Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó frumsýnir eftir helgina bandarísku sakamálamyndina One
False Move eða Feilspor, sem hvarvetna hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir frumleika og
nýstárleg efnistök. Myndin er nokkuð ofbeldisfull á köflum en ofbeldið verður þó aldrei
þungamiðjan heldur samskipti persónanna sem flallað er um.
Feilspor úr
fortíðinni
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til sýningar bandarísku sakamálamyndina One False Move,
sem þykir hafa markað nokkur tímamót í gerð sakamálamynda, og þá kannski sérstak-
lega vegna raunsærrar lýsingar á samskiptum og eðli þeirra persóna sem fjallað er um.
Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum í fyrra og þótti hún í byijun ekki líkleg til vin-
sælda þar sem hún var gerð af sjálfstæðum kvikmyndagerðarmönnum án nokkurrar
aðstoðar risanna í kvikmyndaiðnaðinum og kostaði aðeins 2,5 milljónir dollara í fram-
leiðslu. Gagnrýnendur hófu hana hins vegar til skýjanna og forðuðu henni þannig frá því
að lenda beint á myndbandamarkaðnum án viðkomu í kvikmyndahúsum. Síðan hefur
myndin hvarvetna hlotið mikla aðsókn þar sem hún hefur verið sýnd, en þrátt fyrir
nokkuð kunnuglegan efnisþráð þykir hún skara fram úr öðrum myndum af svipuðu tagi.
Nakið ofbeldi
UPPHAFSATRIÐI One False Move er ofbeldisfullt í meira lagi.
One False Move hefst á því
að örvæntingarfull
þrenning eiturlyfjasala
hleypir á ofbeldisfullan hátt upp
afmælisveislu meðal undirheima-
fólks í Los Angeles með þeim afleið-
ingum að einn úr þrenningunni
myrðir með köldu blóði heila fjöl-
skyldu eins og hún leggur sig.
Þrenningin sem um ræðir saman-
stendur af kynblendingsstúlkunni
Fantasiu (Cynda Williams), kær-
asta hennar Ray (Billy Bob Thorn-
ton), hvítum rudda sem missir
stjórn á sér í sífellu af minnsta til-
efni, og Pluto (Michael Beach), til-
fínningalausum ungum svertingja
sem reynist vera til alls vís.
Á flótta
Það er Pluto sem myrðir fjöl-
skylduna, og að því verki loknu
leggur þrenningin á flótta með eit-
urlyf og peningafúlgu sem þau
hafa stolið. Daginn eftir er svo
tveimur harðgerum löggum í Los
Angeles falið að rannska
morðmálið, en það eru hinn
drykkfeldi Dud (Jim Metzler), og
hinn rólyndi félagi hans McFeely
(Earl Billings).
Á myndbandi sem tekið hafði
verið í afmælisveislunni sjá þeir
félagar að næsti viðkomustaður
ofbeldisfólksins er Star City, sem
er smábær í Arkansas. Eftir að
þeir hafa haft samband við lög-
reglumanninn þar í bæ, Dale
„Hurricane" Dixon (Bill Paxton),
halda þeir til Arkansas til að leggja
gildru fyrir flóttafólkið. Hugmyndir
Dixons um hetjulegt starf lögreglu-
manna hafa mótast mjög af því sem
hann hefur séð í löggumyndum í
sjónvarpinu. Hann á erfitt með að
hemja ákafa sinn, en lögreglu-
mennimir frá Los Angeles reyna
hins vegar hvað þeir geta tii að
hafa hemil á honum og fá hann til
að heíja ekki leitina fyrr en þeir
eru sjálfir mættir á vettvang. Þeir
félagar Dud og McFeely koma til
Star City og hitta Dixon sem vekur
kátínu þeirra með bamaskap sín-
um, en hann sýnir þeim stoltur all-
ar aðstæður í smábænum þar sem
hann kann til allra verka þó þau
vinnubrögð séu ekki neitt í líkingu
við það sem viðgengst hjá lögregiu-
mönnum í stórborginni.
Spennan grefur um sig
Á flóttanum grefur töluverð
spenna um sig meðal þremenning-
anna. Pluto er allur fyrir gott skipu-
lag og nákvæmni og fer ruddaskap-
ur og tilfmningaofsi Rays því meira
en lítið í taugarnar á honum. Áætl-
un þeirra gerir ráð fyrir að koma
við í Houston og selja þar eiturlyf
en halda síðan til Star City að því
loknu. í Houston verður þrenningin
hins vegar enn æstari á taugum
þegar þau komast að því að
iögreglan þekkir nöfn þeirra og
hefur undir höndum myndir af
þeim. í þessu spennuandrúmslofti
vinna þau enn frekari ofbeldisverk
við tilraunir sínar til eiturlyfjasölu.
I verslun nokkurri nást myndir af
þeim Fantasiu og Ray með
eftirlitsmyndavél sem er á staðnum,
og ungur lögregluþjónn úr
vegalögreglunni sem á sömu stundu
er að gera innkaup í versiuninni
eltir þau á bíl sínum og neyðir þau
til að nema staðar. Gífurleg spenna
grípur um sig við þessar aðstæður
og þegar spennan er í hámarki
skýtur Fantasia lögreglumanninn
til bana.
