Morgunblaðið - 19.05.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 1993
23
Kasparov og Short úti-
lokaðir frá mótum FIDE?
London. The Daily Telegraph.
FIDE, alþjóðaskáksambandið, hefur hótað Rússanum Garrí Ka-
sparov og Englendingnum Nigel Short að þeir verði útilokaðir frá
þátttöku í alþjóðlegum skákmótum láti þeir verða af fyrirhuguðu
einvígi sínu í London í september.
í yfirlýsingu sagðist FIDE
myndu svipta þá Kasparov og
Short skákstigum sem gæti leitt
til þess að þeir yrðu sjálfkrafa úti-
lokaðir frá þátttöku í stærstu mót-
um.
FIDE skýrði frá þessari ákvörð-
un nokkrum stundum eftir blaða-
mannafund Kasparovs og Shorts í
London í fyrradag. Á fundinum
lýstu skákmennimir ákvörðun
sinni um að stofna Samband at-
vinnuskákmanna (PCA) sem ,já-
kvæðustu þróun sem átt hefur sér
stað innan skákíþróttarinnar um
langan aldur.“
Murray Chandler, ritstjóri skák-
ritsins British Chess, sagði að hót-
un FIDE jafngilti því að háskóla-
prófessor væri sviptur námsgráðu.
Stigalausir skákmenn ættu ekki
greiða leið í mót, mótshaldarar
hefðu lítinn áhuga á keppendum
af því tagi. Chandler sagði að með
því verða sviptur skákstigum væri
atvinnuskákmaður_ í raun sviptur
lífsviðurværinu. Óvíst væri þó
hversu ákvörðunin myndi bitna á
Kasparov.
Adam Black, vinur og fyrrum
umboðsmaður Shorts, viðurkenndi
að hótun FIDE væri sýnu alvar-
legri fyrir enska skákmeistarann.
Short er talinn 11. sterkasti skák-
maður heims en Kasparov er óum-
deilanlega sá langbesti. „Garrí er
í þeirri stöðu að hann getur farið
hvert sem er og unnið fyrir sér
Finnska stjórnin vill lækka lágmarkslaun
Hóta að svara með
allsherjarverkfalli
llclsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
FINNSKA alþýðusambandið, SAK, hótar að boða til allsherjarverk-
falls í lok mánaðarins til að mótmæla nýjum lögum um breytt vinnu-
skilyrði og kjarasamninga. Talið er að flest útflutningsfyrirtæki
muni hafa stöðvast í dag vegna verkfallsaðgerða ýmissa starfshópa.
í dag hefja um 100.000 starfs-
menn í málm- og pappírsiðnaði auk
hafnarverkamanna verkfall sem
síðan verður víðtækara ef ekki
semst. Alls eru félagar sambandsins
um ein milljón.
Fyrst og fremst er hér um að
ræða valdabaráttu milli verkalýðs-
hreyfingarinnar og hægristjórnar
Eskos Ahos forsætisráðherra.
Stjórnin vill einfalda samningakerfi
vinnumarkaðarins, einnig stuðla að
auknu frelsi varðandi ákvarðanir
um vinnutíma og önnur vinnuskil-
yrði. Verkalýðshreyfingin óttast að
með þessu ætli hægrimenn og at-
vinnurekendur að grafa undan fé-
lagslegu öryggi launþega.
Kveðjustund
RICHARD Nixon, þáverandi
Bandaríkjaforseti, skýrir þjóð-
inni frá því að hann hyggist segja
af sér embætti vegna Watergate-
málsins.
máli sínu: „Ég tel að fólkið í þessu
landi líti svo á að ... hvað skal segja,
þetta sé alsiða ... að allir séu að
hlera alla, að stjórnmálin séu svona.“
Nixon lét þess getið að atvinnu-
stjórnmálamenn og siðgæðispostular
í Washington, sem forsetinn hafði
vægt til orða tekið takmarkaður
mætur á, myndu vafalítið hafa aðra
skoðun á Watergate-málinu en al-
þýða manna í Bandaríkjunum. Hins
vegar væri þess ekki að vænta að
bylgja hneykslunar og reiði myndi
rísa gegn forsetanum og nánustu
samtarfsmönnum hans.
I samtölum þessum, sem raunar
voru tekin upp með sérstökum hler-
unarbúnaði er Nixon lét koma fyrir,
kemur einnig fram sú hugmynd að
gera Gordon nokkurn Liddy, fyrrum
starfsmann alríkislögreglunnar
(FBI) og ákafan stuðningsmann
Repúblikanaflokksins, ábyrgan fyrir
innbrotinu. Liddy stjórnaði að sönnu
innbrotinu og hann hlaut lengsta
fangelsisdóm allra þeirra sem bendl-
aðir voru við Watergate-málið, rúm
fjögur ár.
