Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 14
.. Konur eiga rétt á vali eftir Þórhildi Þorleifsdóttur Það er engin tilviljun að Kven- réttindafélag íslands, Kvenfélaga- samband íslands og konur úr öllum stjórnmálaflokkum sem sæti eiga á Alþingi efndu í sameiningu til mál- þings um aðstöðu fæðandi kvenna nú fyrir skömmu. Það er auðvitað vegna þess að ástandið er alls óvið- unandi. Það er út af fyrir sig sérkenni- legt að konur þurfi með reglulegu millibili að blása í lúðra og kalla út lið til að skapa konum — í þessu tilfelli fæðandi konum — viðunandi aðstæður innan heilbrigðiskerfisins, verja það sem þegar hefur áunnist eða hreinlega, eins og nú er raunin, til að vinna aftur unnar lendur. Er þó hreint ekki um það að ræða að konur hafí verið einungis þiggjend- ur eða ómagar á heilbrigðiskerfinu. Þvert á móti hafa þær lagt þar til ómælda vinnu, fé og fyrirhöfn, oft- ar en ekki í þágu allra, en stundum í þágu kvenna og/eða bama. Þessu mega konur ekki gleyma, ekki til að miklast af, heldur til að herða sig í baráttunni fyrir sjálfsögðum rétti sínum. Réttur kvenna að litlu hafður Hvemig er svo þessi réttur virtur í dag? Það mun mála sannast að hann er að litlu eða engu hafður. ***/»** FLÍSAR □ Tn rm i nrr □ h u zn Ej p ii □ □ m A Mll ÍLL'U i ’JIIUCEJA ItTiTT LLL U Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 Það er sorglegt hversu miðað hefur aftur á bak síðustu misseri. Þegar Fæðingarheimili Reykjavíkur var sett á laggirnar upp úr 1960, ekki síst fyrir tilstuðlan kvenna, varð mikil breyting á til batnaðar fyrir fæðandi konur. Mikill fjörkippur hljóp í alla umræðu um fæðingar og allt sem þeim fylgir. Nýjungar í þessum málum átti þar greiðan aðgang og bámst þaðan til ann- arra. Og hér er ekki átt við tækni- nýjungar, þó þær rötuðu líka þar inn, heldur nýjungar í hugmynda- fræði. En það má næstum segja að varla hafi fyrr verið búið að opna Fæðingarheimilið en baráttan fyrir tilvemrétti þess hófst. Og alltaf voru það fyrst og fremst konur sem slógu skjaldborg um það og björg- uðu því. En þar kom að stjómvöld höfðu eftir síendurteknar árásir komið því svo fyrir að varla var nokkuð eftir annað en að veita því náðarhöggið. Og það kom fyrir réttu ári og ekkert eftir nema dauð- teygjurnar. Að vísu verður að geta þess, svo allrar sanngimi sé gætt, að umræða undanfarinna ára, sem einkenndist af tali um nauðsyn þess að allar konur fæddu við svokölluð „bestu hugsanleg skilyrði", auð- veldaði stjórnvöldum verknaðinn. Þessi umræða gerði það líka að verkum að konur úti á landi sækja í síauknum mæli til Reykjavíkur til að fæða börn sín og fæðingum í heimahúsum fækkaði. Keyrir um þverbak Kvennadeild Landspítalans er nú eini valkostur a.m.k. reykvískra kvenna (þ.e.a.s. vilji þær ekki fæða heima eða fara til Keflavíkur) og reyndar margra af landsbyggðinni líka. Þegar fæðingardeild Landspít- alans var stækkuð og endurbætt árið 1975-6 var gert ráð fyrir að hægt yrði að anna þar um það bil 2.200 fæðingum á ári. Það liðu ekki mörg ár þar til þessu marki var náð. Árið 1979 eru þar 2.174 fæðingar. Síðan komu nokkur ár þar sem talan er á því róli, en svo fer kúrfan að rísa og árið 1988 voru fæðingar á Fæðingardeild Landspítalans 2.800. Engar veru- legar breytingar höfðu á þessum tíma farið fram á húsnæðinu, engu bætt við. Árið 1992 keyrir þó um þverbak, því þá vom fæðingar rúm- lega 2.900, enda var þá búið að loka Fæðingarheimilinu. í ár stefnir í annað eins og líklega meira ef marka má tölur yfír fæðingar fyrstu mánuði ársins. Þegar Landspítalinn tók við starfsemi Fæðingarheimilis- ins fluttust sjö stöður ljósmæðra þaðan yfir í