Morgunblaðið - 16.05.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAI 1993
eftir Elínu Pálmadóttur
I góðrí meiningu
illagert
Þó að fölni fortíðin
og fagrir geislar dvína,
láttu aldrei leiðindin
lama sálu þína.
varð henni Ingibjörgu R.
Magnúsdóttur í heilbrigðis-
ráðuneytinu að orði um daginn.
Þótt rauða hárið sé orðið hvítt
dytti engum í hug að þessi
geislandi kona sé að komast á
„hættualdurinn".
Glaðir og reifír gengu 3 þús-
und aldraðir niður Laugarveg-
inn sl. sunnudag að fagna ári
aldraðra. Ekki aldeilis bangnir.
Þama blasti við
hve hópur aldr-
aðra er orðinn
.. stór. í hátíðaræðu
kom fram talan
25 þúsund í
Reykjavík og eitt-
hvað um 40 þús-
und á landinu öllu.
Þama sást líka
hve aldraðir em
orðnir miklu betur
á sig komnir en
fyrrum. Nú hefur fólk hollari
og betri fæðu, stundar líkams-
rækt og færri reykja. í könnun
Hjartaverndar sannaðist að
heilsufar aldraðra hefur batnað
mikið. Þá ofur eðlilegt að þeir
vilji hafa eitthvað fyrir stafni.
Og hvað er heilsusamlegra en
vinna? Enda kemur það í ljós
í könnunum hér og erlendis. í
svömm 65-75 ára í könnun
Félagsvísindastofnunar og
Hagstofu 1990 um Lífkjör og
lífshætti á íslandi kom í ljós
að meiri hluti þessa fólks taldi
sig geta unnið fulla vinnu án
þess að þreytast of mikið og
gerðu margir. Ástæðuna fyrir
því að þeir hættu sögðu 62%
vera aldurstakmarkanir. Fjár-
hagsafkoman hafði ekki afger-
andi áhrif né heldur heilsan.
88% áttu ekki í neinum erfið-
leikum með að fara ferða sinna.
í annarri könnun sögðust 90%
mundu vilja vinna áfram í
hlutastarfi.
Um leið og þessi gífurlegi
fjöldi glaðra öldunga sást í sjón-
varpinu koma á Lækjartorg,
var einhver ráðstefnumaður í
útvarpsfréttum með þá uppást-
ungu að senda fólk heim úr
vinnu 65 ára og stéttarfélag
samþykkti að borga því smá-
vegis fyrir að víkja enn yngra.
Þetta mundu margir áreiðan-
lega þiggja.
Afsökun er aðéins eigingimi
sem snýr röngunni út, sagði
spakur maður. Mikið rétt, til-
gangurinn var að ryðja þeim
úr sæti. Hefði verið reynt í út-
löndum í atvinnuleysi, svo sem
á Norðurlöndum. En sleppt var
vondu áhrifunum. „Vinnulok
við 65-70 ára aldur valda oft
stöðnun og óvirkni. Slíkt er
ekki læknisfræðilega réttlæt-
anlegt," sagði Ólafur Ólafsson ■
landlæknir í viðtali í fyrra, þeg-
ar rætt var við hann, öldrunar-
lækni, geðlækni og fleiri sér-
fróða til að leita svara um or-
sök svo mikillar vanlíðunar
karlmanna 65-74 ára að sjálf-
morðstíðni þeirra hafði á árun-
um 1970-90 rokið upp fyrir
alla aðra aldursflokka. Allir
sem um fjölluðu töldu starfslok-
. in einmitt á þessu skeiði mesta
bölið. Menn misstu vinnuna,
margir félagsskap sinn og um
leið fínnst þeim þeir ekki lengur
hafa hlutverk í lífínu. Konunum
virðist ganga betur, enda halda
þær áfram hlutverkinu inni á
heimilinu.
Að hafa atvinnu eru sjálf-
sögð mannréttindi, stóð einmitt
á plakati frá Félagi eldri borg-
ara, sem dreift var. Aldraðir
sjálfír hafa það nefniiega ekki
á stefnuskrá sinni að láta ýta
sér æ fyrr til hliðar. Upp á plak-
atið skrifuðu öll stóru verka-
lýðsfélögin. Þar stóð m.a.: Að
hafa atvinnu er viðurkenning á
þátttöku í samfélaginu. Að hafa
atvinnu eykur sjálfsvirðingu og
heilbrigði ... Sveigjanlegur
vinnutími og starfslok þýða í
flestum tilvikum: Færri heim-
sóknir í heilbrigðiskerfíð. Minni
afskipti félagslegrar þjónustu,
minni notkun lyfja. Atvinnuþát-
taka fólks á efri árum skapar
verðmæti.
í rannsóknum kemur æ betur
í Ijós að atvinnuleysi fylgir van-
heilsa. Einkennin eiga líka við
um aldraða, sagði landlæknir í
fyrmefndu viðtali. Allar rann-
sóknir sýni að atvinnulausum
eða þeim sem eiga yfir höfði
sér að vera vikið ófúsum til
hliðar sé mun hættara við
hækkun blóðþrýstings, blóð-
fítu, streituhormóna og þvagút-
skilnaði og þá sama viðbragð
ungs fólks og aldraðra við að
missa vinnuna. Magasár, bak-
veiki, höfuðverkur og þreyta
aukast og svo koma sállíkam-
legar orsakir og heilablæðing-
um Qölgar. Að setjast í helgan
stein kemur ekki heim við nú-
tíma læknisfræðiþekkingu,
sagði landlæknir. Og verður að
teljast úrelt. Meðferð öldrunar
er ekki algjör hvíld heldur and-
leg og líkamleg örvun.
