Morgunblaðið - 16.05.1993, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1993
■» SCfc .4 / ir^i vc/n /n: a d
BWSk /i vy x.^17 JL / / / N/ V /\
Listmunauppboð
Klausturhóla
Antikhúsgögn o.fl. Uppboðið hefst kl. 16.15
í dag, sunnudaginn 16. maí, á Laugavegi 25.
SUMARHÚS/-LÓÐIR
Sumarbústaður - til sölu
Til sölu 42 fm sumarbústaður í Svarfhóls-
skógi, ca 90 km frá Reykjavík, á kjarrivöxnu
8.200 fm eignarlandi. Rafmagn og vatn.
Upplýsingar í síma 672900 á daginn og í
síma 76570 á kvöldin og um helgar.
A TVINNUHÚSNÆÐI
Verslunarhúsnæði
Til sölu glæsilegt verslunarhúsnæði í Skip-
holti 50. Stærð 125 fm.
Upplýsingar gefur Þorsteinn Steingrímsson,
Fasteignaþjónustunni, s. 26600.
Lagerhúsnæði
Höfum til leigu 400 m2 lagerhúsnæði í Fáka-
feni. Afgreiðsludyr eru rafdrifnar og stórar.
Lofthæð er 4 metrar.
Vinsamlegast hafið samband við Ómar eða
Skafta.
Teopaíand
Parketgótf
sími 671717.
Byggðaverk hf. auglýsir
eftirtaldar eignir til sölu
eða leigu:
mm -%{W* iygmf
Bæjarhraun 2, Hafnarfirði
í þessu glæsilega húsi að Bæjarhrauni 2 er
til leigu gott fullbúið 90 fm skrifstofuhús-
næði á jarðhæð. Sérinngangur, kaffi- og
snyrtiaðstaða, mjög hentugt fyrir t.d. tækni-
þjónustu, lögfræðistofu o.m.fl.
Upplýsingar gefa Árni eða Sigurður.
200 fm fullinnréttuð skrifstofuhæð
Til sölu rúmlega 200 fm fullinnréttuð skrif-
stofuhæð við Aðalstræti í Reykjavík.
Góður leigusamningur með traustum leig-
anda fylgir.
2 einingar undir verslun
Eigum enn óseldar tvær einingar undir versl-
un og eða skrifstofu í þessu fallega húsi á
góðum stað í Hafnarfirði.
Stærð eininga ca 115 fm og 92 fm.
Iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði
Höfum einnig til sölu í Hafnarfirði iðnaðar-
og skrifstofuhúsnæði, samtals um 480 fm.
Ct
BYGGÐAVERK HF.
Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði,
sími 54644, fax 54959.
Við Grensásveg
Höfum til leigu 420 fm húsnæði við Grensás-
veg með góðum innkeyrsludyrum, góðri að-
komu.
Upplýsingar í síma 688535 á vinnutíma.
Skrifstofuhúsnæði
óskasttil leigu
Lánastofnun óskar eftir 100 fm skrifstofu-
húsnæði til leigu. Þarf aðstöðu fyrir þrjár
skrifstofur, fundarherbergi, eldhús, snyrtingu
og geymslu. Nauðsynlegt er að bílastæði séu
til staðar.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„S - 14878“ fyrir 21. maí 1993.
Skrifstofuhúsnæði til
sölu/einbýlishús óskast
Til sölu gott skrifstofu/iðnaðarhúsnæði á 3.
hæð með fallegu útsýni. Má nýta á ýmsan
hátt t.d. sem vinnustofur listamanna. Einnig
mögulegt að langtímaleigusamningur fylgi.
Leigutekjur kr. 1.400.000,- á ári.
Skipti möguleg á góðu einbýlishúsi, dýrara
eða ódýrara, helst í Garðabæ.
Upplýsingar í síma 674832.
