Morgunblaðið - 18.12.1992, Blaðsíða 65
MOHGUNBLAÐIÐ FÖgTUDAGUR íg- UESKMBKR 1992
M
Minning
Sigurhelga Pálsdóttír,
hjúkrunarfræðingur
Fædd 18. apríl 1934
Dáin 1. nóvember 1992
Ég kynntist Sigurhelgu fyrst þeg-
ar við unnum saman sem hjúkrunar-
kennarar við Hjúkrunarskóla ís-
lands. Hún tók innilega á móti mér,
nýkominni heim eftir langa búsetu
í Ameríku og nýútskrifuð sem hjúkr-
unarkennari frá London árið 1968.
Með einstakri þolinmæði og skilningi
hjálpaði hún mér í hvívetna með
hlýju, sinni sérstöku kímnigáfu og
þessum rólegheitum og jafnaðargeði
sem hún átti í svo ríkum mæli. Við
áttum svo sannarlega margar yndis-
legar stundir, og hlógum oft dátt.
Um stund skildu leiðir. Löngu
seinna, er ég starfaði sem hjúkrun-
arforstjóri á Landakotsspítala, kom
hún til okkar sem „hjúkrunarnemi“.
Var hún langt komin í hjúkrunarná-
mi við Háskóla íslands. Hún var sí-
fellt að grúska, læra meira í sínu
fagi og ötul við að finna nýjar leiðir
til að bæta um betur. Á Landakoti
starfaði hún á lyfjadeild og hlúði að
öldruðum; af lífi og sál veitti hún
þeim þá bestu aðhlynningu, andlega
og líkamlega, sem völ var á.
Síðar hitti ég hana meðan hún
var ennþá í þessu námi, þá komin á
gjörgæsludeild ungbarna. Og Sig-
urhelga, ætíð sjálfri sér lík, alveg
hugfangin að sinna þessum litlu fyr-
irburum, sem þurftu stöðuga gæslu,
ástúð og einstaka natni. Allt fannst
henni svo heillandi og gefandi í
hjúkrunarstarfmu. Hún lauk einu
háskólanámi, en ótrauð hélt hún
áfram að bæta í reynslusjóðinn sinn,
hélt áfram að lesa og fræðast um
mannfræði og hvernig betur mætti
búa að hjúkrunarstéttinni.
Árið 1985 fengum við tækifæri
til að fara saman á Alþjóðaþing
hjúkrunarfræðinga (ICN þing) sem
haldið var í ísrael. Við vorum 10
íslendingar sem fóru héðan, einn
karlmaður, Moses, með níu heið-
ursdömur sér við hlið. Sigurhelga.
og ég urðum herbergisfélagar á
Hótel Tal í Tel Aviv þar sem þingið
var haldið. Þetta var öllum ógleym-
anleg ferð. Við eigum margar dá-
samlegar minningar um þetta stóra
tækifæri. Við fengum ekki einungis,
eins og alltaf á svona alþjóðaþingum,
að læra mikið um okkar áhugamál,
hvað efst var á baugi í hjúkrunar-
málum í heiminum. Þarna hittum
við líka marga þekktustu fræðinga
í stéttinni, þ. á m. Virginu Hender-
son, þá 90 ára, oft nefnda Florence
Nightingale nútímans. Einnig feng-
um við tækifæri til að sjá mikið af
þessu sérstaka litríka, fagra og
sögulega landi og kynnast þjóðinni
lítils háttar.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég kveð elskulega Sigurhelgu
mína með þessum fáu orðum og
minningarbrotum. Sameiginlegar
stundir okkar munu aldrei mást úr
huga mér eða hjarta. Ég sendi mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur og
hluttekningu til fjölskyldunnar og
vina á Akureyri.
Guðrún Marteinsson.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
F.v. Axel Gústafsson, Axel Sveinbjörnsson, Guðjón Finnbogason, Gísli Arnarson og Knútur Knútsson.
Akranes
Yeiðarfæraverslun Axels
Sveinbjömssonar 50 ára
Akranesl.
50 ÁR eru liðin í dag, föstudag, frá því Veiðarfæraverslun
Axels Sveinbjörnssonar á Akranesi hóf starfsemi og er hún ein
af elstu starfandi verslunum í kaupstaðnum. Verslunin hefur
verið snar þáttur í bæjarlífinu og skipar einstakan sess í verslun-
arsögu Akraness.
