Morgunblaðið - 09.05.1993, Síða 43

Morgunblaðið - 09.05.1993, Síða 43
43 MORGUNBLAÐIÐ 8ÞROTTIR SUNNÚDAGUR 9. MAÍ 1993 4---------------------------------------—-----—------------------------ Sigurfljóð Ljóðabók öldunga Blaköldungar hafa í gegnum tíðina verið duglegir að setja, yrkja, eða setja saman ljóð, á ferðum og árshátíðum öldungamótanna. Árni Ingi Garðarsson tók í vor saman nokkuð af þessum íjölbreyti- lega kveðskap og setti á prent í ljóðabók sem nefnist Sigurfljóð og segir í formála að hér sé aðeins lítill hluti þess sem blaköldungar hafa sett saman. Bókin er 32 síður í A5-broti. Við látum fljóta með eitt erindi úr Blaköldungavísum sem B.I. setti saman árið 1982. Aldrei pústrar, aldrei spörk, aldrei blóðug sárin, aldrei sjást nein ellimörk, utan gráu hárin. utan gráu hárin. Alltaf jafn skemmtilegt - segir Arngrímur Ijúflingur hjá Óðni sem hefur verið með frá upphafi LJÚFLINGARNIR í Óðni frá Ak- ureyri voru með elsta liðið á Öldungamótinu í blaki. Ein að- aldriffjöðrin hjá Ijúflingaliðinu er Ijúflingurinn Arngrímur Kristjánsson, en hann hefur tekið þátt í öllum Öldungamót- unum, alltfrá árinu 1976. að er orðið svo langt síðan ég kynntist blakinu, drengur, að elstu menn muna það varla,“ sagði Arngrímur þegar hann rifjar upp fyrstu árin í íþróttinni. Ljúflingalið Óðins hefur haldið hópinn meira og minna síðustu tvo áratugi og sá elsti í hópnum, Stefán Árnason, er 73 ára gamall en lætur það ekki koma í veg fyrir að mæta á enn eitt Öldungamótið. Ljúfling- arnir hittast ekki bara fyrir Öld- ungamót, nei, þeir gera gott betur því liðið æfir allan veturinn og það eru um 18 manns sem æfa reglu- lega. Af þeim eru fimm blakarar sem hafa verið með frá upphafi. „Við erum allir frá Akureyri og ég kynntist blakinu fyrst á grasflöt við Menntaskólann á Akureyri hjá Hermanni heitnum Stefánssyni. Það er orðið ansi langt síðan skal ég segja þér,“ segir Arngrímur. En hann hefur ekki alltaf verið í blakinu. „Nei, blessaður vertu. Ég var ekki nema sex ára þegar ég byrjaði í íþróttum og síðan þá hef ég verið í alls konar sporti, þó mest í knattspyrnu. Ég hef meira að segja orðið svo frægur að leika með Albert Guðmundssyni. Við vorum báðir valdir í pressuliðið gegn lands- liðinu skömmu eftir að Albert kom heim. Það var virkilega gaman. Á seinni árum hefur blakið orðið ofan á hjá mér, nema hvað ég skokka reglulega og svo er það hjól- ið mitt. Það nota ég mikið. Ég hjól- aði til dæmis til Reykjavíkur fýrir tveimur árum, á afmæli Þórs, en ég er Þórsari í húð og hár. Þetta var mjög skemmtileg ferð sem tók ekki nema þijá daga. Þegar maður hjólar á milli Akureyrar og Reykja- víkur sér maður landið í allt öðru ljósi en þegar skotist er á bíl.“ Hvað með blakið, er mikil breyt- ing orðin á Öldungamótum frá því þú byijaðir að fylgjast með? „Já, gífurlega mikil. Bæði er að liðunum er alltaf að fjölga og liðin leika miklu betri bolta en áður. Breiddin er orðin svo miklu meiri en var og nú eru farnir að koma inn strákar sem hafa lært blak þeg- ar þeir voru ungir og hafa tæknina í lagi. Við gamlingjarnir lærum af þeim og ég held að við séum í mik- illi framför líka. Það eru mörg góð lið með á þessu móti og ég er ekki frá því að sum þeirra gætu spjarað sig ágætlega í fyrstu deildar keppn- inni í íslandsmótinu. Öldungamótin eru þó eins að því leyti að það er alltaf jafn gaman að hitta félagana, því staðreyndin er sú að á þessum mótum eru flest- ir góðir félagar. Það eru uppi radd- ir um að það þurfi að skipta mótinu vegna þess hversu fjölmennt það er orðið og ef af því yrði þá væri það slæmt fyrir hinn einstaka anda sem er á þessum mótum. Svona mót eiga fyllilega rétt á sér því hér eru um 700 manns að keppa og margir komnir af léttasta skeiði. Hugsaðu þér alla líkamlegu og andlegu ánægjuna sem allur þessi fjöldi fær af því að undirbúa sig fyrir mótið, svo ekki sé nú talað um mótið sjálft. Það sem skiptir okkur mestu máli er ánægjan að því að fá að vera með, þó svo aldurinn sé að færast yfir,“ sagði ljúflingurinn Arngrímur Kristjánsson. Morgunblaðið/SUS Málin rædd í leikhléi Ljúflingarnir í Óðni frá Akureyri ræða málin í leikhléi. Arngrímur er lengst til hægri og greinilegt er að eitthvað skondið hefur gerst ef marka má svipinn á honum. Það er reyndar alltaf stutt í brosið á Öldungamótunum í blaki. - beint leigufliu Kynnstu nýrri fieimsálfu í sumar Frá kr. 50.000 Flug og gisting í 2 vikur í Cancun á 4 stjörnu hóteli miv. hjón með 2 börn, verð pr. mann, 8. júlf. 69.900 Frákr. _ _ __ pr. mann. Verð m.v. 2 fullorðna í studio, 10. júní 24. maí - 18 dagar 6 sœti laus vegna forfalla Verð frá kr. 79.800 verð pr. mann, 2 í herbergi Flugvallarskattan Flugvallarskattar og forfallagjald eru kr. 3.770,- f. fullorðinn og kr. 2.515 f. barn. Brottför: 24.maí 10. júnf 24. júnf 8. júlf 22. júlí 5. ágúst 19. ágúst 1TURAUIA afr europa HEIMSFERÐIR Austurstræti 17,2. hæð • Sími 624600 Þú vinnur á Wheeler Wheeler fjallahjól - sigurmerki Olympíuleikanna Wheeler fjallahjól - nú á íslandi Teg.: Wheeler 1000. Gírabúnaður: Shímano ClO. . Stell: Cr-mo stál. Álgjarðlr Tég.: Wheeler 1000. Gírabunaöur: Shimano CIO. Stell: Cr-mo stál. Álgjaröir. /Teg.: WHi Gírabúnaður: Shl Steíl:' Cr-mo stf Elnnig 1 Álgjarðir. kvenhjól. Teg.: Wheeler 4400. Gfrabúnaður: Shimano AIO. Stell: Cr-mo stál. Álgjarðlr. Þekking - reynsla - þjónusta BKD Beriö saman verö oggædl. Vlsa og Euro raögrelðslur. Suðurlandsbraut 8, síml 814670 og MJódd, síml 670100.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.