SJÁLFSTJEDISV=LOKK(IRINN
I' Ý. I. A (i S S T A R !•
Sjálfstæðisfélag
Garðabæjar
Fundurverður haldinn þriðjudaginn 18. maí
kl. 20.30 að Lyngási 12.
Fundarefni:
Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra,
ræðir stjórnmálaviðhorfið.
Stjórnin.
Slllá auglýsingar
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Síðustu samkomur með Bengt
Sundberg í dag kl. 11 og 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á OMEGA
kl. 14.30.
f^nhjólp
Almenn samkoma f Þríbúöum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.
Mikill söngur. Samhjálparkórinn
tekur lagið. Vitnisburðir og
barnagæsla. Ræðumenn: Ingi-
björg Jónsdóttir og Óskar Jóns-
son frá Hjálpræðishernum.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hvitasunnukirkjan
Fíladelfía, Völvufelli
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Mike Fitzgerald.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræöumaöur Hafliði Kristinsson.
Gospel kór syngur. Barnasam-
koma og barnagæsla á sama
tíma. Allir hjartanlega velkomnir.
Ungt fólk
með hlutverk
) YWAM - lceland-—
Samkoma í Breiðholtskirkju
kl. 20.30.
Friðrik Schram prédikar. Mikill
söngur, lofgjörð og fyrirbæn.
Allir velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
I dag kl. 11: Helgunarsamkoma.
Kl. 19.30: Bæn. Kl. 20.00: Hjálp-
ræðissamkoma. Kapteinarnir El-
björg og Thor Norve Kvist
stjórna og tala.
Mánudagur 17. maí:
Kl. 20.00: Þjóöhátíöarfagnaöur
Norðmanna. Elbjörg og Thor
Norve Kvist stjórna.
Skúli Svavarsson talar.
Dagskráin fer fram á norsku.
Veitingar.
Allir velkomnir!
VEGURINN
^ Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Lokadagur raðsamkoma með
Lindu Bergling frá Arken kirkj-
unni í Svíþjóð
Sunnudag:
kl. 11.00 Fjölskyídusamvera.
Barnakirkja, krakkastarf,
fræðsla o.fl.
kl. 16.30 Almenn samkoma.
kl. 20.30 Almenn samkoma.
Allir hjartanlega velkomnir.
„Yfir sjúka munu þeir leggja
tiendur, og þeir verða heilir".
Munið miðvikudag kl. 18.00
biblíulestur sr. Halldórs S.
Gröndal.
SIK, KFUM/KFUK
Háaleitisbraut 58-60
Bænadagurinn
Almenn samkoma í kvöld í
Kristniboðssalnum kl. 20.30.
„Bænin í lífi mínu“. Sigurlína Sig-
urðardóttir og Halldóra Lára
Ásgeirsdóttir tala. Þú ert hjart-
anlega velkomin(n).
Kristilecjt
félag
heilbrigóisstétta
Fundur verður haldinn í safnað-
arheimili Laugarneskirkju,
mánudaginn 17. mai, kl. 20.00.
Sigurlaug Þorkelsdóttir segir frá
dvöl sinni í Senegal og sýnir
skuggamyndir.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson
flytur hugvekju.
Allir hjartanlega velkomnir.
Auðbrekka 2 . Kópavoqur
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Bibliulestur kl. 20.30.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Kristniboðsfélag karla,
Reykjavík
Fundur verður í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60,
mánudagskvöldið 17. maí kl.
20.30. Aliir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
Frá Sálarrannsóknafélagi
íslands
Aöalfundur félagsins verður
haldinn miðvikudaginn 19. maí á
Sogavegi 69 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kristín Þorsteinsdóttir, miðiil,
heldur skyggnilýsingu að
loknum aðalfundarstörfum.
Einungis skuldlausir félagsmenn
hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Ferðir-opið hús!
Sunnydagur 16. maí:
1) Kl. 10.30 Borgargangan 6.
ferð: Kaldársel - Bollar - Þrí-
hnúkar. Ekið að Kaldárseli,
gengiö sem leið liggur upp i
Grindarskörð að Bollum og til
norðurs að Þríhnúkum.