Ekkert ræddi þetta ráð-
stefnufólk um líðan eldra fólks-
ins. Bara kostnaðinn. Jú, drepið
á að margir muni áreiðanlega
vilja láta víkja sér úr starfi. í
fyrmefndri könnun voru þeir
aðeins 10% og Þór yfirlæknir
öldrunardeildar Landspítalans
sagði í viðtali að flestir segðust
aðspurðir hefðu kosið að halda
áfram vinnu. En Þór nefndi líka
andlegt öfbeldi við aldraða, sem
hann kvað meira en vitað er
um. Átti þar við þegar aldraðir
eru neyddir til að gera það sem
þeir vilja ekki, svo sem skipta
um húsnæði og dvalarstað.
Þetta ofbeldi kemur fram í að
leggja svo fast að gamla fólkinu
að það er næstum pínt til þess
sem er því þvert um geð. „í
góðri meiningu/gert var illa,“
eins og Páll Ólafsson kvað.
Ætli sé ekki stutt í það hér?
„Nú mætti danskurinn fara
að vara sér,“ hafa kannski ein-
hveijir pólitíkusamir hugsað
eins og gamansöngvarinn
góðkunni, þegar þeir sáu fylk-
ingu aldraðra koma niður á
Lækjartorgið. Þetta afl, aldrað-
ir borgarar, er að verða eitt það
sterkasta í.landinu. Duga 25
þúsund kjósendur í Reykjavík
ekki langt í meirihluta? Ekki
víst að aldraðir þurfí að láta
ryðja sér frá, þegar þeir átta
sig á afli sínu.
Gríptu tækifærið strax
Við hjáVatnsrúmi erum með tilboð til þín vegna hagstæðs samnings við fremsta vatnsdýnuframleiðandann (
dag. Þar sem framleiðsla vatnsdýna hefur þróast mikið á undanförnum 3 árum bjóðum við þér að taka
gömlu vatnsdýnuna upp í nýja. Helstu nýjungamar eru að dýnan er nú fiberfyllt og með sérstökum
bakstuðningi sem heldur undir mjóhrygginn sem er mjög gott fyrir bakveika. Þá eru öll samskeyti nú undir
dýnunni, þykkri vínill, hornin þreföld og margsoðin. Einnig er sérstaklega hitaþolið botnstykki sem eykur
varmaleiðni og sparar því rafmagniö.
Þessar nýju dýnur eru framleiddar I USA af Land & Sky. Að sjálfsögðu tökum við gömlu
vatnsdýnurnar upp í þá nýju óháð því hvar þú keyptir þá gömlu.
Láttu heyra í þér sem fyrst því magnið er takmarkað.
I
Verðdæmi I
Verðdæmi 2
Land & Sky 550 verð kr. 44.396,- Land & Sky 750 verð kr. 50.577,-
Gamla vatnsdýnan verð kr. -12.000,- Gamla vatnsdýnan verð kr. -12.000,-
Verð til þín 32.396,'
Verð til þfn 38.577,-
Sérstakur bakstuðningur
tryggir æskilega legu
og stuðnlng við hrygg.
Stuðningspúðar gera
allar tilfæringar á
dýnunni að leik einum.
Hjúkar polýestertrefjar
veita fullkomin þægindi.
Treljapúði flýtur
ðheftur og minnkar
þannig álag og sveigjur
sem stytta endingu
Lokaðir trefjapúðar auka dýnunnar.
festu og tryggja rétta lögun.
Við bjóðum að sjálfsögðu upp á Visa og
Euro raðgreiðslur. Einnig 7% staðgreiðsluafslátt.
Aðeins það besta fyrir viðskiptavini okkar.
W
Vatnsrum hf
Skeifunni 11 a, s(mi 688466.
Opið virka daga
frákl. 10-18
laugardag frá kl. 10-14
REYKJAVÍKUR
TRIMMARAR - SKOKKARAR - HLAUPARAR - MARAÞONHLAUPARAR
UNDIRBÚNINGSÞJÁLFUN FYRIR
REYKJAVÍKUR - MARAÞON
Forvarnar - og endurhæfingastööin MÁTTUR
ásamt fleiri aöilum stendur fyrir undirbúnings námskeiöi fyrir þá sem hyggjast taka þátt í
Reykjavíkur - maraþoni. Námskeiöiö er fyrir alla.
Frá skemmti skokkurum til maraþonhlauþara - framhaldshópur.
Námskeiðið stendur í þrjá mánuði
og hefst mánud. 17 maí.
Helstu þættir námskeiösins eru:
Þolmælingar, mat á heilbrigði, fyrirlestrar,
verklegar æfingar um þolþjálfun, teygju-
æfingar, mataræði.vökvatap og sykurþörf.
Myndbandsupptökur af hlaupastíl,
sérfræðingar ráðleggja um val á skófatnaði
og innleggjum. (Stoö.)
Þátttakendur hafa ótakmarkaðan aðgang að
tækjasölum og leikfimitímum stöövarinnar.
(þróttafræðingar frá MÆTTI og langhlauparar
leiðbeina þátttakendum 3-4 sinnum í viku við
hlaupaþjáifunina.
Allir þátttakendur fá MÁTTAR boli.
Skráning er hjá MÆTTI Faxafeni 14, í síma 689915
A I R
Nike býöur öllum þátttakendum
í þessarí undirbúningsþjálfun
Nike vörur á sérstöku maraþon
veröi í verslun okkar
Frísport á Laugavegi 6.
VILJI-VELLÍÐAN
FAXAFEN114,108 REYKJAVlK, SÍMI 689915