Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAI 1993 11 -rrr Ríkissjónvarpið og Stöð 2 um samþykkt héraðslækná Meðvituð um áhrifa- mátt ofbeldismynda nilOTTÍ VIÐ innkaup á erlendu sjónvarpsefni eru starfsmenn sjónvarpsstöðv- anna meðvitaðir um áhrifamátt ofbeldisfullra kvikmynd á sjónvarps- áhorfendur og reyna að stilla sýningum þeirra í hóf að sögn Hin- riks Bjarnasonar, dagskrárstjóra erlendrar dagskrárgerðar ríkis- sjónvarpsins, og Jónasar R. Jónssonar, dagskrárstjóra Stöðvar 2. Héraðslæknar hafa beint þeim tilmælum til dagskrárstjóra íslenskra sjónvarpsstöðva og eigenda myndbandaleiga að sýningar, innflutn- ingur og framboð ofbeldismynda verði takmarkað eftir megni. Astæð- an er sú að aukið ofbeldi í sjónvarpi og kvikmyndum er talið tengj- ast aukningu grófra ofbeldisverka og manndrápa siðan 1970. „Við þessu verður orðið því eftir hvað ofbeldi. En ég held að í sjón- því hefur verið starfað þó auðvitað sé mjög teygjanlegt að tala um að takmarka eftir megni. Hins vegar er óhætt að slá því föstu að þessi þáttur er mönnum vel meðvitaður þegar þeir eru að kaupa inn mynd- ir,“ sagði Hinrik þegar ályktunin var borin undir hann. Hann tók undir inntak hennar en sagðist jafn- framt hafa kosið að hún væri ítar- legri, t.d. að minnst væri á mikla aukningu sjónræns efnis fyrir al- menning og því velt upp hvort rétt þætti að takmarka frekar aðgang að efni á myndböndum. Svo skipti líka miklu máli sú grundvallarbreyt- ing sem orðið hefði á uppbyggingu heimilanna. „Það er íhugunarefni að hve miklu leyti fjölskyldugerðin hefur haft áhrif á börn og hefur áhrif á börn. Og ég held t.d. að það fólk sem fæst við kennslu í þessu landi gæti frætt þá sem áhuga hafa á því að vita hvert ástand og ástæð- ur íslenska barna eru,“ sagði Hinrik. Háttatími þokukennt hugtak Hann sagði að reynt væri að stilla sýningum á ofbeldismyndum í eins mikið hóf og hægt væri. „Og í öðru lagi reynum við að setja þær á þann tima sem varla getur. talist skoð- unartími fyrir börn og vara þá við þeim en það er rétt að undirstrika að íslenska samfélagið ér eitt örf- árra vestrænna samfélaga þar sem háttatimi er svo þokukennt hugtak að það er varla hægt að tala um hann í alvöru,“ sagði hann og benti á að ríkissjónvarpið hefði eflt þann ásetning sinn að halda eins mikið niðri og hægt væri kaupum á ofbeld- ismyndum. „En þar með er ekki sagt að í einu og öðru sem fólk kemur til með að sjá verði ekki eitt- 1. maí hátíð- arhöld í Borgarnesi FYRSTA maí hátíðarhöld stétt- arfélaganna í Borgarnesi verða á Hótel Borgarnesi og hefjast kl. 13.30 með leik nemenda úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Stjórnandi er Björn Leifsson. Sigrún D. Elíasdóttir, formaður 1. maí nefndar, setur samkomuna. Ræðu dagsins flytur Halldór Grön- vold, skrifstofustjóri Alþýðusam- bands íslands, Kirkjukór Borgar- ness syngur, stjórnandi er Jón Þ. Björnsson. Blái hatturinn skemmtir en hann skipa Egill Ólafsson, Jó- hann Sigurðsson, Edda Heiðrún Backman, Asa Hlín Svavarsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson. Leikdeild Skallagríms flytur atriði úr leikrit- um undir stjóm Þrastar Guðbjarts- sonar. Ávörp frá stéttarfélögum flytja Baldur Jónsson, Verkalýðsfé- lagi Borgarness, og Birna Konráðs- dóttir, Verslunarmannafélagi Borg- arness. Ávarp frá Starfsmannafé- lagi Borgarnesbæjar flytur Anna Ólafsdóttir. Kl. 13 og 15 verða kvik- myndasýningar fyrir börn í Sam- komuhúsinu. Sýnd verður teikni- myndin Nemo litli. Myndin er með íslensku tali. Kaffisala verður á hótelinu að loknum hátíðarhöldum. (Fréttatilkynning) varpinu hafi tekist nokkuð að fara bil beggja þótt álit fólks sé að sjálf- sögðu mjög misjafnt.