Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 10
. i hu; MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993 GIMLI Þórsgata 26, sími 25099 Opið virka daga kl. 9-18 Opið í dag kl. 11-14 Félag fasteignasala 13*25099 Póstfax 20421. 2ja herb. íbúðir ORRAHÓLAR - LAUS. Glæsileg 2ja herb. íb. á 8. hæð m. fallegu útsýni. Áhv. hagst. lán ca 1,2 millj. Verð 4,9 millj. 2282. HRAUNBÆR - HAGST. LÁN. Mjög góð 2ja herb. 73 fm íb. á 1. hæð í góðu fjölb. ofarl. í Hraunbænum. Sér- geymsla. Nýl. parket. Áhv. húsnæðisl. ca. 2,5 millj. Verð 5,6 millj. 2662. B E RGSTAÐASTRÆTI. Stórglæsit. nýstandsett 2ja herb, íb, 48 fm á 3. haeð (efstu). Allar innr., gólfefni, lagnír o.fl. endurn. Gott skipul, Parket á gólfum. Upp- tekið loft í stofu. Sérþvottah. í íb. Verð 4,6 millj. 2786. ÓÐINSGATA. Ágæt 2ja herb. 45 fm ósamþ. íb. í tvíb. Stofa, rúmg. svefn- herb., baðherb. m. sturtu, rúmg. svefn- herb. Parket. Verð 2,9 millj. 2798. VINDÁS - BÍLSKÝLI - HÚS- NÆÐISL. 3,4 MILLJ. Glæsileg 60 fm íb. á 2. hæð í nýl. viðg. fjölb. Stæði í bílskýli. Frágengið bílast. o.fl. Góðar innr. Pvottah. á hæðinni. Áhv. 3,4 millj hús- næðisstj. Verð 6,1 millj. 2280. VANTAR 2JA HERB. EÐA EINSTAKLÍB. Höfum traustan kaupanda að 2ja herb. íb. eða ein- stakl. fb. m. hagst. lánum, útb. 1-1,5 millj. Uppl. gafur Bárður Tryggvason. MARIUBAKKI - 2JA. Glæsil. 73 fm 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæð í fallegu nýstands. húsi. M.a. nýl. eldhús, parket. íb. er laus strax. Suöursvalir m. fallegu útsýni. Stórt sérþvottah. innaf eldh. sem hægt er aö nýta sem svefnh. Stór sér- geymsla í kj. Laus strax. Verð 5,7 millj. 2736. REYKÁS - 70 FM. Glæsil. 2ja herb. mjög rúmg. íb. á jaröh. með sér afgirtri suðurverönd. Geymsla og þvottah. í íb. Áhv. húsnstj. 1,5 millj. Hagst. verð að- eins 6,9 mlllj. 2740. GAUKSHÓLAR - GÓÐ LÁN. Mjög mikið endurn. ca 55 fm nettó ib. á 2. hæð í fallegu nýstands. lyftuh. Sameign öll nýstands. aö innan. Massívt parket á gólfum. Endurn. bað. Áhv. húsbréf og húsnlán ca 3,0 millj. Verð 5,3 milj. 2747. ÞANGBAKKI. Ca 63 fm íb. á 2. hæð í lyftuh. Hús nýviðg. og málaö að utan. Skipti mögul. á 3ja-4ra herb. íb. í nágr. Verð 5,8 millj. 2620. SÓLHEIMAR - ÓDÝR. Falleg 27,3 fm samþ. „stúdíó"-íb. lítið niðurgr. Skuldlaus. Verð 2,8 milli. TJARNARBÓL. Falleg 62 fm íb. á 1. hæð. Áhv. húsnæðislán. ca. 2,6 millj. Hús nýl. viðgert utan og málað. Parket. Verð 5,5 millj. 1814. ENGJASEL - BÍLSKÝLI. Góð 2ja herb. 56 fm íb. á jarðh. Stæði í bílsk. Laus strax. Áhv. 1300 þús húsnæðisstj. Verð 5 millj. 2588. FÁLKAGATA - ÚTB. 2 MILU. Mjög falleg lítil 2ja herb. 39 fm íb. í nýl. húsi. Gott svefnherb. Stofa m. útgengt út á hellul. suöurverönd. Marmari á öllum gólfum. Áhv. ca 1,7 millj. íb. er ósamþ. Verð 3,7 millj. 2715 MOSGERÐI. Góð 2ja herb. risíb. í eftirsóttu hverfi. Góður garður. Verð 4,2 millj. 2667. HRAUNBÆR. Góö 2ja herb. íb. á 3. hæð í fallegu fjölbh. Áhv. ca 2,3 millj. húsnlán. Verð 5,1 millj. Bein sala eða skipti mögul. á 3ja-4ra herb. íb. í Hraunbæ. eða vestan Elliðaár. 2581. ASPARFELL - HAGST. LÁN - ÚTB. 1,7 MILU. Góð 2ja herb. íb. ca 50 fm á 3. hæð í góðu lyftuhúsi. Rúmg. svefnherb. Áhv. rúml. 3 millj. vlð húsn- stjórn. Verð 4,9 millj. 