Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
47
SJONARHORN
Varað er við kaloríusnauð-
um megrunarkúrum
Á undanförnum árum hefur
oft verið reynt að vekja at-
hygli á því hve strangir megr-
unarkúrar geta verið varhuga-
verðir. Viðvaranir vegna skað-
semi margra þessara kúra
hafa stöðugt verið í gangi, þó
að þær hafi sjaldnast verið
teknar alvarlega. Töfralausnir
hafa líka alltaf fengið góðan
hljómgrunn hjá þeim sem vilja
losna við aukapundin - með
hraði.
Strangir megrunarkúrar virð-
ast geta verið mjög varasamir.
Margir þeir sem eiga við offitu-
vandamál að stríða, hafa valið
að grenna sig með því að fylgja
ákveðnum „svelti-kúrum“ í sam-
ráði við lækna. Þessir megrunar-
kúrar, sem aðeins bjóða upp á
400-600 kaloríur á dag í einn
mánuð, hafa endað á mjög sorg-
legan hátt hjá mörgum þátttak-
endum.
í einu janúarblaði Science
News er málið tekið fyrir. Þar
segir að þeir málsverðir sem boð-
ið er upp á í þessum megrunar-
kúrum, innihaldi mjög fáar kalor-
íur miðað við tiltölulega hátt pró-
teinmagn, en það eigi að hjálpa
fólki að eyða fitu fremur en vöðv-
um. En þar sem komið hafa fram
margar slæmar aukaverkanir og
dauðsföll að minnsta kosti 67
einstaklinga sem tekið hafa þátt
Kaloríusnauðir megrunarkúrar
geta verið lífshættulegir
í þessum megrunarkúrum, þá
ákváðu kanadískir læknar við
Royal Victoria Hospítal í Montre-
al í Kanada að rannsaka ná-
kvæmlega næringarinnihaldið í
þessum tilbúnu fæðublöndum
(mixi) eða málsverðum, í fjórum
af þessum megrunarkúrum sem
í boði eru.
Læknarnir hafa nú sent frá sér
niðurstöður. Þar segja þeir að
næringarinnihald í nokkrum af
þessum tilbúnu málsverðum sem
þeir rannsökuðu, geti beinlínis
reynst lífshættulegt, nema undir
ströngu eftirliti sérfræðings.
Vandamálið megi rekja til upp-
runa og meltingarmöguleika pró-
teina í þessum fæðublöndum. En
af fimm blöndum þessa „megrun-
arfæðis“ sem rannsakaðar voru,
reyndist ein innihalda mjólkur-
prótein, önnur soyaprótein, en í
hinum þrem reyndist uppistaðan
vera „collagen — sem er illmelt-
anlegt prótein og samanstendur
m.a. af himnum og sinum. Aðeins
þær fæðublöndur sem innihéldu
mjólkurprótein og soyaprótein að
uppistöðu, reyndust innihalda all-
ar þær amínósýrur sem líkaman-
um eru lífsnauðsynlegar. Amínó-
sýrur gegna mörgum hlutverkum
í starfsemi líkamans. Þær eru
byggingareiningar próteina, úr
þeim eru framleidd ýmis hormón
og þær eru einnig taugaboðefni.
Alþjóða Heilbrigðismálastofn-
unin hefur lagt til að þessar sér-
stöku tegundir af fæðublöndum
skuli innihalda a.m.k. 37 prósent
af þessum nauðsynlegu amínó-
sýrum. Aftur á móti voru amínó-
sýrur í þessum —collagen" fæðu-
blöndu sem kannaðar voru 16-29
prósent undir því lágmarki.
M. Þorv.
UNGLINGAR bregðast mun oftar við jákvæðum áhrifum en þving-
unum og þrýstingi.
Þrýstingur kunn-
ingjahóps á ungl-
inga - ofmetinn
Því hefur löngum verið haldið fram, að unglingar séu sérstak-
lega viðkvæmir fyrir þrýstingi kunningjahópsins þegar upp kemur
þátttaka í hættulegum uppákomum eða framferði sem varðar við
lög. Nú hefur verið birt niðurstaða nýlegra rannsókna um sam-
skipti unglinga sem varpar Ijósi á málin.
Rannsóknirnar voru unnar af
bandarískum vísindamönnum í sál-
arfræði við Purdue University í
West Lafayett í Indíana í Banda-
ríkjunum, undir stjórn Thomas J.
Berndt. Hann segir að margt bendi
til þess að kunningjarnir hafi yfir-
Rykmaurar hreiðra
um sig undir sófum
Rykmaurar eru sagðir lifa á nánast
hveiju heimili, en hvernig þeir komust
þangað veit enginn.
Þessir ósýnilegu hryggleysingjar lifa á
skinnflögum sem falla af skinni fólks án þess
það verði þess vart. Maurarnir skaða að vísu
engan að öðru leyti en því að þeir geta valdið
ofnæmisviðbrögðum hjá viðkvæmum einstakl-
ingum. Ofnæmisvaldurinn er í ákveðnum pró-
teinum úr saur þeirra sem svífur um loftið
eins og fínt ryk í híbýlum þar sem þeir hafa
tekið sér bólfestu.
Sumar rannsóknir hafa sýnt fram á að ryk-
maurar eru í gólfteppum og þeir eru sagðir
þrífast vel í uppstoppuðum húsgögnum í her-
bergjum sem mikið voru notuð. Rykmaurar
eru sagðir hafa tilhneigingu til að safnast
saman í húsgögnum og í teppinu undir hús-
gögnum. Skordýrafræðingar við Virginía Po-
lytechnic Institute hafa farið grannt ofan í
málin á tveim heimilum þar sem rykmaurar
hafa komið sér þægilega fyrir. Þeir ryksuguðu
bæði teppi og húsgögn, vigtuðu rykið og töldu
síðan kvikindin í smásjá.
Hér koma svo tölurnar: í öðru húsinu virt-
ust - evrópskir - rykmaurar vera ráðandi; í
ljós kom að í rykinu af sófanum reyndust
vera 7.454 rykmaurar í hveiju grammi, I tepp-
inu undir sófanum voru þeir 2.361 í grammi
og í teppinu þar sem mikill umgangur var
reyndust þeir vera 232 í hveiju grammi. í
hinu húsinu héldu - amerískir - rykmaurar sig
aðallega og hjá þeim virtist viðkoman vera
mun minni. Þar fundust 3.391 í hveiju grammi
af ryki af sófanum, í rykinu undir sófanum
voru þeir 269 í grammi, en í teppi þar sem
gengið var mikið um, voru aðeins 14 í grammi.
Okkar frétt segir að til þessa hafí vísinda-
menn talið að rykmaurar væru líklegir til að
halda sig spm næst svæðum þar sem umgang-
ur er mestur á heimilum og húðflögur væru
líklegar til að falla til af heimamönnum. En
Rykmaurar lifa á skinnflögum, þeir hafa
tilhneigingu til að safnast saman í og und-
ir uppstoppuðum húsgögnum.
nú er talið sennilegt að þeir séu viðkvæmir
fyrir miklum raka, þess vegna þrífist þeir best
í vernduðu umhverfi - undir húsgögnum, segir
í fréttinni.
Hafi menn af þessum kvikindum einhveijar
áhyggjur, er þeim bent á að láta sér ekki
nægja að hreinsa opnu svæðin í stofunni, þar
sem umgangurinn er mestur, heldur einnig
húsgögnin, og gleyma ekki svæðinu undir sóf-
anum!
M. Þorv.
leitt fremur lítil áhrif á viðhorf og
hegðun unglinga, en rannsóknir
leiða einnig í ljós að áhrifín séu
ekki aðeins á annan veginn heldur
hafi unglingarnir áhrif á kunningj-
ana á móti. Gagnkvæm málamiðlun
geri vini á margan hátt svipaða
hvor öðrum, en slík hegðunar-
munstur einkenna vinskap fólks í
öllum aldursflokkum.
Berndt segir að tvær aðskildar
rannsóknir hafi leitt í ljós áhrif
kunningjanna, ekki mikii að vísu,
á tvo mikilvæga þætti, annar er í
sambandi við metnað unglinga í
námi og hinn í notkun alkóhóls.
Hann segir einnig, að í Ijós hafi
komi að unglingar bregðist mun
oftar við jákvæðum áhrifum frá
vinum og kunningjum en þvingun-
um og þrýstingi. Þó séu undantekn-
ingar frá reglunni eins og hjá óald-
ar-ofbeldishópum sem með ofbeldi
setji sínar eigin siðareglur.
Bemdt heldur því fram að ung-
lingar sem em stöðugt ósáttir við
ákvarðanir kunningjanna, finni sér
einfaldlega nýja kunningja.
Mest af þeim upplýsingum sem
komið hafa fram um þrýsting frá
kunningjahópi á uppvaxtarárum
segir hann hafa byggst á saman-
burði á hegðunarmunstri sem ungl-
ingarnir greini frá sjálfír og lýsingu
á hegðun kunningjanna. Rann-
sóknir þykja nú benda til þess, að
unglingar ofmeti oft að hvað miklu
leyti þeirra eigin hegðun mótist af
hegðun og háttum kunningjanna.
M. Þorv.
__________Brids
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Siglufjarðar
Aðalsveitakeppni
13 sveitir tóku þátt í mótinu og
varð röð efstu sveita þessi:
Sveit
BjarkarJónsdóttur 290
íslandsbanka 287
ÞorsteinsJóhannssonar 245
ReynisKarlssonar 230
NíelsarFriðbjamarsonar 208
í sigurveitinni spiluðu auk Bjark-
ar, Ólafur Jónsson, Anton og Bogi
Sigurbjörnssynir.
Firmakeppni
Spilaður var 2ja kvölda tvímenn-
ingur (mitchell), en þetta mót er
aðaltekjulind félagsins. 21 par tók
þátt í mótinu og var röð efstu para
þessi:
Reynir Pálsson - Stefán Benediktsson 402
Anton Sigurbjömsson - Bogi Sigurbjömsson 398
Sigfús Steingrímsson - Sigurður Hafliðason -
ÁsgrímurSigurbjömsson 375
Jakobína Þorgeirsd. - Kristrún Halldórsd. 374
PállJónsson-SigurðurGunnarsson 368
60 fyrirtæki greiddu þátttöku í
mótið og varð röð efstu fyrirtækja
þessi:
Ingimundur hf.