“ Samningar við stóra framleiðendur „Við gerum okkur grein fyrir áhrifamætti sjónvarpsins og reynum að stilla þessu upp eins gaumgæfi- lega og möguleiki er,“ sagði Jónas þegar ályktunin var borin undir hann. Hann benti á að sýningum á of- beldiskvikmyndum væri stillt í eins mikið hóf og hægt væri á Stöð 2. „Vandamálið er fyrst og fremst að við erum í samningum við stóru kvikmyndaverin og þurfum að kaupa af þeim allar nýjar kvikmynd- ir og getum ekki valið úr. Inn á milli eru alltaf einhveijar ofbeldis- myndir sem við erum skuldbundnir til að sýna hvort sem okkur líkar betur eða verr. Við setjum þær eins seint á dagskrá og hægt er en kom- umst ekki hjá að sýna þær vegna þess að ofbeldis- og spennumyndir eru oft og tíðum það sem gengur hvað best í Bandaríkjunum og flæð- ir þar af leiðandi yfir Evrópu," sagði Jónas en aðspurður sagði hann að aðeins það að kvikmyndaeftirlitið teldi ákveðna kvikmynd ósýningar- hæfa gerði það að verkum að ekki þyrfti að sýna hana og hefði sú staða komið upp með nokkrar myndir. Strangari en kvikmyndaeftirlitið Hann sagði að allar myndir væru skoðaðar og rækilega varað við þeim þætti ástæða til. „Það er mjög al- gengt að við séum strangari en kvikmyndaeftirlitið. Það er algengt að þeir banni mynd innan 12 ára en við innan 16 ára,“ sagði Jónas. Hann sagði að hætt hefði verið að kaupa inn ofbeldisfullar teiknimynd- ir fyrir börn en viðræður stæðu yfir við Disney-fyrirtækið um kaup á sjónvarpsefni. Yfirlýst stefna þess er að sýna ekki ofþeldi í myndum sínum. Vesturborgin Glæsileg 69 fm ný „lúxus“-íbúð á 1. hæð í fallegu húsi. Granítfílsar á gólfum. Vandaðar innréttingar. Sérlóð. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Áhvílandi byggingasjóður 4,9 millj. Verð 7990 þús. | Upplýsingar heima í síma 21262 og vinnusími 680057, Finnbogi. Bollatangi 1 Opið í dag -11 - Mos. 13 i rm 1=® Til sölu 3 raðhús í glæsilegri raðhúsalengju. Húsin eru til afh. nú þegar og skilast fullfrág. að utan, lóð tyrfð. Húsin verða opin til sýnis um helgina, 1. og 2. maí. Teikningar á staðnum. ÞIXGIIOLT Suðurlandsbraut 4A, ífJ sími 680666 Austurbrún/parhús - skipti 242,5 fm glæsil. hús á tveimur hæðum. Á jarðhæð er eldhús, borðstofa, setustofa, gestasnyrting, þvottahús og sjónvarpshol. Á efri hæð eru 3 góð svefnherb. og baðherb. Vandaðar innr. Frábær staðsetning. Skipti æskileg á stærra einbýlishúsi í Laugarási, Stigahlíð eða Garðabæ. Flyðrugrandi - „KR-stúkan“ Mjög góð 70,5 fm ibúð á 3. hæð í þessu vinsæla fjölbýli. íbúðin er laus strax. Lyklar á skrifstofu. Verð 7,2 millj. f ÁSBYRGi f Suöurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, sími: 682444, fax: 682446. INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali. SÖLUMENN: Örn Stefánsson og Þórður Ingvarsson. 