Morgunblaðið - 01.05.1993, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAI 1993
1. maí ávarp Fulltrúaráðs verka lýðsfélaganna
í Reykjavík, Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja og Iðnnemasambands Islands 1993
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi 1. maí-
ávarp frá Fulltrúaráði verka-
lýðsfélaganna, Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja og
Iðnnemasambandi Islands:
„Launafólk í Reykjavík gengur
fylktu liði á baráttudegi verkalýðs-
ins í skugga mesta atvinnuskorts
um áratuga skeið. Atvinnuskortur-
inn er hörmulegur ósigur allra ís-
lendinga í baráttunni fyrir mann-
sæmandi lífi. Þetta er ósigur okkar
launafólks, atvinnurekenda og
stjórnvalda. Nú er það hlutskipti
okkar að horfa upp á meira en
tuttugasta hvern vinnufæran ís-
lending án atvinnu. Þetta gerist í
landi þar sem auðlindir eru nægar
og gjöfular til lands og sjávar,
menntun og færni með því besta.
Tæknin er með því nýjasta sem
þekkist og atvinnutækin af full-
kominni og afkastamikilli gerð.
Atvinnuleysið á að vera mikilvæg-
asta umræðu- og úrlausnarefni
dagsins.
Verkalýðshreyfingin hefur skoð-
un á því hvernig á að leysa vand-
ann til skamms tíma og til langs
tíma. Hreyfingin mun aldrei þola
að atvinnuleysi verði gert að eðli-
legum þætti tilverunnar. Til þess
eigum við að beita þeim tækjum
sem við eigum: Atvinnuleysis-
tryggingasjóði til atvinnuskapandi
verkefna til lengri og skemmri tíma
og starfsmenntasjóðum til að
byggja upp og endurhæfa launa-
fólk sem þarf að aðlagast nýjum
Þ4 | \ ID
lú r v c ■1
af hlífðaráklæðum
(cover) á
bílsæti.
Verð frá
Borgartúni 26,
sími 62 22 62.
aðstæðum á vinnumarkaði. En
mikilvægast af öllu er að hinn al-
menni rammi efnahagsmálanna
verki til nýbreytni og nýsköpunar
í atvinnulífinu. Ahrifaríkasta leiðin
til þess að leysa efnahags- og at-
vinnukreppu okkar er að efla kaup-
getu fólks um leið og batamerki
fara að sjást í efnahagslífinu.
Við viljum skattleggja hina
efnameiri til að ná inn nauðsynleg-
um tekjum til að standa undir auk-
inni atvinnu. Við krefjumst þess
að lagður verði á ijármagnsskattur
og nýtt þrep í tekjuskatti. Með því
má halda nýjum erlendum lántök-
um í lágmarki, enda óverjandi að
safna endalaust skuldum á börn
okkar og barnabörn.
Það er ein af dapurlegum stað-
reyndum launabaráttu undanfar-
inna ára, að bilið milli nkra og
fátækra eykst stöðugt. Astæður
þess eru með öðru mismunun
stjórnvalda á tekjum fyrir vinnu
og tekjum af peningum. Tekjur af
vinnu eru skattlagðar á sama tíma
og fjármagnstekjur eru með lögum
undanþegnar skatti. Virðisauka-
skattur gerir engan greinarmun á
nauðþurftum eða munaðarvarn-
ingi. Þessu verður að breyta.
Verkalýðshreyfingin ítrekar þá
kröfu að virðisaukaskattur á mat-
vöru verði lækkaður, enda verði
fjármögnun þeirra aðgerða ekki á
kostnað niðurskurðar á opinberri
þjónustu.
Þegar sverfur að í þjóðfélaginu
verður ranglætið í launa- og
skattamálum enn sýnilegra en ella.
Alþjóð veit að skattsvik hafa við-
gengist hér í miklum mæli um
áratugaskeið. Allar ríkisstjórnir
undangenginna áratuga hafa stað-
ið gersamlega vanmáttugar gagn-
vart skattsvikurunum. Loforð og
heitstrengingar í upphafi hvers
stjórnarsamstarfs um að nú eigi
að taka á skattsvikunum hafa
reynst orðin tóm. Skattsvikin eru
alger hneisa fyrir stjórnmálamenn
og stjórnmálaflokka þessa lands.
Islensk verkalýðshreyfing sættir
sig ekki við að skattsvikin haldi
áfram. Þau verður að stöðva. Þess
vegna krefjumst við þess að gripið
verði til hertra aðgerða gegn skatt-
svikurum. Með auknu skattaeftir-
liti og þungum viðurlögum fyrir
þjófnaðinn mætti sækja það fé sem
nú vantar sárlega til að jafna ríkis-
hallann.
Háir útlánavextir nú eru afleið-
ing ótrúlega skammsýnna lánalof-
orða banka í byijun níunda áratug-
arins. í skjóli vaxtamunarins sem
bankarnir þurfa til þess að borga
fyrir syndir fortíðarinnar krefjast
aðrir einnig óeðlilegs verðs fyrir
lánsfé. Dekur stjórnmálamanna við
þá sem hafa tekjur af peningum
er eins og olía á þann eld. Dekrið
við fjármagnseigendur á sér einnig
aðra hlið. Til hvers eiga menn að
leggja fé í atvinnurekstur þegar
hægt er að hafa fúlgur fjár út úr
peningabraski á kostnað ríkisins
og skattgreiðenda án þess að taka
nokkra einustu áhættu? Er nema
von að stöðnun ríki í atvinnu-
rekstri og nýsköpun sé hverfandi
þegar ríkið sjálft býður atvinnu-
rekstrinum og einstaklingum upp
á þessar leikreglur?
íslensk verkalýðshreyfing hefur
verið raunsæ í kröfu- og samninga-
gerð undanfarinna ára. Með hóf-
legum launa- og verðhækkunum
og víðtæku samkomulagi öflug-
ustu samtaka launafólks og at-
vinnurekenda í þjóðfélaginu hefur
tekist að ná verðbólgu niður á
áður óþekkt stig í svo langan tíma.
Því miður hafa atvinnurekendur
og stjórnendur opinberra fyrir-
tækja alls ekki notfært sér það
skjól sem myndast hefur til að
bæta rekstur fyrirtækja sinna.
Þegar kemur að hagræðingu í fyr-
irtækjum og stofnunum er ætíð
vegið í sama knérunn. Nýlegt
dæmi af því tagi er áætlaður sparn-
aður við ræstingu í skólum. Ráðu-
neyti menntamála sér þá einu leið
til sparnaðar að skera niður laun
ræstingarfólks, en launakostnaður
þess er um 5% af rekstrarkostnaði
skólanna.
Á tímum samdráttar og kreppu
er það hlutverk verkalýðshreyfing-
arinnar að hafa forustu um hvern-
ig megi jafna tekjurnar. Pélagsleg
réttindi eru mikilvægir þættir í
tekjujöfnun. Þess vegna mun
verkalýðshreyfingin standa vörð
um mikilvæg félagsleg réttindi og
efla önnur.
Stjórnmála- og þjóðfélagsum-
ræða undanfarinna mánaða hefur
sýnt svo ekki verður um villst að
mikið vantar á að eðlilegar leik-
reglur ríki í þjóðfélaginu. Um leið
og launamönnum eru send upp-
sagnarbréf vegna sparnaðar í
rekstri og endurskipulagningar, er
hægt að gera milljónasamninga við
gæðinga stjórnkerfisins, endur-
ráða vanhæfa stjórnendur til
starfa, útbýta laxveiðileyfum sem
launauppbótum til spilltra stjórn-
málamanna í bankaráðum og vild-
arvina þeirra og svo má lengi telja.
Síðan á að telja launafólki trú um
að það eitt þurfi að herða sultaró-
lina þegar það sér ranglætið sem
við blasir allt í kring. í raun þurfa
stjórnendur og yfirmenn fyrirtækja
og stofnana að horfa á yfirbygg-
inguna og stjórnendakostnaðinn.
Þar má hagræða og ná fram mikl-
um sparnaði.
Verkalýðshreyfingin hefur nú
verið samningslaus við atvinnurek-
endur um margra mánaða skeið.
Allan þennan tíma hefur af hálfu
hreyfingarinnar verið markvisst
unnið að því að koma á nýjum
kjarasamningi. í haust lagði Al-
þýðusambandið tillögur fyrir ríkis-
stjórnina um víðtækar tekjuöflun-
araðgerðir til að treysta undirstöð-
ur atvinnulífsins og hamla gegn
atvinnuleysinu. Ríkisstjórnin hafn-
aði tillögunum. Atvinnumálanefnd-
ir Alþýðusambandsins og atvinnu-
rekenda hafa síðan skilað af sér
veigamiklum tillögum í atvinnu-
málum. Á vettvangi opinberra
starfsmanna hefur BSRB mótað
kröfur og lagt fram ákveðnar til-
lögur í atvinnu- og velferðarmálum
og óskað viðræðna. Ríkisstjórnin
hefur í raun neitað opinberum
starfsmönnum um samningavið-
ræður og sýnt þeim mikla óvirð-
ingu. Rauði þráðurinn í tillögum
allra samtaka launamanna er að
atvinna launafólks verði tryggð og
dregið úr atvinnuleysi og ríkis-
stjórnin þori að leggja í tekjuöflun-
araðgerðir svo þetta markmið ná-
ist.
í dag, 1. maí, hefur slitnað upp
úr samningaviðræðum vegna skil-
yrða VSÍ um heildarsamflot ASÍ-
félaga. Ekki verður lengra haldið
þ stóru samfloti að svo stöddu.
Áframhaldandi samningaviðræð-
um hefur verið vísað til einstakra
félaga og sambanda. Tilboð ríkis-
stjórnarinnar náði of skammt. í
öðrum veigamiklum atriðum verð-
ur stjórnin einnig að ganga lengra.
Það verður að leggja fram mark-
tækar aðgerðir til að lækka vexti.
Stöðugum hringlandahætti með
verðlag lyfja og heilbrigðisþjónustu
verður að hætta.
Undanfarna mánuði hefur það
færst í vöxt að atvinnurekendur
segi upp launafólki og bjóði því
síðan að gerast undirverktakar og
svifti það um leið þeim kjörum og
félagslegum réttindum sem það
áður hafði. Verkalýðshreyfingin
fordæmir þessi vinnubrögð.
Verkalýðshreyfingin leggur höf-
uðáherslu á að ríkisstjórnin virði
samningafrelsi launafólks. Það er
grundvöllur samtaka okkar. Við
munum aldrei sætta okkur við að
á því verði troðið.
Launafólk. Gerum 1. maí að
raunverulegum baráttudegi, þar
sem við sameinumst um kröfuna
Fulla atvinnu fyrir alla. Atvinna —
velferð.“
1. maí ávarp Samtaka kvenna á vinnumarkaði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ávarp kvenna á
vinnumarkaði:
„Konur á vinnumarkaði hafa fátt
til að kætast yfir í dag.
Við konum á vinnumarkaði blasir
óöryggi; höfum við vinnu á morgun,
höfum við vinnu hinn daginn? Marg-
ar okkar eru atvinnulausar, jafnvel
búnar að missa atvinnuleysisbætur
vegna langvarandi atvinnuleysis.
Niðurskurður í samfélagslegri
þjónustu skapar atvinnumissi hjá
konum. Launuðum störfum fækkar
en þjónustunnar er þörf eftir sem
áður. Sjúklingum, gamalmennum,
börnum og öðrum er aðhlynningu
þurfa fækkar ekki að sama skapi
og þjónusta er skorin niður. Þau sem
pening eiga kaupa einkavædda
einkaþjónustu á sínu einkaheimili,
öðrum er vísað á konur í fjölskyld-
unni sem kauplaust skulu veita þá
þjónustu sem samfélagið sinnir ekki,
hvemig svo sem aðstæður þeirra
eru.
Svokallaðar samningaviðræður
að undanförnu hafa ekki verið kon-
um til góðs. Ekkert raunhæft hefur
verið gert til að bijóta á bak aftur
hræðsluáróður og niðurrifsstefnu
ríkisstjórnarinnar. Okkur er gert að
trúa að engir peningar séu til á
sama tíma og einkaneysla einstakra
úrvalshópa vinanna blómstrar sem
aldrei fyrr. Engar kröfur um hækk-
un launa eru settar fram á hendur
atvinnurekendum, jafnvel stærir
varaforseti Alþýðusambandsins sig
af því að ASI hafi boðið atvinnurek-
endum upp á óbreyttan kjarasamn-
ing til tveggja ára, án nokkurra
trygginga. Eina ástæðan hlýtur að
vera að ríkisstjórninni skal gefið
svigrúm til áframhaldandi eyðilegg-
inga.