Fortíðin skýtur upp kollinum
í mikilli taugaspennu ákveður
þrenningin að skipta liði, og tekur
Fantasia áætlunarbíl til Star City
þar sem hún ætlar að hitta fjöl-
skyldu sína, en þeir Ray og Pluto
ætla hins vegar að koma þangað
degi seinna. Þegar Fantasia
yfirgefur þá tekur hún með sér
peningafúlguna en félagar hennar
ærast þegar þeir komast að því og
halda rakleiðis á eftir henni til
Star City.
Myndimar sem teknar voru af
skötuhjúunum í versluninni eru
sendar lögreglumönnunum í Star
City, og fyllist Dixon skelfingu
þegar hann þekkir Fantasiu á þeim
sem Lilu Davis er leikið hafði lykil-
hlutverk í skuggalegum kafla í
hans eigin fortíð. Fantasia hafði á
sínum tíma skilið eftir óskilgetið
ungabarn sitt hjá móður sinni og
yngri bróður og er hún nú á heim-
leið til að hitta bamið.
Það kemur illilega við kauninn
á Dixon þegar hann
heyrir þá Dud og
McFeely gera grín að
hugmyndum hans um að
flytjast til Los Angeles og
gerast lögregluþjónn þar. Þessi
niðurlæging sem hann telur sig
þarna verða fyrir veldur því að
hann í óðagoti hefur einleik í mál-
inu til þess að reyna að sanna getu
sína.
Endurfundir
LÖGREGLUMAÐURINN Hurricane Dixon kemst að þvi að hann
er að elta uppi fyrrverandi ástkonu sína.
ryðst síðan inn í húsið og þar stend-
ur hann andspænis konunni sem
var ástkona hans þegar hann var
táningur. Hann stendur af sér til-
raunir Fantasiu til að færa sér í
nyt sekt hans frá fyrri tíð, en hann
ákveður að gjalda fyrir feilspor sitt
úr fortíðinni með því að uppfylla
skyldu sína sem laganna vörður
en ekki með því að láta hana
komast undan á flótta. í
örvæntingarfullri síðustu tiiraun til
að öðlast samúð hans ljóstrar hún
svo upp gömlu leyndarmáli sínu
sem hann hefur reyndar rennt grun
í hvert er. Á sömu stundu nálgast
þeir Dud og McFeely felustaðinn
með aðstoð sonar hennar og era
þeir rétt á hæla þeirra Rays og
Pluto sem einnig eru á leiðinni
ngað. Aleinn stendur
Dixon augliti til
auglits við hina
örvæntingarfullu
glæpamenn og
blóðugt uppgjör
reynist
óumflýj-
anlegt.
Smábæjarlöggan
BILL Paxton leikur lögreglu-
mann í smábæ í Arkansas sem
dreymir um að verða lögregla
í stórborginni.
Uppgjör
Þegar Fantasia kemur til bæjar-
ins fylgir bróðir hennar henni að
yfirgefnu húsi sem hann hefur
valið sem felustað fyrir hana og
kemur hann með son
hennar til
að hitta
hana.
Dixon
veitir henni
eftirför
Farsæl
frum-
raun
LEIKSTJÓRI myndarinnar
One False Move heitir Carl
Franklin og er þetta fyrsta
myndin sem hann leikstýrir.
Fránklin, sem er 43 ára gam-
all, átti að baki nokkuð langan
feril sem leikari bæði í kvik-
myndum og sjónvarpi þegar
hann fór á leikstjóranámskeið
hjá bandarísku kvikmynda-
stofnuninni árið 1986, en
skömmu síðar hóf hann að
starfa fyrir B-myndakónginn
Roger Corman. One False Move
hefur fært Franklin ýmis verð-
laun frá því myndin var frum-
sýnd í fyrra, en hann var með-
al annars valinn besti nýi leik-
sljórinn af Samtökum gagnrýn-
enda í Los Angeles.
Fanklin sagði í blaðaviðtali
við New York Times að
geysigóð gagnrýni og vin-
sældir One False Move hefðu ver-
ið eins og draumur sem hann ótt-
aðist að vakna upp af. Hann sagði
myndina akki hafa verið neina
stílfræðilega æfingu, heldur væri
um greiningu á mannlegri hegðun
að ræða. „Myndin er um það að
uppskera eins og maður sáir og
taka örlögin með í reikninginn.
Hún fjallar um það hvemig undir-
rót eyðileggingarinnar býr oft á
tíðum um sig í uppskeru vel-
gengninnar hjá okkur.“
Bytjunaratriði myndarinnar er
vægast sagt skelfilegt og gæti
jafnvel komið harðgerustu áhorf-
endunum úr jafnvægi. Franklin
segir að það sem máli skipti í
þessu sambandi hafi verið að sýna
nakinn hrylling augnabliksins sem
um ræðir og það hvemig hægt
væri að svívirða manneskjur. „Ef
þú ætlar þér að gera kvikmynd
sem fjallar um ofbeldi, þá verður
þú að sýna það eins nákvæmlega
og mögulegt er, þ.e.a.s. gera það
skelfilegt. Það eru þau áhrif sem
ég vonast til að áhorfendur hafi
heim með sér í farteskinu að lok-
inni sýningu myndarinnar,“ sagði
Franklin í samtalinu við New
York Times.