21150-21370 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggilturfasteignasali Nýjar á söluskrá meðal annarra eigna: Björt og hlýleg við Tómasarhaga Mikið endurnýjuð 4ra herb. íb. á 3. hæð/rishæð. Svalir. Mikið útsýni. Háaloft - viðarklætt fylgir. 40 ára húsnæðislán kr. 3,1 millj. Við Skólabraut á Seltjnesi Endurbyggð 4ra herb. íb. á 1. hæð, 94,9 fm nettó í tvíbýlishúsi. Sér- inng. Góður bílskúr. Skipti æskileg á stærri íb. miðsv. í borginni sem má þarfn. endurbóta. Skammt frá Álftamýrarskóla Ný endurbyggð 4ra herb. íb. á 3. hæð um 90 fm nettó. Góðir ofnar. Danfosskerfi. Bílskréttur. Ákv. sala. Skammt frá Menntaskólanum við Sund Steinhús ein hæð, 165 fm, vel byggt og vel meðfarið. Bílskúr fylgir. Glæsileg lóð. Skipti æskileg á minni eign. Skammt frá Hagaskóla Stór og góð 4ra herb. kjíb. 108 fm nettó í suðurenda. 3 rúmg. svefnh. Góðir skápar. Nýtt parket. Sér hiti. Langtímalán kr. 4,0 millj. Á 1. hæð við Stóragerði 4ra herb. íbúð um 100 fm í vesturenda. Nýleg eldhúsinnr. Sérhiti. Tvennar svalir. Mikil og góð lán. Útsýni. Tilboð óskast. Þjónustuíbúð við Bólstaðarhlíð óskast á söluskrá. Traustur kaupandi. Skipti möguleg á mjög góðri íb. á vinsælum stað miðsv. í borginni. • • Opið ídag kl. 10-12. Ath. breyttan opnunartíma. Almenna fasteignasalan sf. var stof nuð 12. júlí 1944. AIMENNA FASTEIGNASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 BUSETI Sími 25788. SKRIFSTOFAN ER OPIN KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA. LOKAÐ í HÁDEGINU KL. 12-13. FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR TIL ÚTHLUTUNAR í MAÍ ’93 Aðeins félagsmenn, innan eigna- og tekjumarka, geta sótt um þessar íbúðir. ENDURSÖLUÍBÚÐIR: Staður: Stærð: Hæó: lous í: Frostofold 18-20, Reykjovík 4ro 88 4 júní '93 Frostofold 18-20, Reykjovík 4ra 88 6 ógúst '93 Goróhús 2, Reykjovík 3jo 79 3 sumar '93 Trönuhjolli 17, Kópavogi 2jo 57 1 sumor '93 ALMENNAR IBUÐIR TIL ÚTHLUTUNAR í MAÍ '93 Allir félagsmenn þ.á m. þeir, sem eru yfir eigna- og/eða tekju- mörkum, geta sótt um þessar íbúðir. Búsetugjald (leiga) er mun hærra en í félagslegu íbúðunum. ENDURSÖLUÍBÚÐ: Staður: Stærð: m2 Hæó: Lous í: Gorðhús 8, Reykavík 3ja 79 2 moí '93 NÝJAR ÍBÚÐIR: Stoður: Stærð: m2 Fj. íbúóo: Áætl. afhend.: Arnarsmúri 4-6, Kópovogi 2jo 54 8 júní '94 Arnarsmóri 4-6, Kópavogi 3jo 80 7 júní '94 Ennfremur nokkrar 3ja og 4ra herb. almennar íbúðir í: Birkihlíð 2-2A, Hafnarfirði, tilbúnar í september ’93. VINSAMLEGA LESIÐ VEL EFTIRFARANDI: Hvernig sótt er um íbúð: Umsóknir um íbúðirnar verða að hafa borist skrifstofu Búseta fyrir 15. hvers mánaðar á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan úr gildi. Félagsmaður sem sækir um nú og fær ekki íbúð, verður að sækja um á ný. Upplýsingar um skoðunardaga íbúða og/eða teikningar fást á skrifstofu Búseta. Til að umsókn sé gild er áríðandi að skattayfirlit (staðfest frá skattstjóra) síðustu þriggja ára fylgi henni og að félagi skuldi ekki eldri númeragjöld (félagsgjöld). NÚMERAGJÖLD MÁ GREIÐA MEÐ GREIÐSLUKORTI Það nægir að hringja inn greiðslukortsnúmerið. VINSAMLEGA SKILIÐ UMSÓKNUM INN FYRIR KL. 16 ÞANN 14. MAÍ NK. (15. maí er á laugardegi og lokað hjá Búseta) MUNIÐ AÐALFUND BUSETA-REYKJAVÍK MIÐVIKU- DAGINN 5. MAÍ NK. KL. 20:30 Á HÓTEL BORG (geng- ið inn um aðaldyr). BÚSETI Homragöróum, Hóvollogötu 24,101 Reykjavík, simi 25788.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.