Morgunblaðið - 16.05.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1993
35
ATVINNUA UGL YSINGAR
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með upp-
eldismenntun óskast til starfa á eftirtalda
leikskóia:
Brákarborg v/Brákarsund, s. 34748.
Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 72830.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnaihúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Grafískur hönnuður
Einn af viðskiptavinum okkar á Norðurlandi
óskar eftir að ráða grafískan hönnuð.
Umsækjendur þurfa að hafa góða þekkingu
og starfsþjálfun á setningartölvur.
Viðkomandi þarf jafnframt að geta unnið að
verkefnaöflun.
Fyrirtækið er iðnaðar- og þjónustufyrirtæki
með ný og fullkomin tæki.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Grafískur hönnuður 116" fyrir 22. maí nk.
Hagva ngurhf
.. . Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Kobenhavns Sundhedsvæsen
BISPEBJERG HOSPITAL
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast í fastar stöður, svo
og til afleysinga, á lyfjadeild, skurðlækninga-
deild, öldrunarlækningadeild og geðdeild.
Vinnutíminn getur bæði verið hlutastarf eða
fullt starf eftir samkomulagi. Stöðurnar eru
lausar frá 1. júní '93 en annað má komast
að samkomulagi um. Afleysingastöðurnar
eru frá þremur mánuðum til sex mánaða.
Nánari upplýsingar um stöðurnar gefur að-
stoðarhjúkrnarforstjóri, Kirsten Hildebrand í
síma 90 45 35 31 29 22.
Umsóknir sendist til Bispebjerg Hospital,
personaleafdeling - Kirsten Hildebrand,
Bispebjerg Bakke 23, 2400 Kobenhavn NV,
Danmörku.
Verkefni
- ensk textagerð -
Þjónustufyrirtæki á tæknisviði óskar að ráða
starfsmann í eins mánaðar tímabundið verk-
efni, sem á að vinnast í júní nk.
Viðkomandi er ætlað að þýða íslenskt leið-
beiningarefni og setja það fram á ensku
ásamt endursögn, viðbótum og endanleg-
um frágangi texta.
Hæfniskröfur: Mjög vel ritfær á enska tungu
og íslenska, eiga auðvelt með samstarf og
vera opinn fyrir tæknilegum viðfangsefnum.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs fyrir 22. maí nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
/V?Iv sto^
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Eftirtalin störf við skólann eru laus
til umsóknar:
1. Hálf staða námsráðgjafa.
2. Kennsla í stjórnmálafræði, aðeins
skólaárið 1993-1994.
3. Kennsla í tölvufræði.
Nánari upplýsingar fást í skólanum.
Umsóknarfrestur er til 11. júní.
Rektor.
Mosfellsbær
Leikskólastjóri
Fóstra óskast til starfa sem leikskólastjóri á
leikskólann Hlíð í Mosfellsbæ. Um er að
ræða afleysingarstarf tímabilið 15. septem-
ber 1993 til 31. maí 1994.
Hlíð er 3ja deilda leikskóli þar sem ein deildin
er tvísetin en hinar einsetnar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Fóstrufé-
lags íslands og launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 31. maí 1993.
Frekari upplýsingar veita leikskólastjóri,
Gunnhildur Sæmundsdóttir, í síma 667375
og félagsmálastjóri í síma 666218.
Félagsmálastjóri.
LANDSPITALINN
Landspítalinn
Reyklaus vinnustaður
HANDLÆKNINGADEILD
Sérfræðingur
Staða sérfræðings (75%) í þvagfæraskurð-
lækningum við handlækningadeild Landspít-
alans er laus til umsóknar.
Umsækjandi þarf að vera sérfræðingur í
þvagfæraskurðlækningum og hafa staðgóða
reynslu í notkun ESWL steinbrjóts.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum, með
upplýsingum um starfsferil og vísindastörf,
skal senda Stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir
15. júní 1993.
Staðan veitist frá 1. september 1993.
Nánari upplýsingar gefa Jónas Magnússon,
prófessor, og Egill Á. Jakobsen, yfirlæknir á
þvagfæraskurðdeild handlækningadeildar
Landspítalans, í síma 601000.
GEÐDEILD LANDSPITALA
Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis við geðdeild Landspít-
alans, skor 2, er laus til umsóknar frá og
með 1. júní 1993.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Stefánsson,
yfirlæknir, í síma 601702.
RIKISSPIT AL AR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi meö starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferö sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferö allra þeirra, sem viö störfum fyrir og meö,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
"Afj a.'í^
T ónmenntakennari
Staða tónmenntakennara er laus við Tónlist-
arskóla Eyjafjarðar næsta skólaár.
Starfið felst í tónmenntakennslu í grunnskól-
um á starfssvæði Tónlistarskóla Eyjafjarðar,
svo og forskólakennslu.
Upplýsingar veitir skólastjóri, Atli Guðlaugs-
son, í símum 96-31171 og 985-36571.
Hjúkrunarfræðingar
athugið
í Skjólgarði er laus staða hjúkrunarfræðings.
Einnig vantar okkur við sumarafleysingar.
Skjólgarður er með 31 rúm á hjúkrunardeild
og 10 íbúa á dvalarheimili. Auk þess er starf-
andi fæðingardeild á heimilinu með 12-16
fæðingum á ári. 4 hjúkrunarfræðingar eru í
starfi í Skjólgarði.
Vert er að benda á að atvinna er næg á
Höfn, veðurlag milt og náttúrufegurð í
Austur-Skaftafellssýslu er margrómuð.
Allar nánari upplýsingar veita Amalía
Þorgrímsdóttir, hjúkrunarforstjóri, og
Ásmundur Gíslason, forstöðumaður,
í símum 97-81221 og 81118.
Skjólgarður,
Höfn, Hornafirði.
Stórt fyrirtæki
á Stór-Reykjavíkursvæðinu óskar að ráða nú
þegar aðstoðarmann á skrifstofu í hlutastarf
eða með sveigjanlegum vinnutíma. Æskilegt
er að viðkomandi hafi góða kunnáttu í rit-
vinnslu og íslensku máli. Kunnátta í ensku
og reynsla í fasteignaviðskiptum er einnig
kostur. Hér gæti verið um að ræða gott starf
fyrir námsmenn á síðasta ári í viðskipta- eða
lögfræði sem vilja öðlast góða reynslu í at-
vinnulífinu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf
og launakröfur skulu sendar auglýsingadeild
Mbl. fyrir 25. maí nk. merktar: „Trúnaðarmál
- 0825“.
Dreifingarmiðstöð
Óskum að ráða deildarstjóra nýrrar
dreifingarmiðstöðvar hjá stóru deildaskiptu
þjónustufyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið:
Dagleg stjórnun dreifingarmiðstöðvar.
★ Skipulagning og þróun þjónustunnar.
★ Kynning og markaðssetning.
★ Áætlanagerð og stefnumótun.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi við-
skipta- og/eða verkfræðimenntun ásamt
reynslu af sölu- og markaðsstarfsemi.
Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af flutn-
ingsstarfsemi.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Dreifingarmiðstöð 115“.
Hagvai ngurhf
C—-7 Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 1 " Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir