Morgunblaðið - 01.05.1993, Side 22

Morgunblaðið - 01.05.1993, Side 22
 Baðstofufélagar úr Bergshúsi hittast í fyrstu kröfugöngunm eftir Pétur Pétursson í dag er þess minnst að 70 ár eru liðin síðan fámennur hópur úr röðum verkalýðs og menntamanna safnaðist saman við Báruhúsið, er þá stóð við Vonarstræti, þar sem nú rís Ráðhús, og hóf á loft kröfu- spjöld og fána félaga sinna, auk rauðra fána, gekk síðan flestar götur bæjarins, allt frá Bræðra- borgarstíg í vestri innfyrir Vatns- þró í austri, en staðnæmdist að lokum við gijóturð mikla í grunni Alþýðuhússins við Hverfisgötu og Ingólfsstræti. Þar ætlum við einn- ig að nema staðar. Flestir lesenda Morgunblaðsins minnast þess að hafa heyrt eða lesið um baðstofufélaga Þórbergs Þórðarsonar þá er hann bjó í Bergshúsi við Skólavörðustíg. Þeir verða öllum minnisstæðir eins og Þórbergur lýsir þeim í „Ofvitan- um“, og ekki síður vegna einstakr- ar sýningar Leikfélags Reykjavík- ur á verki Þórbergs í leikgerð Kjartans Ragnarssonar. Öll mun- um við Odd og auglýsingu bað- stofufélaganna um „Engladans- inn“. En hvernig tengist Oddur 1. maí, og hvar kemur Þórbergur við sögu?. Þegar göngumenn nálgast grunn Alþýðuhússins með fána- bera'og lúðrasveit í broddi fylking- ar má sjá einbeittan mann, sem fylgir lúðraflokki fast eftir. Hann ann hljómlist og þótt mandólínið í strengjasveit Hjálpræðishersins sé honum e.t.v. kærast vegna leið- sagnar Siurðar Briem og streng- leika á samkomum þá kann hann einnig að blása á sönglúður, eins og Jónas Hallgrímsson nefndi hljóðfæri þau er hornaflokkurinn er fór í farabroddi bar að vörum. Oddur stjómaði sjálfur fámennum lúðraflokki Hjálpræðishersins á ísafirði. Og hann vann fleiri verk á ísafirði en að leika á lúður og mandólín. Aldraðir Vestfirðingar minnast þess enn í dag er Oddur fór fót- gangandi um brattar brekkur, kleif fjallvegi og Leggjabtjót margan og Lokinhamra en sigldi beggja skauta byr í því skyni að safna fé og framlögum til gisti- húss Hjálpræðishersins á ísafirði. Hann taldi.ekki eftir sér spor né svaðilfarir og tvísýnu. Reiknings- glöggum mönnum taldist svo til að Oddur hefði ýmist gengið eða ferðast á hestbaki 900 kílómetra leið. 650 kílómetra ferðaðist hann sjóleiðis. Homstein að hinu mikla húsi Hjálpræðishersins á ísafirði leggur hann árið 1920. Nærfellt hálfum öðrum áratug eftir „Engladansinn", sem aldrei var stiginn, var auglýstur af hrekkvísum baðstofufélögum Odds stendur hann þann dag, 1. maí 1923 við hlið spaugarans mikla, ofvitans úr Suðursveit, á gijóthrúgunni miklu og segir svo frá: „Ég veitti því athygli, að þarna var byijað að bijóta landið, og lá gijót, sem upp hafði verið rifið, í stórum hrúgum um svæðið. Leit helst út fyrir, að byijað væri á einhveiju stóru mannvirki á þess- um stað. Sagði Þórbergur Þórðar- son, einn þeirra fáu í flokknum, sem ég þekkti að alþýðufélögin hefðu náð eignarhaldi á þessari byggingarlóð og hygðust reisa þarna með tímanum hús yfir sig og starfsemi sína. Innti ég þá eft- ir því, hvort alþýðusamtökin ís- lensku ættu hvergi höfði sínu að að halla í höfuðstað landsins, und- ir eigin þaki. Svarið var neikvætt." Ólafur Friðriksson flytur ávarp í fyrstu kröfugöngunni. Oddur og Þórbergur eru meðal áhorfenda. Ljósm.: Gísli Ólafsson •fo> )■ «*>><»' Lengst til vinstri er fyrsta Alþýðuhúsið og vék fyrir húsinu sem svokallaðir boddíbílar. sést í miðið, bifreiðarnar fyrir framan voru farartæki síns tíma, Vanmegnug verkalýðshreyfing hafði lengið klappað stein og lam- ið gijót án árangurs í grunni vænt- anlegs Alþýðuhúss. Allt í dags- verkagjöfum. Við sjáum þá fyrir okkur, baðstofufélagana á gijót- hrúgunni. Þórbergur hefir lýst for- ingjum alþýðusamtakanna í bréfi til Vilmundar Jónssonar: „Það er almennt viðkvæði andstæðing- anna, að Ólafur Friðriksson sé eini jafnaðarmaðurinn, sem meini það sem hann segi... Hitt séu allt sam- anvaldir hræsnarar. En þessu lofi um Ólaf fylgir þó sá böggull, að hann sé fanatískur idealisti og geggjaður. Á þetta víst að vega salt á móti sannfæringunni, svo að útkoman verður núll.“ Um Odd, baðstofufélaga sinn sagði Þórbergur í Ofvitanum: „Oddur var fyrirmynd ungra manna um háttprýði og reglu- semi, iðni, trygglyndi og ráðvendni í orði og verki. Hann hafði í sér innri menningu, sem var grund- völluð bygging margra kynslóða, en ekkert veturnóttahem af svæf- andi skorti á tækifærum, eins og tíðkast um íslenskt sveitafólk. Það var þegar sýnilegt, að hann gæti aldrei orðið ginningarfífl mögu- leikanna." Þegar Oddur réðst til starfa hjá hlutafélagi því sem eignast hafði Iðnó kom það í hans hlut að veita forstöðu framkvæmdum öllum við smíð Alþýðuhússins. Þar var hann vakinn og sofinn og vék hvergi af verði. Hann gaf sér þó tíma til þess að yrkja hjartnæm ljóð um hugðarefni sín. „Mín sveitin kær“ var óður hans til skaftfellskra átt- haga og „Alltaf sért þú Iðnó mín“, lofkvæði til samkomuhússins sem hann veitti svo lengi forstöðu. Það var lærdómsríkt fyrir unga menn að starfa undir stjórn Odds. Þar voru hvorki vettlingatök né vind- högg. Árvekni og dagfarsprýði einkenndi framkomu hans. Gam- ansemi og glettni kryddaði mál Þórbergur Þórðarson baðstofufélagi Odds. Myndin er tekin 1923 og er úr bók Vilmundar landlæknis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.