Morgunblaðið - 01.05.1993, Síða 76
Morgunblaðið/Sverrir
Barattudagur
ÓVISSA í kjaramálum og mikið atvinnuleysi setja svip sinn á baráttudag
verkalýðsins, 1. maí, sem haldinn er hátíðlegur um land allt í dag. A
myndinni sést verkamaður í Jámsteypunni við vinnu sína.
Sjá bls. 18-19: „Máttlausari kjarabarátta?" og bls 44-45: Ávörp
verkalýðsf élaga.
REKSTRARAFKOMA Granda hf. eftir fyrsta ársfjórðung ársins
er 20% betri en rekstraráætlun gerði ráð fyrir og reyndist hreinn
hagnaður vera 97 milljónir kr. Rekstrartap Granda á öllu síðasta
ári reyndist hins vegar 98 milljónir kr. og að rekstrartapi dóttur-
félagsins Faxanyöls hf. meðtöldu nam heildartap félagsins á sl.
ári 156 milljónum kr. Þetta kom fram á aðalfundi Granda hf. sem
haldinn var í gær.
Á aðalfundi Útgerðarfélags Ak-
ureyringa hf. sem einnig var hald-
inn í gær kom fram að hreinn hagn-
aður síðasta árs nam 10,4 millj. kr.
samanborið við um 87 millj. árið
áður og í ræðu Sverris Leóssonar
stjómarformanns kom fram að
heildarafli hefði orðið rúmlega
2.000 tonnum minni en árið áður.
Á aðalfundi_ Granda í gær kom
fram í ræðu Árna Vilhjálmssonar,
stjórnarformanns, að í rekstrar-
áætlun fyrir árið í heild sé gert ráð
fyrir að hagnaður af reglulegri
starfsemi verði rúmlega 120 millj.
kr. en áætlunin gerir m.a. ráð fyrir
að lágt afurðaverð í febrúarmánuði
haldist óbreytt út árið.
Aðalfundur Granda samþykkti
greiðslu 5% arðs til hluthafa.
í síðustu viku tóku forráðamenn
útgerðarfélagsins Pesquera Friosur
í Chile boði Granda um kaup á tog-
aranum Elínu Þorbjarnardóttur.
Uppsett verð var um ein milljón
bandaríkjadala eða rúmlega 60
millj. kr. og gengur söluverð upp í
kaupverð þeirra hlutabréfa í Friosur
sem Grandi á eftir að greiða en
félagið hefur samið um kaup á 22%
hlutabréfa í Pesquera Friosur.
Heildarafli Grandatogara á síð-
asta ári nam tæplega 25 þúsund
tonnum og varð tæplega 2.500 t.
minni en árið áður.
Sjá fréttir á bls. 34.
----» » 4----
Ovissa um
útgöngu
hjúkrunar-
fræðinga
Hagnaður Granda
var 97 milljónir á
fyrsta ársQórðungi
MIKIL óvissa ríkti um það í gær-
kvöldi hvort einhveijir hjúkrunar-
fræðingar sem starfa á Landspít-
alanum myndu hætta störfum í dag
þar sem framlenging á uppsagnar-
fresti þeirra sem stjóm Ríkisspít-
ala greip til í janúar sl. rann út í
nótt.
Eftir samkomulag sem náðist í lok
janúar dró meirihluti starfsmann-
anna uppsagnirnar til baka en nokk-
uð á annað hundrað höfðu hins veg-
ar ekki gert það og því hefur sú
spurning vaknað hvort ráðningartími
þeirra rynni út í nótt.
Frystítog-
arar hafa
notíð góðs
af hækk-
unjensins
HÆKKUN japanska jensins gagn-
vart íslensku krónunni, sem numið
hefur liðlega 30% frá því í septem-
ber, hefur skilað framleiðendum
sjávarafurða hér á landi tekju-
auka vegna þess að fiskurinn héð-
an er verðlagður í jenum. Vegna
hins háa gengis jensins hefur
frámboð fisks á Japansmarkað
aukist.
t Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
seldi á síðasta ári fisk til Japans
fyrir 2 milljarða kr. fob og íslenskar
sjávarafurðir hf. seldu fyrir rúman
milljarð, einkum sjófrystan karfa og
grálúðu, auk loðnuafurða, síldar og
rækju. Útgerðir frystitogara hafa
notið mesta tekjuaukans. Þó sagði
Sæmundur Guðmundsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Islenskra sjávar-
afurða, að nú í upphafi karfavertíðar-
innar fengist ekki sama verð og í
byrjun þeirrar síðustu. Japanir borg-
uðu sama jenaverð fyrir karfa og í
rlok síðustu vertíðar en talsverð lækk-
un varð á afurðaverðinu á vertíðinni.