(Jakobína - Kristrún/Anton — Bogi) 392
Versl. Sigurðar Fanndal
(Anton - Bogi/Ásgrímur - Sigfús) 383
Nýja bíó hf.
(Björk - Jón/Reynir — Þórleifur) 380
Fiskbúð Siglufjarðar
(Guðmundur - Hafliði/Baldvin - Valtýr) 376
Þormóður rammi hf.
(Guðmundur - Hafliði/Baldvin - Valtýr) 376
Siglfirsk fyrirtæki hafa stutt
myndarlega við bakið á bridsfélag-
inu og má geta þess að Þormóður
rammi hf. gefur alla verðlaunagripi
þetta árið, en Sparisjóður Siglu-
fjarðar gaf verðlaunin í fýrra. Brids-
spilarar á Siglufirði senda stjórn-
endum fyrirtækja á Siglufírði bestu
þakkir fyrir stuðninginn.
Bridsfélag kvenna
Sl. mánudag var önnur umferð
spiluð í hraðsveitakeppninni og er
staða efstu sveita þannig:
Sv. Sigrúnar Pétursdóttur 1168
Sv. Erlu Ellertsdóttur 1076
Sv. Dúu Ólafsdóttur 1054
Sv. Höllu Ólafsdóttur 1043
Sv. Öldu Hansen 1038
Þau mistök urðu í síðasta pistli
að skorin voru ekki rétt færð inn
en sv. Höllu Ólafsdóttur átti að
vera í öðru sæti með 549 stig.
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
Nú stendur sem hæst aðalsveita-
keppni félagsins með þátttöku 10
sveita. Spilaðir eru 28 spila leikir.
Fjórar efstu sveitirnar spila svo til
úrslita, sveit í 1. sæti við 4. sæti,
og 2. sæti við 3. sæti.
Það er heldur betur farið að
draga til tíðinda þegar 7 umferðum
er lokið af 9. Sveit Björns Blöndals
hefur verið með afgerandi forustu
allan tímann, eftir fyrstu 5 leikina
var sveitin með 121 stig af 125
mögulegum. En staðan er þessi
þegar 2 umferðir eru eftir:
Sv. Björns BJöndals 149
Sv. Gísla R. í sleifssonar 118
Sv. Eyþórs Jónssonar 114
Sv. Karls G. Karlssonar 110
Sv. Gunnars Guðbjörnssonar 109
Sv. Sigurðar Davíðssonar 102
Mjög mikil baráttá er um 4.
sætið til að komast í úrslitin sem
verða spiluð föstudaginn 14. maí
kl. 18. En sjálfur úrslitaleikurinn
verður spilaður laugardaginn 15.
maí kl. 14. í undanúrslitunum verða
spiluð 40 spil, en í úrslitunum 60
spil. Spilað verður í Björgunarsveit-
arhúsinu í Sandgerði. Heitt verður
á könnunni meðan á spilamennsku
stendur. Keppnisstjóri er ísleifur
Gíslason.
Bridsfélag Breiðholts
Staða efstu para í vortvímenningi
félagsins er þessi:
Óskar Sigurðsson - Sigurður Steingrimsson 263
FriðrikJónsson-GuðjónJónsson 237
Gísli Sigurkarlsson - Halldór Ármannsson 236
Magnús Oddsson - Lilja Guðnadóttir 225
ÞorbergurÓlafsson-MuratSerdar 224
Hæstu skor kvöldsins hlutu:
Sigurður Steingr. - Ragnar Hermannsson 131
FriðrikJónsson-GuðjónJónsson 131
Keppninni lýkur næsta þriðjudag.
Sunnudagsbrids
Spilað verður í húsi Bridssam-
bandsins í Sigtúni 9, í sunnu-
dagsbrids næsta sunnudag, 2. maí^p-
Spilamennska hefst kl. 13.30.
Stjómandi er Ólafur Lárusson.
Frá Skagfirðingum
Góð þátttaka var síðasta þriðju-
dag í eins kvölds tvímenningskeppni
deiidarinnar. Vel yfír 40 spilarar
mættu til leiks. Úrslit urðu:
N/S:
Ragnheiður Nielsen — Sigurður Ólafsson 315
Guðm. A. Grétarsson - Guðmundur Baldursson290
Eggert Bergsson - Jón Viðar Jónmundsson 288
Bendikt Helgason—Gylfi Jón Gylfason 287
A/V:
UnnurSveinsdóttir-HelgiSamúelsson 316
BjömJónsson-ÞórðurJónsson 300
ÁrmannJ.Lárusson-ÓskarKarlsson 293
AndrésÞórarinsson-HjálmarS.Pálsson 290
Alla þriðjudaga er eins kvölds
tvímenningskeppni hjá Skagfírð-
ingum í Stakkahlíð 17. Allir vel-
komnir. Spilamennska hefst kl.
19.30.