Morgunblaðið - 22.04.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRIL 1993
Athugasemd í til-
efni sjónvarpsþáttar
MORGUNBLAÐINU barst í
gær eftirfarandi athugasemd
frá Herði Vilhjálmssyni, fjár-
málastjóra RUV:
„Á fundi Útvarpsráðs 19. mars
sl. taldi Hrafn Gunnlaugsson, þá-
verandi dagskrárstjóri Sjónvarpsins
að aðeins 71 millj. kr. yrðu eftir
af ráðstöfunarfé innlendrar dag-
skrárdeildar frá 1. apríl til áramóta.
í umtöluðum sjónvarpsþætti 23.
mars sl. endurtók dagskrárstjórinn
þessar upplýsingar. Þá fyrst heyrði
•ég rangfarið með ráðstöfunarfé inn-
lendrar dagskrárdeildar. Leiðrétt-
ingu fékk ég síðan birta í Morgun-
blaðinu fáum dögum síðar. Þar sem
fram kom, að upphæðin væri um
80% hærri.
í sjónvarpsþætti sl. þriðjudags-
kvöld kom fram hjá menntamála-
ráðherra að fjármálastjóri hefði átt
að leiðrétta tölur dagskrárstjóra
þegar á útvarpsfundinum 19. mars.
Nú er komið að skýringunni.
Umræddan fund Útvarpsráðs sat
ég ekki og hafði engar upplýsingar
fengið um þennan misskilning fyrr
en í sjónvarpsþættinum 23. mars.
Þess vegna hafði ég engan mögu-
leika á að leiðrétta þetta fyrr en
ég gerði.“
■ JÖKLAFERÐIR, stanga-
veiði, siglingar, heilsuferðir,
bændagisting og aðrir skemmti-
legir ferðamöguleikar á íslandi
verða kynntir á ferðakynningunni
Lifandi útivera í Listhúsinu Laug-
ardal helgina 24. og 25. apríl nk.
Rúmlega 70 aðilar kynna þjónustu
sína í Listhúsinu. Meðal annars
verða kynntar siglingar á gúmmí-
bátum niður Hvítá, útreiðatúrar,
ferjusigiingar, sérstæðir gistimögu-
leikar og skoðunarferðir. Fjölmörg
hótel um allt land verða með í ferða-
kynningunni. Ferðamálanefndir
kaupstaða og kauptúna verða einn-
ig með upplýsingar um ferðamögu-
leika í næsta nágrenni sínu.
■ SKÁTAMESSA verðurhaldin
í Akraneskirkju í dag, sumardag-
inn fyrsta, en það hefur verið fast-
ur Iiður mörg undanfarin ár. Skátar
fara í skrúðgöngu frá Skátaheimil-
inu til kirkju. Sóknarpresturinn, sr.
Björn Jónsson, predikar. Svanna-
sveitin leiðir söng og Bragi Þórð-
arson flytur ávarp til skáta.
Borgardætur og hljómsveitarsljórinn.
Andi Andrews-
systra yfír Borginni
EINS og kunnugt er hefur veitingasalur Hótels Borgar nýlega verið
færður í upprunalegt horf og er hafinn rekstur í húsinu að nýju. í
kvöld, fimmtudag, verður í fyrsta skipti sýnd á Borginni söngdag-
skrá sem sett er upp í eins konar virðingarskyni við þá tónlist og
þá stemmningu sem ríkti á Borginni á stríðsárunum eða ástandsárun-
um eins og sumir kjósa að kalla þau.
Söngtríóið Borgardætur, sem
skipað er Andreu Gylfadóttur, Ellen
Kristjánsdóttur og Berglindi Björku
Jónasdóttur, flytur þar tónlist í
anda Andrews-systra.
Undirleik annast sextettinn Set-
uliðið, sem skipað er Eyþóri Gunn-
arssyni píanóleikara, sem jafnframt
hefur útsett tónlistina, Þórði
Högnasyni, bassaleikara, Matthíasi
M.D. Hemstock, trommuleikara,
Sigurði Flosasyni, saxófón- og
klarinettleikara, Veigari Margeirs-
syni, trompetleikara og Össuri
Geirssyni, básúnuleikara.
Innifalið í miðaverði, kr. 2.980
er tveggja rétta kvöldverður, ásamt
kaffi og konfekti. Borðhald hefst
klukkan 20, en húsið er opnað
klukkustund fyrr. Miðar eru seldir
á Hótel Borg frá klukkan 16 í dag.
Borðapantanir eru í síma hótelsins.
