Morgunblaðið - 22.04.1993, Síða 47
8661 JÍ5HA .2S HUOAQUTMMU CíIQAJHVlUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993
47
Hátíðahöldin á sumar-
daginn fyrsta í Garðabæ
Jakusho Kwong-roshi.
MIKIÐ verður um að vera á sum-
ardaginn fyrsta og munu skátar
úr Skátafélaginu Vífli sjá um
dagskrá allan daginn.
Kl. 11 verður fánaathöfn við
Garðakirkju og strax að henni lok-
inni verður skátamessa í Garða-
kirkju. Skátar munu standa heið-
ursvörð og vígðir verða nýliðar inn
í félagið. Ræðumaður dagsins verð-
ur Tryggvi Páll Friðriksson.
Kl. 14 leggur skrúðgangan af
stað frá mótum Hofstaðarbrautar
og Karlabrautar og mun lúðrasveit-
in Svanur sjá um að allir gangi í
takt. Skátar úr Vífli munu ganga
fyrir göngumanni með fánaborg.
Gengið verður að Skátaheimilinu
og þar verður mikið um dýrðir.
Lúðrasveitin Svanur leikur nokkur
lög og gestir boðnir velkomnir. Því
næst mun sönghópurinn Jónas og
Hrefna flytja nokkur lög. Stór og
mikil þrautabraut verður á túninu
og koddaslagurinn sívinsæli verður
á staðnum. Að auki verður hin ár-
lega kaffisala Vífils og tertuhlað-
borð á tveimur hæðum í húsinu.
(Fréttatilkynning)
Gardena býður
gleðilegt sumarf
#GARDENA
Kynning á
Zen-iðkun
JAKUSHO Kwong-roshi mun
verða með kynningu á Zen-iðkun
laugardaginn 24. apríl kl. 10 f.
hádegi. Kynningin verður í húsi
Guðspekifélagsins í Ingólfsstræti
22 og er á vegum Zen-hópsins.
Jakusho Kwong-roshi er kín-
verskættaður Bandaríkjamaður, en
hann fæddist í Santa Rosa árið
1935. Hann byrjaði að iðka Zen
undir handleiðslu Shunryu Suzuki-
roshi árið 1959. Árið 1978 keypti
hann ásamt sjö nemendum sínum
sveitasetur í Sonoma-fjöllunum í
Kaliforníu til að þróa hið hefð-
bundna Zen í anda kennara síns.
Jakusho Kwong er nú staddur á
íslandi í boði Zen-hópsins, en hann
er jafnframt kennari hópsins. Kynn-
ingin á Zen er öllum opin og er
aðgangur ókeypis.
(Fréttatilkynning)
-----♦ ♦ ♦------
Sumardag-
urinn fyrsti
í Norræna
húsinu
BARNABÓKARÁÐIÐ - íslands-
deild IBBY heldur að venju sum-
argleði í Norræna húsinu.
Dagskráin hefst kl. 15 með því
að börn úr Melaskóla flytja frum-
samið tónverk fyrir ásláttarhljóð-
færi. Stjórnandi er Helga Gunnars-
dóttir, tónmenntakennari.
Veittar verða viðurkenningar
Barnabókaráðsins fyrir framlag til
barnamenningar og fluttur verður
söngleikur, Nýju fötin keisarans, í
leikgerð Magnúsar Péturssonar á
ævintýri H.C. Andersens. Flytjend-
ur eru 11 ára born úr Hvassaleitis-
skóla. Stjórnandi er Kolbrún Ás-
grímsdóttir.
Að lokum verður ljóðalestur
barna og leiklestur nema úr Fóstur-
skólanum.
(Úr fréttatilkynningu)
-----♦ ♦ ♦------
Gestafyrir-
lestur við
líffræðiskor
Háskólans
ÚLFUR Árnason, dósent við
Lundarháskóla, flytur föstudag-
inn 23. apríl gestafyrirlestur í
líffræðiskor sem nefnist: Saman-
burður á hvatbera DNA (mtDNA)
náskyldra og fjarskyldra spen-
dýra.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 101 í Odda, húsi Félagsvís-
indadeildar háskólans, og hefst kl.
10.30. Öllum er heimill aðgangur
og nemendum í líffræði er bent á
að gestafyrirlestrar við líffræðiskor
eru hluti af námsefni allra nemenda
á 3. og 4. ári.
(Fréttatilkynning)
FERÐALÖG OG ÚTIVIST (PERLUll 22.-25. APRÍL
o
CD
<
CD
Q
<
FIMMTUDAG KL. 14.00-20.00
FÖSTUDAG KL. 17.00-22.00
40PNUNARTÍMI4
LAUGARDAG KL. 14.00-20.00
SUNNUDAG KL. 14.00-18.00
U P P A K
★ Kynning á ferðamöguleikum í öllum landshlutum.
★ Skemmtilegur getraunaleikur með stórglæsilegum vinningum
★ Feróir meó stærstu rútu á íslandi.
★ Landsbjörg með kennslu í fyrstu hjálp og blástursaóferðinni.
★ Skipulagðar gönguferðir á vegum Ferðafélags íslands 22. og
23. apríl kl. 20.00 frá Perlunni.
M U R
★ Sýning á björgunartækjum og bílum.
★ Kennsla í notkun gasgrilla.
★ Ratleikur í Öskjuhlíð laugardaginn 24. apríl
kl. 15.00. Stórglæsilegir vinningar.
★ Hestar og hjólhestar á staðnum fyrir börnin.
★ Stórglæsileg fræósla og skemmtun fyrir alla
fjölskylduna.
QC VESTMANNAEYJAR
= HÓPFEROAMIÐSTÖÐIN
5» SUÐURLAND
M-j HVERAGERÐI
S SPORTLEIGAN
tz AUSTURLAND
P— HAGKAUP
ÍSHESTAR
ELDHESTAR
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ FERÐAMÁLA
LANDMÆLINGAR ÍSLANDS
HITAVEITA REYKJAVÍKUR
NORÐULAND VESTRA
VEGAGERÐIN
STYKKISHÓLMUR
REGNBOGAHÓTEL
FERÐAVAKINN
FÉL. LEIÐSÖGUMANNA
P E R L A N
UPPLÝSINGAWÓNUSTA REYKJAVÍKUR
SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVÍKUR
FLUGLEIÐIR INNANALANDS
VESTURHEIMAR
AUSTURLEID
SKELJUNGUR
STÚDÍÓ ÍBUOIR
SUÐURNES
EDDUHÓTEL
SEGLAGERÐIN ÆGIR
FERDAFÉLAG ÍSLANOS ZZl'
LAXAKORT
VESTFIRÐIR 53
FARFUGLAR
AKRANES S2S
ÚTIVIST Ö
B.S.Í §5
FARVÍS ’ *
AÐGANGUR OKEYPIS