Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 4
seeí IAM J M'JOAdHAO'JAJ GIGAJHHODJíOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
Hugmyndir eru uppi um sameiningu ASÍ og BSRB
Forseti ASI telur sam-
runa koma til greina
Varaformaður BSRB telur enga möguleika á sameiningu
FORSETI Alþýðusambands íslands telur að samruni ASÍ
og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja komi vel til greina.
Varaformaður BSRB segist ekki sjá möguleika á slíkri
sameiningu.
Benedikt Davíðsson forseti ASÍ
segir í viðtali við Vikublaðið, sem
kom út í gær, að hann sjái fyrir
sér mun nánara samstarf en verið
hafi milli samtaka eins og BSRB
og ASÍ og jafnvel samruna þessara
samtaka. Hann segir þessar hug-
myndir hafí ekki verið ræddar
skipulega af forustu þessara sam-
taka en þær hafí oft borið á góma.
Benedikt sagði við Morgunblaðið,
að innan ASÍ væru félög með marg-
víslega kjarasamninga og kjör, og
mörg þeirra semdu við ríkið og
bæjarfélögin. „Ég sé því ekkert sem
VEÐUR
beinlínis ætti að hindra að þetta
geti gerst,“ sagði Benedikt. Þegar
hann var spúrður hvort hann myndi
beita sér fyrir formlegum viðræðum
samtakanna um sameiningu sagði
hann að engar formlegar ákvarðan-
ir hefðu verið teknar um slíkt innan
ASÍ.
Engir möguleikar
Ragnhildur Guðmundsdóttir
fyrsti varaforseti BSRB sagðist í
samtali við Morgunblaðið ekki hafa
heyrt umræðu um samruna ASÍ og
BSRB. „Það hefur verið samstarf
‘á milli þessara aðila og það er af
hinu góða. En hugmyndir ASI um
samruna koma mér nokkuð á óvart
eftir veturinn þar sem okkur var
haldið vel og vandlega utan við alla
umræðu um kjaramálin. Ég veit því
ekki hvaðan þetta er komið,“ sagði
Ragnhildur.
Hún sagðist aðspurð ekki sjá
möguleika á sameiningu þessara
samtaka. „Það eru svo ólíkir hags-
munir varðandi kjaraleg réttindi og
kjaramál að það þarf mikið að
breytast áður en samtökin samein-
ast,“ sagðf Ragnhildur.
Benedikt sagðist ekki telja, að
það hvemig viðsemjendur BSRB
hefðu að þessu sinni komið að þeirra
málum, þyrfti að hafa afgerandi
áhrif á umfjöllum samtakanna um
hugsanlega sameiningu.
IDAG kl. 12.00
Heimild: Veðurslofa Isfands
(Byggt á veðurspé kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 1. MAI
YFIRLIT: Á Grænlandshafi, skammt vestur af landinu er 2.002ja mb
lægð sem þokast heldur austsuðaustur, en 1.027 mb lægð er yfir Græn-
landi. Yfir Skandinavíu er 1.025 mb hæð.
SPÁ: Hæg austlæg átt og él. Við norðurströndina er hæg breytileg átt
og víðast þurrt syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg breytileg átt. Él á víð og dreif
og frost um mestallt land.
HORFUR Á MÁNUDAG: Þykknar upp með vaxandi suðaustan átt og fer
að snjóa sunnan og vestanlands er líður á daginn. Smám saman hlýn-
andi veður.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG. Hvöss suðaustan átt og slydda en síðan rign-
ing víðast hvar, þó síst norðaustanlands. Hiti 2 til 10 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað
r r r
r r
r r r
Rigning
* r *
* r
r * r
Slydda
&
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
Alskýjað
*
V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig^
10° Hitastig
V súld
= Þoka
dig..
FÆRÐA VEGUM: (Ki. 17.30 fgær)
Víðast á landinu er nú ágæt færð og er greiðfært um Suðurland til
Austfjarða og þar eru flestir vegir færir. Vel fært er um Vesturland og
í Reykhólasveit og fært er milli Brjánslækjar, Patreksfjarðar og Bildu-
dals. Þá er fært norður um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og ófram til
ísafjarðar og Þingeyrar. Fært er um Norður- og Norðausturland og um
Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Víða hefur öxulþungi verið tak-
markaður vegna aurbleytu og það merkt við viðkomandi vegi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænniiínu 99-6316. Vegagerðin.
4
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 f gær að ísi tíma
hiti voður
Akureyri 6 léttskýjað
Reykjavik 2 snjóél á sið. klst.
Bergen 19 léttskýjað
Helsinki 16 léttskýjað
c 1 1 1 5* 19 léttskýjað
Narssarssuaq +9 helðskírt
Nuuk +8 snjókoma
Osló 20 léttskýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Þórshöfn 6 súld
Algarve 17 þokumóða
Amsterdam 29 léttskýjað
Barcelons 12 þokumóða
Berlín 26 léttskýjað
Chicago 8 þoka
Feneyjar 20 léttskýjað
Frankfurt 25 léttskýjað
Glasgow 17 mistur
Hamborg 24 léttskýjað
London 16 mistur
LosAngeles 17 þokumóða
Lúxemborg 23 léttskýjað
Madríd 19 skýjað
Malaga 16 8úldásfð.klst.
