Morgunblaðið - 16.05.1993, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1993
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SIGURGEIR GUÐJÓNSSOIM,
frá Hliði,
lést að heimili sínu Ásabraut 3, Grindavík, fimmtudaginn 13.
maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Einarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐJÓN JÓNSSON,
húsasmiður,
Hraunteigi 21, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. maí kl.
13.30.
Hólmfríður Sigfinnsdóttir
og börn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GÍSLÍNA (LÓA) ÞÓRÐARDÓTTIR,
Hjallaseli 55,
áður Hringbraut 58,
Reykjavík,
sem lést 9. maí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudag-
inn 19. maí kl. 13.30.
Sigríður Guðmundsdóttir, Sigurgeir Jóhannsson,
Svava Guðmundsdóttir, Gretar L. Marinósson,
Jóhann Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Systir okkar, mágkona og fóstursystir,
SÓLVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Kleppsvegi 40,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 18. maí kl.
13.30.
Loftur Þorsteínsson, Erna Matthiasdóttir,
Leifur Þorsteinsson, Friðrika Geirsdóttir,
Helga Snæbjörnsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KARL GUÐMUNDSSON,
Grænuhlíð 18, Reykjavik,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 19. maí kl. 13.30 frá
Fossvogskirkju.
Unnur Jónsdóttir,
Jón Karlsson, Dagrún H. Jóhannsdóttir,
Guðmundur Karlsson, Ásta Þórarinsdóttir,
Ellert Karlsson, Ásdís Þórðardóttir,
og barnabörn.
t
Alúðar þakkir til allra, sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför
KRISTJÁNS KRISTINSSONAR,
Bröndukvísl 14.
Nína Kristjana Hafstein,
Eyjólfur Hafstein Kristjánsson, Unnur Valdfs Kristjánsdóttir,
Sigrún Hafstein,
Kristín Kristinsdóttir.
t
Hjartanlegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát
og jarðarför ástkærrar eiginkonu mirtnar, móður, tengdamóður
í og ömmu,
SIGURLAUGAR HJARTARDÓTTUR,
Stigahlíð 22.
Einar Georg Alexandersson,
Magnea Einarsdóttir, Bjarni Karvelsson,
Hörður Rúnar Einarsson, Sólveig Valtýsdóttir,
Erla Einarsdóttir, Sigurður Karl Linnet
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN SAMÚELSSON,
bifreiðarstjóri,
Grensásvegi 54,
er lést 8. maí síðastliðinn, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju mánudag-
inn 1 7. maí kl. 15.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknar-
stofnanir.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Ástrfður Guðmundsdóttir, Jón Guðmann Pétursson,
Þorvarður Jón Guðmundsson, Jón Axel Pétursson,
Halldóra Guðmundsdóttir, Þóra Steinunn Pétursdóttir,
Pétur Axel Pétursson.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við
andlát og útför,
KATRÍNAR EINARSDÓTTUR,
Kringlunni 61.
Einar Jónsson,
Einar Kristbjörnsson, Brenda Kristbjörnsson,
Sigriður Kristbjörnsdóttir, Gunnar Zophaníasson,
Jóna Kristbjörnsdóttir, Jón Búi Guðlaugsson,
Birna Kristbjörnsdóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts elskulegs eiginmanns,
föður, sonar, tengdasonar og bróður,
NIKULÁSAR HELGA KAJSONAR,
Vogabraut 10,
Akranesi.
Margrét Brandsdóttir,
Anna Björk Nikulásdóttir, Marfa Hrönn Nikulásdóttir,
Jóna Kolbrún Nikulásdóttir, Hörður Kristján Nikulásson,
Jóna Guðný Nikulásdóttir,
Þuriður Skarphéðinsdóttir, Brandur Fróði Einarsson,
og systkini.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan vinar-
hug og samúð við andlát og útför,
HAFSTEINS KRISTINSSONAR
forstjóra Kjöriss hf.,
Hveragerði,
er lést þann 18. apríl 1993.
