Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 1. MAÍ 1993 69 ásg*gfejgr;!i-i lca / ígsisSpÍiiSiiffli! RMg . ■. i'1'. Æ-i-ifáíí ffllllÉ IÍjÉ|i W®á \m0ml Beðist undan aðdróttunum Frá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni: ÞRIÐJUDAGINN 27. apríl birtist í Bréfi til blaðsins bréf frá Jóni Aðal- steini Jónssyni, fyrrverandi orða- bókarritstjóra. Þar lét hann að því liggja, að eitthvað væri óeðlilegt við ritlaun, sem Hitaveita Reykja- víkur greiddi mér fyrir að semja ævisögu Jóns Þorlákssonar, en hún kom út fyrir síðastliðin jól. Enn fremur gagnrýndi hann, að Hita- veitan, og nokkur önnur borgarfyr- irtæki, sem Jón Þorláksson hrinti af stað, höfðu keypt allmörg eintök hvert af bókinni (mest 150 eintök) til gjafa. Talaði hann í því sam- bandi um spillingu; verið væri að hygla pólitískum gæðingum. Eg ætla að biðjast undan slíkum aðdróttunum um verk mitt um Jón Þorláksson. Skömmu fyrir 60 ára afmæli Hitaveitunnar haustið 1990 hitti ég Sigmund Guðbjarnason, þáverandi háskólaTektor, og Pál Gíslason, formann stjórnar veitu- stofnana, í hófi í Háskólanum, og ræddum við þar nokkuð um það, hvernig minnast mætti afmælisins. Sú hugmynd kviknaði, að rita ætti ævisögu helsta frumkvöðuls henn- ar, Jóns Þorlákssonar. í framhaldi af því sótti ég um styrk til stjórnar veitustofnana til að gera þetta. Var hann samþykktur samhljóða. Ég samdi bókina síðan árin 1991-1992. Þetta var í raun þriggja binda bók, 600 blaðsíður, þótt reynt væri að halda verði henn- ar niðri með því að hafa hana í einu bindi, svo að venjulegt alþýðufólk gæti keypt hana. Fékk hún góða dóma. Ég tel mig því hafa lokið sómasamlega því verki, sem ég var fenginn til að vinna. Þess skal get- ið, að við Páll Gíslason erum rétt málkunnugir. Því síður voru fulltrú- ar minni hlutans í stjóm veitustofn- ana að hygla neinum sérstökum gæðingi sínum. Frá þessum ritlaunum var sagt vandlega í fjölmiðlum, bæði sjón- varpsfréttum og blöðum, haustið 1990. Þetta er því gömul frétt, sem allt í einu er tekið upp á að endur- prenta nú af einhveijum ástæðum. Um hitt atriðið, kaup nokkurra fyrirtækja borgarinnar á allmörg- um eintökum af ævisögu Jóns Þor- lákssonar, get ég verið fáorðari. Þar spyr ég aðeins: Er ekki skyn- samlegra, að slík fyrirtæki gefi vin- um og velunnurum að gjöf ævisögu stofnanda síns (en Jón var frum- kvöðull Vatnsveitunnar og Raf- magnsveitunnar alveg eins og Hita- veitunnar og líka bæjarfulltrúi og borgarstjóri í Reykjavík) heldur en konfektkassa eða koníaksflösku? HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON. Yfirlýsing KÆR OG virtur starfsfélagi, Sigrún Stefánsdóttir fréttamað- ur, hefur verið borinn sökum um ósæmilega framkomu á áhorfendapöllum Alþingis. Undirritaðir sem vorum þar í stórum hópi vinnufélaga, stóð- um nærri Sigrúnu. Hún hvorki stappaði, æpti né orgaði. Hvorki í eitt skipti eða annað. Meint lófatak hennar hefði ekki náð að ijúfa kyrrð í hljóð- um sal. Hákon Már Oddsson, SFS, Baldur Þ. Jónasson, SRÚ, Páll Sigurbjörnsson, RSÍ. VELVAKANDI l.mai Launafólk, mætum í kröfugönguna og ó