Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAI 1993 HÉRog N(J ------- o o J= sa> \ o o o o i 1 Baðinnrétt/ |J3.343 ing með \í^sí9r. hvítum, sprautuðum'*'"“~»«»» hurðum, spegli og ljósakappa... Gásar Borgartúnl 29, Reykjavik S: 627666 og 627667 • Fax: 627668 Framtí ðarferðir íhuga málshöfðun SOKKABUXNA- VIÐGERÐIR Dömur! Sparið og látið gera við sokkabuxurnar Móttaka í Glæsimeyjunni, Glæsibæ. mmm íaA* BRAUIARHOLl 24 ¥ W jf SÍMI: 627044 Jf W W SKILTASTÆDUR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Framtíðarferðum hf.: „Undanfama daga hefur afar ómakleg umQöllun átt sér stað á tveimur útvarpsrásum um fyrirtækið Framtíðarferðir og þá þjónustu sem það hefur upp á að bjóað. Af tilefni sér fyrirtækið sig knúið til að senda frá sér fréttatilkynningu, ef það má verða til að leiðrétta þær rangfærslur og beinu ósannindi sem fyrirtækið og starfsmenn þess mega nú sitja undir. Þá eru lögmenn Framtíðar- ferða hf. að íhuga hvort nauðsynlegt reynist að höfða mál á hendur þeim aðila sem aðförinni veldur. Dominio Do Sol, fyrirtæki sem Framtíðarferðir eru með umboð fyrir á íslandi, rekur samnefnt lúxusíbúð- arhótel í Algarve í Portúgal. Fyrrum starfsmaður þess, Ólafur Ragnars- son, kom fram í viðtölum á Rás 2 og Bylgjunni nú fyrr í vikunni. Flest- «. t „MATURINN OG ÞJÓNUSTAN GERÐU KVÖLDIÐ ÓGLEYMANLEGT" Það er fátt ánægjulegra en að fara út að borða á góðum veitingastað þar sem fyrsta flokks matur er listilega framreiddur og þjónarnir stjana við mann allt kvöldið. Þannig er Grillið á efstu hæð Hótel Sögu. Viljir þú gera þér dagamun er tæpast til betri leið en að njóta afbragðs matar og útsýnis yfir Reykjavík á einum glæsilegasta matstað landsins. gerir þér kvöldið ógleymanlegt! -lofar góðu! V/HAGATORG 107 REYKJAVÍK SÍM 2 9 9 0 0 ar fullyrðingar hans um starfsemi Framtíðarferða hf. eru gjörsamlega rakalausar og settar fram í ómerki- legum slúðurtóni. Af því tilefni viljum við nefna nokkur atriði er varpa raunverulegu ljósi á þá þjónustu sem við innum af hendi: Framtíðarferð- ir og starfsmenn þess hafa aldrei haldið því fram að um væri að ræða sölu á fasteignum erlendis. Við bjóð- um hins vegar viðskiptavinum að fjárfesta í dvalarrétti á lúxusíbúðar- hóteli Dominio Do Sol í Algarve. Það fyrirtæki hefur á sér gott orð fyrir heiðarleg og traust viðskipti. Framtíðarferðir eru umboðsaðilar fyrir Dominio Do sol sem eru aðilar að RCI heimsins stærsta ferðafélagi. Það fyrirtæki var stofnað í Banda- ríkjunum 1974 og er árlega með regluleg viðskipti við milljónir manna um heim allan. M.a. hafa hundruð íslendinga nýtt sér þjónustu þess á liðnum árum. Framtíðarferðir eru ekki ferðaskrifstofa í eiginlegum skilningi heldur umboðsaðili fyrir Dominio Do Sol. Umsókn frá okkur um leyfi til reksturs ferðaskrifstofu er til afgreiðslu í samgönguráðuneyt- inu þar sem við viljum bjóða sem víðtækasta þjónustu og fara að ís- lenskum lögum í hvívetna. Framtíðarferðir selja gistirétt til eignar erlendis og varir sá réttur í allt að 99 ár. Þann rétt má selja hvenær sem er, leigja.eða ráðstafa með öðrum hætti. Þessi dvalarréttur gengur að sjálfsögðu til lögerfingja. Algengast er að fólk fjárfesti í dval- arrétti til einnar viku á ári. Hægt er að skipta dvalarrétti í Dominio Do Sol hótelinu fyrir gistirétt á um 2300 stöðum í 70 þjóðlöndum. Dominio Do Sol gefur að sjálf- sögðu út afsal fyrir dvalarréttinum fyrir milligöngu Framtíðarferða þeg- ar greiðsla hefur verið innt af hendi. Er því afsali þinglýst í Portúgal. Allir samningar eru samkvæmt mjög strangri löggjöf sem gildir um slík viðskipti í Portúgal. Oll gögn, sem við kynnum fyrir væntanlegum við- skiptavinum, eru þýdd á íslensku. Verðgildi eignaréttar eykst frá ári til árs, ein besta ávöxtunin sem við- skiptavinir okkar hljóta í dag eru í formi bónusvikna á hveiju ári. Allir gististaðir á vegum RCI þurfa að standast ákveðnar og mjög strangar gæðakröfur. Þess vegna eru þeir í lúxusgæðaflokki og öll þjón- usta í samræmi við það. Framtíðarferðir eru nýr valkostur á íslenskum ferðamarkaði og hafa íslendingar brugðist vel við þessari nýjung, sem sjá má af jákvæðum viðbrögðum við auglýsingum okkar síðustu vikur. Eigendur og starfs- menn fyrirtækisins eiga erfitt með að skilja hvaða hvatir búa að baki þeim óhróðri og rangfærslum sem ljósvakamiðlar hafa dreift um fyrir- tækið undanfarna daga. Lögmenn okkar eru nú að skoða réttarstöðu Framtíðarferða gagnvart þessari málsmeðferð og mun niðurstaða af þeirri athugun liggja fyrir innan fárra daga. Talsmenn Framtíðarferða eru að sjálfsögðu reiðubúnir að ræða þessi mál við fjölmiðafólk, hvenær sem er. Við höfum ekkert að fela en allt að vinna í þeim ásetningi okkar að tryggja að sannar og áreiðanlegar upplýsingar berist um þá þjónustu sem við bjóðum.“ --------------------- Vortónleik- ar Arnes- ingakórsins ÁRLEGIR vortónleikar Árnes- ingakórsins í Reykjavík verða í Langholtskirkju næstkomandi sunnudag, 2. maí, kl. 17. Efnis- skráin er fjölbreytt og m.a. verða flutt lög úr söngleikjum og óper- um. Með kómum koma fram ein- söngvararnir Helgi Maronsson ten- ór, Ingvar Kristinsson baríton, Jensína Waage sópran, Guðrún E. Guðmundsdóttir mezzósópran, Svanfríður Gísladóttir mezzósópr- an, Jóhann Kristjánsson baríton, og Ámi Sighvatsson baríton. Sér- stakur gestur á tónleikunum verður bassasöngvarinn Magnús Torfason. Píanóleikari er Bjarni Jónatansson og stjórnandi er Sigurður Bragson. UNO DANMARK hefur opnað nýja verslun í Borgarkringlunni Bómullarfatnaður á börn og fullorðna - 24 litlr NÁMSAÐSTOÐ á lokasprettinum fyrir vorpróf in • réttindakennarar • flestar greinar • öll skólastig Innritun i síma 79233 frákl. 14.30 til 18.30 virka daga Nemendaþjónustan sf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.