Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 66
fclk í fréttum BALLETT „Sterkur eins og ólgandi goshver“ *r segja bandarískir gagnrýnendur um danska ballettdansarann Nikolaj Hubbe 66 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992 Nýja husnæðið var formlega opnað á miðvikudaginn þegar Sigurður Helgason for- stjóri klippti á borða með aðstoð Birgis Ólafssonar. Jólasveinar í kókbíl Eigendur Vífilfells, fram- leiðanda kóka kóla á íslandi, buðu viðskiptavinum, starfsfólki og fjölskyldum þeirra til mikils jólafagnaðar í vtrksmiðjuhúsi Vífílfells við Stuðlaháls 1 fyrir skömmu. Mikill fjöldi gesta var sam- ankominn, er jólasveinum var ekið á svæðið í kókbílum. Bömum og aðstandendum var boðið upp á fríar veitingar, en auk jólasveina var stærsti dag- skrárliðurinn jólasöngur Drengjakórs Laugameskirkju. Jólaballinu lauk með því að að bömunum var færður glaðningur að skilnaði. Jólasveinn ræðir við gesti á kókballinu. Morgunblaðið/Þorkell. ilmar^verrisson skemmtir Opið frá kl. 19 fil 03 Danski ballettdansarinn Nikolaj Hiibbe, sem starfað hefur hjá New York City Ballet undanfarið hálft ár, hefur fengið mjög lofsam- lega dóma hjá gagnrýnend- um. Þeir segja, að bandarískri danslist hafi ekki bæst slíkur liðsmaður frá því að Míkhaíl Baryshníkov fluttist vestur um haf fyrir 20 ámm. Þegar Peter Martins, hinn danski forstöðumaður New York City Ballet, bauð Nikolaj Hþbbe stöðu aðaldansara fyr- ir um það bil ári, þóttist ungi maðurinn hafa himin höndum tekið. Hann fékk afar góðar viðtökur strax eftir frumraun sína hjá leikhúsinu í Tilbrigð- um Donnizettis eftir dansa- höfundinn og ballettmeistar- ann George Balanchine. Gagnrýnendur sögðu, að kominn væri fram á sjónar- sviðið nýr ballettdansari „í stjörnuflokki". „Hann er sterkur eins og ólgandi gos- h\fer,“ sagði einn þeirra. Eftir skamman tíma var farið að líkja honum við Erik Bmhn og þegar hann hafði verið aðeins fjóra mánuði hjá New York City Ballet var far- ið að tala um hann í sömu andrá og fyrrnefndan Barys- hníkov og Rudolf Nurejev. Þá hafði hann dansað í ballettin- um Zakowski eftir Peter Martins. Hiibbe hefur æft meira en nokkru sinni fyrr eftir að hann kom til New York, að því er fram kemur í viðtali, sem Berlingske Tidende átti ný- lega við hann í heimsborg- inai. Hann segir að sam- keppnin sé miklu harðari þar Danski ballettdansarinn Nikolaj Hiibbe fyrir framan Lincoln Center í New York. en í Kaupmannahöfn. „í Kaupmannahöfn þurfti maður ekki að beijast um hlutverkin og var öryggur um stöðu sína. Hér er eingöngu gerður samningur til eins árs í senn og enginn veit fyrir víst, hvort honum verður boðinn nýr samningur, þegar sá gamli rennur út.“ Eins og stendur æfir Hiibbe fyrir hina hefðbundnu jóla- sýningu á Hnetubrjótnum, en hann hefur ekki hugmynd um, hvað bíður hans eftir áramót- in. „Ég æfí nokkur hlutverk í fleiri en einum ballett, og það er ekki fyrr en á síðustu stundu, að endanlega er ákveðið, hver hreppir viðkom- andi hlutverk," segir hann. Húbbe segist ekki komast langt á lofsamlegum dómum og vill ekki taka undir það álit gagnrýnenda, að hann sé öruggur um áframhaldandi samning. „Það þarf að líða lengri tími til að það verði ljóst. Það verður ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir eitt og hálft til tvö ár sem ég verð búinn að venjast þessu nýja tempói — hraðanum og örygginu og þeirri dýpt sem krafist er.