Morgunblaðið - 19.02.1993, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1993
45
Veðráttan í júM óhag-
stæð sundíþróttinní
Frá Guðbjarti Gunnarssyni:
EINS OG komið hefur fram í frétt-
um hefur komið til tals að næsta
sundmeistaramót íslands verði
haldið í útlandinu, nánar tiltekið í
Edinborg. Talsmaður Sundsam-
bandsins sagði í sjónvarpsviðtali að
lítil sem engin þátttaka væri orðin
í þessum mótum vegna aðstöðuleys-
is, enda þótt tvær löglegar útilaug-
ar væru til í landinu. Sundmeistara-
mótin væru hreinlega að líða undir
lok. „Veðráttan í júlí leyfir það
ekki,“ sagði hann.
Kom svo sem engum á óvart.
Þetta árvissa skítaveður í júlí af
öllum mánuðum ársins býður svo
sem ekki upp á mikil afrek í sund-
íþróttinni frekar en öðrum greinum.
Reyndar mesta furða hversu lengi
menn hafa haldið þetta út og barist
móti vindum og veðrum í hráslaga-
legum útilaugum, stífir af kulda og
langt fyrir neðan öll lágmörk, eins
og það heitir á fagmálinu. Ekki er
ég í vafa um að við gamlir Edin-
borgarar gleðjumst allir sem einn
yfir þeirri einstöku smekkvísi hjá
úrvalsfólki okkar í sundi,-að veija
einmitt Edinborg til að halda þar
Sundmeistaramót íslands. Þetta
hljómar næstum því alveg eins og
heima í okkar eyrum. Öil vitum við
af margauglýstum ferðum til Skot-
lands að ekki kostar nú mikið að
skreppa þangað, enda minnti mað-
urinn í sjónvarpinu kurteislega á
þá staðreynd að flugleiðin til Edin-
borgar væri nú svo sem ekki löng.
Upplagt að sameina árvisar inn-
kaupaferðir og alvörukeppni i sundi,
golfi, glímu og reiptogi í Edinborg.
Keppnislið, klapplið og kátir félag-
ar, allir í sama „pakkanum“.
Samt setur svolítið undarlegan
þanka að þessum skattborgara í
Kópavogi og fastagesti í sundlaug-
inni við þessi tíðindi. Við sem ætluð-
um að bjóða alvöru-íþróttafólki í
þúsund fermetra alvöru-keppnis-
laug, eftir að hafa heiðrað okkur
með nærveru sinni og keppt í al-
vöru-handboltahöll hérna í næsta
nágrenni. Ég veit ekki betur en að
mér og öðrum hafí verið talin trú
um að senn værum við Kópavogsbú-
ar allt að því komnir á Ólympíuleik-
ana hér á Rútstúninu og að við
skyldum bara vera prúðir og borga
hæstu fasteignagjöld á landinu fyr-
ir að hafa þessi forréttindi. En nú
er okkur vandi á höndum. Draumur-
inn um handboltahöllina rokinn út
í veður og vind. Ónafngreindir menn
koma í sjónvarpið og lýsa því yfir
án þess að blikna að sundlaugin
okkar sé ekki brúkleg fyrir alvöru-
keppni, af því að veðráttan í júli,
þegar svona alvörumót eiga að fara
fram, leyfí ekki slíka draumóra.
Maður mátti svo sem búast við
þessu. Þetta veðurfar í júlí hefur
svo sem aldrei verið neitt annað en
tálsýn og afleiðingamar eftir því.
Misheppnuð sumarfrí, rok, rigning,
rifin tjöld og rústaðar íjölskyldur.
En mikið er nú samt vanþakk-
læti heimsins. Þama emm við
Kópavogsbúar búnir að leggja á
okkur ómælt erfíði til að landinn
geti kátur keppt og sigrað við bestu
skilyrði um langa framtíð, og boðið
útlendingum í alvörukeppni við al-
vöraskilyrði. Tómur misskilningur.
Algerlega út í hött að byggja al-
vöralaug á íslandi. AJlt of kalt, sér-
staklega í júlí, þegar alvörakeppnir
eiga að fara fram. Hvað er til ráða?
Þar sem ég lóna hér í janúar-
gaddinum úti í miðri iaug og sé
vart til lands fyrir stormi og þoku,
dettur mér í hug kenning smiðs
nokkurs fyrir vestan, sem hélt því
fram að vitleysu í smíði væri helst
ekki hægt að laga, nema að gera
aðra vitleysu í leiðinni. Auðvitað
vantar þak á þessa Ólympíulaug
okkar. Og úr því að búið er að
sanna, að vitlaust hafi verið að
byggja hana svona stóra og opna
fyrir öllum veðram, sýnist mér eina
lausnin að smíða nú tvær hallir í
sama smiðshögginu og byggja
handboltahöllina ofan á laugina á
veglegum súlum, svo birta og
hreint, heitt loft geti leikið um sund-
iðkendur um leið og boltinn rúllar
af fullum krafti á efri hæðinni.
Hafa verður að leiðarljósi, að
aldamótahugmyndir um að hver
maður skuli rækta heilbrigða sál í
hraustum líkama era einni öld á
eftir tímanum. Nú er að koma önn-
ur öld með allt öðram formerkjum.
Nú er það markaðslögmálið sem
gildir. Menn eiga ekkert erindi S
íþróttir, nema keppt sé samkvæmt
Olympíustöðlum. Og auðvitað verð-
ur ísland ekki með, nema þetta sé
á hreinu frá upphafi. Það ætti hveij-
um manni að vera ljóst að í framtíð-
inni er það úrvalsliðið sem skiptir
máli. Ekki sunnudagspöpull í baði.
