Morgunblaðið

Date
  • previous monthMay 1993next month
    MoTuWeThFrSaSu
    262728293012
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    31123456

Morgunblaðið - 26.05.1993, Page 33

Morgunblaðið - 26.05.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1993 33 Hjóimminning Petrea Jónsdóttir ogJón Kr. Níelsson Fædd 16. október 1904 Dáin 14. maí 1993 Fæddur 13. júní 1898 Dáinn 20. mars 1980 Við kvöddum Petru ömmu á Akur- eyri bjartan og fagran maídag. Það var við hæfí að Eyjaíjörður skartaði sínu fegursta þennan dag. Petra amma var Eyfirðingur í húð og hár, Árskógsströnd og Akureyri hennar heimkynni. Hún bjó í Grænugötu við Eiðsvöllinn í nærri þrjátíu ár. Úr glugganum hennar sér upp í skógi- vaxna byggðina á Brekkunni og ofar rísa Súlur. í suðri sér fram í búsæld- arlega Eyjafjarðarsveit og að austan- verðu liggur Vaðlaheiði í margbreyti- leik sínum. Þama leið þeim vel, Jóni afa og Petru ömmu. Vildu hvergi annars staðar vera. Þetta var h'ka einn helsti sólskinsreitur bernskunn- ar, þar sem maður fékk alltaf gott atlæti, umhyggju og ástúð. Þegar strákur var sendur heim til Akureyrar á haustdögum eftir síldar- sumar á Raufarhöfn, lá leiðin í Grænugötu. Skólinn var framundan. Petra amma sá til þess að drenginn hennar skorti nú ekkert og skóla- námið væri ástundað af reglufestu. Þvílík andstæða við sfldarbraggann: Hlýlegt og snyrtilegt heimilið þeirra afa og ömmu í Grænugötu, dýrlegt blómahaf, heklaðir dúkar á fínum mublum. Góðir dagar voru framund- an, dekraður af ömmu, afa og Jó- hönnu Helgu frænku. Petra amma var af þeirri kynslóð íslendinga sem lærði og kunni að meta þau hvers- dagsgæði að hafa nóg að bíta og brenna. Mikið lagði hún amma á sig við að fá sonarsoninn mjóa til að borða nú aðeins meira og betur. Það var henni í raun undrunar- og áhyggjuefni alía tíð að drengurinn hennar skyldi nú ekki vera dálítið holdugri. Oft hlógu þær mæðgur góðlátlega að stráknum, með hönd undir kinn, horfandi dreymnum aug- um útum eldhúsgluggann á meðan grauturinn kólnaði á diskinum. Þetta var fyrir daga sjónvarpsins. Þegar ekki viðraði til útileikja á Oddeyrinni, var gripið í spil og spjall- að í stofunni hjá afa og ömmu. Stundum var plötu brugðið á fóninn. Smárakvartettinn var vinsæll, og sérstaklega var hlustað eftir hljóm- mikilli bassarödd vinar þeirra og samstarfsfélaga, Magnúsar Sig- uijónssonar bólstrara. Þau kvöld eru notaleg í minningunni, þegar leiðin lá niður í Ægisgötu með afa og ömmu til Magnúsar og konu hans. Kvöldlangt sátu þau að spilum og spjölluðu. Strákur hlustaði á leikrit í útvarpinu, eða fylgdist með spila- ___________Brids______________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsdeild Barðstrend- ingafélgsins Dagana 14. og 15. maí sl. lauk vetrarstarfi deildarinnar með því að tekið var á móti spilurum úr V-Barða- strandarsýslu. Föstudaginn 14. var spilaður Mitchell-tvímenningur. 40 pör mættu. Úrslit: N/S ÆvarJónsson/JónGíslason _ 451 GunnarH.Einarsson/SigurbjömÁrm. 