Morgunblaðið - 22.04.1993, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993
Heiðurslaun Yísindasjóðs Dýralækningafélags íslands
Guðmundur Pétursson prófessor
heiðraður fyrir rannsóknir sínar
Visnuveirurannsóknir hans heims-
þekktar og hafa orðið að liði við
rannsóknir á HIY-veirunni
Morgunblaðið/Þorkell
Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir og formaður stjórnar Vísinda-
sjóðs Dýralæknafélagsins afhendir Guðmundi Péturssyni heiðurs-
launin.
STJÓRN Vísindasjóðs Dýra-
læknafélags íslands hefur ein-
huga samþykkt að veita Guð-
mundi Péturssyni prófessor,
lækni og forstöðumanni Til-
raunastöðvar Háskólans í
meinafræði að Keldum, viður-
kenningar og heiðursverðlaun
fyrir rannsóknastörf hans, m.a.
á visnuveirunni, en rannsónir
hans hafa m.a. flýtt fyrir rann-
sóknum á HlV-veirunni vegna
þess hve veirurnar eru líkar.
Stjórn vísindasjóðsins afhenti
Guðmundi Péturssyni heiðurs-
verðlaunin í hófí á föstudags-
kvöldið. Viðstaddir afhending-
una voru Halldór Blöndal, land-
búnaðarráðherra, Jón Helga-
son, fyrrverandi ráðherra, Eg-
ill Jónsson, alþingismaður, og
fíeiri gestir.
Formaður stjómar Vísindasjóðs
Dýralæknafélagsins er Brynjólfur
Sandholt yfírdýralæknir. Hann
sagði í stuttu ávarpi, er Guð-
mundi var afhentur heiðursstyrk-
urinn, að Guðmundur hafí verið
virkur félagi í mörgum félögum
innanlands og erlendis, sem hafí
að markmiði að fjalla um læknis-
fræðileg og skyld málefni. Guð-
mundur hefur í tímans rás birt á
milli 80 og 90 vísindagreinar um
rannsóknir sínar einn eða með
starfsfólki sínu, flestar þeirra hafa
birst í erlendum tímaritum og
fræðibókum. Greinar eftir hann
hafa m.a. birst í The Lancet,
Cancer Research, Nordisk Medic-
in, Experimental Cell Research
o.fl.
Hæggengar veirur
Rannsóknir Guðmundar Pét-
urssonar hafa einkum beinst að
hinum svonefndu annarlegu hæg-
gengu veirusjúkdómum og fyrst
og fremst að mæðiveiki og visnu
í sauðfé. Veirur þær, sem valda
þessum sjúkdómum tilheyra þeim
flokki veira, sem nefndar hafa
verið lentiveirur. Ónæmiskerfí lík-
amans virðist ekki takast að ráða
niðurlögum veirunnar þrátt fyrir
greinileg viðbrögð, því að veiran
heldur áfram skemmdarstarfí sínu
hægft og bítandi mánuðum eða
árum saman uns sjúklingurinn er
lagður af velli.
í tilraunum, sem sumar hafa
staðið árum saman hefur ferli
þessara sérstæðu sjúkdóma verið
rannsakað frá ýmsum hliðum, t.d.
hvaða frumur og líffæri verði helst
fyrir áreitni veirunnar, hvaða þýð-
ingu viðbrögð ónæmiskerfísins
hafa á gang veikinnar og hvemig
sjúkdómamir þróast ef viðbrögð
ónæmiskerfísins eru bæld. Rann-
sakað hefur verið hvort bóluefni
geti girt fyrir sýkingar eða haft
áhrif á gang sjúkdómsins.
Visnuveiran náskyld
HIV-veirunni.
Komið hefur í ljós, að náinn
skyldleiki er á milli visnuveirunnar
og HlV-veirunnar, sem veldur
eyðni í mannfólki. Við samanburð
hefur komið í ljós að ýmsir þættir
í sjúkdómsferli og meingerð visnu
og eyðni eru sambærilegir. Má
þar t.d. nefna dreifíngu smitsins
í líkamanum, sambærilegar mark-
fmmur í blóði fómarlamba beggja
sjúkdóma og að nokkru leyti
hvaða líffæri verða mest fyrir
áreitni veiranna. Sjúklegar breyt-
ingar sem fram koma í eitlum,
lungum og miðtaugakerfí era líka
á vissu stigi sambærilegar.
Visnuveiran notuð sem líkan
í eyðnirannsóknum.
Ýmis lærdómur hefur verið
dreginn af hinum víðtæku rann-
sóknum á hæggengum veirasjúk-
dómum í sauðfé undir forystu
Guðmundar Péturssonar á liðnum
áram og munu sumir þeirra hafa
haft áhrif á og flýtt fyrir rann-
sóknum á eyðnisjúkdómnum þeg-
ar hafíst var handa við þær. Sum-
ir hafa talið að visnu mætti nota
sem líkan við vissa þætti eyðni-
rannsókna því að við visnu má-
breita rannsóknaaðferðum sem
ekki er gerlegt að beita við eyðni.
