Morgunblaðið - 16.05.1993, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.05.1993, Blaðsíða 41
 4ff t Sýningin VOR ’93 haldin í Hafnarfirði Morgunblaðið/Sverrir Fundað á netaverkstæði Nokkrir aðstandendur sýningarinnar, frá vinstri: Sten Johansson for- svarsmaður sýningarinnar, Sigurður Tr. Sigurðsson formaður Verka- mannafélagsins Hlífar, Jóhann G. Bergþórsson bæjarráðsfulltrúi, Magn- ús Jón Árnason bæjarráðsfulltrúi, Anton Bjarnason frá Félagi atvinnu- rekenda, Ellert Borgar Þorvaldsson bæjarráðfulltrúi og Ingvar Viktors- son formaður bæjarráðs. Fjölbreytt dagskrá at- hafnadaga í Kaplakrika SÝNINGIN VOR ’93 í Hafnarfirði, sem hefst 19. maí í iþróttahúsinu í Kaplakrika og stendur til og með 23. maí, er samstillt átak bæjaryf- irvalda í Hafnarfirði, atvinnufyrirtækja og verkalýðshreyfingar til að vekja athygli á þeirri vinnu sem fram fer í bænum. Tæplega 100 fyrirtæki og einstaklingar taka þátt í VORI ’93 og verður sýnd þar framleiðsla jafnt frá einyrkjum og stórfyrirtækjum. Aðstandendur sýningarinnar efndu til blaðamannafundar á Neta- gerðarverkstæði Jóns Holbergssonar á fimmtudag og kynntu dagskrá hennar. Liðlega 90 sýningarbásar verða til ráðstöfunar í Kaplakrika á 1.944 fermetra gólfi. Þar verður einnig fjölbreytt veitingaaðstaða fyr- ir gesti og sérstök leikaðstaða fyrir yngstu kynslóðina. Skemmtidagskrá Mikil áhersla er lögð á að virkja sem flesta bæjarbúa til þátttöku. Litrík skemmtidagskrá verður í tengslum við sýninguna. Leitað hefur verið eftir samstarfi við fjölda hafnf- irskra aðila; börn og unglinga, Vini Hafnarfjarðar, Ladda sem koma mun fram sam Gaflarinn, Listahátíð Hafnarfjarðar, iúðrasveitir, eldri borgara, smábátaeigendur, hljóm- sveitir, björgunarsveitir og marga fleiri aðila. Stöð tvö mun senda út fréttaþáttinn 19:19 frá Hafnarfirði á opnunardaginn og Bylgjan mun út- varpa reglulega frá Kaplakrika sýn- ingardagana. Efnt hefur verið til fegrunarátaks meðal hafnfírskra fyr- irtækja og á því að vera lokið fýrir opnun sýningarinnar. Ný sérhæfð sjúkraþjálf- unarstofa EYÞÓR Kristjánsson, sjúkraþjálf- ari (áður Sjúkraþjálfun Eyþórs) og Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkra- þjálfari (áður Sjálfsbjörg) opnuðu nýlega nýja sjúkraþjálfunarstofu, MT-stofuna í Síðumúla 37, 2. hæð. Eyþór og Oddný hafa sérhæft sig í Manuell Terapi sem byggir á sér- stökum sjúkdómsgreiningaaðferðum og meðferðarformi á sviði endurhæf- ingalækninga og felst í skoðun og meðferð á álagskvillum/sjúkdómum frá stoð- og hreyfikerfi og þá sér- staklega frá hryggjarsúlunni með aðliggjandi veíjum. Eyþór og Oddný luku prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Islands 1981 og héldu síðan í þriggja ára framhaldsnám í Manuell Terapi í Osló og útskrifuðust þar 1987 og 1989. Þriðji starfsmaður á stofunni með Eyþóri og Oddnýju eru Sandra Remigis, kanadískur sjúkraþjálfari, sem tekið hefur stóran hluta af fram- haldsnámi sínu í Manuell Terapi í Kanada. Á stofunni er ennfremur fullkomin baðaðstaða. MT-stofan verður opin til að byija með frá kl. 7-19. (Úr fréttatilkynningu) Sjúkraþjálfararnir á MT-stof- unni f.v. Sandra Remigis, Eyþór Kristjánsson og Oddný Sigsteins- dóttir. Nýjar sendingar Faxafcni við Suðurlandsbraut, sími 686999. UlJJU.5JJUJ.UjJ j'jJÍU U7UJÍ UU j'jJUTJUJi STEINAR WAAGE Verð frá kr. 3.995 Stærðir: 25-35 Komnir aftur - pantanir óskast sóttar! Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur í Domus MedicOy Egilsgöhj 3, sími 18519 Toppskórinn, Kringlunni, Veltusundi, Kringlunni 8-12, . simi 21212. sími 689212 J mm&szsim IhtMil Gerið verð- samanburð ■■■ í, FLÉTTURIMI 31-35 Opið sunnudag frá kL 1-3 b\l BYGGÐAVERK HF. Reykjavíkurvegi 60, 220 Hafnarfir&i. Grunnmyndir íbúða í einum stigagangi bækling með frekari upplýsingum. Sími 54644, fax 54959 Nýtt þak • nýir veggir • nýir gluggar • nýtt gler • nýjar hurðir • ný eldavél • nýtt baðkar • nýr vaskur • ný teppi • nýjar flísar • ný pípulögn • nýtt rafmagn • ný málað • allt nýtt. Fullbúnar íbúðir á frábæru verði í tilefni af sýningunniVor '93 þá býður Byggðaverk hf., fullbúnar 2ja og 4ra herbergja íbúðir á sérstöku 30 daga kynningarverði. Frágangur: íbúðirnar afhendast fullbúnar með öllum gólfefnum, innréttingum og tækjum, sameign er fullfrágengin og lóð er þökulögð Afhending: Fyrstu íbúðirnar afhendast í apríl 1994 og þær síðustu í júní sama ár. /verð: ^ 2ja herb. fullbúin íbúð kr. 5.800 þús. 4ra herb. fullbúin íbúð kr. 7.900 þús. Stæði í bílskýli kr. 200 þús. Dæmi um Staðfestingargjald: Húsbréf: Samkomulag: greiðsl 4ra herb. 200 þús. 5.135 þús. 2.565 þús. ukjör: 2ja herb. 200 þús. 3.770 þús. 1.830 þús. Samtals: 7.900 þús. 5.800 þús. Greiðslukjör okkar hafa alltaf verið með því besta sem þekkist. Lítið á aðstæður á byggingarstað. Hringið og fáið sendan litprentaðan bækling með frekari upplýsingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.