414 BjömBjömsson/LogiPétursson 400 A/V SigurjónHarðarson/GylfiÓlafsson 462 EmaHrólfsdóttir/JónðmÁmundason 448 Friðjón Margeirsson/V aldimar Sveinsson 438 Meðalskor 364 stig. Laugardaginn 15. maí var sveita- keppni, sem tilheyrir þessari heim- sókn. 9 sveitir kepptu frá hvorum aðila. Sunnanfólk vann að þessu sinni og vann til baka bikar þann sem þeir töpuðu á Patreksfirði í fyrra. Keppni þessari stjórnaði ísak Öm Sigurðsson en hún fór fram við mjög góðar aðstæður í Höfðakaffi, Vagn- höfða 11 og tókst í alla staði með ágætum. Við tökum okkur nú frí til hausts- ins. Öllum þeim sem þátt tóku í starfí deildarinnar eru sendar bestu sumar- óskir og þakkað samstarfið á liðnum vetri. mennskunni. Afí og Magnús tottandi vindla. Síðan var boðið góða nótt, hatturinn settur upp og gengið heim í Grænugötu hönd í hönd. Þegar skóla lauk á daginn, var gjaman farið niður í Kjarna, nýjustu tekkmublur stroknar, sófar og borð færð úr stað. Afí og amma tóku ljúf- lega á móti bæjarbúum og sveita- mönnum í leit að húsgögnum. Afí þekkti alla, stundum þriðja ættlið eða fjórða bara af svipnum. Peningar voru taldir oní lítinn kassa og bolsíur veiddar upp úr poka. Það var ekki lítils virði að vera treyst fyrir pening- um í bankanum. Afi fyllti út fylgiseð- ilinn og braut utan um seðlabúntið. Þétt var haldið um peningana og hlaupið norður Skipagötu, yfir Ráð- hústorg í Landsbankann. Það var alltaf ljúft að sendast fyrir afa og ömmu í Kjama, en aldrei var að fullu launuð góðmennska þeirra. Afi og amma voru alltaf að gefa. Ég held þeim hafi ekki þótt neitt skemmti- legra. Oft gaf afi ókunnum bömum peninga eða sælgætismola, bara af því að hann hafði gaman af þvi að gleðja. í jólaboðunum nutu sín vel kostir þeirra heiðurshjóna, gestrisni og hófsöm glaðværð. Og alltaf var gömlum sveitungum og vinum tekið fagnandi. Enginn fór svangur frá Petru ömmu. Nú hefur amma kvatt okkur. Ak- ureyri er breyttur bær. Bílastæði þar sem Kjarni var, engin blóm vaxa í steingráu Ráðhústorgi. Engin amma í Grænugötu 12. En sumarið er kom- ið fyrir norðan og lofar góðu. t Útför ástkærrar móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURRÓSAR JÓNSDÓTTUR fyrrv. hárgreiðslumeistara Þjóöleikhússins, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. maí kl. 13.30. Ragnhildur J. Siguröardóttir, Jes Einar Þorsteinsson, Guðrún Siguröardóttir, Magnús Einar Sigurðsson, Kicki Borhammar, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, UNA PÉTURSDÓTTIR frá Sauðárkróki, Kambsvegi 3, lést 23. maí á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Jarðarförin auglýst síðar. Unnur Ragna Benediktsdóttir, Olga de Lange, Hulda Levdahl. t Elsku litla dóttir okkar, systir og barnabarn, DAGNÝ ÚLFARSDÓTTIR, Laufvangi 3, lést 22. maí. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 27. mai kl. 13.30. Berglind Þorleifsdóttir, Úlfar Úlfarsson, Þorieifur Úlfarsson, Hrefna Einarsdóttir, Þorleifur Guðmundsson, Úlfar Garðar Randversson. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vin- áttu við andlát og útför elskulegrar systur okkar, GUÐRÚNAR INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR frá Asparvík. Systkini og fjölskyldur. t Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda sam- úð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ARNAR ALBERTS OTTÓSSONAR, Ólafsvík. Magnea Magnúsdóttir, Hrafn Arnarson, Hrönn Þórisdóttir, Helgi F. Arnarson, Gunnhildur Hauksdóttir, Kristinn Arnarson, Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir, Albert Arnarson, Sigurrós Úlla Steinþórsdóttir, Agnes Björk Helgadóttir, Berglind Helgadóttir, Daníel Kristinsson, Rakel Kristinsdóttir. Jón Níelsson og Petrea Jónsdóttir voru eyfirskt alþýðufólk, sem lifði umskiptin frá örbirgð til velsældar. Þau fóstruðu barnahópinn sinn á Árskógsströnd, lifðu og störfuðu á sjó og landi, en tóku sig upp á miðj- um aldri og fluttust inn á Akureyri og sköpuðu sér nýjan starfsvettvang með dugnaði, bjartsýni og í félags- skap við góða menn. Á langri ævi og farsælli eignuðust þau vísan stað í hug og hjarta samferðafólks. Bless- uð sé minning þejrra. Óðinn Jónsson. Yfirlitssýn- ing á listmun- um aldraðra FÉLAGS- og tómstundastarf fyrir aldraða er nú rekið á 13 stöðum í Reykjavík á vegum öldrun- arþjónustu borgarinnar. Mikill fjöldi aldraðra Reykvíkinga hefur sótt námskeið í félagsmiðstöðvun- um í hinum ýmsu greinum og má þar nefna m.a. myndlist, postul- ínsmálun, leðurvinnu, leirmuna- gerð, smíði, bókband, tau- og silkimálun og þannig mætti lengi telja. Ákveðið hefur verið að halda yfir- litssýningu á munum sem unnir hafa verið í vetur í Tjarnarsal Ráðhússins dagana 22. maí til 27. maí. Sýning- in verður opnuð kl. 14 laugardaginn 22. maí og mun þá kór SVR syngja fyrir gesti Ráðhússins en á sunnudag frá kl. 12 heldur sýningin áfram og kl. 14 þann dag verður danssýning fyrir gesti. Aðra daga verður sýningin opin á opnunartíma Ráðhússins frá kl. 8-22 og mun leikhópur aldraðra koma fram og kór félagsstarfsins syngja fyrir gesti. (Fréttatilkynning) Rauði Kross íslands og bndsbjörg, landssamband björgunarsveitu auglýso bér með eftir sjótfboðaliðum til að starfa ísérbæfðri BJÖRGUNAR- OG VIÐLAGASVEIT ICELANDIC DISASTER RELIEF UNIT Markmið sveitarinnar er að veita aðstoð ínafni mannúðar vegna náttúruhamfara á alþjóðavettvangi og með því móti öðlast þekkingu og reynslu sem nýtist til foivama og björgunaraðgerða hér á lanai. Stefnt er að því að ísveilinni verði í upphafi 12-24 þjólfaðir einstaklingar sem búa sameiginlega yfirþeirri þekkingu og reynslu sem nauðsynleg er ril slíkro starfa. leitoð er að; Verkfræðingum, Tæknifræðingum Tæknimönnum, Læknum Slökkviliðs- og sjúkraflutningsmönnum Björgunorsveitarfólki, Rauðakrossfólki Hjúkrunoifólki, Fjarskiptamönnum og öðrum þeim sem óhuga kunna að hafa. Umsóknum skal skila fvrir 18. júnínk. á þar til gerðum eyðublöðum sem fást afhent eoa póstsend frá skrifstofum samtakanna. Samtökin áskilja sér rétt til að velja einstaklinga úr hópi umsækjenda. + Rauði Kross Islands Rauðarárstlgur 18 Sfmi 91-626722 LANDSBJÖRG Landsbjargarhúsinu Stangarhyl 1 91-684040

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 116. tölublað (26.05.1993)
https://timarit.is/issue/125574

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

116. tölublað (26.05.1993)

Actions: