Morgunblaðið - 22.04.1993, Side 40

Morgunblaðið - 22.04.1993, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRIL 1993 ATVINNUAUGl YSINGAR Húsvörður Handlaginn og áreiðanlegur maður óskast. Húsnæði fylgir. Umsóknir, með upplýsingum um aldur og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. maí merktar: „Háhýsi - 10483". Hjúkrunarfræðingur óskast til afleysingastarfa í sumar. Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 98-34289 kl. 8-12 alla virka daga. Dvalarheimilið Ás/Ásbyrgi, Hveragerði. Tæknifræðingur Verkfræðistofa óskar eftir að ráða ungan tæknifræðing til eftirlitsstarfa. Nauðsynlegt er að tæknifræðingurinn sé iðnmenntaður eða hafi mikla reynslu af byggingavinnu. Góð enskukunnátta æskileg. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 29. apríl, merktar: „T - 3808“. Öllum umsóknum verður svarað. Búskapur Óska eftir að ráða fólk til að sjá um bújörð á Norðurlandi frá næstu fardögum. Leitað er að duglegu og reglusömu fólki með einhverja reynslu af búskap. Þeir, sem áhuga hafa, eru vinsamlega beðn- ir að leggja inn nöfn, símanúmer og upplýs- ingar um menntun, aldur og fyrri störf á auglýsingadeild Mbl., merktar: „Búskapur - 3663“. WWWW SÓLVANGUR SJÚKRAHÚS HAFNARFIRÐI Læknar Heilsugæslustöðin Sólvangi auglýsir stöðu afleysingalæknis frá 1. júlí í 3 mánuði og aðra stöðu frá 1. júlí í 2 mánuði. Upplýsingar gefur yfirlæknir eða fram- kvæmdastjóri í síma 652600. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra, Reykjanesi Þroskaþjálfar Hæfingarstöðin, Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði óskar eftir að ráða til starfa þroskaþjálfa í eftirfarandi þjónustutilboð: Grunnþjálfun Dagtilboð fyrir fjölfatlaða. 100% staða er laus frá og með 1. maí. Almenna hæfingu þar sem fram fer undirbúningur fyrir ýmis viðfangsefni utan heimilis, sem felur í sér ýmis vernduð störf. Tvær 75% stöður eru lausar frá og með 1. júlí. Markvissa starfsþjálfun þar sem fram fer undirbúningur fyrir störf á almennum vinnumarkaði. 50% staða er laus frá 1. ágúst. Umsóknarfrestur er til 14. maí nk. Upplýsingar gefa Halla Harpa Stefánsdóttir, forstöðumaður, í síma 650446 og Þór Þórar- insson, framkvæmdastjóri, í síma 641822. Umsóknareyðublöð fást á Svæðisskrifstofu, Digranesvegi 5 í Kópavogi. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI Aðstoðarlæknir á geðdeild Reyndur aðstoðarlæknir óskast til starfa á geðdeild FSA frá 1. júlí 1993 til 6 mánaða og frá 1. janúar 1994 til 6 mánaða. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu sendar yfirlækni deildar- innar, sem gefur nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 15. maí 1993. Læknafulltrúi á geðdeild Læknafulltrúi óskast í 50-75% starf á geð- deild frá 1. júlí 1993. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu sendar yfirlækni deildar- innar, sem ásamt læknafulltrúa gefur nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 15. maí 1993. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-30100. Lögfræðingur Yfirskattanefnd óskar eftir að ráða lögfræð- ing til starfa hjá nefndinni. Helstu verkefni eru gagnaöflun, undirbúningur mála til með- ferðarfyrir nefndinni og samning álitsgerða. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist formanni yfirskattanefndar, Laugavegi 118, Reykjavík, í síðasta lagi 30. apríl nk. Sjálfsbjörg - landssamband, fatlaðra Framkvæmdastjóri óskast Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, auglýsir eftir framkvæmdastjóra. Hlutverk: Hann ber ábyrgð á rekstri skrif- stofu samtakanna og starfsmannahaidi. Hef- ur umsjón með og annast framkvæmd fé- lagslegra og fjárhagslegra verkefna, s.s. með tengslum við félagsdeildir Sjálfsbjargar, op- inbera aðila, ýmis hagsmunasamtök innan- lands sem utan, samskipti við fjölmiðla svo og fjáröflun. Kröfur: Menntun, reynsla og áhugi á sviði félagsmála er mikilvæg ásamt stjórnunar- reynslu. Kunnátta í ensku og einu Norður- landamáli nauðsynleg og æskileg er kunn- átta í þýsku. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Kynning: Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, er samtök hreyfihamlaðra á íslandi. Aðildarfélögin er 16 og félagsmenn um 2.400. Hlutverk Sjálfsbjargar er m.a. að vinna að því að tryggja hreyfihömluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélags- þegna. Skriflegri umsókn, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, þer að skila á skrif- stofu Sjálfsbjargar, Hátúni 12, 105 Reykja- vík, fyrir 28. apríl nk. Frekari upplýsingar veita Jóhann P. Sveins- son, formaður, í síma 91-622012, og Tryggvi Friðjónsson, framkvæmdastjóri, í síma 91-29133, báðir á skrifstofutíma. RAD/\ UGL YSINGAR Ráðstefna um almannarétt og landnot Hver á? - Hver má? Ráðstefna laugardaginn 24. apríl 1993 á Hótel Loftleiðum kl. 9.00. Landvernd, Skotveiðifélag íslands, Landssamband stangaveiðifélaga, Ferða- félag íslands, Stéttarsamband bænda. Firmakeppni Firmakeppni Fáks verður haldin sumardag- inn fyrsta 22. apríl og hefst kl. 14.00. Skráning kl. 13.00. Keppt verður í barna-, unglinga-, kvenna-, karla- og meistaraflokki (bæði kynin). Mætum vel. Kveðja, stjórnin. Félag hjartasjúklinga í Reykjavík Aðalfundur/fræðslufundur verður haldinn á Hótel íslandi, Ármúla 9, (Ásbyrgi) laugardaginn 24. apríl kl. 15.00. Venjuleg aðalfundastörf. Aðalræðumaður Guðmundur Björnsson, yfir- læknir, heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Stjórnin. Málþing um grunnskóla í Kópavogi í nútfð og framtíð Skólanefnd Kópavogs og Samtök foreldrafé- laga við grunnskóla Kópavogs efna til mál- þings um grunnskólana í Kópavogi í nútíð og framtíð, laugardaginn 24. apríl kl. 13-17 í sal Digranesskóla. Dagskrá: 1. Setning málþingsins: Helgi Jónsson, fræðslustjóri. 2. Framsöguerindi: Mótun menntastefnu: Sigríður Anna Þórðardóttir, alþingismaður. Afstaða skólastjórnenda: Ólafur Guðmundsson, skólastjóri. Viðhorf skólanefndar: Bragi Michaelsson, formaður skólanefndar Kópavogs. Sjónarmið foreldra: Haukur Sigurðsson, varaformaður SAMKÓP. 3. Kaffiveitingar. 4. Pallborðsumræður undirstjórn Magnúsar Bjarnfreðssonar. Þátttakendur verða frá bæjarráði, skóla- nefnd, skólastjórnendum og foreldrum. 5. Málþinginu slitið: Una María Óskarsdótt- ir, formaður SAMKÓP. Stjórnandi málþingsins: Björn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fræðslu- og menningar- sviðs Kópavogskaupstaðar. Allt áhugafólk er velkomið. Skóianefnd Kópavogs og SAMKÓP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.