Á síðustu áram hefur verið unnið
að rannsóknum á gerð veirannar
með aðferðum sameindalíffræði
og könnuð áhrif mismunandi
veirastofna á hýsilinn.
Að lokum sagði Brynjólfur: „Þó
að rannsóknir á hæggengum
veirasjúkdómum hafí verið fyrir-
ferðarmestar í störfum Guðmund-
ar og gert hann að „autoriteti" á
þeim vettvangi, hefur hann látið
að sér kveða á öðrum sviðum einn-
ig og má þar t.d. nefna rannsókn-
ir hans á skaðsemi flúors á heilsu-
far búfjár eftir Heklugos og grein-
ar hefur Guðmundur birt um sjúk-
dóma í selum og rannsóknir á
vissum blóðþáttum í hvölum. Sem
forstöðumaður Tilraunstöðvarinn-
ar á Keldum hefur Guðmundur
mótað að vissu marki ýmis önnur
rannsókna- og þjónustustörf varð-
andi búfé, sem þar era innt af
hendi.
Fyrir rannsóknar- og ritstörf
Guðmundar varðandi íslenskt
búfé á liðnum áram hefur stjóm
Vísindasjóðs Dýralæknafélags ís-
lands ákveðið að veita honum við-
urkenningar- og heiðursverðlaun
sjóðsins 1993, heiðursskjal og
peninga að upphæð 250.000 krón-
ur.“
Vísindasjóður
Dýralæknafélagsins
Páll Agnar Pálsson, fyrrverandi
yfírdýralæknir, gerði grein fynr
Vísindasjóði Dýralæknafélags ís-
lands, sem er 25 ára um þessar
mundir, en hann var stofnaður
af Guðbrandi Hlíðar dýralækni til
minningar um foreldra hans, Guð-
rúnu Lovísu Hlíðar og Sigurð
Hlíðar yfírdýralækni. Skipulags-
skrá sjóðsins var staðfest 22. júlí
1968, og samkvæmt henni er til-
gangur sjóðsins að veita íslensk-
um dýralæknum styrk til fram-
haldsnáms, til vísindastarfa á
dýralæknasviðinu eða sem verð-
laun fyrir ritgerðir um skyld mál
byggðar á sjálfstæðum rannsókn-
um. Ennfremur er heimilt að veita
öðram einstaklingum eða starfs-
hópum viðurkenningar fyrir mikil-
væg störf unnin á sviði dýralækn-
inga. Alls hefur 17 sinnum verið
veitt úr sjóðnum, fyrst árið 1976.
Við þessa sömu athöfn var Konráð
Konráðssyni dýralækni sérfræð-
ingi í svínasjúkdómum veittur
styrkur að upphæð 100 þúsund
krónur vegna náms í sérgrein
hans við dýralæknaskólann í
Kaupmannahöfn.
Málþing um skóla-
mál í Kópavogi
SKÓLANEFND Kópavogs og Samtök foreldrafélaga við grunnskóla
Kópavogs efna til Málþings um grunnskólana i Kópavogi í nútíð og
framtíð, laugardaginn 24. apríl kl. 13-17 í sal Digranesskóla.
Undirfatasýn-
ing í Naust-
kjallaranum
SÝNDUR verður undirfatnaður
á dömur og herra frá heildversl-
uninni K. Karlssyni, Skúlatúni
4, í kvöld, fimmtudaginn 22.
april, i Naustkjallaranum við
Vesturgötu, kl. 21.30. Módelsam-
tökin sýna.
Sýndar verða franskar vörar frá
vöramerkinu Dim sem er með und-
irfatnað á dömur, sokka, sokkabux-
ur og herranærföt. Síðan verða
sýnd föt frá merkinu Rosy Paris
sem er undirfatnaður á dömur
ásamt sokkabuxum. Einnig verður
sýndur brúðarkjóll frá Brúðarkjóla-
leigunni, Nóatúni 17 sem einnig
selur Qölbreytt úrval af samfellum,
undirkjólum og undirfotum.
Sýndar verða slæður og þær seld-
ar á staðnum. Kynning verður á
ilmvatninu Echo Mario Valentino
og Romana verður með gleðigjafa.
(Fréttatilkynning)
í frétt frá Skólanefnd Kópavogs
segir: „Mikilvægasta hlutverk okk-
ar í lífínu er uppeldi bamanna okk-
ar. Á heimilinu reynum við að skapa
þeim sem best skilyrði, en fylgj-
umst við með gangi mála í skólan-
um og tökum við þátt í starfí bam-
anna? Veistu hvemig barninu þínu
líður í skólanum? Getum við, for-
eldrar, komið til aðstoðar og haft
meiri áhrif á mótun skólamála en
hingað til?
