Morgunblaðið - 09.05.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 9. MAI 1993
29
Jónas Jónsson Pét-
ursson — Minning
Fæddur 20. maí 1905
Dáinn 2. apríl 1993
Mig setti hljóðan er mér var til-
kynnt í síma um lát Jónasar vinar
míns og samferðamanns á lífsbraut-
inni. En nú var hann horfinn sjónum
mínum til sólarlanda.
Jónas fæddist í Brekkubæ í Ól-
afsvík 20. maí 1905. Foreldrar hans
voru Kristín Jónsdóttir og Pétur
Finnsson. Árið 1914 fluttist hann
með móður sinni og manni hennar,
Guðlaugi Halldórssyni að Arnar-
stapa í Breiðuvíkurhreppi ásamt
þremur hálfsystkinum sínum, Krist-
birni sem nú er dáinn, Sölva Lárusi
og Jenný. Þar ólst Jónas upp með
hálfsystkinum sínum.
Fljótlega eftir fermingu fór hann
heiman að til sjóróðra á árabátum
frá Hellissandi. Síðar stundaði hann
sjó frá Suðurnesjum og Vestmanna-
eyjum, en hugur hans leitaði heim
í sveitina sína, og að Arnarstapa
kom hann aftur. Hann byijaði bú-
skap með eftirlifandi eiginkonu
sinni, Lydíu Ástu Marsibil Kristó-
fersdóttur frá Skjaldartröð á Helln-
um, árið 1933. Lydía var uppeldis-
systir mín.
Þau hjónin, Jónas og Lydía, byij-
uðu búskap á Hellnum, en árið
1934 keyptu þau jörðina Sjónarhól
á Arnarstapa. Árið 1937 flytjast
þau svo að Eiríksbúð á Arnarstapa
og búa þar á meðan þau voru að
byggja íbúðarhús á Sjónarhóli, og
svo þurftu þau að byggja gripahús
og heyhlöðu. Þau hjónin eignuðust
þijú börn sem öll eru á lífi: Anna,
gift Rafni Þórðarsyni og eiga þau
þrjú börn; Kristófer, giftur Auði
Böðvarsdóttur og eiga þau fjögur
börn; Arndís, hún giftist Sigurði
Bjarnasyni; þau eignuðust fjögur
börn, en slitu samvistum; núverandi
sambýlismaður Arndísar er Kristján
Þorleifsson.
Börn Jónasar og Lydíu eru öll
mestu myndar- og dugnaðarbörn.
Afkomendur þeirra hjóna eru nú
orðnir 35. Jónas og Lydía voru
búandi á Sjónarhóli þar til þau flutt-
ust til Olafsvíkur að Hjarðartúni 2
árið 1963 og hafa þau búið þar síð-
an.
Jónas var með hesta, kýr og kind-
ur allan sinn búskap á Sjónarhóli.
Hann stundaði sitt bú með afbrigð-
um vel, hann var dýravinur og
kappkostaði að hafa nóg fóður og
láta þeim líða vel. Hann hirti skepn-
urnar með alúð og gleði. Mér var
þetta vel kunnugt þegar ég var
forðagæslumaður í hreppnum. Það
var gaman að skoða skepnur og
hey hjá Jónasi, því að allt var svo
vel um gengið og búpeningur hans
mjög fallegur. Hann hafði yndi af
hestum, átti góða reiðhesta og fór
oft á bak.
Auk búskapar stundaði Jónas
ýmsa vinnu sem til féll, hann réri
til fiskjar á vorin og sumrin á eigin
bát, og var heppinn að fiska. Þá
stundaði hann vikurvinnu hjá vikur-
félaginu, upp- og útskipunarvinnu
við skipakomur og ýmsa aðra vinnu.
Jónas var hraustmenni, bráðdug-
legur og laginn við alla vinnu, alveg
sama að hveiju hann gekk, enda
eftirsóttur. í Ólafsvík stundaði hann
aðallega vinnu við fiskvinnslu,
Þriðja starfsár Is-
landsdeildar Heims-
kórsins að hefjast
ÍSLANDSDEILD Heimskórsins er að hefja sitt þriðja starfsár. Kórfé-
lagar Islandsdeildarinnar hafa tekið þátt í fjórum tónleikum á vegum
kórsins og flutt ásamt þúsundum annarra kórfélaga Heimskórsins
Sálumessu Guiseppis Verdis. Heimsþekkt listafólk var fengið til liðs
við kórinn og þar á meðal stórsöngvarinn Luciano Pavarotti. Kynn-
ingarfundur á vegum kórsins verður haldinn sunnudaginn 9. mai
nk. kl. 20.30 í Brautarholti 30, 3. hæð. Söngelskt fólk er hvatt til
að kynna sér starfsemi kórsins nánar, því hægt er m.a. að sameina
tvö áhugamál með inngöngu í kórinn, sönginn og ferðaþrána.