Sagði hann að þetta skýrðist meðal
annars af gengishækkun jensins.
Eyfirskir bændur gefa fyrningar til notkunar við uppgræðslu
Heyrúllur fhittar á Mý-
vatnsöræfí með herþyrlu
BÆNDUR í Eyjafjarðarsveit hafa að frumkvæði umhverfis-
nefndar sveitarfélagsins ákveðið að safna saman fyrningum nú
í vor og gefa þær til uppgræðslu á Mývatnsöræfum. Að sögn
Páls Ingvarssonar í Reykhúsum, formanns umhverfisnefndarinn-
ar, gæti orðið um 350 til 500 heyrúllur að ræða, eða 100-150
tonn af heyi. Hann sagði varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hafa
lýst áhuga á að flytja heyið upp á Mývatnsöræfin með risa-
þyrlu, sem væntanleg er hingað til lands í sumar í tengslum
við heræfingar. Ekki hefur verið ákveðið hvort eyfirskir bænd-
ur sjái um flutning á heyinu í Mývatnssveit eða hvort þyrlan
flytur það beint inn á öræfin úr Eyjafirði.
Fegurðardrottning íslands valin
Svala Björk
Ariiardóltir
hlaut títíliiin
SVALA Björk Arnardóttir,
18 ára Garðbæingur, var
kjörin Fegurðardrottning Is-
lands á Hótel Islandi í gær.
í öðru sæti í keppninni varð
Guðrún Rut Hreiðarsdóttir og
þriðja Brynja Vífílsdóttir.
Ljósmyndafyrirsæta var valin
Nanna Guðbergsdóttir og vin-
sælasta stúlkan Andrea Ró-
bertsdóttir og hún fékk jafn-
framt sérstök verðlaun fyrir
fegurstu fótleggina.
Páll sagði að þessa dagana væri
verið að kanna áhuga bænda í Eyja-
fjarðarsveit á þátttöku í þessu verk-
efni. Hann sagði vamarliðið hafa
tekið vel í það að annast flutninga
á heyinu að einhverju leyti.
„Þeir segja að þyrlan geti tekið
15-20 rúllur í ferð, en það em
ákveðnir tæknilegir hlutir sem á eft-
ir að leysa í þessu sambandi. Það
er ekki alveg ljóst hvort þeir flytja
þetta úr firðinum og alveg austur,
eða hvort við flytjum þetta á bílum
og þ^ir svo úr Mývatnssveit og inn
á öræfin. Við stefnum á að þetta
verði nú snemma í sumar, en við
vorum að gæla við það að losna við
rúllurnar úr firðinum fyrir slátt.
Þyrlan er hins vegar á ferðinni hérna
seinnipartinn í júlí, og því getur það
vel verið að við flytjum þetta áður
landveginn austur," sagði hann.
Samvinna við Landgræðslu
Páll sagði að Landgræðsla ríkisins
myndi annast það verk að koma
heyrúllunum fyrir á þeim stöðum
þar sem talið væru að þær kæmu
að notum. Þeim yrði væntanlega
komið fyrir í rofabörðum til að hefta
sandfok, en á öðrum stöðum yrðu
rúilurnar skornar sundur og komið
þannig fyrir. Hann sagði að loforð
hefði fengist að hámarki fyrir 500
heyrúllum, en öruggt væri að þær
yrðu að minnsta kosti 350. Þyngd
rúllanna væri misjöfn eftir því hvort
heyið væri blautt eða þurrt, en þarna
gæti hugsanlega verið um að ræða
samtals 100-150 tonn af heyi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kuldaúlpan úr skápnum
SNJÓKOMAN í gær virtist koma á óvart ýmsum, sem vonast höfðu til
að tíma kuldaúlpanna væri lokið i bili og það var napurt fyrir marga
að bíða eftir strætisvagninum. Að sögn Braga Jónssonar, veðurfræðings
hjá spádeild Veðurstofu íslands, er þó ekki um annað en hefðbundið élja-
veður á þessum árstíma að ræða. Samkvæmt veðurspá næstu daga er
gert ráð fyrir suðlægum eða breytilegum áttum með éljaveðri og snjókomu.