Morgunblaðið - 22.04.1993, Qupperneq 37
M'C&GUNbÍAÐIÐ PIMMTUDAGÍ’R 2‘2. AI’íáL - - - ---- -....... ....................-......37
Menningarhátíð í Eyjafjarðarsveit
Aðsókn vonum framar
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
NU stendur sem hæst sérstök
menningarvika í Eyjafjarðar-
sveit. Það er menningarmála-
nefnd sveitarfélagsins sem
stendur fyrir hátíðinni. Formað-
ur nefndarinnar er Leifur Guð-
mundsson, en framkvæmdasljóri
hátíðarinnar er Anna Ringsted.
í stuttu spjalli við fréttaritara
sagði Leifur að hátíðin hefði það
sem af er gengið geysilega vel og
vakið mikla athygli og hefur verið
fjölmenni á öllum dagskrárliðum.
Ljóðakvöld var haldið í Blóma-
skálanum Vín þar sem eyfirsk skáld
og hagyrðingar lásu úr verkum sín-
um. Þuríður Baldursdóttir söng ein-
söng við undirleik Guðjóns Pálsson-
ar. Kristján Hjartarson frá Tjörn í
Svarfaðardal kom fram með söng
og gítarleik og í lokin skemmtu
Galgopar gestum.
Aðsókn var meiri en menn bjugg-
ust við því alls komu 250 manns
og þurftu að fá lánaða stóla sem
þó hrukku ekki til því margir urðu
að standa og þó nokkrir sneru frá
vegna þrengsla.
Jasskvöld var í Vín í gærkvöldi,
þar sem fram kom Léttsveit Lúðra-
sveitar Akureyrar, tríóið Skipað
þeim og fleiri. í dag, sumardaginn
fyrsta, verður hestaíþróttamót á
Melgerðismelum og kaþólsk messa
verður á Munkaþverá. Þá verða
haldnir tónleikar í Sólgarði og Leik-
félag Vopnafjarðar sýnir Músa-
gildruna í Laugaborg.
Benjamín
Hallgrímshópurinn
FÉLAGAR í Leikfélagi Akureyrar sem þátt taka í dagskrá um Hall-
grím Pétursson, Jón, Ingvar, Sigurþór, Þráinn, Hreinn, Þórey, Ag-
nes, Freygerður, Sunna, Signý og Björn Steinar.
Leikfélag Akureyrar á kirkjulistaviku
Leik- og söngdagskrá
um Hallgrím Pétursson
LEIKFÉLAG Akureyrar
frumflytur á kirkjulistaviku
leik- og söngdagskrána „Hall-
grím“, sem fjallar um ævifer-
il og skáldskap Hallgríms
Péturssonar. Signý Pálsdóttir
tók dagskrána saman og
byggði hún á ritum um Hall-
grím, skáldskap hans og ann-
arra, en tónlistina valdi Björn
Steinar Sólbergsson.
Saga skáldsins
í dagskránni fléttast saman
saga og skáldskapur Hallgríms
Péturssonar í flutningi leikara hjá
Leikfélagi Akureyrar og söngur
félaga úr Kór Akureyrarkirkju og
Jóns Þorsteinssonar tenórsöngv-
ara. Stutt leikatriði tvinnast saman
við sögu af lífshlaupi séra Hall-
gríms, ljóðaflutning og söng úr
Passíusálmunum.
Leikarar eru Agnes Þorleifsdótt-
ir, Sigurþór Albert Heimisson,
Sunna Borg, Þórey Aðalsteinsdótt-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Horft til Hallgríms
SIGURÞÓR Albert Heimisson fer
með hlutverk Hallgríms í sam-
nefndri dagskrá sem sýnd verður
á kirkjulistaviku í Akureyrar-
kirkju.
ir og Þráinn Karlsson, Signý Páls-
dóttir er leikstjóri, Björn Steinar
Sólbergsson tónlistarstjóri, Frey-
gerður Magnúsdóttir sér um bún-
inga og Ingvar Björnsson annast
lýsingu, en Hreinn Skagijörð er
sýningarstjóri.
Andrésar and-
arleikarnirí
áijánda sinn
ÓTAL verðláun eru í boði á
Andrésar andarleikunum sem
settir voru í íþróttahöllinni á
Akureyri í gærkvöld, en um 750
keppendur á aldrinum 6-12 ára
mæta til leiks í Hlíðarfjalli í
dag, á fyrsta keppnisdegi leik-
anna. Leikarnir eru nú haldnir
í 18. sinn, en með hverju ári
sem líður fjölgar keppendum
og njóta leikarnir æ meiri vin-
sælda meðal þeirra barna sem
stunda skíðaíþróttina. Þennan
unga Þróttara frá Neskaupstað
dreymir eflaust um að vinna til
verðlauna á Andrésar andar-
leikunum, en hann staldraði við
og skoðaði verðlaunagripina
sem stillt var út í glugga Vöru-
húss KEA.
