Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 74
74
MORGUNBLAÐIfi LAUGARDAGUR ,1. M,At 1993
SUMARMAL
Líklegt er að pyngja margra hafi lést talsvert við páskainnkaupin — mikinn mat og
mörg páskaegg. Ég taldi mig nokkuð hóflega í þetta skiptið og lét nægja að gefa
bamabörnunum átta Andrés önd í stað páskaeggja. Hins vegar lét ég eftir mér að
setja nokkur lítil páskaegg í skál. Fimm ára dóttursonur kom til mín og sagði: „Amma, heldur
þú að^ þér verði ekki illt af öllum þessum páskaeggjum?“ Hann var alveg til í að hjálpa mér með
þau. í minni fjölskyldu er sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur með morgunhressingu kl. 10
að morgni. Þá eru bornar fram heitar kleinur og lummur ásamt súkkulaði og rjóma og börnin
fá smágjöf — eitthvað lítið og ódýrt, sem minnir á sumarkomuna. Þótt við höfum marga hátíð-
isdaga til að halda upp á, halda fáir upp á sumardaginn fyrsta, sem er þó ærið tilefni í okkar
kalda landi. Þetta var öðru vísi hér áður fyrr, þá var þessi dagur hafður í heiðri og jafnvel
talinn meiri hátíð en jólin. Þegar ég var lítil, voru alltaf bakaðar kleinur og lummur þennan dag
og við systkinin fengum yfirleitt bolta eða sippuband í sumargjöf. Gleðilegt sumar!
Ég hefi rekið mig á það að
fólk kann ekki lengur að búa til
heitt súkkulaði. Á flestum súkkul-
aðipökkum er prentuð uppskrift,
en uppskriftin er svona:
100 g suðusúkkulaði
l'/2 dl vatn
1 lítri nýmjólk
1. Setjið súkkulaðið í pott
ásamt vatni, látið bráðna og hrær-
ið vel í þar til allt er orðið jafnt.
Gætið þess að ekki brenni við.
Hafið ekki mesta hita.
2. Hellið nýmjólk út í og hitið
að suðumarki. Farið ekki frá, það
sýður fljótt yfir.
Kleinur
1 kg hveiti
3 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
200 g sykur
200 g smjörlíki
4 egg
1 tsk. kardimommudropar
5 dl súrmjólk
2 pk plöntufeiti (Palmin)
1. Bræðið smjörlíkið, kælið að
mestu. Setjið í skál, hrærið sykur
út í. Setjið síðan eitt egg í senn út
í og hrærið á milli. Setjið kardi-
mommudropa út í.
2. Setjið hveiti, lyftiduft,
hjartarsalt og súrmjólk út í
og hrærið vel saman.
3. Fletjið út og skerið
með kleinuhjóli eða hnífi.
Skerið rauf í miðjuna og snúið
upp á.
4. Hitið feitina, hún þarf að
vera vel heit. Gott er að taka
smábút af kleinudeigi og setja
ofan í til að athuga hitann.
5. Steikið ekki mjög mikið í
einu, í mesta lagi 6 kleinur, snúið
við með spaða og steikið á báðum
hliðum.
6. Leggið tvöfaldan eldhús-
pappír á sigti og setjið kleinurnar
á hann strax að steikingu lokinni.
Umsjón: KRISTIN GESTSDOTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Lummur
2 egg
4 msk. sykur
4 dl mjólk
Vi tsk. vanilludropar
4 dl hveiti
2 dl haframjöl
1 tsk. lyftiduft
'A tsk. salt
4 msk. matarolía
1. Hrærið egg og sykur saman,
setjið mjólk og vanilludroppa út í.
2. Setjið hveiti, haframjöl,
lyftiduft og salt út í, hrærið sam-
an, þó ekki mikið. Setjið matarol-
íu út í. Látið standa í nokkrar
mínútur.
3. Bakið á pönnukökupönnu.
Óþarfi er að smyija. pönnuna.
Berið sykur eða sultu með.
Gott er að setja litla eplabita út
í sultuna.
Athugið: Hægt er að nota
smjörlíki í stað matarolíu en slepp-
ið þá saltinu.
MESJ SELDU
STEIKUR Á ÍSLANDI
Nauta-, lamba- 09 svínagrillsteíkur
frá 690 krónum.
Ódýrara en að elda heima!
Sumarönn Tóm-
stundaskólans
V E I T I N G A S T
F A
Sprengisandi
O
Kringlunni
SUMARÖNN Tómstundaskólans
hefst í byrjun maí og stendur
fram í júnímánuð. Fyrstu tvær
vikurnar í maí verður boðið upp
á hraðnámskeið í tungumálum,
þar sem kennslan er sérstaklega
miðuð við þá sem vilja rifja upp
tungumálin fyrir sumarleyfið og
æfa sig í talmálinu.
Stjórnunarfélag Islands
TIME MANAGER TMI
HUGMYNDAFRÆÐI,
SKIPULAGNING 0G
STJÓRNUN
FYRIR ALLA.
