Morgunblaðið - 19.05.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.05.1993, Blaðsíða 32
MORGUNBLADID AllJ)VIKUDAGljK 19. MAÍ 1993 32 _________________ Hafnarfiarðarkirkja Öldruðu fólki boðið til kirkju á uppstigningardag SVO SEM tíðkast hefur undan- farin ár er öldruðum boðið sér- staklega til guðsþjónustu í Hafnarfjarðarkirkju á upp- stigningardag, fimmtudaginn 23. maí. Hefst hún kl. 14 og eftir hana er boðið til kaffisam- sætis í Álfafelli. Séra Þórhildur Ólafs prédikar við guðþjónustuna en báðir prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari. Karlakórinn Þrestir mun leiða söng í kirkjunni og syngja líka í Álfafelli. Þar mun og Þórdís Mó- sesdóttir lesa ljóð. Rúta kemur að Sólvangi um kl. 13.30, Höfn um kl. 13.40 og Sól- vangshúsum um kl. 13.46 og ekur þaðan að kirkju og þangað aftur síðar. Sóknarnefndarmennirnir Krist- ján Björnsson, Fjóluhvammi 2, og Oddur Borgar Björnsson, Hellu- braut 6, eru og við því búnir að annast bílferðir ef óskað er og taka við pöntunum þar um frá kl. 10-12 þennan dag. Hafnarfjarðarkirkja. Fjölmargir hafa sl. ár sótt og notið guðsþjónustunnar í Hafnar- fjarðarkirkju á uppstigningardag og átt góða og gleðiríka samveru í Álfafelli eftir hana og þess er vænst að svo verði einnig nú. Gunnþór Ingason, sóknarprestur Ráðstefna um stöðu háskólamanna HALDIN verður ráðstefna á uppstigningardegi, fimmtu- daginn 20. maí 1993, í Borgartúni 6 um stöðu háskóla- manna. Ráðstefnan hefst kl. 13 stundvíslega. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Er menntun vanýtt auðlind? kvenna- og menntafjandsamlegt?; Tryggvi Þór Herbertsson, hag- fræðingur: Arðsemi háskóla- menntunar; Unnur Steingríms- dóttir, deildarstjóri: Rannsóknir og þróunarstarf sem forsenda ný- sköpunar; Jón Sigurðsson, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra: Viðhorf ríkisins til þáttar menntunar og rannsókna í hagvexti og Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor: Vísindi og viska - velmegun og auðlindir. Ráðstefnustjóri er Sigurgeir Þor- geirsson, aðstoðarmaður landbún- aðaráðherra. Ráðstefnan er öllum opin. NGAVEIÐIMESSA í PERLUNNI Opiö í dag frá kl. 17 — 22. Opið í kvöld hjó Stangaveiðifélagi Reykjavíkur - Kynning á Hítaró kl. 20.30. Frummælendur verða: Kristín Einarsdóttir, þingkona: Markmið menntunar, endurmenntunar og starfsþjálfunar einstaklinga; Mar- grét Björnsdóttir, endurmenntun- arstjóri: Viðhald menntunar: Sóun .eða nauðsyn; Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur: Er launakerfið 3M Málningarlímbönd Vatnabátar EVfflfíUDE Utanborðsmótorar 2.3 hp - 300 hp ÞÓRf SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11 í hvimleiðum heimi Kvikmyndir Sæbjöm Valdimarsson Regnboginn Ólíkir heimar - Close to Eden Leikstjóri Sidney Lumet. Handritshöfundur Rob- ert J. Averich. Aðalleikendur Melanie Griffith, Eric Thal, John Pankow, Tracey Pollan, Lee Sheridan, Mia Sara, Jamey Sheridan. Bandarísk. Manifesto Films 1992. í lokuðum heimi hinna strang- trúuðu hasidísku gyðinga í New York er framið morð. Þeir ráða yfir hinum öfluga eðalsteinamark- aði borgarinnar, sá m'yrti er dem- antakaupmaður og eru horfin mik- il verðmæti úr eigu hans. Skot- glaðri lögreglukonu (Griffith) er fengið málið og kemst að þeirri niðurstöðu að illvirkjann sé að finna innan raða hinna heittrúuðu. Meðfram rannsókninni hrífst hún af friðsamlegri (einkum fyrir manneskju í hennar starfi) og framandi hugmyndafræði hasída og þá ekki síður af hinum fjall- myndarlega, verðandi leiðtoga þeirra (Thal). Sem kunnugt er á leikstjórinn Sidney Lumet annað hvort slæma daga (The Wiz,. Daniei, Power, Family Business) eða skínandi (Serpico, Dog Day Afternoon, Prince of the City, The Verdict, Q&A). Og þó svo að þeir síðar- nefndu séu til allrar blessunar mik- ið fleiri þá flokkast Ólíkir heimar engu að síður með mistökunum. Þó eru hér til staðar þeir þættir sem Lumet kann leikstjóra best skil á, borgin hans, New York, og það fjölbreytilega mannfólk sem hana byggir. En margt fer úr böndum. Handritið flatt og vekur hvorki athygli né áhuga fyrir per- sónum né innihaldi. Þó er okkur sýnt á bak við tjöldin hjá hasídun- um sem eru allsráðandi í hinu éin- Fýlupúki Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Allt fyrir ástina („I Don’t Buy Kisses Anymore“). Sýnd í Há- skólabíói. Leikstjóri: Robert Marcarelli. Aðalhlutverk: Jason Alexander og Nia Peeples. Allt fyrir ástina á sjálfsagt að heita rómantísk gamanmynd en hún ijallar um tilraunir feitlagins, lítils mömmudrengs til að næla sér í fallegan kvenmann. Eina skiptið sem maður hlær að henni er þegar hún verður svo ofurhallærisleg að maður skellur uppúr. Helsti galli myndarinnar, og gallamir eru ófáir, er aðalpersón- an, sem Jason Alexander leikur. stæða og framandi Demanta- hverfi, steinsnar frá iðandi nútíma- mannlífinu á Broadway. En sá borgarhluti er manni jafn mikill leyndardómur eftir sem áður. Engu að síður er sú ofurathygli og ástúð sem Lumet umvefur gyð- ingana stæðsti galli myndarinnar. í óratíma má áhorfandinn fylgjast með trúarkreddum og matarvenj- um hasída sem reyna um of á þolrifin áður en yfír lýkur. Weir gerði hliðstæðan heim Ámishfólks- ins jafn forvitnilegan og seiðmagn- aðan í Vitninu og Lumet tekst að gera veröld hasídanna hvimleiða með eilífum lofsöng og endalaus- um tilvitnunum í Tóru, Kabbalah, Talmúð. Fyrir bragðið fær áhorf- Annan eins fýlupúka hefur maður ekki séð á hvíta tjaldinu frá upp- hafí. Óþolandi leiðindin í honum nægðu til að gera gat á ósonlagið. Færir þú í líkamsrækt fyrir ástina? er spurt í auglýsingu með mynd- inni og frómt frá sagt er innihald þessarar gamanmyndar jafnvel ómerkilegra en slagorðið. Alexander leikur kubbslega mömmudrenginn sem orðinn er þrítugur og sér fram á piparsveina- líf þegar hann hittir fallega há- skólamær sem vinnur fyrir sér með píanóleik og söng á matsölustað hjá frænda sínum. Nia Peeples leikur hana og eitt af því sem vek- ur talsverða kátínu er hvernig hún þykist leika á píanóið; það er eins og hún sé að hnoða deig. Svo syng- ur hún fallega mánsöngva. Kubburinn verður yfir sig ást- fanginn og reynir líkamsrækt til andinn stöku sinnum á tilfinning- una að hann sé að horfa á heimild- armynd um matarvenjur og al- mennt ágæti gyðingdóms, en ekki spennu- og skemmtimynd. Og handritssmiðurinn Averich er eng- in Bellows né Singer. Kíimnigáfan við frostmarkið og ástarsagan heldur væmin og ósannfærandi. Griffith er ýmist óeðlilega dig- urbarkaleg (þegar hún á að vera harðjaxlinn) eða kisuleg (þegar hún á að vera harðjaxlinn ást- fangni). Richardson stendur sig vel að venju en annar gamall sam- starfsmaður Lumets, kvikmynda- tökustjórinn Andrzej Bartkowiak, er þó eini maðurinn sem fær tæki- færi til að hefja