Gordon Liddy fórnað
Á skrifstofu Nixons í Hvíta húsinu
gerir Haldeman forsetanum grein
fyrir hvernig nota megi Liddy: „Það
sem er svo dásamlegt við að gera
Liddy ábyrgan er sú staðreynd að
allir þeir sem voru undir stjórn hans
munu trúa því að hann hafi átt frum-
kvæðið. Síðan förum við fram á að
menn sýni miskunn,“ segir skrif-
stofustjórinn og bætir við að þá geti
starfsmenn Hvíta hússins dregið upp
ákveðna mynd af Liddy. Honum
verði lýst sem „dálítið rugluðum
krakka, sem las of margar njósna-
sögur ... hálfgerðum apaketti."
Richard Nixon sagði af sér emb-
ætti forseta Bandaríkjanna 8.ágúst
1974 er hann átti yfir höfði sér
ákæru vegna Watergate-málsins,
mesta hneykslis í stjórnmálasögu
Bandaríkjanna. Haldeman eyddi 18
mánuðum ævi sinnar á bak við lás
og slá þar eð Nixon forseti neitaði
að náða hann. Haldeman hélt því
síðar fram að forsetinn hefði allt frá
upphafí málsins skipulagt samsærið
og stjórnað tilraunum ráðamanna til
að þaga það í hel.
með sýningarmótum. Hann getur
hundsað FIDE-mótin því allir vita
að hann er bestur. Öðru máli gegn-
ir um Nigel Short, og staða hans
yrði enn verri tapi hann einvíginu
í haust,“ sagði Black.
Samtök Kasparovs og Short,
PCA, skýrðu í fyrradag frá áform-
um um að halda sérstaka heims-
meistarakeppni í framtíðinni sam-
hliða keppni FIDE. í ljósi hótana
FIDE er óvíst um hvort eitthvað
verður af þátttöku í mótum PCA
því þar með útilokuðu upprennandi
skákmenn sig frá þeim tekjumögu-
leikum sem í 'alþjóðamótum FIDE
felast.
Reuter
Útskúfaðir
GARRÍ Kasparov og Nigel Short (t.h.) sögðust á blaðamannafundi
í London í fyrradag hafa stigið framfaraspor er þeir ákváðu að
hundsa FIDE. í baksýn má sjá enska stórmeistarann Raymond Keene.
Lágmarkslaun verði lækkuð
Samkvæmt fyrirhuguðum lögum
sem stjórnin hyggst setja yrði hægt
að ráða fólk undir 25 ára aldri á
þriðjungi lægri launum en ákvæði
kjarasamninga um lágmarkslaun
kveða á um. Einnig er ætlunin að
framlag launþega í sjóði atvinnu-
leysisbóta verði hækkað en sem
stendur koma greiðslur í sjóðina
aðallega frá ríkisvaldi og atvinnu-
rekendum.
Verkalýðshreyfingin krefst þess
að ekki verði gerðar breytingar í
þessum efnum án samráðs við hana.
Alþjoðleg avöxtun
á þínnm peningum!
Fjárfesting í erlendum verðbréfúm er áhugaverður fjárfestingarkostur sem við bjóðum þér.
Hægt er að velja um marga sjóði sem eru í umsýslu Skandia International, Enskilda Asset
Management og Gartmore Indosuez Asset Management.
Hér er um að ræða bæði hlutabréfa- og skuldabréfasjóði og er einungis fjárfest í
verðbréfum sem skráð eru í erlendum kauphöllum. Að okkar mati er skynsamlegt að
fjárfesta í erlendum verðbréfum til langs tíma til að dreifa áhættunni í
verðbréfaviðskiptum. Að auki er vert að benda á
að ásókn í erlend verðbréf hefur farið mjög
vaxandi að undanfömu, ekki síst vegna ÆMSS>3MtL Ildlcl
Fjárfestingafélagiö Skandia hf.
batnandi efnahagsástands í heiminum.
RAUNAVOXTUN 19 9 2
SKANDIAINTERN ATION AL
SKANDIA GERMAN EQUITIES 1,06%
SKANDIA SWISS EQUITIES 15,40%
SKANDIA UK EQUITIES 6,72%
SKANDIA US EQUITIES 31,86%
SKANDIA JAPANESE EQUITIES -4,31%
SKANDIA GERMAN BONDS 14,28%
SKANDIA JAPANESE BONDS 19,53%
SKANDIA UK BONDS 18,38%
ENSKILDA ASSET MANAGEMENT
CONTINENTAL EUROPE 8,67%
FAR EAST 44,90%
GLOBAL 11,63%
NATURAL RESOURCES 45,56%
MEDITERRANEAN 12,80%
NORTH AMERICA 27,90%
JAPAN - 8,89%
GARTMORE INDOSUEZ ASSET MANAGEMENT
INDOSUEZ OAT
GESTION FRANCE INDEX
GESTION FRANCE PLUS
GESTION FRANCE SECURITÉ
19,61%
14,31%
14,40%
9,85%
Fortfðarávöxtun er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð.
Ráðgjafar okkar veita þér allar frekari upplýsingar í síma 619700 eða 689700,
og að sjálfsögðu ert þú velkominn í ný húsakynni okkar á Laugavegi 170 eða Kringlunni 8-12.