Þessa daga er verið að kynna
nýtt verkefni á vegum kórsins sem
kallast Grand-Opera þar sem fluttir
verða valdir kaflar úr vinsælum
óperum. Má þar nefna m.a. Þræla-
kórinn, Matadorakórinn og Haban-
era. Heimskórnum hefur verið boð-
ið að halda tónleika í Osló 11. febrú-
ar 1994 í tengslum við Vetrar-
ólympíuleikana í Lillehammer þar
sem þessi Grand-Opera verður flutt.
Það er einnig fyrirhugað að flytja
þetta verk í öðrum löndum á næstu
árum og kemur ísland þar sterklega
til greina. Viðræður eru í gangi að
fá kórinn til íslands sumarið 1996
og fá þá til liðs heimsþekkta ein-
söngvara og hefur nafn Jose Carr-
eras borið þar á góma.
Að auki vinnur íslandsdeild
Heimskórsins að því að vera með í
flutningi á Sálmumessu Verdis í
Hiroshima í Japan í ágústmánuði
1995. Þá eru 50 ár liðin frá því að
kjarnorkusprengju var varpað niður
þar.
íslandsdeildin getur enn bætt við
sig nýjum félögum, bæði karla- og
kvenröddum. Æft verður að meðal-
tali einn laugardag í mánuði þannig
að kórfélagar eru hvattir til að
halda áfram starfí sínu með öðrum
kórum. Ekki er heldur gerð krafa
um að kórfélagi fari í slíka tónleika-
ferð á vegum kórsins. íslandsdeildin
hefur fengið til liðs við sig kórstjór-
ann Ferenc Utassy, sem er ung-
verskur en hefur starfað hér á landi
í ein 6 ár. Vilhelmína Ólafsdóttir,
píanókennari, sér um undirleik eins
og áður og er kórnum mikill fengur
í að hafa fengið svo góða listamenn
til samstarfs.
lengst af hjá Hróa. Hann hélt þeirri
vinnu fram undir áttrætt eða svo
lengi sem þrek hans leyfði. Hraust-
ur var hann fram á elliár.
Nú er ég lít til baka yfir liðna
tíð allt til æskuára og rifja upp
samstarf og samleið okkar í lífinu
þá er margs að minnast og margs
að sakna.
Minningarnar eru ljúfar sem ég
á um Jónas. Við störfuðum mikið
saman í lífinu, allt frá æsku og þar
til að hann fluttist úr sveitinni. Við
vorum saman í mörgum félögum,
ungmennafélagi, málfundafélagi,
búnaðarfélagi og fleiri félögum, og
í öllum félagsskap var Jónas góður
og áhugasamur liðsmaður. Hann
kappkostaði að koma sem mestu
góðu til leiðar og vinna sveit sinni
gagn.
I sóknarnefnd var ég með Jónasi
í 28 ár og í þau 60 ár sem ég er
búinn að vera samfleytt í sóknar-
nefnd Hellnasóknar hefur enginn
setið lengur með mér í sóknarnefnd
en hann. Okkar samstarf var
ánægjulegt og i alla staði gott.
Hann var áhugasamur í safnaðar-
starfinu, og á samstarf okkar bar
aldrei skugga svo að ég muni. Jón-
as kom í sóknarnefndina árið 1934,
og unnum við því saman að undir-
búningi og framkvæmdum við
byggingu þeirrar kirkju sem nú
stendur og var vígð 12. ágúst 1945.
Jónas og Lydía voru mjög sam-
hent í öllu, og sambúð þeirra mjög
góð. Þau voru gestrisin og glöð
heim að sækja, enda oft gestkvæmt
á þeirra heimili. Hjá þeim fékk ég
góðar móttökur hvenær sem mig
bar að garði.
Ég þakka Guði fyrir að hafa átt
samleið með Jónasi í lífi og starfi
um langa tíð.
Góðs vinar er sárt saknað, en það
gleður að vita að nú hefur hann
fengið hvíldina og hvílir nú með
englum Guðs í föðurfaðmi.
Eg bið góðan Guð að blessa og
styrkja Lydíu og gefa henni hugg-
un, kraft og heilsu. Börnum hennar
og aðstandendum öllum bið ég
blessunar Guðs.
Ég sendi Lydíu uppeldissystur
minni og öllum aðstandendum sam-
úðarkveðjur.
Finnbogi Lárusson,
Laugarbrekku.
TONLEIKAR I BORGARLEIKHUSINU
ÞÚ VEIST
í HJARTA ÞÉR
TÓNLEIKAR
í BORGARLEIK-
HÚSINU MÁNUD.