Dagskrá verður þannig að Helgi
Jónsson fræðslustjóri setur mál-
þingið, en síðan halda framsöguer-
indi Sigríður Anna Þórðardóttir al-
þingismaður um mótun mennta-
stefnu; Ólafur Guðmundsson skóla-
stjóri um afstöðu skólastjómenda,
Bragi Michaelsson formaður Skóla-
nefndar Kópavogs um viðhorf
skólanefndar og Haukur Sigurðs-
son varaformaður SAMKÓP fjallar
um sjónarmið foreldra.
Síðan verða pallborðsumræður
undir stjóm Magnúsar Bjamfreðs-
sonar. Þátttakendur verða frá bæj-
arráði, skólanefnd, skólastjórnend-
um og foreldram. Una María Ósk-
arsdóttir, formaður SAMKÓP slítur
síðan málþinginu. Stjómandi mál-
þingsins verður Bjöm Þorsteinsson
framkvæmdastjóri Fræðslu- og
menningarsviðs Kópavogskaup-
staðar.
(FréttAtilkynning)
Mikið um að vera hjá Tónlistarskóla verður með sumarkaffí á Hall-
veigat'stöðum við Túngötu.
Keflavíkur á sumardaginn fyrsta ir boðnir velkomnir.
í TÓNLISTARSKÓLANUM í Keflavík verður mikið um að vera í dag,
sumardaginn fyrsta. Kl. 14 hefjast tónleikar forskóladeildar sem um
leið markar endi vetrarstarfsins hjá forskólanemendum. Á tónleikun-
um munu nemendur leika og syngja hin ýmsu verkefni sem þeir hafa
verið að æfa í vetur og nokkrir þeirra munu leika einleik á hUóðfæri.
Föstudaginn 23. apríl hefst svo
innritun á skrifstofu skólans á for-
skólakynningu sem standa mun í
tvær vikur. Kynningin er ætluð 6-8
ára bömum sem hyggja á nám í
forskóladeildinni næsta vetur og
vilja kynna sér hana nánar. Nám-
skeiðið er ókeypis og munu um 30
börn komast að. Kennari á nám-
skeiðinu verður Margrét Gunnars-
dóttir, forskólakennari.
Að forskólatónleikunum loknum,
um kl. 15, mun Léttsveit Tónlistar-
skólans í Keflavík hefja maraþonleik
á sal skólans. Léttsveitin er á leið
vestur um haf í tónleikaferð og mun
m.a. leika fyrir íbúa Orlandoborgar
á Flórídaskaganum. Fyrir tveimru
áram fór sveitin í ferð á sömu slóð-
ir og lék þá m.a. í Disney-skemmti-
garðinum og stendur til að endur-
taka þann leik nú.
Maraþonspilið er í fjáröflunar-
skyni og hafa meðlimir sveitarinnar
safnað áheitum og er ætlunin að
reyna að leika samfleytt í rúmar 6
klukkustundir. Stjórnandi Léttsveit-
arinnar er Karen Sturlaugsson.
(Fréttatilkynning)
♦ ♦ ♦ ....-■
■ SUMARJAZZ í Djúpinu
verður í kvöld, sumardaginn
fyrsta. Jazztríó Vesturbæjar
leikur fyrir gesti. Á boðstólum
verður tónlist með brazilískum
blæ. Tríóið skipa: Ómar Einars-
son, gítar, Stefán S. Stefánsson,
saxófón og Gunnar Hrafnsson,
bassi. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Aðgangur ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Hátíðar-
höldin í
Kópavogi
HÁTÍÐARHÖLDIN vegna
sumardagsins fyrsta í Kópa-
vogi verður að þessu sinni í
umsjá Skátafélagsins Kópa.
Skátamessa verður í Kópa-
vogskirkju og hefst hún kl. 11.
Hátíðardagskrá verður síð-
an í íþróttahúsinu Digranesi
kl. 14 að lokinni skrúðgöngu
úr Hamraborg í miðbæ Kópa-
vogs að Digranesi. Helstu at-
riði í dagskránni era m.a.: For-
maður skólanefndar, Bragi
Michaelsson, setur hátíðina.
Skólahljómsveit Kópavogs
leikur. Leikhópurinn Loki frá
Kópavogshæli flytur leikverk
við ljóðið Bumirótina eftir Pál
J. Árdal. Nemendur Dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar sýna.
Leikfélag Kópavogs sýnir brot
úr bamaleikritinu Ottó nas-
hyrningur og kvartett félags-
ins syngur. Skólakór Hjalla-
skóla syngur. Karatedeild
Breiðabliks sýnir. Nemendur
úr Tónlistarskóla Kópavogs
flytja Prelúdíu í F-dúr eftir J.J.
Quantz. Leikfélag Kópavogs
sýnir annað atriði úr bamaleik-
ritinu Ottó nashymingi og
kvartett leikfélagsins syngur.
Að lokum sýna nemendur úr
fimleikafélaginu Gerplu.
Skátafélagið Kópar verða
með kaffisölu í félagsheimili
Kópavogs kl. 14.30-16.30.
(Fréttatilkynning)