Morgunblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 1
112 SIÐUR B/C/LESBOK 97.tbl. 81.árg. LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Styijöldin í Bosníu-Herzegóvínu Serbar knúnir til friðarviðræðna Belgrad. The Daily Telegraph. LEIÐTOGAR Bosníu-Serba virtust í gær vera að láta undan gífurlegum þrýstingi frá vestrænum stjórnvöldum og einnig stjórninni í Serbíu, sem vill að þeir samþykki friðaráætlun Sam- einuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir hugsanlega hernaðar- íhlutun Yesturlanda. Serbneskir leiðtogar í Belgrad reyndu allt sem þeir gátu til að fá Bosníu-Serba til að samþykkja frið- aráætlunina, sem myndi skuldbinda þá til að afsala sér stórum landsvæð- um sem þeir hafa náð á sitt vald í stríðinu í Bosníu-Herzegóvínu. Owen lávarður, milligöngumaður Evrópu- bandalagsins í friðarviðræðunum, kvaðst telja að serbnesku stjóminni myndi takast að neyða leiðtoga Bosn- íu-Serba til að undirrita friðaráætl- unina, hugsanlega á tveggja daga fundi hinna stríðandi fylkinga í Aþenu nú um helgina. Hann sagði Umsókn Norðmanna Strandar EB-aðild á fískveiði- deilunni? að refsiaðgerðirnar gegn Serbíu og Svartfjallalandi sem Sameinuðu þjóðimar samþykktu í vikunni hefðu knúið Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, til að beita áhrifum sínum til að telja Bosníu-Serbum hughvarf. Clinton íhugar loftárásir Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagði í gær að ummæli vest- rænna leiðtoga um hugsanlega hern- aðaríhlutun kynnu að hafa fengið Bosníu-Serba til að endurskoða af- stöðu sína til friðaráætlunarinnar. Búist er við að Clinton taki um helg- ina ákvörðun um frekari aðgerðir til að binda enda á stríðið í Bosníu. Flest benti til þess í gær að hann myndi heimila loftárásir á serbnesk skotmörk í Bosníu og beita sér fyrir því að bann við sölu vopna til Bosn- íu yrði afnumið svo múslimar gætu varið sig. Hann íhugar einnig tillögu um að koma á griðasvæði fyrir músl- ima í landinu. Bretar og Frakkar hafa verið tregir til að fallast á af- nám vopnasölubannsins en talsmað- ur Clintons sagði að andstaða þeirra hefði minnkað. Sjá „Varanlegur friður ...“ á bls. 36. Reuter Langþráður endurfundur 15 PALESTÍNUMENN, sem ísraelar ráku frá hernumdu svæðunum, sneru heim í gær eftir að ísraelsstjórn hafði ákveðið að binda enda á útlegð þeirra'og 15 annarra. Um 5.000 manns tóku á móti útlögunum fyrrverandi þegar þeir komu til Vesturbakka Jórdanar. Margir þeirra eru læknar, stjórnmálamenn eða háskólamenn og nokkrir höfðu verið í útlegð í rúm 20 ár. Á myndinni fagna ættingjar og vinir einum þeirra. Rússlandsforseti Nýttsam- bandsráð til höfuðs þinginu? Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, íhugar að stofna nýtt „sambandsráð“ sem gæti tekið við löggjafarvaldinu af Æðsta ráðinu og fulltrúaþinginu ef andstæðingar hans þar hindr- uðu umbætur, að sögn Míkhaíls Poltoraníns, háttsetts sam- starfsmanns forsetans. Poltoranín upplýsti ekki hvers konar ráð þetta yrði, en talið er að Jeltsín vilji efla sambandsráðið gamla, ráðgjafarnefnd sem skipuð er fulltrúum frá sjálfstjómarsvæð- unum. Poltoranín sagði að Jeltsín kynni einnig að stokka upp í stjóm- inni og hefja rannsókn á meintri spillingu háttsettra embættismanna. Vill þingið samstarf? Oleg Rúmjantsev, formaður stjórnarskrámefndar rússneska þingsins, sagði í gær að hugsanlega gæti þingið haft samstarf við Jeltsín um nýja stjórnarskrá. Sagði hann að þingið gæti fallist á 60% þess sem væri að fínna í stjórnarskrárdrögun- um, sem Jeltsín kynnti í fyrradag, og taldi unnt að semja um hitt. Drög- in gera ráð fyrir auknu forsetavaldi. Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. AÐ SOGN breska dagblaðsins Financial Times í gær er hætt við að viðræður um aðild Norðmanna að Evrópubandalaginu (EB) fari út um þúfur vegna sjávarútvegs- hagsmuna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins telja samninga- menn EB kröfur Norðmanna í sjávarútvegsmálum óaðgengileg- ar. Norðmenn neita meðal annars að veita framkvæmdastjórn EB umboð til að semja við ríki utan bandalags- ins um sjávarútvegsmál, auk þess sem þeir hafna kröfum EB um meiri veiðiheimildir innan norskrar lög- sögu. Gro Harlem Brundtland, for- sætisráðherra Noregs, sagði í gær að Norðmenn hefðu lent utan við EB á sínum tíma vegna sjávarútvegs- hagsmuna og það gæti endurtekið sig nú. Andfýla drap hjónabandið Jcríisalcm. Rcutcr. ANDFÝLA er góð og gild ástæða til þess að veita hjónurn skilnað, að því er einn af æðstu gyðingaprestum ísraels hefur úrskurðað. Shlomo Goren, fyrrum æðsti- prestur í ísrael, vitnaði til gam- alla kennibóka gyðinga þar sem getið er um andfýlu eiginmanns eða -konu sem næga ástæðu til þess að binda enda á hjúskap þeirra. Að sögn fréttastofunnar Item eru nokkur dæmi þess í Israel í seinni tíð að hjónaskiln- aður hafi verið heimilaður á grundvelli andremmu. Mikil óánægja á Ítalíu með ákvörðun þingsins um að haida hlífískildi yfír Craxi Lfkur á að afnám þing- helgi bjargi stjóminni Róm. Reuter. AUKNAR líkur voru á því í gær að tveggja daga gömul stjórn Carlos Azeglios Ciampis, forsætisráðherra Italíu, héldi velli þrátt fyrir afsögn fjögurra ráðherra nokkrum klukkustundum eftir að stjórnin tók við völdum. Þúsundir manna efndu til mótmæla á götum stórborganna og mikið uppnám varð á fjármálamörkuðum landsins eftir að þingið hafði neitað að svipta Bettino Craxi, fyrr- verandi forsætisráðherra, þinghelgi og heimila þannig málshöfðun á hendur honum vegna meintrar spillingar. Ýmislegt benti til þess Ciampi tækist að telja fjórmenningunum hughvarf með því að lofa þeim að beita sér fyrir því að stjórnarskrárákvæði um þinghelgi allra þingmanna yrði afnumið. Þrír ráðherrar Lýðræðisflokks vinstrimanna, fyrrverandi kommún- istaflokks landsins, og ráðherra úr flokki Grænfriðunga sögðu af sér til að mótmæla þeirri ákvörðun þingsins að halda hlífiskildi yfir Craxi. Ciampi og Oscar Luigi Scalfaro forseti ræddu í gær hvernig koma mætti í veg fyrir að 52. stjóm landsins á jafn mörgum áram yrði sú skammlíf- asta í sögu landsins. Leopaldo Elia, sem fer með stjórnarskrármál óg umbætur á kosningalöggjöfinni inn- an stjómarinnar, krafðist „róttækra breytinga" á stjórnarskrárákvæðinu, svo hægt yrði að sækja þingmenn til saka. Reuter Akvörðun þingsins mótmælt NÁMSMENN fyrir utan stjórnarráðið í Róm mótmæla þeirri ákvörð- un ítalska þingsins að svipta Bettino Craxi, fyrrverandi forsætisráð- herra, þinghelgi og koma þannig í veg fyrir að hægt verði að sækja hann til saka fyrir meinta spillingu. Vill fyrrverandi kommúnista í stjórnina „Það er augljóst að forsætisráð- herrann er að reyna að fá Lýðræðis- flokk vinstrimanna aftur í stjómina þar sem markmið hans er að tryggja sér eins stóran meirihluta á þinginu og kostur er,“ sagði Gerardo Bianco, þingflokksformaður Kristilegra demókrata. Heimildir í Róm hermdu að Ciampi hygðist biðja þingið um að það afnæmi stjórnarskrárákvæðið um þinghelgina, því það væri eina leiðin til að telja leiðtogum Lýðræðis- flokks vinstrimanna hughvarf. Sjá „Þingmenn slá...“ á bls. 36.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.