Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
43
' Morgunblaðið/Rúnar Þór
Við unnum!
NEMENDUR Verkmenntaskólans
á Akureyri fögnuðu ákaft þegar
úrslit úr róðrarkeppni milli fram-
haldsskólanna lágu fyrir, en VMA-
nemar sigruðu nema úr Mennta-
skólanum á Akureyri í keppninni,
sem fram fór á Pollinum.
380 þúsund plöntur gróðursettar á Eyjafjarðarsvæðinu
Aldrei gróðursett
eins mikið og í fyrra
Á SÍÐASTA ári voru gróðursettar á Eyjafjarðarsvæðinu um
380 þúsund plöntur, m.a. af Skógræktarfélagi Eyfirðinga og á
vegum landgræðsluskóga og fleiri aðila, en aldrei áður hafa
verið gróðursettar svo margar plöntur. Þetta þýðir að gróðursett-
ur hefur verið nýr skógur í um 128 hekturum lands, en það er
svæði sem er heldur stærra en Kjarnaskógur. Þetta kom fram
í máli Hallgríms Indriðasonar framkvæmdastjóra Skógræktarfé-
lags Eyfirðmga á aðalfundi félagsins á fimmtudagskvöld.
Nemendur leika
á sex tónleikum
SENN lýkur fimmta starfsári Tónlistarskóla Eyjafjarðar, en í
vetur voru í skólanum um 500 nemendur í hljóðfæraleik og söng.
Árangurs vetrarstarfsins geta íbú-
ar við Eyjafjörð fengið að njóta á
sex tónleikum fyrri hluta maímán-
aðar.
Fyrstu tónleikarnir verða að Mel-
um í Hörgárdal mánudaginn 3. maí.
Tónleikar söngdeildar verða haldnir
í Freyvangi miðvikudaginn 5. maí
Messur á
Akureyrí
AKUREYRARPRESTAKALL:
Helgistund verður á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri á morg-
un ki. 10. Fjölskyldumessa verð-
ur í Akureyrarkirkju kl. 11 á
morgun. Formaður sókn-
arnefndar, Guðríður Eiríksdótt-
ir, flytur ávarp. Strengjasveit
úr Tónlistarskólanum leikur og
Barnakór Akureyrar syngur.
GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur
og bænastund kl. 13 í dag.
Messa verður kl. 14 á morgun,
sunnudag. Þorgrímur Daníels-
son guðfræðingur predikar.
Molasopi að lokinni messu.
og næsta dag, eða fimmtudaginn 6.
maí, verður leikið í Gamla skólahús-
inu á Grenivik. Sunnudaginn 9. maí
verða síðan tónleikar í Grunnskóla
Svalbarðsstrandar og í Laugarborg
miðvikudaginn 12. maí, en lokatón-
leikamir verða í Grundarkirkju
sunnudaginn 16. maí og þá verður
skólanum jafnframt slitið. Tónleik-
arnir hefjast allir kl. 20.30.
(Fréttatilkynning.)
-------♦ » ♦ ....
Blóm í ösku-
bakkana
REYKINGAR eru frá og með deg-
inum í dag, 1. maí, bannaðar í
sameign verslunarmiðstöðvarinn-
ar í Sunnuhlíð.
Jón Oddgeir Guðmundsson húsvörð-
ur sagði að þó nokkuð hefði verið
reykt í sameigninni, bæði hefði þar
verið um að ræða starfsfólk og við-
skiptavini. Nú hafa forsvarsmenn
verlunarmiðstöðvarinnar orðið sam-
mála um að fylgja lögum og banna
reykingar í sameigninni. „Við mun-
um setja blóm öskubakkana," sagði
Jón Oddgeir.
Afkoma félagsins hefur versnað
til muna milli ára og var það rek-
ið með um tveggja milljóna króna
tapi á liðnu ári, sem einkum er til
komið vegna minni plöntusölu.
Minni plöntusala er m.a. rekin til
aukins framboðs og einnig dró
Jónsmessuhretið mjög úr plöntu-
sölu. Á síðasta ári vora seldar
plöntur fyrir rúmar 13 milljónir
króna í Kjarnaskógi en árið á und-
an fyrir 15,2 milljónir króna.
Færri ráðnir
Vignir Sveinsson formaður
Skógræktarfélags Eyfirðinga
sagði á fundinum að bregðast
þyrfti við þessum samdrætti og
myndi það m.a. birtast í því að
færra starfsfólk yrði ráðið til
starfa á vegum félagsins í sumar
en undanfarin ár.
Útivistarsvæði Akureyrar
Heildarflatarmál þess svæðis
sem Skógræktarfélag Eyfirðinga
hefur umsjón með er um 1.000
hektarar, en þar munar mestu um
útivistarsvæði Akureyringa sem
er um 1.000 hektarar að stærð. Á
síðasta ári var byijað að planta í
nýtt útivistarsvæði á Eyrarlands-
hálsi og samtals voru gróðursettar
þar 105 þúsund plöntur, en gerð
hefur verið áætlun um uppbygg-
ingu svæðisins og hún kynnt um-
hverfísnefnd Akureyrarbæjar.