Námskeið þar sem farið er yfir hvernig
þú getur náð betri árangri heima og í
vinnunni með því að:
Skapa heildarmynd, raða verkefnum í
forgangsröð, setja þér markmið, tengja
markmiðið við raunveruleikann þ.e.
hrinda hugmyndum í framkvæmd, beita
tímastjórnun, nýta ieiðir til samskipta,
stuðla að eigin vexti og annarra.
Tfmi: 13. og 14. maí kl. 8-18.
Leiðbeinandi: Haukur
Haraldsson
Stjórnunarfélag Islands
MARKVISS
FUNDARÞÁTTTAKA
Á námskeiðinu verða kynntar aðferðir við
skipulagningu og stjórnun funda og
nefndarstarfa hjá opinberum stofnunum
og einkafyrirtækjum. Rætt er um nefndar-
og fundarstörf og helstu gryfjur sem menn
falla í. Hvernig verða fundir markvissir?
Niðurstaða fundar og/eða útkoma fundar.
Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri SFÍ, fær
til sín gestina Þórð Sverrisson hjá
Eimskipaféiagi íslands, Hildi Petersen hjá
Hans Petersen og Jón Ásbergsson hjá
Hagkaup.
Stjórnunarfélag íslands
PH0ENIX“,
LEIÐIN TIL ÁRANGURS
JJ
Tími: 5. og7. maí kl. 13-17
og18. og19. maí.
Leiðbeinandi: Árni Sigfússon
Brian Tracy leiðir námskeiðið á
myndbandi þar sem hann
kynnir hvernig ná megi
persónulegum árangri.
Námskeiðið er upplífgandi og spennandi,
eykur jákvæðni og sjálfsöryggi og stuðlar
að breyttum og betri jffsstíl. Kenndar eru
aðferðir og hugmyndir sem eru hvergi
annars staðar kenndar. Aðferðir sem gera
bæði karla og konur meðvitaðri um það
hvernig hver og einn getur náð
framúrskarandi árangri í starfi,
áhugamálum og einkalífi og ekki síst
árangri í samskiptum við aðra. j
Myndböndin eru á ensku.
Tími: 5., 7. og 10. maí
og 27., 28. og 29. maí.
Brian Tracy á myndbandi.
Leiðbeinandi:
Fanný Jónmundsdóttir.
Stjómunarfélag íslands Ánanaustum 15, sími 621066 - INNRITUN HAFIN
Einar Logi Einarsson grasalækn-
ir, mun leiðbeina á námskeiði sem
kallast villtar jurtir og grasasöfnun.
Á námskeiðinu mun hann kynna
hvernig finna má og nota ýmsar
nytjajurtir í náttúrunni m.a. í mat
og drykk. Námskeiðinu lýkur með
grasaferð í júní.
Jóhann Óli Hilmarsson mun leið-
beina á námskeiði um fuglaskoðun
og fuglagreiningu, en námskeiðinu
lýkur með fuglaskoðunarferð.
Skúli Þór Magnússon leiðbeinir á
námskeiði í ljósmyndun. Þetta er
grunnnámskeið þar sem þátttakend-
ur læra að taka myndir við ýmis
skilyrði, en gert er ráð fýrir að þátt-
takendur fari út og taki myndir sem
síðan eru skoðaðar undir leiðsögn
kennarans.
Hattagerð er ein vinsælasta grein
Tómstundaskólans. Helga Rún Páls-
dóttir leiðbeinir á tveimur námskeið-
um í júní, á dag- og kvöldnámskeiði
en einnig verður boðið upp á fram-
haldsnámskeið í þessari eftirsóttu
grein.
Tómstundaskólinn mun í júní
bjóða útlendingum upp á íslensku-
kennslu. Um er að ræða kennslu
fyrir byrjendur og lengra komna.
Kennari er Guðrún Karlsdóttir sem
hefur langa reynslu af íslensku-
kennslu fyrir útleiidinga.
Harpa Björnsdóttir mun leiðbeina
á myndlistamámskeiði í teikningu
og vatnslitun. Myndefnið verður sótt
út í náttúruna eftir því sem aðstæð-
ur leyfa.
Hafsteinn Hafliðasoii hefur í vor
stjórnað ýmsum námskeiðum fyrir
Tómstundaskólann um gróður og
garðrækt. Hann mun fjalla um vor-
verkin í garðinum á kvöldnámskeiði
miðvikudaginn 12. maí. Innifalin er
skoðunarferð um garða í nágrenninu.
Nokkur saumanámskeið verða í
boði í vor undir stjórn Ásdísar Óskar
Jóelsdóttur og Ástu Kristínu Sigga-
dóttur.
Þá er á dagskránni kennsla í vél-
ritun, vídeótöku á eigin vélar, garð-
skipulagningu, glerskurði o.fl.
(Fréttatilkynning)