Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C/LESBOK
97.tbl. 81.árg.
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Styijöldin í Bosníu-Herzegóvínu
Serbar knúnir til
friðarviðræðna
Belgrad. The Daily Telegraph.
LEIÐTOGAR Bosníu-Serba virtust í gær vera að láta undan
gífurlegum þrýstingi frá vestrænum stjórnvöldum og einnig
stjórninni í Serbíu, sem vill að þeir samþykki friðaráætlun Sam-
einuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir hugsanlega hernaðar-
íhlutun Yesturlanda.
Serbneskir leiðtogar í Belgrad
reyndu allt sem þeir gátu til að fá
Bosníu-Serba til að samþykkja frið-
aráætlunina, sem myndi skuldbinda
þá til að afsala sér stórum landsvæð-
um sem þeir hafa náð á sitt vald í
stríðinu í Bosníu-Herzegóvínu. Owen
lávarður, milligöngumaður Evrópu-
bandalagsins í friðarviðræðunum,
kvaðst telja að serbnesku stjóminni
myndi takast að neyða leiðtoga Bosn-
íu-Serba til að undirrita friðaráætl-
unina, hugsanlega á tveggja daga
fundi hinna stríðandi fylkinga í
Aþenu nú um helgina. Hann sagði
Umsókn Norðmanna
Strandar
EB-aðild
á fískveiði-
deilunni?
að refsiaðgerðirnar gegn Serbíu og
Svartfjallalandi sem Sameinuðu
þjóðimar samþykktu í vikunni hefðu
knúið Slobodan Milosevic, forseta
Serbíu, til að beita áhrifum sínum
til að telja Bosníu-Serbum hughvarf.
Clinton íhugar loftárásir
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær að ummæli vest-
rænna leiðtoga um hugsanlega hern-
aðaríhlutun kynnu að hafa fengið
Bosníu-Serba til að endurskoða af-
stöðu sína til friðaráætlunarinnar.
Búist er við að Clinton taki um helg-
ina ákvörðun um frekari aðgerðir til
að binda enda á stríðið í Bosníu.
Flest benti til þess í gær að hann
myndi heimila loftárásir á serbnesk
skotmörk í Bosníu og beita sér fyrir
því að bann við sölu vopna til Bosn-
íu yrði afnumið svo múslimar gætu
varið sig. Hann íhugar einnig tillögu
um að koma á griðasvæði fyrir músl-
ima í landinu. Bretar og Frakkar
hafa verið tregir til að fallast á af-
nám vopnasölubannsins en talsmað-
ur Clintons sagði að andstaða þeirra
hefði minnkað.
Sjá „Varanlegur friður ...“ á
bls. 36.
Reuter
Langþráður endurfundur
15 PALESTÍNUMENN, sem ísraelar ráku frá hernumdu svæðunum,
sneru heim í gær eftir að ísraelsstjórn hafði ákveðið að binda enda á
útlegð þeirra'og 15 annarra. Um 5.000 manns tóku á móti útlögunum
fyrrverandi þegar þeir komu til Vesturbakka Jórdanar. Margir þeirra
eru læknar, stjórnmálamenn eða háskólamenn og nokkrir höfðu verið
í útlegð í rúm 20 ár. Á myndinni fagna ættingjar og vinir einum þeirra.
Rússlandsforseti
Nýttsam-
bandsráð
til höfuðs
þinginu?
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, íhugar að stofna nýtt
„sambandsráð“ sem gæti tekið
við löggjafarvaldinu af Æðsta
ráðinu og fulltrúaþinginu ef
andstæðingar hans þar hindr-
uðu umbætur, að sögn Míkhaíls
Poltoraníns, háttsetts sam-
starfsmanns forsetans.
Poltoranín upplýsti ekki hvers
konar ráð þetta yrði, en talið er að
Jeltsín vilji efla sambandsráðið
gamla, ráðgjafarnefnd sem skipuð
er fulltrúum frá sjálfstjómarsvæð-
unum. Poltoranín sagði að Jeltsín
kynni einnig að stokka upp í stjóm-
inni og hefja rannsókn á meintri
spillingu háttsettra embættismanna.
Vill þingið samstarf?
Oleg Rúmjantsev, formaður
stjórnarskrámefndar rússneska
þingsins, sagði í gær að hugsanlega
gæti þingið haft samstarf við Jeltsín
um nýja stjórnarskrá. Sagði hann
að þingið gæti fallist á 60% þess sem
væri að fínna í stjórnarskrárdrögun-
um, sem Jeltsín kynnti í fyrradag,
og taldi unnt að semja um hitt. Drög-
in gera ráð fyrir auknu forsetavaldi.
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
AÐ SOGN breska dagblaðsins
Financial Times í gær er hætt við
að viðræður um aðild Norðmanna
að Evrópubandalaginu (EB) fari
út um þúfur vegna sjávarútvegs-
hagsmuna. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins telja samninga-
menn EB kröfur Norðmanna í
sjávarútvegsmálum óaðgengileg-
ar.
Norðmenn neita meðal annars að
veita framkvæmdastjórn EB umboð
til að semja við ríki utan bandalags-
ins um sjávarútvegsmál, auk þess
sem þeir hafna kröfum EB um meiri
veiðiheimildir innan norskrar lög-
sögu. Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, sagði í gær
að Norðmenn hefðu lent utan við
EB á sínum tíma vegna sjávarútvegs-
hagsmuna og það gæti endurtekið
sig nú.
Andfýla drap
hjónabandið
Jcríisalcm. Rcutcr.
ANDFÝLA er góð og gild
ástæða til þess að veita hjónurn
skilnað, að því er einn af æðstu
gyðingaprestum ísraels hefur
úrskurðað.
Shlomo Goren, fyrrum æðsti-
prestur í ísrael, vitnaði til gam-
alla kennibóka gyðinga þar sem
getið er um andfýlu eiginmanns
eða -konu sem næga ástæðu til
þess að binda enda á hjúskap
þeirra. Að sögn fréttastofunnar
Item eru nokkur dæmi þess í
Israel í seinni tíð að hjónaskiln-
aður hafi verið heimilaður á
grundvelli andremmu.
Mikil óánægja á Ítalíu með ákvörðun þingsins um að haida hlífískildi yfír Craxi
Lfkur á að afnám þing-
helgi bjargi stjóminni
Róm. Reuter.
AUKNAR líkur voru á því í gær að tveggja daga gömul stjórn
Carlos Azeglios Ciampis, forsætisráðherra Italíu, héldi velli þrátt
fyrir afsögn fjögurra ráðherra nokkrum klukkustundum eftir að
stjórnin tók við völdum. Þúsundir manna efndu til mótmæla á
götum stórborganna og mikið uppnám varð á fjármálamörkuðum
landsins eftir að þingið hafði neitað að svipta Bettino Craxi, fyrr-
verandi forsætisráðherra, þinghelgi og heimila þannig málshöfðun
á hendur honum vegna meintrar spillingar. Ýmislegt benti til þess
Ciampi tækist að telja fjórmenningunum hughvarf með því að lofa
þeim að beita sér fyrir því að stjórnarskrárákvæði um þinghelgi
allra þingmanna yrði afnumið.
Þrír ráðherrar Lýðræðisflokks
vinstrimanna, fyrrverandi kommún-
istaflokks landsins, og ráðherra úr
flokki Grænfriðunga sögðu af sér til
að mótmæla þeirri ákvörðun þingsins
að halda hlífiskildi yfir Craxi. Ciampi
og Oscar Luigi Scalfaro forseti
ræddu í gær hvernig koma mætti í
veg fyrir að 52. stjóm landsins á
jafn mörgum áram yrði sú skammlíf-
asta í sögu landsins. Leopaldo Elia,
sem fer með stjórnarskrármál óg
umbætur á kosningalöggjöfinni inn-
an stjómarinnar, krafðist „róttækra
breytinga" á stjórnarskrárákvæðinu,
svo hægt yrði að sækja þingmenn
til saka.
Reuter
Akvörðun þingsins mótmælt
NÁMSMENN fyrir utan stjórnarráðið í Róm mótmæla þeirri ákvörð-
un ítalska þingsins að svipta Bettino Craxi, fyrrverandi forsætisráð-
herra, þinghelgi og koma þannig í veg fyrir að hægt verði að sækja
hann til saka fyrir meinta spillingu.
Vill fyrrverandi kommúnista
í stjórnina
„Það er augljóst að forsætisráð-
herrann er að reyna að fá Lýðræðis-
flokk vinstrimanna aftur í stjómina
þar sem markmið hans er að tryggja
sér eins stóran meirihluta á þinginu
og kostur er,“ sagði Gerardo Bianco,
þingflokksformaður Kristilegra
demókrata. Heimildir í Róm hermdu
að Ciampi hygðist biðja þingið um
að það afnæmi stjórnarskrárákvæðið
um þinghelgina, því það væri eina
leiðin til að telja leiðtogum Lýðræðis-
flokks vinstrimanna hughvarf.
Sjá „Þingmenn slá...“ á bls. 36.