Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 36
m_____________________
Sea Shep-
herd með
hótanir
SEA Shepherd-samtökin ætla
að trufla hvalveiðar Norð-
manna í sumar í þeirri von, að
norsk stjórnvöld höfði mál á
hendur þeim. Gera þau ráð fyr-
ir, að málshöfðunin muni vekja
mikla athygli og verða til þess,
að Bandaríkjaþing banni inn-
flutning norskra sjávarafurða.
Kemur þetta fram í yfirlýsingu
frá samtökunum en Norðmenn
ætla að veiða í sumar allt að
800 hrefnur.
Stafar „uppa-
veiki“ af
svefnleysi?
SÍÞREYTA eða uppaveikin,
sem svo hefur verið kölluð, staf-
ar hugsanlega af svefntruflun-
um, sem valda því, að sjúkling-
amir fá aldrei nægilega hvíld.
Af uppaveiki þjást þó um
100.000 manns í Bretlandi,
aðallega ungt fólk, sem býr við
mikið álag. Segja greinarhöf-
undar, að svefninn hjá þessu
fólki sé oft svo óreglulegur, að
hann svari í raun ekki nema
til tveggja klukkustunda miðað
við sjö eða átta hjá öðrum.
72 lík fundin
í Waco
YFIRVÖLD í Texas sögðu í
gær, að fundist hefðu 72 lík í
rústum búgarðs sértrúarsafn-
aðarins í Waco og væri ekki
búist við, að þau væru fleiri.
Var í fýrstu talið, að þau væru
85 og eru þá ótalin lík fimm
manna, sem féllu í fyrstu árás
lögreglunnar á búgarðinn fyrir
tveimur mánuðum.
Vilja betri
markaðsað-
gang
MICKEY Kantor, aðalvið-
skiptafulltrúi Bandaríkjanna,
sagði í gær að Japanar hindr-
uðu bandarísk fyrirtæki í að
bjóða í verkefni á vegum opin-
berra aðila í landinu. Sama
væri að segja um ríkisstjórnir
margra Evrópuríkja. Með þessu
athæfi væru brotnar alþjóða-
viðskiptareglur. Kantor sagði
að auk þessa yrði nú kannað
hvort Japanar hefðu staðið við
samninga um kaup á banda-
rískum risatölvum en hafi þeir
ekki gert það hóta Bandaríkja-
menn að grípa til refsiaðgerða.
Nýríkir Kín-
verjar ráða
lífverði
NÝRÍKIR Kínveijar hafa tekið
að ráða lífverði vegna öfundar
þeirra sem hafa minni auraráð.
Kinverskt dagblað skýrði frá
því í gær að lífvarðanámskeið,
sem fyrrverandi hermenn
héldu, nytu nú mikilla vinsælda
í borgum landsins. Þúsundir
manna hafi sótt um að fá að
taka þátt í slíkum námskeiðum,
þeirra á meðal ritarar.og fólk
sem hefur nýlokið háskóla-
námi, bæði karlar og konur.
Dagblaðið segir að konur hafi
jafnvel reynst betur sem líf-
verðir en menn. „Með réttri
tækni geta konur auðveldlega
haft betur í átökum við tveggja
metra háa karlmenn," hefur
blaðið eftir kínverskum fjár-
málamanni.
MORGUNBIAÐIÐ lAUGARDAfiUK 1. MAL1993
Reuter
Sorg í Sarajevo
BOSNÍSK móðir grætur við gröf 14 ára gamals sonar síns í Sarajevo.
Drengurinn féll er Bosníu-Serbar skutu á borgina.
Morðingi Chris Hanís fýrír rétti í S^Afríku
Segir fhaldsleiðtoga
hafa lagt til vopnið
Jónannesarborg. Reuter.
MEINTUR morðingi kommúnistaleiðtogans Chris Hani í Suður-Afr-
íku hefur haldið því fram við yfirheyrslur að háttsettur áhrifamaður
í íhaldsflokknum, flokki hægrimanna, hafi lagt til morðvopnið.