“ FLUGLEIÐIR Góður andi í nýja húsinu — segir Sigurlína Guðnadóttir starfsmaður söluskrifstofu Flugleiða Það hafa verið flugfélag- skrifstofur í Lækjar- götu allan lýðveldistímann. Menn greinir aðeins á um hvort það hafi verið frá 1943 eða 1944. Fyrst var Flugfé- lag íslands til húsa í göt- unni. Næst Loftleiðir og svo Flugleiðir," sagði Birgir Ólafsson, deildarstjóri á söluskrifstofu Flugleiða sem í vikunni var flutt úr Lækjar- götu á Laugarveg 7, þegar forvitnast var um gamla aðsetrið. Flutningur á eina hæð Birgir sagði að söluskrif- stofur Loftleiða á Vesturgötu 3 og Flugleiða í Lækjargötu 2 hefðu verið sameinaðar í Lækjargötu árið 1974. Þar hefði skrifstofan verið til húsa á þremur hæðum en fyrir um það bil 3 árum hefði verið farið að svipast um eft- ir hentugra húsnæði. Nokkrir staðir hefðu komið til greina en að lokum hefði verið ákveðið að festa kaup á hús- næðinu við Laugarveg þar sem vegamótaútibú Lands- bankans var áður til húsa. Birgir sagði að nýja hús- næðið væri eitthvað stærra en það gamla. „Mestu máli skiptir hins vegar að nýja húsnæðið er á einni hæð. Það er gífurlegur kostur. Svo er nýinnréttað héma en gamla húsnæðið var orðið dálítið lúið. Ég trúi ekki öðru en hér eigi fólki eftir að líða vel,“ sagði hann. Betri vinnuaðstaða Sigurlína Guðnadóttir, Morgunblaðið/Þorkell upp á næstu hæð til að sinna ýmsum erindum." Aðspurð sagðist hún viss um að góður andi væri í húsinu. „Við erum búin að vera hér um helgina og á mánudag að koma okkur fyrir og mér líður afskaplega vel hér. Miklu betur en á gamla staðnum," sagði hún. sem unnið hefur hjá Flug- leiðum í 20 ár og í Lækjar- götu í 13 ár, tók undir með Birgi og sagði að það væri alveg dásamlegt að flytjast á nýjan stað. „Vinnuaðstað- an hér er t.d. miklu betri, bjartar og víðara. Tölvurnar eru heldur ekki lengur upp á skrifborðinu en á sérstök- um tölvuborðum. Mér finnst þetta næstum því eins og byrja í nýrri vinnu,“ sagði Sigurlína. Hún sagði að það væri mikill munur að flytjast á eina hæð. „Ég er líka viss um að starfskraftamir nýt- ast mun betur þegar ekki þarf alltaf að vera að fara Vitastíg 3, sími 623137. Föstud. 18. des. Opid kl. 20-03 JÓLAGLEÐI - ÓKEYPIS AÐGANGUR ítilefni jólanna! Hinir eldhressu PAPAR skapa írska kráarstemn- ingu sem verður rokkaðri þegar líður á nóttina! INJú er tilvalið að lita aðeins upp frá jólaundirbúningnum og hressa sig á jólaglóð & pipar- kökum og hlusta á PAPA! JÓLAGLÓÐ & PIPARKÖKUR ÁTILBOÐSVERÐI! ALLIR VELKOMNIR! Púlsinn - í jólaskapi! Laugard. 19. des.Opið kl. 20-03 MEIRI JÓLAGLEÐI & PAPAR ÓKEYPIS AÐGANGUR! Sunnud. 20. des. Opið kl. 20-01 LIPSTICK LOVERS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.