kvennadeild. Læknum hefur ekki verið fjölgað og ekki heldur í umönnun. Nú er svo komið að þessi „bestu hugsanlegu skilyrði" hafa breyst í hálfgert neyðarástand, nálgast jafnvel á álagstímum hættuástand. Starfsfólkið leggur sig auðvitað allt fram um það að gera það besta úr hlutunum og veita þá þjónustu sem unnt er en það getur ekki, fremur en konurnar, böm þeirra og fjöl- skyldur, unað þessu ástandi. Ekkert bendir til þess að fæðingum fækki á næstu ámm og því hljóta konur að krefjast úrbóta. Snýst ekki bara um rúmafjölda Það er of þröngt um fæðandi konur og starfsfólk á Kvennadeild Landspítalans. En þetta snýst ekki bara um rúma- og starfsmanna- fjölda. Það snýst einnig um það að konur eigi rétt á að geta fætt við ýmis skilyrði sem þær kjósa sjálfar. Reynslan hefur sýnt að ihargar konur sem búist er við að fæði eðli- lega — og gott mæðraeftirlit og aukin tækni hafa gert það að verk- um að oftast er hægt að sjá fyrir með nokkurri vissu hvort svo verði — vilja fæða og liggja með börn sín í öðru umhverfi en á hátæknispít- ala. Starfsfólk kvennadeildar Land- spítalans hefur eftir mætti reynt að koma til móts við þessar óskir, en aðstæður og húsrúm gera það illmögulegt. Eðlilegt er að velta fyrir sér hvað þjónusta við fæðandi konur og börn þeirra kostar við hinar ýmsu kring- umstæður. Eru fæðingar á stómm hátæknispítala ódýrasti kosturinn Þórhildur Þorleifsdóttir „Karlmenn geta eðli máisins samkvæmt aldrei skilið fullkom- lega hvað þarna er á ferð. Þeir geta vissu- lega aflað sér vitneskju, þeir geta vissulega hjálpað til, ýmist sem sérfræðingar eða feð- ur, en þeir hvorki geta né mega leggja grunn að eða ráða fæðingar- hugmyndafræði. Það eiga konur að gera.“ eða ef til vill sá dýrasti? Getur til dæmis verið að sá sparnaður sem átti að nást með lokun Fæðingar- heimilisins snúist upp í andhverfu sína ef að er gáð? Hvaða þjónustu þarf að veita konum sem kjósa að fæða heima og hvað kostar hún? Þetta er ekki sagt vegna þess að peningasjónarmiðin ein eigi að ráða ferðinni, heldur þarf að vera hægt að sýna fram á það að valkostir fyrir fæðandi konur séu ekki endi- lega dýrar lausnir, dekurlausnir til að koma til móts við hina ýmsu duttlunga kvenna, heldur að af þeim geti verið sparnaður. Ef svo er ekki, verður bara að hafa það — konur eiga rétt á vali. Konur ráða hugmyndafræðinni Síðast en ekki síst þarf að huga að hugmyndafræði. Það kann ef til vill að virðast langsótt að nefna hugmyndafræði í sambandi við þessa mjög svo eðlilegu og algengu athöfn að fæða barn. En það er hugmyndafræði sem ræður þjón- ustu, aðbúnaði og hversu mikiu fé er varið til þessara mála. Það er hugmyndafræði sem ræður því að stórum hluta hvernig konur upplifa fæðingu. Það er hugmyndafræði sem ræður afstöðu starfsfólks til kvennanna og þannig mætti lengi telja. Það var ekki mannvonska sem réði því að konur voru, og eru reyndar enn víða, látnar fæða liggj- andi marflatar með fæturna ríg- bundna upp í loft og jafnvel hendur bundnar líka. Það var hugmynda- fræði. Það var ekki af mannvonsku, heldur misskilinni mannúð, grund- vallaðri á hugmyndafræði, sem réði því að konur voru svæfðar þegar kom að lokaspretti fæðingar. Það er ekki af engu sem margar konur trúa því að það sé ekki óhætt að fæða barn nema „við bestu hugsan- legu skilyrði", virðast jafnvel sumar halda að fæðing sé svo hættuleg að það sé mesta mildi ef þær og barnið sleppi lifandi frá þessum ósköpum. Það er hugmyndafræðin sem veldur. Afstaða til fæðinga grundvallast, eins og flestar aðrar hugmyndir mannsins, á hugmyndafræði. Og þessi hugmyndafræði sem hér um ræðir á að grundvallast á reynslu kvenna. Reynsla fæðandi kvenna og reynslu þeirra kvenna, sem hjálpa þeim við að koma börnunum í heiminn og annast þær og þau fyrst á eftir. Karlmenn geta eðli málsins samkvæmt aldrei skilið full- komlega hvað þarna er á ferð. Þeir geta vissulega aflað sér vitneskju, þeir geta vissulega hjálpað til, ýmist sem sérfræðingar eða feður, en þeir hvorki geta né mega leggja grunn að eða ráða fæðingarhug- myndafræði. Það eiga konur að gera. Þangað geta þær sótt sér þau rök og þann styrk, sem gerir þeim kleift að sækja rétt sinn keikar, vissar bæði um hann og eigin óskir. Höfundur erleikstjórí og varaþingkona Kvennalistans. ------»♦■■■«--- Uppboð á óskilamunum í vörslu lög- reglunnar ÁRLEGT uppboð á óskilamunum í vörslu lögreglunnar fer fram lýá sýslumanninum í Reykjavík laugardaginn 8. maí í Skógarhlíð 6 og hefst klukkan 13:30. Mun- irnir, sem boðnir verða upp eru aðallega reiðhjól, fatnaður og fleira. Óskilamunadeild lögreglunnar er í Borgartúni 33 og hefur lögreglan óskað eftir því við fólk að það vitji þeirra muna, sem það hefur týnt, áður en til uppboðsins kemur. Þessi uppboð eru haldin árlega og hefur jafnan verið mikill áhugi á þeim. Á annað hrundrað reiðhjól verða t.d. boðin upp að þessu sinni. Uppboðs- haldari er Ingólfur Sigurz. HARÐVIÐARVAL HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 Auglýsing um starfsleyfistil- lögur skv. gr. 8.4. í mengunar- varnareglugerð nr. 396/1992 I samræmi við gr. 8.3. ofangreindrar reglugerðar liggja frammi til kynningar í ráðhúsi Reykjavíkurborgar, 1. hæð (upplýsingaþjónustunni), frá 3. maí nk., starfsleyfistillögur fyrir eftirtalin fyrirtæki: 1. Húsgagnavinnustofu Guðmundar Ó. Eggertssonar, Heiðargerði 76. 2. Bílaverkstæðið Hemlastillingu hf., Súðarvogi 14. 3. Vélvirkjann sf., Dugguvogi 23. 4. Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur, Síðumúla 12. 5. Bifreiðaverkstæðið Höfðatækni, Eldshöfða 14. 6. Bílaverkstæðið Síðumúla 33, Síðumúla 33. 7. Bílaverkstæði Hrafnkels, Bíldshöfða 14. 8. Skoðunarstöðin hf. (Lúkasarverkstæðið), Síðumúla 3-5. 9. Díselverkstæði Boga, Súðarvogi 36. 10. Ventil hf., Bíldshöfða 6. 11. Bifreiðaverkstæði Ræsis hf., Skúlagötu 59. 12. Bílaverkstæði Ragnars, Vagnhöfða 18. 13. Bílaverkstæði Hermanns Agústssonar, Dugguvogi 17. 14. Bifreiðaverkstæðið Réttingarverk, Hamarshöfða 10. 15. Bifreiðaverkstæðið Kerruna sf., Ármúla 26. 16. Bílaréttingar Björns Bjarnasonar, Höfðabakka 3. 17. Bílaberg, Smiðshöfða 15. 18. Rétt, Skeifunni 5. Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar: 1. Sá, sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsrnenn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi. 2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþæg- indum vegna mengunar. 3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið varðar. Athugasemdir, ef gerðar eru, skulu vera skriflegar og sendast Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, Drápuhlíð 14, 1Q5 Reykja- vík, fyrir 1. júní nk. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Fitubrennsla Síðasta 8 vikna námskeiðið fyrir sumarið hefst 3. maí Engin fitubrennslunámskeiö í sumar í boði eru fitubrennslutímar I og II I fyrir byrjendur. II fyrir þá, sém eru í einhverri þjálfun og vilja taka vel á (pallar notaðir). • Fitumæling og vigtun • Matarlistar og ráðleggingar • Fyrirlestrar um megrun og mataræði Sá sem missir 8 kiió eða fleiri fær frítt mánaðarkort hjá Ræktinni. Látið skrá ykkur strax. Takmarkaður fjöldi kemst að. Upplýsingar í síma 12815 og 12355. ræhtin S.f. FROSTASKJÓL 6 • SÍMAR 12355 & 12815 SÓLBAÐSTOFA . AEROBIK • LIKAMSRÆKT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.