Morgunblaðið - 01.05.1993, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 1. MAÍ 1993
69
ásg*gfejgr;!i-i
lca / ígsisSpÍiiSiiffli!
RMg
. ■. i'1'.
Æ-i-ifáíí
ffllllÉ
IÍjÉ|i W®á
\m0ml
Beðist undan aðdróttunum
Frá Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni:
ÞRIÐJUDAGINN 27. apríl birtist í
Bréfi til blaðsins bréf frá Jóni Aðal-
steini Jónssyni, fyrrverandi orða-
bókarritstjóra. Þar lét hann að því
liggja, að eitthvað væri óeðlilegt
við ritlaun, sem Hitaveita Reykja-
víkur greiddi mér fyrir að semja
ævisögu Jóns Þorlákssonar, en hún
kom út fyrir síðastliðin jól. Enn
fremur gagnrýndi hann, að Hita-
veitan, og nokkur önnur borgarfyr-
irtæki, sem Jón Þorláksson hrinti
af stað, höfðu keypt allmörg eintök
hvert af bókinni (mest 150 eintök)
til gjafa. Talaði hann í því sam-
bandi um spillingu; verið væri að
hygla pólitískum gæðingum.
Eg ætla að biðjast undan slíkum
aðdróttunum um verk mitt um Jón
Þorláksson. Skömmu fyrir 60 ára
afmæli Hitaveitunnar haustið 1990
hitti ég Sigmund Guðbjarnason,
þáverandi háskólaTektor, og Pál
Gíslason, formann stjórnar veitu-
stofnana, í hófi í Háskólanum, og
ræddum við þar nokkuð um það,
hvernig minnast mætti afmælisins.
Sú hugmynd kviknaði, að rita ætti
ævisögu helsta frumkvöðuls henn-
ar, Jóns Þorlákssonar. í framhaldi
af því sótti ég um styrk til stjórnar
veitustofnana til að gera þetta. Var
hann samþykktur samhljóða.
Ég samdi bókina síðan árin
1991-1992. Þetta var í raun
þriggja binda bók, 600 blaðsíður,
þótt reynt væri að halda verði henn-
ar niðri með því að hafa hana í einu
bindi, svo að venjulegt alþýðufólk
gæti keypt hana. Fékk hún góða
dóma. Ég tel mig því hafa lokið
sómasamlega því verki, sem ég var
fenginn til að vinna. Þess skal get-
ið, að við Páll Gíslason erum rétt
málkunnugir. Því síður voru fulltrú-
ar minni hlutans í stjóm veitustofn-
ana að hygla neinum sérstökum
gæðingi sínum.
Frá þessum ritlaunum var sagt
vandlega í fjölmiðlum, bæði sjón-
varpsfréttum og blöðum, haustið
1990. Þetta er því gömul frétt, sem
allt í einu er tekið upp á að endur-
prenta nú af einhveijum ástæðum.
Um hitt atriðið, kaup nokkurra
fyrirtækja borgarinnar á allmörg-
um eintökum af ævisögu Jóns Þor-
lákssonar, get ég verið fáorðari.
Þar spyr ég aðeins: Er ekki skyn-
samlegra, að slík fyrirtæki gefi vin-
um og velunnurum að gjöf ævisögu
stofnanda síns (en Jón var frum-
kvöðull Vatnsveitunnar og Raf-
magnsveitunnar alveg eins og Hita-
veitunnar og líka bæjarfulltrúi og
borgarstjóri í Reykjavík) heldur en
konfektkassa eða koníaksflösku?
HANNES HÓLMSTEINN
GISSURARSON.
Yfirlýsing
KÆR OG virtur starfsfélagi,
Sigrún Stefánsdóttir fréttamað-
ur, hefur verið borinn sökum
um ósæmilega framkomu á
áhorfendapöllum Alþingis.
Undirritaðir sem vorum þar
í stórum hópi vinnufélaga, stóð-
um nærri Sigrúnu. Hún hvorki
stappaði, æpti né orgaði. Hvorki
í eitt skipti eða annað.
Meint lófatak hennar hefði
ekki náð að ijúfa kyrrð í hljóð-
um sal.
Hákon Már Oddsson, SFS,
Baldur Þ. Jónasson, SRÚ,
Páll Sigurbjörnsson, RSÍ.
VELVAKANDI
l.mai
Launafólk, mætum í kröfugönguna og
ó útifundinn 1. maí.
Safnast veróur saman við Hlemm kl. 1 2.30.