Fréttastofan SAPA sagðist í gær
hafa undir höndum skýrslu um yfir-
heyrslur yfir pólska innflytjendanum
Janusz Walus þar sem hann heldur
því fram að Clive Derby-Lewis, einn
af leiðtogum íhaldsflokksins, hafi
látið sig hafa byssu og sagt að drepa
þyrfti Hani.
Walus hélt því fram að þeir Derby-
Lewis hefðu þekkst frá 1984. Sagði
hann stjómmálaleiðtoginn hafa af-
hent sér lista með nöfnum níu
manna, þar á meðal Hani. Þegar
hann hefði séð Hani fyrir utan heim-
ili sitt 10. apríl hefði hann látið til
skarar skríða og vegið hann. Waluz
var handtekinn á morðstaðnum.
Réttarhöld í málinu hefjast 12. maí.
Leiðtogar Vesturlanda huga að slæmum valkostum sínum
Varanlegur friður talinn
verða torsóttur í Bosníu
London. The Daily Telegraph.
VESTURVELDIN þurfa að velja á milli allmargra hugsanlegra
aðgerða ætli þau að víkja frá þeirri afstöðu sem þau hafa haldið
sig við gagnvart átökunum í Bosníu. Sameiginlegt þeim öllum er
að engin er líkleg til að binda með skjótum hætti á blóðsúthelling-
arnar og því síður koma á varanlegum friði, að sögn breska blaðs-
ins The Daily Telegraph.
• Takmarkaðar loftárásir. Banda-
rískar, breskar og franskar flugvélar
auk véla frá fleiri ríkjum Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) myndu
gera sprengjuárásir á fallbyssuvígi
Bosníu-Serba, skriðdreka, birgða-
stöðvar og þá herflokka sem ógna
sérstaklega vígstöðu múslima.
Markmiðið væri að þvinga Serba að
samningaborðinu og fá þá til að
samþykkja friðaráætlun Vance og
Owens. Loftárásir myndu sennilega
valda því að mörg vígi Serba hryndu,
þrýstingur á Sarajevo, Srebrenica
og fleiri múslimaborgir myndi
minnka.
Gagnrök: Jafnvel hörðustu tals-
menn loftárása viðurkenna að ein-
hverjar sprengjur hlytu að missa
marks og valda tjóni í lífi og eignum
saklausra borgara. Þung skotvopn
Serba eru yfirleitt hreyfanleg og því
ekki eins auðvelt að finna þau og
byssuvígi íraka í Persaflóastríðinu.
Miklar líkur eru á að Serbar mundu
svara með hefndarárásum á friðar-
gæslumenn Sameinuðu þjóðanna
sem aðeins eru búnir léttum vopnum.
Vegna þessa er nær víst að stöðva
yrði hjálparstarf og friðargæslu SÞ
áður loftárásir hæfust.
•Múslimar verði vopnaðir. Vopna-
sölubanni SÞ á Bosníu yrði aflétt til
að múslimar eigi auðveldara með
að verjast Serbum sem ráða yfir
miklu betri vopnum og öðrum bún-
aði.
Gagnrök: Borgarastyijöldin
myndi breiðast út og enn fleira fólk
láta lífið. Bosníu-Serbar og jafnvel
Bosníu-Króatar myndu sennilega
biðja um aukna aðstoð frá þjóðbræð-
rum í Serbíu og Króatíu. Sem stend-
ur nota Bosníu-Serbar aðeins um
40% af því herliði sem þeir geta teflt
fram en þeir myndu kalla út meira
lið ef halla tæki á þá. Einnig er lík-
legt að þeir myndu biðja Serbíuher
um hjálp.
Árásir á Serbíu?
•Loftárásir á Serbíu. Hægt væri
að ráðast á brýr yfir ána Drínu, fjar-
skiptastöðvar Serba, orkuver og
birgðastöðvar sem Bosníu-Serbar
njóta góðs af. Þannig mæfti fá Serba
til að hætta að aðstoða landa sína
í Bosníu.
Gagnrök: Serbía á fjölda nýtísku
flugvéla og loftvarnaflauga. Loft-
árásir gætu stappað í þá stálinu og
ólíklegt er að Rússar myndu sætta
sig við svo harðar aðgerðir gegn
fornum bandamönnum sínum.
