Morgunblaðið - 19.02.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1993
>>H JTUUA'"'TT'~0'.' " M—
Mynd Byggðarverndar.
Nýja myndin leiðrétt.
Hver býr til skrípamyndir og hver ekki?
eftir Sigurð
Einarsson
Fyrir skömmu hóf félagið Byggð-
arvemd í Hafnarfirði undirskrifta-
söfnun meðal bæjarbúa þar sem
skorað er á bæjaryfirvöld „að beita
sér fyrir því að fyrirhuguð stór-
bygging við Fjarðargötu falli sem
best að umhverfi sínu og verði ekki
hærri en þau hús sem fyrir eru á
miðbæjarsvæðinu". Undirtektir
bæjarbúa hafa verið með eindæm-
um góðar og það heyrir til undan-
tekninga ef viðmælendur óska ekki
eftir að skrifa undir.
Til þess að gera fólki grein fyrir
hæð fyrirhugaðs háhýsis hafa verið
gerðar ljósmyndir af bænum, þar
sem byggingin hefur verið felld inn.
Þeir uppdrættir sem stuðst var við
í gerð þessara mynda voru sam-
þykkt miðbæjarskipulag og útlits-
mynd að Fjarðargötu, sem fengin
er hjá skipulagsyfirvöldum og birt-
ist í Fjarðarpóstinum 12. nóvember
og Alþýðublaðinu 13. nóvember síð-
astliðinn. Þær myndir eru því unnar
út frá gögnum sem bæjaryfirvöld
hafa látið frá sér og eru í fullu
samræmi við þau. Byggðarvemd
er grasrótarhreyfing sem ekki býr
yfír miklum fjármunum, þannig að
við gerð þessara mynda var notast
við einfalda og hefðbundna aðferð.
Til að vekja athygli fólks á undir-
skriftasöfnuninni lét svo Byggðar-
vernd prenta dreifibréf með einni
af fyrrnefndum myndum á forsíðu.
Bæjaryfírvöld hafa hinsvegar
einbeitt sér að því að kynna bæj-
arbúum fyrirhuguð háhýsi með
teikningum úr lofti sem þau hafa
látið auglýsingastofu gera.
Þessar „aðflugsmyndir“ eins og
skipulagshöfundurinn orðaði það
svo fínt, eru vægast sagt til þess
að blekkja fólk, því hvenær upplifír
fólk skipulagið frá þessum sjónar-
hornum? Það þarf engan fagmann
til að segja sér, að áhrif hæða bygg-
inga verða mun minni þegar horft
er á þær úr lofti, ég nefni ekki
þegar verið er nánast beint fyrir
ofan þær.
Bæjarstjóri hefur látið það frá
sér í fjölmiðlum að mynd sú sem
notuð var í dreifibréfinu sé „skrípa-
mynd“ og beinlínis ýjað að því að
„Byggðarvernd fagnar
því að þeir aðilar sem
standa að skipulagn-
ingu og framkvæmdum
séu loksins búnir að
birta mynd sem stað-
festir fyrir almenningi
hvað sé í vændum. Ef
einhveijar myndir eru
skrípamyndir í þessu
máli, þá eru það að-
flugsmyndimar og mis-
takamyndin.“
þama sé um rangfærslur að ræða.
Fleiri af aðstandendum skipulags-
ins hafa tekið í sama streng en án
þess að sýna fram á slíkt. Síðastlið-
inn laugardag birtist í Morgunblað-
inu mynd, þar sem tölvumynd af
byggingunni eftir „útlitssnyrtingu",
er sett inn í ljósmynd sem tekin er
á svipuðum stað og fyrrnefnd for-
síðumynd Byggðarvemdar. Þar
gerðust þau hrapallegu mistök í
þessu viðkvæma máli, að bygging-
arnar em sýndar ca. 3 m lægri en
þær em í raun fyrirhugaðar. Því
verður ekki trúað að um ásetning
hafí verið að ræða.
Bæjarstjóri kallar þetta „milli-
stigshönnun“ í útvarpsviðtali sama
dag. Með þessari grein birtist nýja
myndin leiðrétt, og þar með jafn-
sönn þeirri mynd sem bæjarstjóri
kallar skrípamynd. Efsta hæðin er
að vísu inndregin nú en þess í stað
hefur hóteltúrninn breikkað um 80
sm á annan veginn og byggingam-
ar litaðar til skrauts, ef það skyldi
geta villt um fyrir lesendum.
Ofangreind mistök em sögð hafa
átt sér stað í tímapressu, enda gekk
á ýmsu síðustu daga. Skyndilega
mun hafa verið ákveðið að taka
fyrstu skóflustungu að umræddri
byggingu kl. 16, föstudaginn 11.
febrúar, þrátt fyrir að ljóst væri á
þeirri stundu að stór hluti bæjarbúa
hafí mótmælt og skrifað undir ofan-
greinda áskomn. Boðaður var auka
byggingarnefndarfundur þann
sama dag, þar sem eina málið á
dagskrá var kjallari og fram-
kvæmdasvæði umræddrar bygging-
ar. Meðal gagna sem lágu frammi
á fundinum var ofangreind mis-
takamynd. Það vekur spurningu
hvort ekki eigi að ógilda afgreiðslu
nefndarinnar á málinu, þar sem
hluti fundargagna var mjög misvís-
andi.
Þegar svo fyrsta skóflustungan
var tekin, risu veðurguðirnir upp
og skelltu á versta þrumuveðri sem
komið hefur á íslandi sem elstu
menn muna.
Byggðarvemd fagnar því að þeir
aðilar sem standa að skipulagningu
og framkvæmdum séu loksins bún-
ir að birta mynd sem staðfestir fyr-
ir almenningi hvað sé í vændum.
Ef einhveijar myndir eru skrípa-
myndir í þessu máli, þá era það
aðflugsmyndirnar og mistaka-
myndin. Þær staðfesta allt það sem
aðilar Byggðarvemdar og aðrir þeir
sem koma vilja í veg fyrir skipulags-
slys í miðbæ Hafnarfjarðar, hafa
sagt.
Hðfundur er arkitekt og aitur í
atjórn Byggðarvemdar í
Hafnarfirði.
miðað við efnahagshorfur!
LADA • LADA • LADA • LADA
SAFÍR
Frá 418.000,- kr.
104.500,- kr. út
og 10.051,- kr.
í 36 mánuði
SKUTBÍLL
Frá 498.000,- kr.
124.500,- kr. út
og 11.974,- kr.
í 36 mánuði
SAMARA
Frá 523.000,- kr.
131.000,- kr. út
og 12.568,- kr.
í 36 mánuði
SPORT
Frá 798.000,-
200.000,- kr. út
og 19.172,- kr.
í 36 mánuði
Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið heíur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum.
AI AI! KAI .MI.IA I U KOSTIJR!
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13, SÍMl: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36