Gangan leggur af stað kl. 1 3.00.
Fulltrúaráó verkalýófélaganna
i Reykjavik
Nýkomiö
Smart sumarjakkar og kápur með og án hettu.
Fjölbreytt úrval.
Verð frá kr. 7.900.
Tilboð: Ullarjakkarog úlpur.
Sokkabuxur - Verð frá kr. 100.
Opið 1. maí 12-16
\#HÚ5IÐ
Laugavegi21,
sími 25580.
Samhjálp kvenna £
Opið litis
Samhjálp kvenna, stuðningshópur kvenna sem farið hafa í aðgerð og/eða
meðferð vegna brjóstakrabbameins, býður þér að koma í „Opið hús“ í
Skógarhlíð 8, hús Krahbameinsfélagsins, þriðjudaginn 4. maí nk. kl. 20.30.
Gestur kvöldsins að þessu sinni verður Sigurður E. Þorvaldsson, lýtalæknir
og raun hann fræða okkur um: „Nýsköpun brjósta efUr brottnám
Raffiveitingar
Allir velkomnir
J
GÆLUDÝR
Læða fannst
LÆÐAN, sem myndin er af,
fannst aðfaranótt 2. í páskum
á Laugavegi (við Vitastíg). Hún
var ómerkt, en gæti átt heima
í grenndinni. Hún er grá og
hvít, með skellu á nefi. Ef ein-
hver þekkir eða veit hvar hún
á heima þá vinsamlega hringi
hann í síma 10539 eða 32877.
Kettlingar fást gefins
KASSAVANIR, fallegir kettl-
ingar fást gefins. Uppl. í síma
16361 á kvöldin.
ÞAKKIR
í TILEFNI greinarinnar sem
birtist í Morgunblaðinu 2. apríl
1993 vil ég þakka þann stuðn-
ing sem mér var veittur vegna
söfnunarinnar fyrir starfsfólk
Seljahlíðar.
Það hefur fjöldi manns
hringt til mín og spurt mig
hvers vegna ég sé að safna
fyrir þessum tækjum. Það er
vegna starfsfólksins, til að létta
á vinnuálagi þess, því konur
hér vinna langan og erfiðan
vinnudag og eiga síðan eftir
að hugsa um heimili og börn
þegar heim er komið.
Eg er að þessu vegna þess
að Vistheimilið hefur ekki fjár-
veitingar til að eignast þessi
tæki. Þó er oft til fjárveiting
fyrir ýmsu öðru, svo sem stór-
veislum og ferðalögum hjá hinu
opinbera.
Geir P. Þormar,
Skeljahlíð.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Týnt hjól
GRÁTT Kalkoff-hjól með svört-
um barnastól á tapaðist fyrir
röskum tveimur vikum. Kona
nokkur hringdi skömmu síðar
á útvarpsstöðina FM og sagðist
hafa fundið hjól í Elliðaárdaln-
um sem samsvaraði lýsingu á
mínu hjóli, en mér hefur ekki
tekist að ná í þá konu. Vil ég
biðja hana að hafa samband
við mig í síma 72041. Sigríður.
Pennavinir
Sextán ára finnsk stúlka með
áhuga á dýrum, tónlist, bréfaskrift-
um o.fl.:
Mervi Piekiainen,
Peltokuja 4,
08700 Virkkala,
Finland.
Sautján ára þýskur piltur með
áhuga á ferðalögum o.fl.:
Martin Fries,
Wilh. Leuschner Str. 23,
5800 Hagen 1,
Germany.
Finnskur 23 ára piltur með áhuga
á tölvuforskrift, rafeindatækni,
fjallahjólreiðum o.fl.:
Pasi Kristola,
Tyilijoentie 831,
SF-66420 RUTO,
Finland.
LEIÐRÉTTINGAR
ÍÐNAÐARHÚSNÆÐI
í Kópavogi til sölu
Nafn misritaðist
Nafn misritaðist í myndatexta,
er sagt var frá útskrift slökkviliðs-
manna hjá Slökkviliðinu í Reykjavík
á bls. 36 í fimmtudagsblaði Morg-
unblaðsins. Sá slökkviliðsmann-
anna, sem nefndur er Hjörtur
Sveinsson er Hreinsson. Beðist er
velvirðingar á þessari misritun.
Um er að ræða tvö bil,
hvort um 90m2 að stærð.
Góð ián fylgja eigninni!
Upplýsingar í síma 43003