útifundinn 1. maí. Safnast veróur saman við Hlemm kl. 1 2.30. Gangan leggur af stað kl. 1 3.00. Fulltrúaráó verkalýófélaganna i Reykjavik Nýkomiö Smart sumarjakkar og kápur með og án hettu. Fjölbreytt úrval. Verð frá kr. 7.900. Tilboð: Ullarjakkarog úlpur. Sokkabuxur - Verð frá kr. 100. Opið 1. maí 12-16 \#HÚ5IÐ Laugavegi21, sími 25580. Samhjálp kvenna £ Opið litis Samhjálp kvenna, stuðningshópur kvenna sem farið hafa í aðgerð og/eða meðferð vegna brjóstakrabbameins, býður þér að koma í „Opið hús“ í Skógarhlíð 8, hús Krahbameinsfélagsins, þriðjudaginn 4. maí nk. kl. 20.30. Gestur kvöldsins að þessu sinni verður Sigurður E. Þorvaldsson, lýtalæknir og raun hann fræða okkur um: „Nýsköpun brjósta efUr brottnám Raffiveitingar Allir velkomnir J GÆLUDÝR Læða fannst LÆÐAN, sem myndin er af, fannst aðfaranótt 2. í páskum á Laugavegi (við Vitastíg). Hún var ómerkt, en gæti átt heima í grenndinni. Hún er grá og hvít, með skellu á nefi. Ef ein- hver þekkir eða veit hvar hún á heima þá vinsamlega hringi hann í síma 10539 eða 32877. Kettlingar fást gefins KASSAVANIR, fallegir kettl- ingar fást gefins. Uppl. í síma 16361 á kvöldin. ÞAKKIR í TILEFNI greinarinnar sem birtist í Morgunblaðinu 2. apríl 1993 vil ég þakka þann stuðn- ing sem mér var veittur vegna söfnunarinnar fyrir starfsfólk Seljahlíðar. Það hefur fjöldi manns hringt til mín og spurt mig hvers vegna ég sé að safna fyrir þessum tækjum. Það er vegna starfsfólksins, til að létta á vinnuálagi þess, því konur hér vinna langan og erfiðan vinnudag og eiga síðan eftir að hugsa um heimili og börn þegar heim er komið. Eg er að þessu vegna þess að Vistheimilið hefur ekki fjár- veitingar til að eignast þessi tæki. Þó er oft til fjárveiting fyrir ýmsu öðru, svo sem stór- veislum og ferðalögum hjá hinu opinbera. Geir P. Þormar, Skeljahlíð. TAPAÐ/FUNDIÐ Týnt hjól GRÁTT Kalkoff-hjól með svört- um barnastól á tapaðist fyrir röskum tveimur vikum. Kona nokkur hringdi skömmu síðar á útvarpsstöðina FM og sagðist hafa fundið hjól í Elliðaárdaln- um sem samsvaraði lýsingu á mínu hjóli, en mér hefur ekki tekist að ná í þá konu. Vil ég biðja hana að hafa samband við mig í síma 72041. Sigríður. Pennavinir Sextán ára finnsk stúlka með áhuga á dýrum, tónlist, bréfaskrift- um o.fl.: Mervi Piekiainen, Peltokuja 4, 08700 Virkkala, Finland. Sautján ára þýskur piltur með áhuga á ferðalögum o.fl.: Martin Fries, Wilh. Leuschner Str. 23, 5800 Hagen 1, Germany. Finnskur 23 ára piltur með áhuga á tölvuforskrift, rafeindatækni, fjallahjólreiðum o.fl.: Pasi Kristola, Tyilijoentie 831, SF-66420 RUTO, Finland. LEIÐRÉTTINGAR ÍÐNAÐARHÚSNÆÐI í Kópavogi til sölu Nafn misritaðist Nafn misritaðist í myndatexta, er sagt var frá útskrift slökkviliðs- manna hjá Slökkviliðinu í Reykjavík á bls. 36 í fimmtudagsblaði Morg- unblaðsins. Sá slökkviliðsmann- anna, sem nefndur er Hjörtur Sveinsson er Hreinsson. Beðist er velvirðingar á þessari misritun. Um er að ræða tvö bil, hvort um 90m2 að stærð. Góð ián fylgja eigninni! Upplýsingar í síma 43003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.