2557. EFSTASUND - HÚSNÆÐISL. Góð 2ja-3ja herb. íb. í kj. 61 fm nettó. Allt sér. Áhv. 3,2 millj. byggingarsj. rík. Skipti möguleg á einstaklingsíbúð. Verð 5,2 millj. 2523. LAUGAVEGUR. Mjög mikið endurn. 2ja herb. íb 55 fm. Suöuríb. á 1. hæö. Nýtt parket og innr. Áhv. ca. 2 millj. Skipti mögul. á 3ja-4ra herb. íb. Verð 4,6 millj. 2562. KRUMMAHÓLAR. Falleg 2ja herb. íb. á 3. hæð ásamt stæöi í bílskýli. Verð 4,5 millj. 2545. VÍKURÁS - LAUS. Góð ca 60 fm íb. á 2. hæð í nýl. fjölbhúsi. Áhv. ca 2,5 millj. húsnstj. Seljandi tekur á sig kostnað vegna væntanlegra framkvæmda utan- húss. Verð 5,4 millj. 2356. UNNARBRAUT. Góð 2ja herb. íb. á jarðhæð í fallegu fjórbhúsi á ról. stað á Nesinu. Endurn. eldh. Parket. Verð 5,0 millj. 2489. Sjá einnig auglýsingu okkar í Fasteignablaðinu 30. apríl. EIGNASALAN e REYKJAVIKe Símar 19540 - 19191, fax 18585 INGÓLFSSTRÆTI 8-101 REYKJAVÍK. Yfir 35 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar. Magnús Einarson, löggiltur fasteignasali. Sölum. Eggert Elíasson, hs. 77789 og Svavar Jónsson, hs. 657596. SAMTENGD SÖLUSKRÁ ÁSBYRGI I IGNASAlA\ [LAlLTASj I wwáJ Opið í dag, laugardag, frá kl. 11-14 Sjá nánar auglýsingu um fjölda fasteigna í Morgunblaðinu í gær, föstudaginn 30. april Hafnarfjöróur - húsnæói óskast Erum að leita aó 400-500 fm verslunar- eða iðnaðarhúsnæði sem breyta mó í félagsheim- ili. Æskilegt er aó rífleg lofthæð sé til staðar. Upplýsingar í síma 92-14222. ÉtoiEÍM dddéD Umsjónarmaður Gísli Jónsson 690. þáttur Aðalsteinn Geirsson á Hvann- eyri í Andakíl skrifar mér efnis- mikið og athyglisvert bréf, og sem betra er, skemmtilegt og fyndið á köflum. Ég mun nú og á næstunni reyna að víkja að ýmsu því sem í bréfinu stendur, en verð, vegna fákunnáttu, að sneiða hjá þeim atriðum, þar sem skarast málfræði og guð- fræði (trúarbrögð). Fyrst er þá aðeins að minnast á eignarfallsendingu í fleirtölu, svona til frekari áréttingar því sem sagði um það ekki fyrir löngu. Mér þótti smekkur minn banna mér að hafa na-endingu í eignarfalli flt. af orðum eins og kerra og vera, og erfitt er þetta í orðum sem smiðja og fiðla. Aðalsteinn vill fara með mikilli gát og halda sem fastast fram stefnu dr. Björns Guðfinns- sonar. Hann veit sem er að smekkur er misjafn (oftsinnis sem betur fer) og brigðull. Hann óttast að of mikil undanláts- semi, eða frávik reglna, geti leitt menn á villigötur. (Þið tókuð náttúrlega eftir orðmyndinni reglna.) Hann man eftir þeim ruglingi, sem þó hefur stór- minnkað, á beygingu orðanna göng og göngur. Hann ályktar út frá því að menn færu að rugla saman gat og gata, og gæti það orðið til þess að menn færu að tala um *gatamálastjórann í Reykjavík! Hins vegar getum við stundum samsett orð af stofni í stað eignarfalls, ef okkur þykir það fara betur. Þannig er orðið Leiruvegur (stofnsamsett) jafngilt orðinu Leirnavegur (undir Eyjafjöllum), þar sem myndað er af eignarfalli flt. orðsins leira. Aðalsteini finnst beygingar- villa jafnvond, hvort sem hún felist í „þolfallssýki, þágufalls- sýki eða þágufallsfælni“. Astæða er til að taka undir það. Hann spyr: „Slítur fólk hjóna- bandi eins og fatnaði, eða slítur fólk það eins og gam? Borar maður einhverju inn í vegg eða borar maður eitthvað í vegg?