Morgunblaðið - 22.04.1993, Side 17
M7
Einatt er buslað í fossunum í næsta nágrenni staðarins.
býður upp á margs konar íþróttaiðk-
un hvort sem illa viðrar eða vel.
Margir drengir hafa gaman af
gönguferðum og er boðið upp á þær
þegar vel viðrar. Skarðsheiðin skart-
ar sínu fegursta séð frá Vatnaskógi
og oft hefur Kamburinn verið klifínn
af hraustum strákum. Nokkrir fal-
legir fossar eru sömuleiðis í nágrenn-
inu og er gjarnan buslað í námunda
við þá þó svo að vatnið sé kalt. Síð-
ast en ekki síst má nefna ýmsa leiki
sem foringjar staðarins standa fyrir
og strákamir hafa gaman af. Má þar
nefna ratleik og ýmsa skógarleiki.
Stundum birtast sjóræningjar í hita
leiksins í leit að dularfullum fjársjóði
og færist þá fjör í leikinn. Hrói Hött-
.ur hefur líka skotið upp kollinum í
skógivöxnum hlíðum Vatnaskógar.
Þegar kvölda tekur og drengirnir
eru búnir að hamast nóg þann dag-
inn, er kvöldvaka með söngvum,
leikjum og hugvekju. Að því búnu
er farið í háttinn með tilhlökkun, því
það er aldrei að vita hvað morgun-
dagurinn ber í skauti sér.
Framtíðin
Saga Vatnaskógar hefur fram til
þessa verið ævintýri líkust. En
kannski eru þessi fyrstu 70 ár í sögu
staðarins aðeins formáli að enn
stærra ævintýri sem komandi kyn-
slóðir munu fá tækifæri ti! að skrá.
Það er a.m.k. víst, að margt á eftir
að breytast á næstu árum. Nú nýlega
náðu lagnir hitaveitunnar til staðar-
ins og kom það í góðar þarfír þar
sem vatn var áður hitað upp með
rafmagni. Hitaveitan gerði það m.a.
mögulegt að taka á móti yfír 1.000
fermingarbörnum sl. haust á ferm-
ingarnámskeiðum sem haldin voru í
Vatnaskógi á vegum Reykjavíkur-
prófastsdæmanna. Af sömu ástæðu
fer vetrarleiga staðarins stöðugt vax-
andi og eiga Skógarmenn sér m.a.
draum um kristilegar skólabúðir í
Vatnaskógi í náinni framtíð.
Eins og komið hefur fram er þörf-
in á nýjum svefnskála mikil og von-
andi fær hann að rísa fyrr en síðar.
Gamlir Skógarmenn, sem fyrir löngu
hafa slitið barnsskónum, eru dugleg-
ir við að láta drauminn lifa. Margir
eiga góðar minningar úr Skóginum
og gleyma dvöl sinni þar aldrei.
Hugsjónin er stór og margar góðar
hugmyndir bíða betri tíma. En hvað
sem öðru líður, og hvað svo sem
framtíðin ber í skauti sér, þá er það
mál manna að Vatnaskógur verði
alltaf Vatnaskógur, draumur drengs-
ins.
Texti: Ragnar Schram
Myndir: Þórarinn Björnsson
hafí alla tíð verið sérlega ánægju-
legt, ekki síst um hitaveituna. Eftir
að sumarstarfínu lauk sl. sumar tóku
við námskeið fyrir fermingarböm úr
Reykjavík og segja má að samfelld
hýting hafí verið á staðnum frá
maílokum í fyrra til loka nóvember.
Alls komu yfír tvö þúsund börn og
unglingar til lengri eða skemmri
dvalar í Vatnaskóg yfír þennan tíma.
En hvaða aðra notkun sjá Skógar-
menn fyrir sér yfír vetrartímann?
„Við höfum rætt um að hefja
rekstur skólabúða i Vatnaskógi og
ef okkur tekst að ná samvinnu
fræðsluyfirvalda, skólanna, kirkj-
unnar og heimilanna um fjármögnun
og skipulag munum við gera tilraun
í haust. Þá myndu unglingar dvelja
hér í Vatnaskógi nokkra daga þar
sem yrði boðið uppá ýmsa fræðslu
sem meðal annars mætti tengja
fermingarfræðslunni. En þessar at-
huganir eru allar á frumstigi ennþá.
