Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992 22 Æviskrár barnabókahöfunda Békmenntir Erlendur Jónsson SKÁLDATAL. 194 bls. Elísabet Þórðardóttir, Guðríður Gísladótt- ir og Ingibjörg Sæmundsdóttir tóku saman. Lindin. Reykjavík, 1992. Um leið og hópur greinir sig frá öðrum verður hann að fá sínar bók- menntir. Með barnaskólum og síðar barnaheimilum urðu til bamabók- menntir. Poppið og ungiingatískan krafðist unglingabókmennta. Og með kvennahreyfingunni komu svo kvennabókmenntir. Skáldatal þetta nær yfir alla íslenska barna- og ungl- ingabókahöfunda sem hafa sent frá sér tvær bækur eða fleiri. Að öðru leyti er ekki farið í manngreinarálit. Heimildir eru í sumum dæmum fengnar frá höfundum sjálfum, ann- ars úr ýmsum uppsláttarritum, Kennaratali, Æviskrám samtíðar- manna og þar fram eftir götunum. Getið er bóka hvers höfundar og síð- an blaðaumsagna um hverja bók. í eftirmála er svo gerð grein fyrir verk- inu sem heild. Barnabókahöfundar eru afar sundurleitur hópur. Sumir hafa eingöngu samið fyrir böm, aðrir í bland við annað. Eitt eiga þeir þó nánast sameiginlegt. Langflestir hafa samið sögur fyrir bömin, aðeins fáir ljóð eða leikrit. Bamabók er níutíu og níu prósent bamasaga. En þar skiljast líka leiðir með höfundunum. Varla gefur að líta óiíkari bókmenntir en sögur Sigur- bjöms Sveinssonar, Stefáns Jónsson- ar og Ármanns Kr. Einarssonar svo dæmi séu tekin. Af þeim byggði Sig- urbjöm sennilega mest á eigin reynslu en Ármann Kr. Einarsson minnst. Ármann hefur mikið verið þýddur á önnur tungumál sem sann- ar að íslenskar bamabækur geta höfðað til ungra lesenda með fjarlæg- um þjóðum. Stundum getur verið álitamál hvað telja skuli til barna- og unglinga- bóka. Ekki er t.d. fjarri lagi að flokka megi Pilt og stúlku þar á meðal þótt hún væri hvorki samin né gefín út sem slík. Svo er þó ekki gert í Skálda- tali þessu. Hins vegar eru Litbrigði jarðarinnar talin þar með, en slíkt má telja hæpið þótt þar sé að vísu sagt frá unglingum. Um æviágrip höfnda segir í eftir- mála: »Leitast er við að rekja í stuttu máli uppruna, menntun og starfsfer- il hvers einstaklings. Þessi umfjöllun er misítarleg, enda margir tregir að gefa upplýsingar um sjálfa sig.« Það er sennilega vegna fámennis þjóðarinnar og persónulegrar ná- lægðar að skrásetjarar bóka af þessu tagi láta oftar en ekki stjómast af duttlungum þeirra sem leggja til efni. Sum æviágripin eru þarna óeðlilega stutt og sýnt að höfundar hafa enga samvinnu viljað hafa við skrásetjara. Onnur em á hinn bóginn ítarleg um of. Þannig hafa slæðst með athuga- semdir sem tengjast efninu ekki neitt; koma jafnvel hálfspaugilega fyrir sjónir í fræðiriti af þessu tagi. f eftirmála segir dr. Sigrún Klara Hannesdóttir að upphaf ritsins megi »rekja til kennslu minnar í barnabók- menntum í bókasafns- og upplýs- ingafræði við Háskóla íslands«. Ritið mun því vafalaust koma bókavörðum að góðu gagni, svo og öðrum sem velja bömum lesefni. Hitt er vafasamara að yngstu lesend- umir muni sjálfír hafa af því veruleg not. Bifre i( ia eig lendur LÁTIÐ EKKI BÍLINN FARA í JÓLAKÖTTINN 0H anná .