Kennararáðningar grunnskóla fyrir næsta skólaár
Fleiri umsóknir berast frá -
réttindakennurum en áður
HORFUR eru á að fleiri umsóknir réttindakennara berist um
lausar stöður við grunnskóla á Norðurlandi eystra nú en oft
áður. Frestur til að sækja um kennarastöður rann út í gær
og segir Trausti Þorsteinsson fræðslusljóri að svo virðist sem
meira sé um en áður að kennarar með réttindi leiti eftir stöð-
um við skólana. Ekki sé þó búið að manna allar stöður, en
skólastjómendur hafi úr fleiri umsóknum að moða frá rétt-
indakennurum en áður.
Trausti sagði að ekki væri búið
að taka saman umsóknir, en í
næstu eða þar næstu viku ætti að
liggja ljóst fyrir hversu margar
Atskákmót
um helgina
Skákfélag Akureyrar heldur
helgarskákmót í atskák um kom-
andi helgi, 24. og 25. apríl í fé-
lagsheimili sínu við Þingvalla-
stræti.
Byijað verður að tefla kl. 13.30
á laugardag og tefldar 9 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Auk þess sem
veittir verða hefðbundnir verð-
launapeningar eru veitt peninga-
verðlaun til þeirra sem hafna í
þremur efstu sætunum.
Síðustu ár hefur Skákfélag Akur-
eyrar efnt til móta sem byijað hafa
á sumardaginn fyrsta og hefur það
verið nokkurs konar endapunktur
við vetrarstarf félagsins. Atskák-
mótið er öllum opið og þess vænst
að þátttaka verði góð.
umsóknir hefðu borist. Af sam-
tölum við skólastjóra í umdæminu
mætti hins vegar ráða að réttinda-
kennarar væru í auknum mæli að
sækjast eftir stöðum. Trausti sagði
að reyndar hefði hið sama verið
uppi á teningnum í fyrravor. Niður-
staðan að hausti hafí síðan orðið
sú að hlutfall réttindakennara
hækkaði ekki nema um 2-3%, en
búist hafði verið við meiri hækkun.
Hlutfall réttindakennara á Norður-
landi eystra losar rétt um 80%.
Tvístígandi
„Það bendir margt til þess að
nú hafi skólastjórnendur meiri
möguleika en áður á að ráða rétt-
indakennara. Áður hafa leiðbein-
endur oft verið ráðnir inn í skólana
í stað réttindakennara sem farið
hafa í leyfí. Nú svara menn auglýs-
ingum fyrr en oft áður og það virð-
ist vera að í stað þess að ráða leið-
beinendur fyrir þá réttindakennara
sem fara í leyfí verði hægt að fá
kennara með réttindi," sagði
Trausti. „Maður finnur líka sterkt
að kennarar eru mjög tvístígandi
um að losa um stöður sínar af ótta
við að tapa þeim.“
Trausti taldi bágt atvinnuástand
HÁSKÓLIIMN
A AKUREYRI
Fyriilestui um fiskihagfræði
Tími: Laugardagurinn 24. apríl kl. 14.00.
Staður. Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti,
stofa 25.
Efni: Markaðsbúskapur og sjávarútvegur.
Flytjandi: Dr. Rögnvaldur Hannesson prófessor í fiski-
hagræði við Verslunarháskólann í Björgvin,
Noregi.
líklegustu skýringuna á þessu og
mörgum væri nú Ijóst að því fylgdu
ýmsir kostir að starfa að kennslu,
en kennarar hefðu t.d. ýmsar
tryggingar sem ekki byðust alls
staðar á almenna vinnumarkaðn-
um.
(WHótel
^Harpa
Hópar -
einstaklingar
Minnum á blómstrandi
menningar- og skemmtana-
líf, landsins besta skíðaíjall
og vetrartilboð okkar.
Hótel Harpa
Góð gisting á hóflegu verði
í hjarta bæjarins.
Sími 96-11400
Ath.aðHótelHarpaerekkiísímaskránni.
MTC I
SLDTíLlUiTflH T
PENINGASKÁPAR
Meö kortalásum,
tölvulásum og
talnalásum.
Verð frá kr.
27.100,-
Fáanlegir með gólf-
festingu og bjöllu
Tf LVUTÆKI
FURUVÖLLUM 5, AKUREYRI
___SÍMI 96-26I00.
5S Tæknival
SKEIFUNNI 17, REYKJAVÍK
SÍMI 91-681665.