Morgunblaðið - 01.05.1993, Page 62
MQKGUXBLAQIQ MQAAkQAGUR/ 1, MAjí ,lfl94
fclk f
fréttum
‘John didn’t
know I was
HIV positive
when we
made love’
ON THE SHQCK NEWS FOR FERGIE’S FRIENÐ
■
Úrklippan úr sunnudagsblaði Daily Mail, þar sem Peggy Caskie seg-
ir frá eyðnismiti sínu.
5Sni
John Bryan átti 1
ástarsambandi við
eyðnismitaða stúlku
Þeim ætlar ekki að linna hneyksl-
ismálunum sem við koma
bresku konungsfjölskyldunni. Um
páskana upplýsti dálkahöfundur
dagblaðsins Daily Mail, Nigel
Dempster, að fyrrum unnusta Johns
Bryan hafi verið eynðnismituð þeg-
ar þau áttu í ástarsambandi sumar-
ið 1986. Það sem vekur eftirtekt
er að Nigel þessi er talinn ábyrgur
dálkahöfundur, sem fer ekki með
fleipur.
Eins og menn rekur eflaust minni
til komst hins vegar upp um ástar-
samband Johns og Söru Ferguson
árið 1992, sem varð tilefni til skiln-
aðar hennar og Andrésar Breta-
prins. Nú titrar og skelfur Bucking-
hamhöll þar til Andrés hefur fengið
úrskurð um hvort hann hafi smitast
af eyðniveirunni. Reyndar telja
læknar litlar líkur á þvi að Peggy
hafi í upphafi smitað-John, enda fór
hann í eyðnipróf fyrir rúmu ári í
sambandi við hefðbundna læknis-
rannsókn og þá virtist hann heill
heilsu.
Peggy Caskie — sem hafði feng-
ið að vita þremur mánuðum áður
en hún hitti John að hún væri eyðni-
smituð — segist hafa ætlað að láta
hann vita. Vandamálið í hennar
augum var hvernig hún ætti að
bera sig að við að hafa uppi á hon-
um. Þegar hún Sá svo mynd af John
í sambandi við hneykslið fyrir um
ári brá henni heldur betur í brún,
að eigin sögn. En nú hefur hún
tekið af skarið og sagt frá þessu í
fjölmiðlum og hermir sagan að John
hafi lesið uppljóstrunina í blöðum
og drifið sig aftur í eyðnipróf.
Þau voru meðal árshátíðargesta, f.v. Drífa Hjartardóttir varaþing-
maður og bóndi Keldum, hjónin Kjartan Þ. Guðmundson og Þórunn
Oddsdóttir Steingrímsstöð, Þorsteinn Ásmundsson framkvæmda-
sijóri Suðurgarðs á Selfossi og kona hans Elsa B. Ásmundsdóttir
og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra.
UPPTÖKUR
Þekkt frönsk leik- og
söngkona á Islandi
SKEMMTUN
Olafi Þórarinssyni vel fagn-
að í lok tónlistardagskrár
Olafi Þórarinssyni tónlistar-
manni frá Glóru var vel fagn-
að þegar hann gekk í salinn á
Hótel Selfossi í upphafi söngdag-
skrárinnar sem þar er boðið upp
á þessa dagana, syngjandi hið vin-
sæla lag sitt Á kránni. Það lag
er upphafslag Ólafs í dagskránni
sem ber heitið Leikur að vonum
eftir einu laga hans.
Dagskráin var fjölbreytt og
hófst á því að Jónas Ingimundar-
son og Kári Þormar léku á píanó
lög eftir Ólaf Þórarinsson. Síðan
söng Kristjana Stefánsdóttir við
undirleik Jónasar, þá kom fram
kórinn Austan 9, skipaður ungu
; fólki og söng nokkur lög og loks
kom fram Lúðrasveit Selfoss og
lék baráttulag Selfyssinga í hand-
boltanurn en Ólafur samdi lagið.
Kjartan Ólafsson útsetti lög Ólafs
Ólafur Þórarinsson syngur eitt af lögum sínum.
kór og lúðra-
fyrir píanó, sópran.
sveit.
Dagskráin sveiflaðist milli ljúf-
sarra
MANNAMOT
Vetur kvaddur með söng
Eggert Haukdal alþingismaður
Sunnlendinga var gerður að
heiðursfélaga Fjölnis á árlegri árs-
■hátíð sjálfstæðisfélaganna í Ár-
nes- og Rangárvallasýslu, sem
haldin var síðasta vetrardag. Var
honum fært hraungrýti úr Heklu
með áletruðum skildi, en þess má
geta að aðeins einum manni hefur
áður hlotnast þessi heiður, en það
var Ingólfur Jónsson ráðherra á
Hellu.
laga og rokksveiflu og
minnti að sjálfsögðu á Mánatíma-
bilið en Ólafur var einn aðalmaður-
inn í þeirri hljómsveit. Alls eru
flutt 28 lög eftir Ólaf í söngdag-
skránni og áheyrendur tóku vel
við sér enda eru lögin mörgum vel
kunn og dagskráin mjög vel gerð.
Það var hljómsveitin Karma
sem annaðist síðari hluta dag-
skrárinnar með dægurlögunum og
rokkinu en meðal flytjenda í henni
er Guðlaug dóttir Ólafs. í lok dag-
skrárinnar ætlaði fagnaðarlátum
vart að linna og Ólafur kallaður
fram aftur og aftur.
Áformað er að flytja dagskrána
í Hótel Selfossi næstu laugardaga
áftir því sem aðsókn gefur tilefni
til.
Heiðursgestur kvöldsins var
Davíð Odsson forsætisráðherra,
sem ávarpaði samkomuma með
nokkrum vel völdum orðum. Söng-
flokkurinn Austan níu, sem skip-
aður er níu ungmennum úr sýsl-
unni flutti lög við góðar undirtekt-
ir. Sömu sögu var að segja um
hjónin Ástu Beggu Ólafsdóttur og
Gísla Sveinsson á Leirubakka og
Sigurð Sigmundsson frá Ey.
Morgunblaðið/A.H.
Eggert Haukdal var gerður að
heiðursfélaga Fjölnis, félags
ungra sjálfstæðismanna í Rang-
árvallasýslu. Við hlið hans stend-
ur Sveinn Óskar Sigurðsson for-
maður Fjölnis.
Þekkt, frönsk leik- og söng-
kona, Mathilda May, er þessa
dagana stödd á íslandi ásamt
fimm löndum sínum vegna gerðar
myndbands um nýjustu plötu
hennar sem heitir „Around the
world“. I fyrstu komu aðstoð-
armenn sem fóru víða um land til
að velja staði til myndatöku en
May hefur verið hér síðan á sunnu-
dag. Þau voru við tökur við Bláa
lónið í vikunni og síðan var ætlun-
in að fara austur á Mýrdalssand,
að Gullfossi og Geysi og víðar.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Didier Mallet fjármálastjóri
að þau hefðu fyrst og fremst kom-
ið hingað vegna landslagsins. Þeim
fyndist veðráttan þó köld og að
tökunum fylgdi vosbúð, en að hann
væri að sama skapi ánægður með
árangurinn.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Söng- og leikkonan Mathilda May ásamt ballettdansaranum Michel
Flasch, mótleikara sínum á myndbandinu.
________Hefst kl, 13.30_____________ I
Aðalvinninqur að verðmæti_________________________________ ?!
100 bús. kr.' li
--------------1--?------------------
Heíldarverðmæti vinninqa um ____________________ TEMPLARAHOLLIN
300 þús. kr. Eiríksgötu 5 — S. 20010