Ísí1'0' 0Hanná ■— BÓN OG I* HÁGÆÐAVÉLBÓN '^SSSSSS BÍLAÞVOTTASTÖÐ ^mmmmmmmmm (*1) Tjöruþvottur, sápuþvottur, háþrýstiþvottur, (*2) Bónar bílinn þinn á aðeins undirvagnsþvottur, freyðibón, 15 mín. eins og um handbón vax og þurrkrun. væri að ræða. Verð: Fólksbílar kr. 990,- Verð: kr. 1.990,- Jeppar kr. 1.090,- BON- OG BILAÞVOTTASTOÐIN HANNA ER: CV) FULLKOMIN, FLJÓT, EN UMFRAM ALLT VANDVIRK BÍLAÞVOTTASTÖÐ CZ> NOTAR EINGÖNGU UMHVERFISVÆN EFNI, SEM GERIR ÞAÐ AÐ VERKUM AÐ BÍLLINN HELDUR GLJÁA SÍNUM. C2> NOTAR MJÚKA KLÚTA í STAÐ NÆLONBURSTA CZ> ALLIR HELSTU BÍLAFRAMLEIÐENDUR HEIMS S.S. MERCEDES BENZ, BMW, TOYOTA, GM, FORD, AUDI o.fl., NOTA SAMSKONAR VÉLAR VIÐ ÞVOTT Á NÝJUM BÍLUM Opið frá kl. 8 — 22 eftirtalda daga: 18/12,19/12, 20/12, 21 /12, 22/12 og 23/12. Opið frá kl. 10—14 24/12 s LOKAÐ 25/12 og 26/12 0Hanná ^^mmmmmmmmmm BÓN OG k BÓNOG BÍLAÞVOTTASTÖÐ ÞÓRÐARHÖFÐA 1 ,SÍMI 683885, GEGNT NESTI BÍLDSHÖFÐA OG VIÐ HLIÐ BÍLAHALLARINNAR. Nýjar bækur ■ Út eru komnar tvær harð- spjaldabækur fyrir yngstu börnin. Þær heita Líkaminn okkar og í sveitinni. í kynningu útgefanda segir: „„Líkaminn okkar er fjörlega myndskreytt bók þar sem börn- in geta fræðst um sig sjálf, til dæmis fengið að vita hvert maturinn sem þau borða fer, að hveiju hjartað slær og hvers vegna þau verða að anda. Jó- hann Borgadóttir þýddi. í sveitinni er bók með skemmtilegum vísum um lífið í sveitinni, sem Óskar Ingi- marsson þýddi. Spjöldum bók- arinnar má krækja saman svo að úr henni verður lítill bónda- bær sem gaman er að leika sér að.“ Utgefandi er Iðunn. Verð 980 og 598 krónur. H Út eru komnar fjórar harðspjaldabækur fyrir yngstu börnin þær heita Leikir, Við mataborðið, I baði og Háttatími. Hver bók er tíu spjöld með myndum og texta sem Kristján frá Djúpalæk stældi úr ensku. Útgefandi er Myndabóka- útgáfan. Verð 250 krónur hver bók. ■ Draugurinn í skólanum heitir bók eftir Virginiu Ir- onside sem Magnea Matthías- dóttir þýddi. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Edlhressir og ærslafullir nemndur Skógarskóla eru að koma aftur í skólann að loknu jólaleyfi. En undarleg atvik hafa gerst og Mörður skóla- stjóri veit ekki hvað hann á að taka til bragðs, síst af öllu þeg- ar stolt skólans, nýja náttúru- fræðihúsið hrynur til grunna. Krökkunum líst ekki á blikuna en þeir komast brátt að því að það er ekki heiglum hent að kljást við ógnvald Skógar- skóla.“ Útgefandi er Iðunn. Verð 1.288 krónur. ■ Tvær bækur um köttin Pésa rófulausa eru komnar út. Þær heita Pési rófulausi eignast vin og Pési rófulausi og snjókarlinn. Sigrún Árna- dóttir þýddi söguna. í kynningu útgefanda segir: „„Þetta eru bráðskemmtilegar sögur um köttinn Pésa sem varð fyrir því óhappi þegar hann var lítill kettlingur að rotta beit af honum rófuna. Hinir kettimir í bænum stríða honum óspart og Pési rófulausi lendir í ótal ævintýrum, en hann er fjömgur og kátur því að hann veit að sá hlær best sem síðast hlær.“ Útgefandi er Iðunn. Verð 790 krónur hvor bók. ■ Bænabók barnsins er komin út. í hennir eru morg- un- og kvöldbænir, borðvers, ferðabæn og ýmis barnavers ásamt heilræðum Hallgríms Péturssonar. Gyða Karls- dóttir tók bókina saman. í kynningu útgefanda segir: „„Bænabók bamsins er falleg og vönduð bók sem geymir bænir, vers og heilræði sem verða hveiju barni leiðsögn um lífið. Henni er ætlað að vera börnum og foreldrum hvatn- ingu til að biðja, því að góð bænavers em eins og veganesti til framtíðar." Útgefandi er Iðunn. Soffía Árnadótti gerði myndskreyt- ingar. Bókin er prentuð í Prentbæ hf. og kostar 1.280 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.