sig uppúr meðal- mennskunni í Ólíkum heimi, sem reyndar hét Stranger Among Us á örstuttu æviskeiði sínu vestra, og virðist það nafn eiga betur við. að minnka mörinn en á meðan er hún að skrifa lokaritgerð um hann sem feitabollu. Þegar hann kemst að því rennur á hann þvílík fýla og sjálfsvorkunin verður svo stór- kostleg að það tekur út yfir allan þjófabálk og í stað þess að kalla á samúð verður persónan gersam- lega óþolandi. Ekki bætir leikurinn úr skák en Jason þessi Alexander hefur ein- mitt alla burði til að vera óþol- andi, lítill mömmudengur, sem gæti drepist úr sjálfsvorkunn. Nia Peeples er skutlan í sögunni og veit vel af því en allar tilraunir hennar til að skapa sannfærandi persónu úr háskólanemanum deyja út við píanóhnoðið. Efnislega nægði þessi mynd í einfaldan þátt af Santa Barbara. Þetta er dagsápa sem sloppið hefur úr kassanum. Uppi gerist uppalandi Saga-Bíó: Meistaramir - og unni starfinu ofurheitt, að Champions hveiju grunar ykkur að hann snúi Leikstjóri og handntshöfundur Stephen Herek . Aðalleikendur Emilio Estevez. Bandarísk. Walt Disney Productions 1992. Þeir sem sáu Bad News Bears kannast örugglega við efnisþráð- inn hér. Meistararnir er nánast ósvífín eftiröpun, hér fást reyndar vandræðaunglingar við ísknattleik í stað hornabolta. Og öll er hún skelfingar ósköp fyrirsjáanleg. Montrassinum og lögmanninum Estevez er refsað fyrir ölvuna- rakstur með því að taka að sér þjálfun óstýrilátra krakkagemsa í íshokkí. Enda piltur fyrrum upp- rennandi stjarna í íþróttinni. Hann hatar þau og þau hafa á honum megnustu andstyggð, svona til að byija með. Við vitum hvernig það fer. Þau geta minna en ekki neitt, þekkja tæpast knatttré frá kýrhala við vitum í hvaða sæti þau enda í lokin. Löggepillinn hafði ekki tap- að máli er hann lenti í vínslugsinu sér í lokin? Móðir efnilegasta ungl- ingsins í liðinu hans er skilin við einhvern lúsablesa, ekki orð meira um það. Svo mætti lengi telja. Klisjur á kiisjur ofan. En ekki veit ég hvað veldur, myndin er engu að síður slarkfær lengst af. Afar neikvætt hugarfar í myndarbyijun hjálpar. Þau undur og stórmerki gerast að Estevez, sem fátt hefur gert af viti síðan í Morgunverðarklúbbn- um, stendur sig sómasamlega og sýnir hæfileika sem gamanleikari í heldur vanþakklátu hlutverki uppalögmannsins sem gerðist uppalandi. Unglingamir skila sínu þokkalega en ekkert eitt hlutverk stendur uppúr, Estevez vantar sterkan mótleikara á borð við Tat- um O’Neal í hafnarboltamyndinni. Á þeirri sýningu sem ég sá var urmull unglinga um fermingu og þeir virtust skemmta sér konung- lega. Hún ætti því ekki að fara fyrir brjóstið á þeim nýafdjöfluðu. ÁRNAÐ HEILLA Ljósm.stxjfan Nærmynd HJÓNABAND. — Gefin voru sam- an í hjónaband í Laugarneskirkju þann 27. mars sl. af sr. Halldóri Gunnarssyni, Áslaug Magnúsdóttir og Gunnar Thoroddsen. Heimili þeirra er á Bragagötu 16. Ljósm.stofan MYND HJÓNABAND. — Gefin voru sam- an í Víðistaðakirkju þann 3. apríl sl. af sr. Sigurði Helga Guðmunds- syni, Ásthildur Guðlaugsdóttir og Kristján Sigurbergsson. Heimili þeirra er í Hamraborg 26, Kópa- vogi. Ljósm.stófan Nærmynd HJÓNABAND. — Gefin voru sam- an í hjónaband í Bústaðakirkju þann 10. apríl sl. af sr. Pálma Matthías- syni, Ingibjörg Siguijónsdóttir og Andri G. Olafsson. Heimili þeirra er í Hraunbæ 182.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.