• Sérstök griðasvæði handa öllum
þrem þjóðabrotunum. Flugvélar og
landher SÞ myndu tryggja öryggi
óbreyttra borgara á svæðunum. Bos-
níu-Serbar hafa þegar samþykkt að
nær 150 kanadískir hermenn séu
óáreittir í Srebrenica. Með sama
hætti væri hægt að senda SÞ-her-
menn til Zepa, Gorazde og fleiri
umsetinna borga og treysta öryggi
um 700.000 múslima á Tuzla-svæð-
inu.
Reuter
Dansað fyrir þingmenn
PETER Robinson, félagi í þjóðdansaflokki frá Essex 5 Bretlandi, hrópar
af fögnuði að loknum erfiðum dansi fyrir utan húsakynni þingsins í Lond-
on. Flokkurinn hvatti til þess að 1. maí yrði áfram opinber hátíðisdagur.
LÍKLEG SKOTMORK
Brýr yfir Sövu og Drínu yrðu líkleg skotmörk
ef Vesturveldin ákvæðu að gera loftárásir
á birgðaleiðir frá Serbíu og
Svartfjallalandi til Bosníu.
Gagnrök: Þörf væri á 50.000
SÞ-hermönnum til að vernda griða-
svæðin, sennilega til margra ára.
Þessi lausn myndi ekki gagnast
flóttafólki sem hrakið hefur verið
úr landi og SÞ yrðu sakaðar um að
hjálpa tii við „þjóðahreinsunina".
Óvissa á Ítalíu vegna afsagnar ráðherra
Þingfulltrúar
slá skjaldborg
umspillmguna
„SKAMMIST ykkar, hypjið ykkur burt,“ var hrópað fyrir utan
þinghúsið í Róm í fyrrakvöld en þá hafði það ótrúlega gerst,
að þingið hafði fellt tillögu um að svipta Bettino Craxi, fyrrver-
andi formann Sósíalistaflokksins, þinghelgi svo unnt væri að
draga hann fyrir rétt og rannsaka alvarlegustu spillingarákær-
urnar á hendur honum. ítalir ætluðu ekki að trúa sínum eigin
eyrum þegar þeir heyrðu fréttirnar. Þjóðin var nýbúin að fella
sinn dóm yfir spilltu stjórnmálakerfinu en nú hafði valdastétt-
in, þingmennimir, sem margir eru grunaðir um spillingu, minnt
á sig.
ítalska þingið heimilaði rannsókn
á nokkrum minniháttarákæruatrið-
um á hendur Craxi en ekki á þeim
alvarlegustu. Þess má geta, að af
965 þingmönntim hafa um 100 verið
nefndir opinberlega í sambandi við
spillingarrannsókn og búist er við,
að sú tala eigi eftir að hækka veru-
lega.
Strax þegar fréttin barst út söfn-
uðust þúsundir 'manna saman til
mótmæla í stærstu borgum landsins
og fyrir utan þinghúsið í Róm og
voru gerð hróp að þingmönnum þeg-
ar þeir héldu heim í glæsikerrunum
sínum. „Með svona marga þjófa á
þingi kemur þessi ákvörðun ekki á
óvart,“ sagði einn mótmælendanna.
ítalska martröðin
Ríkisstjórn Carlo Azeglio Ciampis
sór embættiseið sinn í fyrradag en
henni er ætlað að sitja í mesta lagi
í eitt ár og undirbúa kosningar sam-
kvæmt nýrri kosningalöggjöf. Þá eru
einnig bundnar miklar vonir við, að
hún grípi til róttækra og löngu tíma-
bærra aðgerða í efnahagsmálunum.
Afgreiðsla þingsins olli því hins veg-
ar, að fjórir ráðherrar sögðu um-
svifalaust af sér, þrír úr Lýðræðis-
flokki vinstrimanna, arftaka kornm-
únistaflokksins, og ráðherra úr
flokki græningja.
Ciampi þarf nauðsynlega á stuðn-
ingi gömlu kommúnistanna að halda,
einkum til að koma í gegn efnahags-