Bændur
Karlmaður á 17. ári, van-
ursveitastörfum, óskar
eftir að komast í sveit.
Upplýsingar
ísíma 96-21939.
Skapti hf. skipt-
ir um eigendur
ÞÝSK-íslenska hefur keypt byggingavöruverslunina Skapta
hf. við Furuvelli. Fyrirtækið mun opna byggingavöruverslun
í sumar í sömu götu, í svokölluðu Reynishúsi, sem það keypti
af Byggðastofnun nýlega og hefur Ingimar Friðriksson ver-
ið ráðinn framkvæmdastjóri fyrir starfsemina norðan heiða.
Eigendur Skapta leituðu eftir
samstarfi eða sameiningu við for-
ráðamenn Þýsk-íslenska þegar
ljóst var að fyrirtækið myndi koma
inn á byggingavörumarkaðinn á
Akureyri og varð niðurstaðan sú
að rekstur Skapta verður samein-
aður Þýsk-íslenska.
Verslunin verður áfram opin þar
sem hún nú er, en þegar búið verð-
ur að lagfæra húsnæðið við Furu-
velli 1 verður rekstur fyrirtækj-
anna færður undir sama þak. All-
ir starfsmenn Skapta verða áfram
að störfum hjá hinum nýja eig-
anda.
Ingimar Friðriksson, sem verið
Kirkju-
listavika
Summdagur 2. maí.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 og
setning kirkjulistaviku.
Kl. 12. Opnuð sýning á kirkjumun-
um í safnaðarheimili. Sýndir verða
munir eftir feðgana frá Naustum,
Hallgrím Jónsson og Jón Hallgríms-
son. Sýningin er á vegum Minjasafns-
ins á Akureyri og Þjóðminjasafns fs-
lands.
Kl. 17. Tónleikar Sinfóníuhjjóm-
sveitar íslands. Einleikari er Eiríkur
Öm Pálsson. Stjómandi Páll. P. Páls-
son.
Mánudagur 3. maí.
Kl. 18. Aftansöngur í Minjasafns-
kirkju. Kammerkór Akureyrarkirkju
syngur undir stjóm Bjöms Steinars
Sólbergssonar.
Kl. 20.30. Tónleikar Blásarakvint-
etts Reykjavíkur. Frumflutt verk eftir
Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld. Ein-
söngvari Margrét Bóasdóttir, sópran.
hefur aðstoðarforstjóri í Efnaverk-
smiðjunni Sjöfn sl. 20 ár hefur
' verið ráðinn framkvæmdastjóri
Þýsk-íslenska á Akureyri.
------» -»..-..—
Indversk-
ir dagar á
Bautanum
INDVERSKIR dagar standa nú
yfir á veitingahúsinu Bautanum
og hafa Bautamenn fengið Sur-
ekha Datye til sín sem gestakokk
meðan á þeim stendur.
Þessa daga verða 16 réttir á hlað-
borði, bæði heitir og kaldir, og
munu uppskriftir að öllum réttunum
liggja frammi og gefst gestum kost-
ur á að hafa þær með sér heim að
máltíð lokinni.
Á hlaðborðinu verða m.a. rækjur
í karrý-kókossósu, pönnusteikt
lambagúllas, kjúklingur í tómat-
ijómasósu, augnbaunir, sveppirrtÁ
rjómasósu, basmati-hrísgijón með
kryddi og grænum baunum og ind-
verskt brauð, en á meðal kaldra
rétta má nefnda baunabollur í súr-
mjólkursósu og grænar baunir með
kókos. í lokin er boðið upp á hrís-
mjölsgraut og skyr að indverskum
hætti.
Indversku dagarnir standa yfir
frá 30. apríl til 16. maí, en áður
hafa Bautamenn efnt til þýskra
daga og bandarískra daga sem not-
ið hafa vinsælda gesta staðarins.
Orlof í sveitinni *
Leigjum út íbúðarhús (ca 30 km sunnan Akur-
eyrar). Rúm fyrir allt að 10-12 manns (sæng-
ur fylgja) ásamt ölium eldhúsáhöldum.
Búskapur er stundaður á staðnum.
Upplýsingar veitir Guðrún í síma 96-31282 í
hádegi og á kvöldin.
VILTU EIGNAST HLUT í ESJUNNI ?
Jörðin Skrauthólar, Kjalarneshreppi er til sölu !
Á jörðinni er nýlegt íbúðarhús, fjós, hlöður og verkstasði.
Land jarðarinnar er um 30 ha. að mestu gróið
Til greina kemur að selja jörðina i nokkrum sjálfstæðum hlutum.
Verðhugmyndir: ibúðarhús: kr. 7 - 8.000.000,-