Laufey S. Valdimarsdóttir,
Aldís Hafsteinsdóttir, Lárus I. Friðfinnsson,
Valdimar Hafsteinsson, Sigrún Kristjánsdóttir,
Guðrún Hafsteinsdóttir, Davíð Jóhann Daviðsson,
Sigurbjörg Hafsteinsdóttir
og barnabörn.
Guðmundur Kristinsson, Ásdis Ingvarsdóttir,
Sigfús Kristinsson, Sólveig Þórðardóttir.
>.Wá
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöf ða 4 — sími 681960
Samútgáfan Korpus
Ekki höfðað
að mál gegn
for stöðu-
manni Betel
FORSVARSMENN Samútgáf-
unnar Korpusar hafa ákveðið
að höfða ekki meiðyrðamál
gegn Snorra Óskarssyni, for-
stöðumanns Betel í Vest-
mannaeyjum, vegna ummæla
sem hann viðhafði í ræðu sem
hann hélt í útvarpsmessu á
skírdag. I ræðunni fordæmdi
Snorri tímaritaútgáfu Samút-
gáfunnar Korpusar, og sagðist
hann telja efni tímaritanna
andstætt boðskap Biblíunnar.
í fréttatilkynningu frá Samút-
gáfunni Korpusi segir að það sé
ótvírætt að ummæli Snorra Ósk-
arssonar um tvö af tímaritum út-
gáfunnar í útvarpsmessu séu bæði
ærumeiðandi og beri að flokka
undir alvarlegan atvinnuróg, og
málaferli þar að lútandi megi telja
fullvíst að útgáfan ynni. Útgefend-
urnir séu vissulega fylgjandi því
að staðinn sé vörður um það
stjórnarskrárákvæði að menn hafi
fullt frelsi til að tjá skoðanir sínar
í ræðu og riti, en verði þó ætíð
að vera tilbúnir til að taka afleið-
ingum orða sinna gangi þeir of
langt í málflutningi sínum.
Orðrétt segir í fréttatilkynning-
unni: „í rauninni hefur Snorri
Óskarsson í Betel sætt slíku aðk-
asti fyrir orð sín, að forsvarsmönn-
um Samútgáfunnar Korpusar þyk-
ir orðið nóg um. Er óhætt að segja
að predikarinn hafi liðið nóg fyrir
óvarkárni sína í predikunarstóln-
um, þó ekki sé farið að bæta við
langdregnum réttarhöldum. Út-
gefendurnir hafa því ákveðið að
láta málið niður falla fyrir sitt
leyti. Enda má með sanni segja
að predikun Snorra hafi dæmt sig
sjálf.“
-------------
Garðabær
Lengja skóla-
dag yngstu
nemendanna
Á FUNDI bæjarstjórnar
Garðabæjar hinn 13. maí sl.
var gerð samþykkt um að
lengja skóladag yngstu barna
í grunnskólunum (6-8 ára) frá
og með næsta hausti um eina
kennslustund á dag. Með leng-
ingu skólans verður viðverðu-
tími barnanna í skólanum
a.m.k. 4 klst. á dag.
Áfram verður þeim foreldrum
er þess óska boðið að hafa bömin
í gæslu í skólanum utan skóla-
tíma. Með samþykktinni er bæjar-
stjórn að koma á móts við auknar
kröfur foreldra í bænum um lengri
skóladag barnanna og um leið er
verið að undirbúa skólastarfið fyr-
ir samfelldan skóladag í einsetnum
skóla. Lögð verður áhersla á að
hinrí aukni kennslustundafjöldi
verði nýttur til kennslu í íslensku,
tónlist og íþróttum.
Gert er ráð fyrir að aukinn
kostnaður við kennslu verði um 5
milljónir króna og verður hann
alfarið greiddur af Garðabæ, en
ekki ríkinu sem lögum samkvæmt
er ætlað að greiða kennaralaun í
grunnskólum landsins.
(Fréttatilkynning)
LEGSTEINAR
WASTEM!
720 Borgarfiröi eystra,
sími 97-29977, fax 97-29877