Morgunblaðið - 09.05.1993, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
103. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1993____________PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mega aðeins
reykja heima
BARÁTTAN gegn reykingum tók nýja
stefnu í Bandaríkjunum í vikunni er
ríkisþingið í Vermont samþykkti lög
sem banna reykingar með öllu innan
dyra í hótelum og öðrum gististöðum,
krám, veitingahúsum, jafnvel leik-
tækjasölum, fyrirtækjum og öllum opin-
berum byggingum um gjörvallt ríkið.
Þegar bannið kemur að fullu til fram-
kvæmda 1. júlí 1995 geta reykingamenn
einungis reykt heima hjá sér, reykbann
verður í öllum byggingum öðrum, nema
næturklúbbum sem bjóða upp á kaba-
rettsýningar og hafa a.m.k. helming
tekna sinna af áfengissölu. Þannig
verða reyksvæði upprætt á veitingahús-
um og börum. Bann af þessu tagi er í
gildi í 66 borgum og bæjum í Bandaríkj-
unum, þar af er bannað að reykja í
öllum skrifstofubyggingum og veit-
ingahúsum í 39 borgum í Kaliforníu,
þar á meðal í Oakland.
Sannir Skotar
reknir úr landi
NÍU Skotar voru sektaðir og reknir úr
landi í Portúgal á miðvikudag fyrir að
spila fótbolta berrassaðir í bænum
Albufeira á suðurströndinni. Um 50
knattspyrnuáhugamenn voru þar
staddir og allt í einu varð löngunin til
að skipta í lið og spila uppáhaldsíþrótt-
ina öllu yfirsterkari. Heitt var í lofti
og því nauðsynlegt að fækka fötum.
Var þá ekki um annað að ræða en skella
sér úr þjóðbúningnum. Eins og aðeins
sönnum Skotum sæmir voru þeir brók-
arlausir undir pilsunum en sú sjón sem
við blasti er þeir smeygðu sér úr þeim
átti ekki upp á pallborðið hjá siðprúðum
bæjarbúum sem kvöddu til Iögreglu.
Fengu Skotarnir að velja milli fanga-
vistar eða snemmbúinnar heimferðar
og völdu þeir síðari kostinn.
Hávaði veldur
heilaskemmdum
FYRSTU niðurstöður nýrra rannsókna
breskra vísindamanna benda til þess
að samband sé á milli hávaða og heila-
skemmda af völdum kemiskra efna sem
notuð eru m.a. í litarefnum. Við hávaða
verður heilinn fyrir ertingu sem gerir
hann viðkvæmari. Vísindamennirnir
sögðu að ætla mætti að sterkt ljós hefði
sömu áhrif á heilann og hávaði.
Undir fullum seglum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ÞÝSK skólaskúta, Friðþjófur Nansen, kom í vikunni til
Akureyrar. Hefur skútan nokkurra daga viðdvöl hér við land.
Áhöfnin er að mestu skipuð. ungu fólki sem hlýtur þjálfun
í sjómennsku. í fyrradag voru segl undin upp og skroppið
til Hríseyjar og þar varð skútan að leita vars vegna veðurs.
Ráðgert var að sigla í næsta áfanga til Húsavíkur en síðan
átti að halda til Reykjavíkur. Var myndin tekin er skútan
klauf Eyjafjarðarölduna í Hríseyjarferðinni.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ítrekar fyrri kosti Bosníu-Serba
Verða að fallast á friðar-
áætlun Vance og Owens
New York. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
ítrekaði í fyrrinótt að Bosníu-Serbar yrðu
að fallast á áætlun milligöngumannanna
Cyrus Vance og Owens lávarðar um frið
í Bosníu. Um aðrar leiðir til þess að binda
enda á stríðið væri ekki að ræða. Osam-
komulag varð um hvassyrta tillögu
Frakka, sem Bretar studdu, þar sem Bos-
níu-Serbar voru fordæmdir fyrir að hafna
áætluninni sl. fimmtudag og framkvæmda-
stjóra SÞ falið að hrinda henni í fram-
kvæmd. Fulltrúar Bandaríkjanna og fleiri
ríkja lögðust gegn tillögunni þar sem þeir
töldu að í henni fælist viðurkenning á
svonefndri fulltrúasamkomu Serba og vís-
bendingar um að beðið væri niðurstöðu
úr þjóðaratkvæði um áætlunina í næstu
viku en talið er að sú atkvæðagreiðsla
verði með öllu marklaus.
Öryggisráðið hefur litlu áorkað alla vikuna
vegna ferðar Warrens Christophers utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna til Evrópu þar sem
hann hefur leitað eftir stuðningi við loftárás-
ir á stórskotaliðsstöðvar Serba í Bosníu og
afnám vopnasölubanns til múslima. Heimildir
hermdu í gær að Evrópuríkin hefðu reynst
treg til að styðja loftárásir en þó ekki lagst
gegn þeim. Þau hefðu hins vegar alfarið lagst
gegn afnámi vopnasölubanns til múslima af
ótta við að það yrði einungis til að auka á
barÆga í Bosníu. Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti sagði í fyrradag að samkomulag Evrópu-
ríkjanna og Bandaríkjamanna um sameigin-
legar aðgerðir í Bosníu væri nánast í höfn.
Hann sagði ekki í hveiju það yrði fólgið en
gaf nánast til kynna að loftárásir yrðu þar á
meðal.
Umsátri aflétt
Philippe Morillon yfirmaður friðargæslu-
sveita SÞ í Bosníu samdi í gærmorgun við
Ratko Mladic yfirmann hersveita Bosníu-
Serba um að hann drægi heri sína um helg-
ina frá bæjunum Zepa og Gorazde þar sem
sveitirnar hafa haldið um 60.000 múslimum
í herkví. Verða eftirlitsmenn og friðargæslu-
liðar sendir til bæjanna sem eru á sérstökum
verndarsvæðum SÞ samkvæmt ákvörðun ör-
yggisráðsins frá því á fimmtudag. Leiðtogar
múslima neituðu síðar að skrifa upp á sam-
komulag Morillons og Mladics.
„Er hlýrra
hinum megin?“
Fæðingasprengja
í kreppunni
lifsgleði
Gróðurmynd af íslandi
26
BmmosTJóm