Hagstætt verð kr. 900,-.
2) Kl. 13 Kristjánsdalir - Þrí-
hnúkar. Gengið frá Bláfjallavegi
vestri á Kristjánsdalahorn (325
m) og að Þríhnúkum.
Verð kr. 900,-.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni austanmegin og Mörkinni
6. Góðir gönguskór áríðandi.
Þátttökumiði gildir sem happ-
drætti.
Allir út að ganga - kynnist
næsta nágrenni borgarinnar
með Ferðafélagi íslands íþess-
ari skemmtilegu ferðarröð!
Opið hús! Þriðjudaginn 18. maí
kl. 20.30 í Mörkinni 6. Ágúst
Guðmundsson, forstjóri Land-
mælinga kynnir störf Landmæl-
inga og kortagerð.
Miðvikudaginn 19. maíkl. 20.00
sólarlagsganga. Ekið suður í
Straumsvík og gengið þaðan að
Óttarstöðum. Verð kr. 600,-.
Göngudagur F.f sunnudag 23.
maí kl. 13.00.
Um hvftasunnuna 28.-31. maí
verður Ferðafélagið með úrval
spennandi ferða s.s. Öræfajök-
ul, Snæfellsjökul, Skaftafell
(þjöðgarðinn), Fimmvörðuháls
og Þórsmörk.
Ferðafélag Islands.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 «simi 614330,
Ferðakynning hjá Útivist
mánud. 17. maíkl. 20.30
Kynning á ferðum sumarsins og
upplýsingar um útbúnað og
fleira sem tengist ferðunum
verður í salnum á Hallveigarstíg
1, Iðnaðarmannahúsinu. Farar-
stjórar verða á staðnum og
hægt veröur að skrá sig í feröir.
Aðgangur er ókeypis gg kaffi-
veitingar verða í boði Útivistar.
Allir velkomnir.
Dagsferð sunnud. 16. maf
Kl. 10.30: Fjallganga nr. 2.
Geitafell við Þrengslaveg, Verð
kr. 1100/1200. Brottför frá BSÍ,
bensínsölu, miðar við rútu.
Dagsferð fimmtud. 20. maí.
(uppstigningardagur)
kl. 10.30: Fuglaskoöun -
Hafnarberg.
Dagsferð sunnud. 23. maf
kl. 10.30: Skólagangan,
lokaáfangi.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Sunnudagur 23. maí
Göngudagur
Ferðafélagsins
Kl. 11.00 Heiðmörk - Búrfell -
Kaldársel. Um klst. ganga frá
Heiömerkurreit Ferðafélagsins
um suðurhluta Heiömerkur að
Kolhól og Búrfellsgil í Kaldársel.
Nýjar gönguslóðir. Áning í Vala-
bóli. Brottför frá BSÍ, austan-
megin og Mörkinni 6.
Kl. 13.00 fjölskylduganga i
Valaból. Valaból er fallegur
gróðurreitur við Músarhelli í
Valahnúkum. Gengið frá Kald-
árseli og umhverfis Valahnúka.
Til baka um Helgadal. Um 1-1,5
klst. ganga. Áning í Valabóli við
söng og gítarspil. Þátttakendur
fá merki göngudagsins o.fl.
Brottför er frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin og Mörk-
inni 6 (Stansað m.a. við kirkjug.
Hafnarfirði). Verð aðeins 300 kr.
og frítt f. börn 15 ára og yngri.
Þátttakendur geta einnig komið
í ferðina kl. 13.00 á eigin bílum
í Kaldársel (6,7 km) suðaustan
Hafnarfjarðar. Fjölmenniö á 15.
göngudag F.í. og kynnist hollri
útiveru, gönguferðum og
skemmtilegu göngulandi.
Ferðafélag íslands.