“ Umsjónarmaður treystir sér ekki til að svara þessu afdráttar- laust. Þá fínnst mér rétt að Arn- grímur fái orðið um sinn án endursagnar eða athugasemda. „Fyrir nokkrum árum lagði dr. Benjamín Eiríksson til orðið visthæf um efni eða hluti sem eru skaðminni í náttúrunni en önnur. Þetta er rökréttara en orðið vistvæn sem oftast heyrist núna. Orðið visthæft er nokkuð hlutlaust um eitthvert fyrirbæri. Orðið vistvæn bendir til að fyrir- bærið bæti umhverfið, en því mun oftast öfugt farið svo að í orðinu felst hrein blekking. Ein- földustu nafnorðin mýnduð af þessum lýsingarorðum eru vist- hæfni og vistvændi. Þarf frekari vitnisburð? Vistviðunandi er því miður of langt og ljótt, en vist- hæft merkir eiginlega það sama. (Vistásættanlegt er kannski best handa ,,uppum“.) Þegar íslenskulegt eignarfall á nafni Borisar Spaskís birtist á forsíðu Morgunblaðsins dag nokkurn sl. haust átti ég von á tímabærri stefnubreytingu í beygingu útlenskra nafna í blað- inu, og fleiri fjölmiðlum. En stuttu seinna voru engar eignar- fallsbeygingar á nafni Bobbys Fischers. Það var verra. Sumir vilja frekar hafa útlensk manna- nöfn óbeygð heldur en að sjá ósamræmi á prenti. En gæti þetta ekki verið eitt af því sem veikir tilfinningu fólks fyrir beygingarkerfi málsins? Það er svo komið að fólk hálfhvekkist við þegar nefnd er bók Ingu Huldar, förðun Heiðrúnar Óskar, vettlingar Hildar Ýrar eða ræða Auðar Eirar. Hvers vegna þola menn verr smávegis ósamræmi í beygingu útlenskra nafna heldur en að beygingu íslenskra nafna verði útrýmt?“ Umsjónarmaður staðnæmist hér um sinn í bréfi Aðalsteins Geirssonar, en tekur fast í streng með honum um beygingu íslenskra nafna. Þótt fólk heiti tveimur nöfnum, er engin ástæða til að slaka á beyging- arkröfum. Bæði nöfnin á að beygja og auðvitað rétt. ★ Álfhildur austan kvað: Sagði Bína í Bæ: Mér finnst leitt með hann Balda minn svona yfirleitt, þetta grey, þetta bam, hann er garmur og skam sem getur og kann ekki neitt. ★ Að gefnu tilefni skal fram tekið að fyrirtækisheitið Sjóvá- Almennar beygist svo áfram: um Sjóvá-Almennar, frá Sjóvá- Almennum, til Sjóvár- Almennra. Vá er hætta, beygist eins og nafriorðin blá, spá, smásjá o.s.frv. Venjan var sú að á yrði að o á eftir vaffi, en í þessu dæmi hefur gamla myndin hald- ist. Menn segja enn að vá sé fyrir dyrum, og af þessu var svo búin til sögnin að vátryggja fyrir „assúrera". Hættuleg veifa, sem galdramenn frömdu, var kölluð váveifa, en þar hefur venjuleg breyting orðið, svo að nú farast menn (eða öllu heldur fórust) voveiflega. Mjög greini- leg lýsing á váveifu er í Njálu, þegar Svanur á Svanshóli frem- ur galdrakúnstir sínar. ★ Hlymrekur handan kvað: Sjálfur andskotinn, illræmdur þijótur, er að almennu smekksmati ljótur, en eftir skapara vom prýðir uxana horn, og á hesti er hófóttur fótur. ★ Byr bar áfram skipið, þegar vindurinn blés, svo að hagstætt var. Þá blés byrlega, er eitthvað leit út fyrir að ganga vel. Aftur á móti blasti eitt og annað við, það sem augljóst var. En illa kunni umsjónarmaður því tali sem heyra mátti í útvarp- inu: „það blasti ekki byrlega fyrir þeim“. Forráðamenn Ráðstefnuskrifstofu vilja byggja ráðstefnumiðstöð Samvinnu um tónlistar- og ráðstefnuhöll hafnað Á AÐALFUNDI Ráðstefnuskrifstofu íslands sem nýlega var haldinn sagði Júlíus Hafstein formaður stjórnar ráðstefnuskrifstofunnar að í því skyni að auka viðskipti vegna funda og ráðstefna væri nauðsyn- Iegt að til lengri tíma verði ráðist í undirbúning að byggingu ráð- stefnumiðstöðvar af alþjóðlegum gæðastaðli. Um gæti verið að ræða hús sem tæki 800-1200 manns í aöalsal, og að auki yrðu byggðir fjöldi smærri sala, en áætlaður heildarkostnaður við húsið gæti ver- ið á bilinu 1,5-2,0 milljarðar króna. Júlíus hafnaði hugmyndum að sameina í einu húsi ráðstefnuhús og tónlistarhöll, sagði það alls stað- ar hafa gefist illa. Þessu sjónarmiði mótmælir Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður. 1 ræðu sinni á aðalfundinum sagði Júlíus að.vegna þess hve um dýra byggingu væri að ræða væri nauðsynlegt að Reykjavíkurborg og ríkisvaldið tækju höndum saman og stæðú straum af stofnkostnaðin- um, en samstarf við aðra aðila kæmi þó að sjálfsögðu til greina Sagði hann að byggja mætti húsið á fjórum árum með 200-250 millj- óna króna framlagi árlega. Rekstur byggingarinnar yrði á höndum aðila í ferðaþjónustu og nýting hússins yrði alfarið á forsendum viðskipta- sjónarmiða, en menn yrðu þó að átta sig á því strax í upphafi að ekki væri líklegt að rekstur bygg- ingarinnar bæri sig með beinum hætti. Varðandi hugmyndir sem fram hafa komið um að hugsanleg bygg- ing tónlistarhúss gæti nýst fundar- og ráðstefnuaðilum sagði Júlíus að hvarvetna f heiminum hefði það gefist illa að byggja hús sem „einn- ig“ ættu að nýtast fyrir fundi, og því væri eina leiðin að byggja hús sem einnig mætti nýta í „annað“ en fundi og ráðstefnur. Sagði hann að aðilar í ferðaþjónustu ættu ekki að sætta sig við neitt minna. í ræðu sinni benti Júlíus á dæmi frá fyrri tíð máli sínu til stuðnings, og nefndi í því sambandi Laugar- dalshöll, Háskólabíó og Borgarleik- húsið. Öll þessi hús nýttust vel hvert fyrir sína starfsemi, en þau væru ekki nægilega til ráðstöfunar fyrir fundi og ráðstefnur þegar á þyrfti að halda. Þá benti hann á að ef tækist að auka viðskipti á sviði ráð- stefnu- og fundahalds liði ekki á löngu þar til markaðurinn sætti sig ekki við minna en nýtt sérhæft ráð- stefnuhús, og sæu stjórnvöld ekki staðreyndir þessa máls yrðu þau að horfast í augu við það að byggja tvö hús. Sagði Júlíus að formaður og framkvæmdastjóri Ráðstefnu- skrifstofu íslands hefðu skrifað samgönguráðherra varðandi málið, og formaðurinn hefði rætt það við forsætisráðherra og borgarstjóra. Þá myndi formaðurinn fljótlega eiga fund með fjármálaráðherra þar sem þetta mál yrði rætt. Mörg dæmi um vel- heppnaða samnýtingu Valgeir Guðjónsson formaður Samtaka um byggingu tónlistar- húss sagði í samtali við Morgun- blaðið að sér þætti miður að ekki væri til staðar jákvæðara hugarfar til byggingar húss sem bæði gæti nýst til tónlistarflutnings og funda- og ráðstefnuhalds. „Það eru mörg dæmi þess að slík samnýting gefist vel, og ég lít svo á að ekki sé búið að skoða þetta mál ofan í kjölinn. Annars heyri ég það að tónlistarfólki er farið að leið- ast þófið og margir vilja setja auk- in þrýsting í málið,“ sagði hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.