10. MAÍ, KL. 21.
MHÐAVERÐ 1200 KRJ
■GEGN
■HER
■ í LANDI
BMBBI
HORÐUR
K.K.
MEGAS
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA
í BORGARLEIKHÚSINU
SAMTÖK HERSTÖÐVAANDSTÆÐINGA
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Sigluvogur - parhús
Gott 2ja íbúða parhús í lokaðri götu sem skiptist í 2ja-
3ja herb. íbúð 102 fm á efri hæð og 4ra herb. 120 fm
íbúð á neðri hæð. í kjallara er bílskúr, sameiginlegt
þvottahús og 60-70 fm geymslurými. Góð og gróin
lóð. Selst í einu eða tvennu lagi. Verð 17,0 millj.
rf= ÁSBYRGI e
Su&urlandsbraut 54, 108 Reykjavik,
sími: 682444, fax: 682446.
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
SÖLUMENN: Örn Stefánsson og Þóröur Ingvarsson.
Til leigu skrifstofuhúsnæði
á Skúlagötu 63
Til leigu öll 3. hæðin (460 fmj og hluti 2. hæðar (sam-
liggjandi 150 fm) í þessu glæsilega húsi nr. 63 við Skúla-
götu, sem er örstutt frá Hlemmtorgi. Leigist í einu lagi
eða í hlutum. Laust frá 1. október 1993.
Upplýsingar hjá G J FOSSBERG vélaverzlun hf.,
sími618560.
FASTEIGN ER FRAMTID
FASTEIGNA 'fl'
SVÍRRIR KRISTJANSSON LOOOILTUR FASWONASALI
SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 687072
MIÐLUN
SÍMI 68 77 68
Mörkin 6
Við Mörkina er til sölu mjög fallegt og vel staðsett hús
í smíðum.
Kjallari ca 250 fm með stórum innkeyrsludyrum,
1. hæðin ca 350 fm, 2. hæðin ca 347 fm og rishæðin
ca 122 fm.
Húsinu verður skilað fullbúnu að utan með frágenginni
lóð og malbikuðum bílastæðum en fokhelt að innan.
Húsið er sambyggt húsi Ferðafélags íslands og getur
hentað m.a. félagasamtökum þar sem hægt verður að
fá afnot af fundarsölum Ferðafélagsins.
Hægt er að selja húsið í hlutum, það er kjallarann og
1. hæðina saman og 2. hæð og risið saman eða sitt í
hvoru lagi.
Auglýsingagildi hússins er mjög mikið.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
BYKO hf. auglýsir til sölu
eftirtaldar fasteignir:
Álfholt, Hafnarfirði
Ný, fullbúin og stórglæsileg 4ra-5 herb. íbúð á 2. hæð
í nýju 3ja hæða fjölbýli. Hagstæð langtímalán kr. 5,2 m.
Vesturás, Reykjavík - raðhús
165 fm raðhús á einni hæð. Húsið afhendist fokhelt
að innan og fullbúið að utan.
Klukkuberg, Hafnarfirði
Glæsileg 4ra-5 íbúð á tveimur hæðum í Setbergshlíð.
Allt sér; inngangur, rafmagn og hiti. Frábært útsýni.
Til afhendingar strax tilbúin undir tréverk. Einnig er
mögulegt að fá íbúðina fullbúna og með bílskúr eða
stæði í bílskýli.
Sjávargrund, Garðabæ
- glæsilegar eignir
4ra herbergja 104 fm og 7 herbergja 153 fm íbúðir í
nýju, glæsilegu húsi á fallegri sjávarlóð. Allt sér. íbúðun-
um fylgir rúmgóð bílgeymsla. 7 herb. íbúðin er til af-
hendingar strax tilb. undir tréverk. 4ra herbergja til
afhendingar fullbúnar í lok maí.
Eyrarholt, Hafnarfirði
- lúxusíbúðir
3ja-4ra herbergja 109 fm glæsilegar íbúðir á frábærum
útsýnisstað í 11 hæða 20 íbúða fjölbýlishúsi. Suðursval-
ir og sólstofa. Aðeins eru tvær íbúðir á hæð. íbúðirnar
verða afhentar fullbúnar í júlí 1993.
Einnig tvær 100 fm íbúðir á 2. hæð í fjölbýli til afhend-
ingar tilbúnar undir tréverk.
Krummahólar, Reykjavík
Glæsileg 2ja herbergja íbúð 44 fm með bílskýli. íbúðin
er öll nýstandsett, nýtt baðherb., nýtt eldhús, nýjarflís-
ar á gólfum. Áhvílandi byggingasj. 1,3 millj.
Allar upplýsingar veitir:
Eiín S. Jónsdóttir, hdl.,
Nýbýlavegi 6, Kópavogi,
sími 41000.
\r