(Fréttatilkynning)
■ KÓR Átthagafélags Strandamanna í Reykjavík heldur vortónleika
sína í Breiðholtskirkju í Mjódd í dag, sumardaginn fyrsta, 22. apríl,
kl. 17. Á efnisskrá eru m.a. gömul íslensk þjóðlög og lög úr söngleikjum.
Einnig einsöngur og tvísöngur. Stjórnandi kórsins er Erla Þórólfsdóttir
og undirleikari Laufey Kristinsdóttir. í byrjun júlí verður farið í söng-
og skemmtiferð til Finnlands og m.a. heimsóttir vinabæir Hólmavíkur,
Kustavi og Merimasku. Kórinn hefur starfað nær óslitið í 35 ár.
Regnboginn sýnir
myndina Siðleysi
REGNBOGINN hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Siðleysi eða
„Damage“ eins og hún heitir á
¥Bamaheill
OFBELPI OG ÁÞJÁN BARNA
Málþing Barnaheilla um ýmis konar ofbeldi og áþján sem
börn verða fyrir i samfélagi okkar.
Er brugðist við því með skipulegum hætti eða er tómlæti og
afskiptaleysi ríkjandi í málefnum barna á íslandi?
Staður og stund: Háskólabíó, laugardaginn 24. apríl 1993.
Kl. 10.00 Setning.
Kl. 10.15 Það læra börnin sem fyrir þeim er hatt. Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur.
Kl. 10.30 Hlutverk og reynsla barnalæknis. Gestur Pálsson, barnalæknir.
Kl. 10.45 Reynsla gesta Rauðakrosshússins. Ólöf Helga Þór, forstöðumaður Rauðakrosshússins.
Kl. 11.00 Ofbeldi og vanræksla samfélagsins. Hjördís Hjartardóttir, félagsráðgjafi.
Kl. 11.15 Skipuleggjum við umhverfi okkar með börn íhuga? Guðrún Jónsdóttir, arkitekt.
Kl. 11.30 Borgarlíf og ofbeldi. Dr. Helgi Gunnarsson, lektor.
Kl. 11.45 Forvarnarstart í félagsmiðstöð. Vanda Sigurgeirsdóttir, starfsmaðurÁrsels.
Kl. 12.00 Hádegishlé.
Kl. 13.00 Við uppskerum eins og við sáum. Guðrún Ágústsdóttir, starfsmaður Kvennaathvarfs.
Kl. 13.15 Hvert er foreldrahlutverkið, eða er því ofaukið? Þórey Guðmundsdóttir, móðir.
Kl. 13.30 Einelti og viðbrögð viðþví örynjólfur Brynjólfsson, skólasálfræðingur.
Kl. 13.45 Jákvæður skólaandi gegn ofbeldi. Ragnar Gíslason, skólastjóri.
Kl. 14.00 Hvernig er brugðist við reiði barna? Anna Harðardóttir, leikskólastjóri.
Kl. 14.15-15.00 Umræður. - Fundarstjóri: Jóhann Hauksson, fréttamaður.
Allir sem áhuga hafa á þessum málefnum eru velkomnir, jafnt félagar
í Barnaheill sem aðrir, gegn 500 króna gjaldi.
frummálinu. Myndin er byggð á
skáldsögu Josephine Hart sem
kom út árið 1989 og var þýdd á
18 tungumál. Bókin náði metsölu
og var nítján vikur á toppnum í
Bandaríkjunum, segir I frétt frá
Regnboganum.
Myndin fjallar um vinsælan þing-
mann, Stephen Flemming (Jeremy
Irons), sem gengur allt í haginn.
Hann er hamingjusamlega kvæntur
Ingrid (Miranda Richardson) og á
von á ráðherraembætti innan tíðar.
Dag einn kynnir sonur hans glæsi-
lega og dularfulla konu, Önnu, fyr-
ir honum sem kærustu sína. Þau
laðast gtrax að hvort öðru og upp-
hefst siðlaust ástarsamband. Steph-
en getur hvorki né vill slíta sam-
bandinu við Önnu og því verður
harmleikurinn sem samband hans
og hennar leiðir af sér ekki umflú-
inn. Harmleikur sem Stephen og
ijölskylda hans verða að borga fyr-
ir dýrum dómi.
Það er Louis Malle sem leikstýrir
Siðleysi.
-------» ♦ ♦-------
■ SKÁTARNIR í Kópavogi
munu halda sína árlegu kaffisölu í
dag, sumardaginn fyrsta, til styrkt-
ar félagsstarfsemi sinni. Kaffisalan
verður í Félagsheimili Kópavogs,
neðstu hæð, og stendur yfir frá kl.