Axel Sveinbjömsson stofnsetti
verslunina í gömlu pakkhúsi sem
notað hafi verið til verslunar-
reksturs og opnaði hana 18. des-
ember 1942. Hann hafði áður
stundað sjómennsku en 1936
hætti hann á sjónum sökum veik-
inda og hóf þá störf hjá HB &
Co. sem verkstjóri. Verslunin
hefur verið í núverandi húsnæði
frá árinu 1950 og lengi verið
vinsæll áningastaður fjölmargra,
einkum þeirra sem vinna í ná-
grenni hafnarinnar. Á fyrstu
ámm verslunarrekstursins bauð
Axel mest með vörur til útgerð-
ar, net, línur og sjófatnað, en jók
síðan úrvalið fyrir sjávarútveg
og iðnað auk fatnaðar og ann-
arra nytsamlegra hluta. Versl-
unarhúsnæðið hefur lítð breyst
frá því flutt var í það fyrir rösk-
um fjörutíu árum. Þarna bland-
ast nútíminn og fortíðin á sér-
stakan hátt og fyrir marga er
það einstök tilfinning að koma
þar inn. „Axelsbúð“ skipar því
sérstakan sess í verslunarsögu
Akraness.
í versluninni starfa nú fjórir
starfsmenn undir stjórn þeirra
Axels Gústarfssonar dóttursonar
Axels Sveinbjörnssonar og Guð-
jóns Finnbogasonar sem starfað
hefur í versluninni í fjörutíu og
níu ár eða nær allan sinn starfs-
aldur. Axel Sveinbjörnsson dvel-
ur nú á Dvalarheimilinu Höfða
á Akranesi.
- J.G.
Kveðjuorð
Lúðvík H. Geirsson
Fæddur 17. nóvember 1972
Dáinn 29. nóvember 1992
Lúðvík Hafsteinn, bróðir okkar,
hefur kvatt þetta líf, langt um ald-
ur fram.
Það eru alltaf einhverjir aðrir sem
lenda í því að misa ástvin í blóma
lífsins. Þá hrannast upp spurning-
arnar í huga manns: Til hvers? Af
hveiju? Eins og máltækið segir:
„Þegar stórt er spurt er lítið um
svör“ og hver tilgangur lífsins er,
en maður fær ekki nein svör fýrr
en maður sjálfur fer yfir. Kallið
kom, og okkur finnst það of fljótt.
Það er skrítið að hugsa til jól-
anna og það vantar einn í fjölskyld-
una. Við eigum þó alltaf minning-
una sem enginn getur tekið frá
okkur.
Við fengum allavega að hafa
hann Lúðvík í tuttugu ár og við
þökkum fyrir það.
Við vitum að guð varðveitir dótt-
ur hans sem við munum vaka yfir.
Ó, hver fær, Guð og herra minn,
til hlítar prísað kærleik þinn?
Mig skortir hjarta og tungu til
að tala um stærð hans sem ég vil.
En lát þó faðir, þóknast þér
og þigg í náð hjá aumum mér
þá veiku fóm, sem fram ég ber.
(Bjöm Halldórsson frá Laufási)
Björg og Svandís.
Ástkær móðir okkar, t
MAGNÚSÍNA KRISTINSDÓTTIR
frá Akureyri,
lést 16. desember. Hólmfríður Guðlaug Jónsdóttir, Brynleifur Jónsson, Sigurður Kristinn Jónsson, Helgi Jónsson.
s
t
Stjúpfaðir minn,
RAGNAR DAVÍÐSSON,
Grund,
Eyjafirði,
verður jarðsettur frá Grund laugardaginn 19. desember kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeim, sem vildu minnast hins látna,
er bent á Kristnesspítala eða Fjórðungssjúkrahús Akureyrar.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Aðalsteina Magnúsdóttir. .*í -
t
Eiginmaður minn, faðir og afi,
SIGURÐUR G. BALDURSSON
(DIDDI),
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 19. desem-
ber nk. kl. 14.00.
Þórdís Sölvadóttir,
Unnur Sigurðardóttir,
Guðbjörn Sigurðsson,
Rósalind Sigurðardóttir,
Róbert Sigurðsson,
Ásgeir Guðbjörnsson.
t
Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
EVUJÓNSDÓTTUR
frá Hellu,
Ásvallagötu 20,
Reykjavík,
fer fram frá Áskirkju í dag, föstudaginn 18. desember, kl. 13.00.
Guðlaug Ingólfsdóttir, Garðar Ólafsson,
Jón Ingólfsson, Ástríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og fjölmargar minningargjafir vegna
andláts
FRANZ E. SIEMSEN
kaupsýslu- og ræðismanns.
Lore Siemsen,
Þórunn Siemsen, Valgarður Valgarðsson,
Bryndís L. Siemsen,
Franz Árni Siemsen,
Solveig Siemsen,
Árni Örn Siemsen.
Ævar Buthmann,
Marlies Wechner,
Stephan Schlippe,
Lokað
í dag milli kl. 12-18 vegna útfarar Evu Jónsdóttur
frá Hellu.
Garðar Ólafsson, úrsmiður,
Lækjartorgi.