljónum, til hreinlætismála 507,5 milljónum og til umhverfís- mála 369,1 milljón. Við þessar upphæðir bætast fjár- veitingar til framkvæmda. Að sögn borgarstjóra er meðal annars fyrir- hugað að ljúka viðbyggingu við Hlíðaskóla og hefja framkvæmdir við annan áfanga Húsaskóla, auk þess sem bygging skóla í Rima- hverfi væri í undirbúningi. Þá yrði áfram unnið að endurbótum á lóð- um grunnskóla. Til framkvæmda á sviði íþrótta- og æskulýðsmála yrði varið 370 milljónum eða 100 millj- ónum hærri upphæð en á yfirstand- andi ári. Munaði þar mestu um framkvæmdir við sundlaug í Árbæj- arhverfí, en til þess verkefnis yrði varið 235 milljónum. Til umhverfis- og útivistarverkefna yrði varið 205 milljónum, þar af um 95 milljónum til a ljúka við fyrsta áfanga Fjöl- skyldugarðs í Laugardal. Til bygg- ingar leikskóla og framkvæmda á gæsluvöllum yrði varið um 300 milljónum og hefði ekki áður svo hárri upphæð verið varið til fram- kvæmda á því sviði. Þá yrði varið til framkvæmda í þágu aldraðra 617 milljónum. í lok ræðu sinnar sagði borgar- stjóri, að fjárhagsáætlunin bæri það með sér, að meirihluti borgarstjóm- ar ætlaði sér að bregðast við mjög óvenjulegum aðstæðum í efnahags- og atvinnulífinu á þann hátt, að borgin bregðist kröftuglega við at- vinnuleysi og fylgikvillum þess. Sjálfstæðismenn hefðu beitt sér fyrir festu og öryggi í stjórn borgar- innar, sem tryggt hefði borginni traustan ijárhag og getu til stórra verka. Að þessu byggi borgin nú þegar harðnaði á dalnum. Hann vék að verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga og sagði, að eðlilegt væri að færa verkefni í meira mæli til sveitarfélaganna. Ef einhveijar sveitarstjórnir vildu skorast undan samstarfi á þessu sviði, ætti borgin að beita sér fyrir því að þau sveitar- félög, sem til þess hefðu styrki og^ áhuga, tækju við auknum verkefn- um. Landsvirkjun hækkar afslátt af rafmagni til húshitununar STJÓRN Landsvirkjunar hefur ákveðið að hækka afslátt af verði rafmagns til hitunar íbúðarhúsnæði um 6 aura. Með því gengur til baka um helmingur rafmagnsverðshækkunarinnar um áramót. Af- slátturinn kostar Landsvirkjun um 16,5 milljónir kr. á ári. Rafmagnsverð hækkar um 4% um áramót. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar leiðir það til um 11 aura hækkunar á hveija kílówatt- stund til húshitunar. Til þess að milda áhrif hækkunarinnar ákvað stjórn Landsvirkjunar að hækka afslátt sinn af húshitunartaxta úr 20 aurum í 26 aura á kWst. Að sögn Þorsteins er afslátturinn ein- göngu veittur á þeim svæðum sem dýrast er að kynda, það er á svæði Orkubús Vestfjarða og Rafmagns- veitna ríkisins. Afsláttur Landsvirkjunar vegna hitunar íbúðarhúsnæðis var áætl- aður 55 milljónir kr. á ári en hækk- ar upp í 71,5 milljónir við hækkun afsláttarins. Miðað við 30 þúsund kW ársnotkun gæti hækkun raf- magnsverðsins kostað fjölskyldu utan hitaveitusvæðanna um 3.300 kr. á ári en með því að auka afslátt- inn tekur Landsvirkjun á sig 1.800 krónur þannig að kostnaðarauki fjölskyldunnar gæti þá verið ’um 1.500 kr. á ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.