Því má ljóst vera, að verði þetta
ekki komið á hreint með höllina
okkar fyrir næstu kosningar verður
þessi verstöð að láta sér lynda að
öll alvöra-íþróttamót fari fram í
útlandinu um ófyrirsjáanlega fram-
tíð. Líka glíman.
GUÐBJARTUR GUNNARSSON,
Digranesvegi 46, Kópavogi.
Friðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavfk. Sfmi 31099
Komið og dansið
Frá Gunnari Þorlákssyni:
í bréfi til blaðsins sunnudaginn
14. febrúar sl. lýsir Níels Einarsson
danskennari viðhorfum sínum til
starfsemi Komið og dansið og telur
að ver sé af stað farið en heima
setið með starfsemi sem kynnir
þátttakendum létta danssveiflu á
tveim dögum.
Níels notar veralegan hluta
greinar sinnar til að ræða starfsað-
ferðir Góðtemplarareglunnar og
tekur í greininni ríkan þátt í tillög-
um að skipulagi þess starfs sem
reglan gæti unnið að.
Komið og dansið era sjálfstæð
samtök áhugafójks um almenna
dansþátttöku á íslandi og hópinn
mynda einstaklingar sem reyndar
eru flestir starfandi í ýmsum félög-
um sem hafa dans á stefnuskrá.
Samtökin era sjálfstætt félag án
aðildar að samtökum templara, þó
að nokkrir þátttakenda séu þar
starfandi félagar. Hins vegar hafa
samtökin fengið aðstöðu fyrir nám-
skeiðin hjá Þjóðdansafélagi Reykja-
víkur og í Templarahöllinni og hef-
ur það samstarf gengið vel.
Éins og áður hefur komið fram
miðar starfsemi Komið og dansið
fyrst og fremst að því að fá fólk
sem lítið eða ekkert hefur dansað
til að þora á dansgólf og reynslan
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Lyklar Ingti Láru fundust
TVEIR húslyklar á kippu
merktri Inga Lára fundust sl.
þriðjudag á Frakkastíg. Eigandi
(Inga Lára) má hafa samband
í síma 19892.
AÐ SVELTA OG
AÐ SVELTA
Guðrún Kristín:
ÉG á að vísu ekki sjónvarp en
sá fréttir um daginn í ríkissjón-
varpinu. Fréttamaður sagði að
margir hefðu svelt í hel eða svelt
til bana í Bosníu. Nú hefði ég
kosið að láta áhrifslausu sögnina
að svelta en ekki áhrifssögnina
að svelta, hafi fólkið soltið. Hin
er notuð þegar einhver sveltir
einhvem annan.
í öllum guðanna bænum, fjöl-
miðlafólk, notið málið rétt og
fallega. Abyrgðin er mikil.
ATHUGASEMD
VEGNA SKRIFA
RAFNS
GEIRDALS
MATSNEFND menntamála-
ráðuneytisins er tæknileg nefnd
sem einungis metur gögn sem
liggja fyrir nefndinni varðandi
það hvort eitthvert nám er sam-
bærilegt við nám í framhalds-
skóium landsins, en veitir eng-
um skóla viðurkenningu. Það
er á verksviði menntamálaráðu-
neytisins.
Björn Bergsson,
matsnefnd,
menntamálaráðuneytisins.
Heildsöluverð á undirfatnaði
frá CACHAREL og PLEYTEX.
Einnig snyrtivörur á
kynningarverði.
ÞOKKI
Faxafeni 9, sími 677599
hefur sýnt að sú létta danssveifla
með vel uppbyggðum og markviss-
um leiðbeiningum og hljómlist við
hæfí, sem Komið og dansið nota á
námskeiðunum, hefur nýst vel í
þessum tilgangi.
Það er ánægjulegt að fylgjast
með því að sumir dansskólanna
hafa auglýst stutt námskeið í döns-
um sem nýtast fólki vel á almennum
dansleikjum.
Tekjur af námskeiðum hjá Komið
og dansið era notaðar til útbreiðslu
starfseminnar sem m.a. miðar að
því að gefa fólki úti á landi kost á
námskeiðum á sama verði og í
Reykjavík. Stjórnun og leiðsögn á
námskeiðum er unnin í sjálfboða-
vinnu.
Hugleiðingum Níelsar um dans-
fólk, víndrykkju og vínveitingahús
látum við ósvarað, en rakalausum
ásökunum um blekkingar verður
svarað með viðeigandi hætti. Komið
og dansið, samtök áhugafólks um
almenna dansþátttöku á íslandi.
GUNNAR ÞORLÁKSSON,
Rangárseli 16, Reykjavík.
Pennavinir
Tékkneskur piltur, 21 árs, með
áhuga á tónlist og öðram listum:
Michal Novak,
Zavodni 13,
785 01 Stemberk,
Czech Republic.
LEIÐRETTINGAR
Flugleiðir íhuga
flug til Halifax
I baksíðufrétt Morgunblaðsins í
gær um athugun Flugleiða á því
að heija flug til Halifax í Nova
Scotia á austurströnd Kanada var
ranglega sagt að félagið hefði
ákveðið að sækja um heimild til
þessa flugs. Hið rétta er að Flug-
leiðir íhuga að sækja um slíka heim-
ild, eins og raunar kom fram í
umfjöllun viðskiptablaðs í gær um
málefni félagsins. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
íslandsmeistari
rangt fedraður
í Morgunblaðinu síðastliðinn
laugardag misritaðist föðurnafn ís-
landsmeistarans í hárgreiðslu, Guð-
rúnar Hrannar Einarsdóttur. Hún
var sögð Emilsdóttir. Hlutaðeigend-
ur eru beðnir afsökunar.
SUNDFATNAÐUR
HBBi
SPECIALE
Nýjar sendingar
mmuTiLíFmm
GLÆSIBÆ. SÍMI 812922