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal 11 mistur
NewYork 12 alskýjað
Orlando 16 skýjað
París 20 léttskýjað
Madeira vantar
Róm 16 alskýjað
Vín 21 hálfskýjað
Washington 12 alskýjað
Winnipeg 0 skýjað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný saltfiskverkun
JON Asbjörnsson, Þorsteinn Pálsson og Ásbjörn Jónsson skoða salt-
fisk, sem framlejddur er í nýju húsnæði Fiskkaupa hf.
Fiskkaup stefna að söltun 5.0001 í Reykjavík
Ný saltfískverk-
uní 2.500 fer-
metra húsnæði
FISKKAUP hf. tóku í gær formlega í notkun nýja saltfisk-
verkun í 2.500 fermetra húsnæði við Reykjavíkurhöfn.
Fyrst í stað verður framleiðslan einskorðuð við söltun tand-
urflaka og er áætluð framleiðsla þar þetta árið um 5.000
tonn af fiski upp úr sjó. Síðar er stefnt að alhliða saltfisk-
verkum, flatningu og þurrkun. Fyrirtækið flytur starfsemi
sína úr Grandaskála í nýja húsnæðið, en söltun verður
haldið áfram í Ólafsvík og er áætlað að framleiða þar úr
um 3.000 tonnum upp úr sjó.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, gangsetti vélar verkunar-
innar í gær og óskaði Jóni Ásbjörns-
syni aðaleiganda Fiskkaupa hf. til
hamingju með árangurinn. Fisk-
kaup unnu á síðasta ári úr 6.000
tonnum af físki og nam útflutning-
urinn 2.300 tonnum af afurðum,
þar af 900 tonnum af flökum. Út-
flutningsverðmæti var um 850.
milljónir króna.
Byggt á fiskmörkuðum
„Þetta fyrirtæki byggir afkomu
sína á fískmörkuðum, það á engan
kvóta og enga útgerð. Við byggjum
á því að fá krókafísk, sem er bezti
fiskurinn, til framleiðslu á kröfu-
harðasta saltfískmarkað veraldar í
Katalóníu á Spáni. Allar hugsanleg-
ar aðgerðir stjórnvalda til takmarka
Og síðan áfram vestur á
bóginn á gönguskíðum
*...-
Q
0
Annar áfangi með hunda- x< r<ÚVjilseiíi v r\l IIII Idbbdllft ’ V
sleðum inn á isjaðarinn [ \ S n Fyrsti áfangi ferðar-
0 I m\^\ r ' ^ r ^ / ; i / / innar í Grænlandi var floginn með þyriu
Islenski Grænlandsleiðangurinn
Skilaboð frá Ieiðangrinum bárust
á fimmtudagskvöld með flugvél
Grænlandsflugs, sem leiðangurinn
hafði verið í talstöðvarsambandi
við. Leiðangurinn var þá kominn í
600 metra hæð og u.þ.b. 12 km inn
á jökulinn. Vegna illviðris komst
leiðangurinn ekki frá þorpinu Is-
ortoq með hundasleðum að jökul-
eða hefta á einhvem hátt veiðar
krókabáta eða afnéma línutvöföld-
un yfir vetrarmánuðina, myndu
kippa grundvellinum undan þessu
fyrirtæki og hætt er við að fisk-
markaðarnir hverfi þá af sjónar-
sviðinu, því þeir fá eingöngu fisk
frá bátum, en engan fisk'frá togur-
un. í nýjum tillögum sjávarútvegs-
ráðherra hafnar hann þessum hug-
myndum og hefur lagt til áfram-
haldandi kvókaveiðar og línutvö-
földun. Þá munum við sem aðrir
kaupendur á fískmörkuðún væntan-
lega geta fengið hráefni áfram,“
sagði Jón Ásbjörnsson ufft leið og
hann þakkaði sjávarútvegsráðherra
þann heiður að gangsetja starfsemi
fyrirtækisins í hinu nýja húsnæði,
sem Fiskkaup keyptu af Ríkisskip-
um á sínum tíma.
Óveður tefur för
leiðangursmanna
ÍSLENSKI Grænlandsleiðangurinn var í fyrrakvöld kominn
tólf km inn á Grænlandsjökul og var staddur í 600 metra
hæð. Leiðangursmenn, Olafur Orn Haraldsson, Haraldur
Ólafsson og Ingþór Bjarnason, eiga nú fyrir höndum um
590 km leið vestur yfir jökulinn til Syðri-Straumsfjarðar.
röndinni fyrr en sl. þriðjudag. Veðr-
ið sl. miðvikudag á þessum slóðum
vár afar slæmt, en hafði þó skánað
til muna.
Allt var í góðu gengi hjá leiðang-
ursmönnum og þess var ennfremur
vænst að veðrið verði þeim hag-
stæðara næstu daga.