Á liðnum vetri var líka dálítið um
það að einstakir hópar fengju staðinn
leigðan, t.d. fyrir söng- og hljóðfæra-
æfíngar. Auk þess eru hér oft haldin
ýmis mót fyrir unga og aldna.“
Innihaldið óbreytt
Hefur sjálft sumarbúðastarfið
breyst mikið þessi 70 ár?
„Innihaldið og kjami starfsins
hafa verið óbreytt í 70 ár. Hingað
koma drengir til um það bil vikudv-
alar, una sér við útiveru, íþróttir,
gönguferðir og leiki á daginn, að
ógleymdum bátunum. Á hveijum
degi eru biblíulestrar og kvöldvökur
sem enda með orði Guðs og bæn.
íþróttaaðstaðan hefur batnað mikið
undanfarin ár, við höfum boðið uppá
listasmiðju, söngvarakeppni eða
keppnina um „Skógarbarkann" sem
er mjög vinsæl meðal drengjanna og
nú emm við að koma upp svokölluð-
um lærdómslundi þar sem við höfum
plantað 26 tijátegundum sem allar
em merktar. Þama geta menn notuð
útiverunnar, skoðað plöntur og lært
að þekkja þær.
En Vatnaskógur er fyrst og fremst
sumarbúðir þar sem menn njóta inni-
haldsríkrar dvalar og útiveru. Þörfin
fyrir sumarbúðir er óbreytt, hjá okk-
ur hefur verið góð aðsókn öll þessi
ár og það gildir einnig um aðrar
sumarbúðir KFUM og KFUK út um
landið.“
Sumardagurinn fyrsti er árlegur
fjáröflunardagur Skógarmanna og
verður þá kaffísala í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg í Reykjavík. I
ár minnast Skógarmenn ýmissa af-
mælisáfanga: 18. júlí eru liðin 45 ár
frá því kapellan var tekin í notkun,
1. ágúst er hálf öld frá vígslu Gamla
skála, 2. ágúst em 25 ár frá vígslu
matskálans og 3. ágúst eru liðin 70
ár frá upphafi starfs í Vatnaskógi.
jt
SKoA&W Quúasíi
pallhús
Vorum að fá nýja sendingu af
SHADOW CRUISER
pallhúsum.
PALLHÚS SF
Borgartún 22 - S: 61 0450
Ármúla 34 - S: 37730
Til sölu
B.M.W. 730 IA, árgerð 1990,
demants svartur, innfluttur nýr.
Einn með öllu. Best útbúni B.M.W. á íslandi.
Upplýsingar í síma 688799 milli kl. 9.00 - 18.00 og í
síma 612173 eftir kl. 18.00.
Bylting í háreyðingu
Auðveld langtíma eyðing á
óæskilegum hárum með heitu vaxi.
Einfalt og hreinlegt í notkun.
Pakkningin inniheldur hitatæki,
tvær stærðir af vaxfyllingum
og vaxborða.
Útsölustaðir:
flestar snyrtivöruverslanir, apótek
og snyrtivörudeildir stórmarkaða.
VATNASKÓGUR AUGLÝSIR:
Skráð er á virkum dögum í síma 36484 frá kl. 08-16
Munið kaffisölu Vatnaskógar
í dag, sumardaginn fyrsta,
kl. 14-18 íFélagshúsi KFUM
og KFUK við Holtaveg.
Tekið verður við skráningum
í sumarbúðirnarfrá kl. 12 í
síma 36484.
FLOKKASKRA:
1. Flokkur 28. maí- 3. júní
2. Flokkur 3. júní - 9. júní
3. Flokkur 9. júní -16. júní
4. Flokkur 16. júní-24. júní
5. Flokkur 28. júní - 6. júlí
6. Flokkur 6. júlí -15. júlí
7. Flokkur 15. júlí - 22. júlí
8. Flokkur 22. júlí-29. júlí
9. Flokkur 3. ág.-10. ág.
10. Flokkur 10. ág. -17. ág.
11. Flokkur 17. ág. - 24. ág.
12. Flokkur 24. ág. - 31. ág.
13. Flokkur 2. sept. - 5. sept.
(9-10 ára drengir)
(9-10 ára drengir) - FULLT!
(10-11 áradrengir) - FULLT!
(10-11 ára drengir)
(11-12 ára drengir) - FULLT!
(10-12 áradrengir)
(11-13 ára drengir) - FULLT!
(12-14 ára drengir)
(14-17 ára piltar og stúlkur)
(9-11 ára drengir)
(10-13 ára drengir)
(10-13 ára drengir)
(17-99 ára karlar)