Atvinnurekendum var færð nið-
urfelling aðstöðugjalds á silfurfati,
á sama tíma var aukin skattpíning
á launafólki, sérstaklega á láglauna-
fólki, sjúklingum og barnafjölskyld-
um. Niðurfelling aðstöðugjalds átti
að skila sér í lækkuðu vöruverði og
aukinni atvinnu, en hvergi hefur
sést vísir af þeim árangri nema ef
vera skyldi í vösum atvinnurekenda
og vina þeirra.
Ríkisstjómin hefur ekki mótað
neina stefnu til aukinnar atvinnu,
heldur tekið upp flausturskenndar
hugmyndir annarra án nokkurrar
úrvinnslu. Ein af þessum flausturs-
kenndu hugmyndum er að hagræða
ræstingakonum út af vinnustað en
hagræða vinunum inn í stjórnun.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
kreljast raunhæfra úrlausna.
Við krefjumst hækkunar lægstu
launa, þannig að við getum verið
matvinnungar. Við krefjumst hækk-
unar umsamins taxtakaups.
Burt með fijálshyggjupostula
sem ræða um hæfilegt atvinnuleysi.
Við krefjumst þeirra grundvallar-
mannréttinda að allir hafi atvinnu.
Sviptum burt þeirri blekkingu að
öllum börnum séu búin örugg upp-
eldisskilyrði. í borg Ráðhúss og
Perlu eru úrræði fyrir börn í hróp-
legu ósamræmi við þarfir þeirra.
Tæpur helmingur barna innan við
sex ára á kost á hlutavistun (!)á
leikskóla. Um 1000 börn einstæðra
foreldra eiga ekki kost á leikskóla-
plássi. I borg Kringlu og Viðeyjar-
stofu eru innan við 300 skóladag-
heimilispláss, en í hverjum árgangi
eru um 1200 börn.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hafna samfélagi einkapots og dek-
urvina.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hvetja til baráttu fyrir samfélagi
mannréttinda og jafnréttis og hvetja
konur til að rísa upp gegn óréttlæt-
inu.“
Dagskrá 1. maí í Hafnarfirði
1. MAÍ-hátíðarhöld Fulltrúar-
áðs verkalýðsfélaganna í Hafn-
arfirði og Starfsmannafélags
RETTO - ARGANGUR '56
Við ætlum aó hittast á Ijúfum nótum, borða saman
og rifja upp gamla daga, í Víkingsheimilinu föstudags-
kvöldið 21. maí kl. 20.00 í tilefni þess að XX ár eru
liðin síóan þá.
Nánari upplýsingar hjá Auói Matt., s. 10488, Habbý
Halldórs., s. 641080, Haffa Kristjáns., s. 686838 og
Þóru Guðjóns., s. 623687.
Þátttaka tilkynnist fyrir 10. maí.
Hafnarfjarðar hefjast með því
að kl. 13.30 verður safnast sam-
an á Ráðhúsplaninu.
Kl. 14 hefst kröfuganga, gengið
verður upp Reykjavíkurveg, aust-
ur Hverfísgötu og vestur Strand-
götu að planinu framan við Ráð-
húsið. Kl. 14.30 verður útifundur
hjá Ráðhúsinu. Fundarstjóri verð-
ur Þröstur Sverrisson, Félagi
Byggingariðnaðarmanna. I. maí-
ávarp flytur Sigurður Th. Sigurðs-
son fyrir hönd félaganna. Aðal-
ræðu dagsins flytur Magnús Jón
Árnason. Ávörp flytja: Guðríður
Elíasdóttir, Verkakvennafélaginu
Framtíðinni, Árni Guðmundsson,
Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar,
og Steinþór Agnarsson, Félagi
byggingariðnaðarmanna. Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar mun leika á
göngunni og á útifundinum.
Kl. 15.30 eru áætluð fundarlok,
en að fundinum loknum bjóða fé-
lögin upp á kaffiveitingar í Álfa-
felli og Vitanum og munu 8 Fóst-
bræður koma í bæði húsin og
syngja. Merki dagsins verða af-
hent sölubörnum á skrifstofu
Framtíðarinnar, Strandgötu 11,
2. hæð, frá kl. 10 um morguninn
1. maí.
(Fréttatilkynning)