15-17. Skátafélagið Kópar var
stofnað árið 1946 og er eitt elsta
æskulýðsfélag Kópavogs. Skáta-
starfsemi hefur ávallt verið mikil í
bænum og notið skilnings og vin-
sælda hjá bæjarbúum, ungum sem
öldnum. í Kópum starfar mömmu-
skátasveitin Úrtur, sem er hópur
skátamæðra er vinnur að því að
efla og styðja það starf sem unnið
er í skátafélaginu og hjálparsveit-
inni. Hin árlega kaffisala er mikil-
vægur þáttur í fjáröflunarstarfsemi
skátanna.
Vordagar á
Bókasafni
Seltjarnarness
AUÐUR Sigurðardóttir,
myndlistarkona, opnar laug-
ardaginn 24. apríl, sýningu
á verkum sínum í húsakynn-
um Bókasafns Seltjarnar-
ness.
Auður er Seltirningum að góðu
kunn, hefur starfað með Myndlist-
arklúbb Seltjarnarness um árabil
og tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum. Sýning Auðar stendur til
28. maí.
Í tilefni af opnuninni syngur
Sigrún Jónsdóttir, mezzósópran,
nokkur lög við undirleik Svein-
bjargar Vilhjálmsdóttur píanóleik-
ara. Sigrún hefur stundað söng-
nám við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar sl. misseri. Kl. 14.30
koma Hafsteinn Hafliðason, garð-
yrkjufræðingur og Steinunn Árna-
dóttir, garðyrkjustjóri á Seltjarnar-
nesi í heimsókn og fræða fólk um
gróður og garðrækt.
(Fréttatilkynning)
-----♦ ♦ ♦
■ OPIÐ hús verður í leikskóium
og skóladagheimilum í Grafarvogi
nk. laugardag, 24. apríl, frá kl.
10.30-13.30. Með opnu húsi gefst
fólki tækifæri til að kynna sér
starfsemi leikskólanna í hverfinu,
en þeir eru Brekkuborg, Fífu-
borg, Foldaborg, Foldakot og
Klettaborg. Börn á leikskólaldri,
foreldrar, systkin, ömmur og afar
eru velkomin.
■ TILRAUNIN með sjóferðir
um Kollafjörð um páskahelgina
gafst vel. Náttúrverndarfélag
Suðvesturlands og Fjörunes hf.
hafa ákveðið að halda þessum til-
raunum áfram. fram yfir helgi á
farþegaskipinu Fjörunesi. Farið
verður í allar ferðirnar frá Grófar-
bakka neðan við Hafnarbúðir. Í
ferðinni verður siglt að Engey,
Viðey, Þerney og Lundey og síðan
út fjörðinn og komið inn Engeyjar-
sund á milli Akureyjar og Örfiris-
eyjar og Engeyjar og leiðinni lýst.
Dregin verður upp botndýragildra,
dýrin skoðuð og þeim síðan sleppt.
Lifandi tónlist verður flutt í rúm-
góðum veitingasal.
■ KARLAKÓR Selfoss heldur
sína árlegu vortónleika á Selfossi
í Fjölbrautaskóla Suðurlands á
sumardaginn fyrsta, 22. apríl, kl.
21. Stjórnandi kórsins er Ólafur
Sigurjónsson. Efnisskrá tónleik-
anna er fjölbreytt m._a. eru lög eft-
ir Árnesingana Pál ísólfsson, Sig-
urð Ágústsson frá Birtingaholti,
Pálmar Þ. Eyjólfsson og Björgvin
Þ. Valdimarsson. Einnig mun kór-
inn flytja lög úr vinsælum Vínar-
óperum í útsetningu Stefáns Jón-
assonar, píanóleikara kórsins.
Eldri borgurum er boðin frír að-
gangur að tónleikunum.
■ VORTÓNLEIKAR Samkórs
Kópavogs verða haldnir í Kópa-
vogskirkju laugardaginn 24. apríl
kl. 16. Stjórnandi er Stefán Guð-
mundsson. Einsöngvarar eru
Katrín Sigurðardóttir og Tómas
Tómasson. Undirleik annast Ólaf-
ur Vignir Albertsson. Efnisskrá-
in verður í'jölbreytt og mikið af
þeim lögum sem sungin verða
koma út á geisladisk með haustinu.
■ NEMENDASÝNING skóla
Dagnýjar Bjarkar danskennara
verður haldin á Hótel íslandi, í
dag, sumardaginn fyrsta, og hefst
kl. 15. Húsið er opnað fyrir gesti
kl. 14 og er öllum opin. A sýning-
unni koma fram nemendur á
aldrinum 3-80 ára. Skólinn stend-
ur nú á tímamótum 10 ára afmæl-
is og verður sýningin sérstaklega
vönduð af því tilefni.